Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2012, Page 42
Í fullri vinnu en ná
ekki endum saman
42 Erlent 4.–10. apríl 2012 Páskablað
Milljarðamæringur á McDonald‘s
n Segist hafa unnið þann stóra í Mega Millions-lottóinu
M
irlande Wilson, 37 ára
bandarísk kona af haítískum
uppruna, datt heldur betur
í lukkupottinn um helgina.
Wilson keypti sér miða í bandaríska
Mega Millions-lottóinu í síðustu
viku og var hún í hópi þeirra sem
fengu fyrsta vinning. Hún fær í
sinn hlut ríflega hundrað milljónir
Bandaríkjadala, eða tólf og hálfan
milljarð króna.
Þó svo að flest bendi til þess að
Wilson fái vinninginn greiddan eru
nokkrir samstarfsfélagar hennar á
McDonald‘s ekki sáttir. Þeir halda
því fram að starfsmennirnir hafi allir
lagt saman í pott og Wilson einungis
verið fengin til þess að kaupa miðann
þótt hún hafi borgað í honum. Málið
hefur ekki verið útkljáð enda var
dregið í lottóinu um helgina.
Talið er að Bandaríkjamenn hafi
eytt 105 milljónum dollara, eða
13,3 milljörðum króna, í lottómiða
fyrir útdrátt helgarinnar. Þrír
skiptu vinningnum með sér en
sigurmiðarnir voru keyptir í Illinois,
Kansas og í Maryland þar sem
Mirlande Wilson er búsett.
Í samtali við The New York Post
sagði Mirlande að hún ætlaði sér
ekki að deila vinningnum með
vinnufélögum sínum á McDonald‘s.
„Ég var vissulega í hópi en ég
keypti þennan miða sjálf, fyrir
mína peninga,“ sagði Mirlande í
viðtalinu en hún er sjö barna móðir.
Þrátt fyrir allt þetta eru ekki allir
sannfærðir um að Mirlande hafi
í raun og veru unnið þann stóra.
Þannig segir Yohannes Michael,
starfsmaður 7-Eleven verslunar
þar sem miðinn var keyptur, að
upptökur úr öryggismyndavélum
bendi til þess að karlmaður hafi
keypt vinningsmiðann.
T
alið er að að minnsta kosti
120 þúsund Frakkar búi á
tjaldsvæðum víðs vegar um
landið. Melissa Dos Santos,
21 árs, er ein þeirra en hún
er aðeins ein af mörgum milljónum
Evrópubúa sem ná ekki endum sam-
an þrátt fyrir að vera í fullri vinnu.
„Ég ólst upp á stað þar sem ég hafði
þak yfir höfuðið. Að búa á tjaldsvæði
er ekki það sama,“ segir Dos San-
tos í samtali við bandaríska blaðið
The New York Times. Blaðið fjallaði
ítarlega á dögunum um stöðu hinna
svokölluðu vinnandi fátæku – fólks
sem vinnur fyrir sér en hefur samt
ekki efni á helstu nauðsynjum; mat,
húsnæði eða fötum.
Höfðu ekki efni á afborgun
Dos Santos býr í litlu hjólhýsi á tjald-
svæði í Bois de Vincennes, skammt
norður af París, en á svæðinu býr fólk
sem er í svipaðri stöðu og hún. Dos
Santos segir að hún hafi átt sér þann
draum að eignast litla íbúð sem
hún gæti búið í ásamt kærasta sín-
um, Jimmy Colin. Sá draumur varð
ekki að neinu þegar hún fékk vinnu
í verslun á lágmarkslaunum og hann
sem götusópari í París. Bæði höfðu
þau leitað að störfum sem gæfu
betur af sér en vegna ástandsins á
frönskum vinnumarkaði gekk það
illa.
Staðan í öðrum ríkjum evrusvæð-
isins er svipuð, ef ekki verri, en í
Frakklandi, að því er The New York
Times greinir frá. Og staðan mun
eingöngu versna, segja sérfræðingar.
„Fjöldi hinna vinnandi fátæku mun
þenjast út,“ segir Jean-Paul Fitoussi,
hagfræði prófessor við L’Institut d’Étu-
des Politiques-stofnunina í París. Eft-
ir efnahagshrunið 2008 og vandamál
evruríkja í kjölfarið hafa fjölmarg-
ar Evrópuþjóðir þurft að skera mik-
ið niður. Ein afleiðing þessa niður-
skurðar er sú að fjölmargir berjast um
sömu störfin og aukin eftirspurn fólks
eftir vinnu gerir að verkum að vinnu-
veitendur geta leyft sér að greiða lág-
markslaun – líkt og í tilfelli Dos Santos
og Colins.
Dos Santos og kærasti hennar fluttu
í hjólhýsið því þau höfðu ekki efni á að
greiða fyrstu afborgun af íbúðinni.
Mannauðsstjóri í húsbíl
Bruno Duboscq er 55 ára
mannauðsstjóri hjá litlu fyrirtæki
í miðborg Parísar. Hann býr í
húsbíl á sama stað og Dos Santos
og Colin. Hann flutti þangað fyrir
þremur árum þegar hann réð ekki
við afborganir af íbúð sinni í París.
Hann hafði engra annarra kosta
völ en að flytja. „Samstarfsfólki
mínu varð mjög brugðið þegar það
komast að því að ég byggi í húsbíl.
Það er orðið mun erfiðara að lifa
en áður.“ Hann segir þó að staða
hans sé miklu betri en hjá mörgum
öðrum, sér í lagi ungu fólki. „Það er
mikið af ungu fólki sem býr í bílum
sínum hérna á svæðinu. Þetta fólk
fær ekki vel borgað og þegar verð á
öllu hefur rokið upp verður staðan
bara erfiðari.“
Nágranni Duboscq er rafvirki að
nafni Jean. Jean vildi aðeins gefa
blaðamanni New York Times upp
millinafn sitt en hann flutti á svæðið
fyrir skemmstu eftir að hann gat ekki
staðið við afborganir af stúdíó íbúð
sinni í París. „Ekki í mínum villtustu
draumum hélt ég að ég myndi
enda hér,“ segir hann en hann er
atvinnulaus í dag. „Menn á mínum
aldri eiga erfitt með að finna starf.
Því miður er það raunveruleikinn
sem blasir við.“
Á tjaldsvæðinu Jean er 51 árs rafvirki. Hann er einn þeirra sem búa á tjaldsvæðinu í Bois
de Vincennes. Hinum vinnandi fátæku fjölgar hratt.
n 120 þúsund manns búa á tjaldsvæðum í Frakklandi
„Ég ólst upp á stað
þar sem ég hafði
þak yfir höfuðið. Að búa
á tjaldsvæði er ekki það
sama.
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Erfið staða Talið er að um 120 þúsund Frakkar búi á tjaldsvæðum víðsvegar um landið. Skuldavandi evruríkja hefur slæm áhrif víða.
Milljarðar Mirlande Wilson fullyrðir að hún hafi unnið þann stóra um helgina.
Samstarfsfélagar hennar á McDonald‘s vilja þó fá sinn hluta af vinningnum.
Eignaðist fjögur börn á flótta:
Fjölskylda
bin Ladens
fangelsuð
Þrjár ekkjur og tvær elstu dætur
hryðjuverkaleiðtogans Osama bin
Laden þurfa að sitja í fangelsi í
45 daga fyrir að hafa haft ólöglegt
aðsetur í Pakistan. Hverri og einni
þeirra er einnig gert að greiða
10.000 rúpíur, eða um 150.000
krónur, í sekt.
Konurnar hafa nú þegar setið
inni í mánuð en talið er að þær
verði fluttar úr landi eftir tvær
vikur. Ekki liggur fyrir hvert þær
verða sendar.
Konurnar hafa setið í gæslu-
varðhaldi pakistönsku lögreglunn-
ar alveg síðan sérsveit bandaríska
hersins drap hryðjuverkaleiðtog-
ann illræmda í maí.
Yngsta ekkja bin Ladens
greindi frá því í síðustu viku að
hún hefði fætt honum fjögur börn
á meðan þau voru í felum eftir
árásirnar á Tvíburaturnana. Hún
er frá Jemen en hinar tvær ekkj-
urnar eru frá Sádi-Arabíu.
Almennir borgarar enn í haldi:
Skæruliðar
slepptu
gíslum
Kólumbíska skæruliðahreyfingin
FARC sleppti aðfaranótt þriðju-
dags tíu gíslum en gíslarnir eru
úr hópi lögreglumanna og her-
manna. Sumir þeirra höfðu verið í
upp undir fjórtán ár í haldi skæru-
liðanna í frumskógum Kólumbíu.
Gíslunum var sleppt nærri
borginni Villavicencio fyrir milli-
göngu Rauða krossins. Þeir fengu
að hitta ástvini en eftir að gíslarnir
gengust undir læknisskoðun voru
þeir fluttir til höfuðborgarinnar
Bogota, þar sem fleiri vandamenn
biðu eftir þeim.
Einn gíslanna hafði með sér úr
prísundinni svokallað „capybara“,
sem er nagdýr sem lifir í frum-
skógum S-Ameríku.
Al Jazeera-fréttastofan hefur
greint frá því að FARC haldi einnig
almennum borgurum í gíslingu en
fjöldi þeirra liggur ekki fyrir. Talið
er að fjöldi þeirra geti verið frá
áttatíu til fleiri hundraða.
„Til allra þeirra sem unnu að
frelsun gíslanna, takk fyrir. Við
bjóðum þeim tíu frelsuðu vel-
komin en þau eru fórnarlömb um-
burðarleysis og grimmdar skæru-
liðanna,“ sagði forseti Kólumbíu,
Juan Manuel Santos. Santos segir
jafnframt að skæruliðar verði að
gera betur til þess að hægt verði
að hefja við þá friðarsamninga.
FARC hefur barist gegn stjórn-
völdum í Kólumbíu í yfir fimm
áratugi. Síðustu ár hefur dreg-
ið mjög úr baráttu skæruliða en
starfsemin einkennist aðallega af
mannránum og fíkniefnasölu.
Að minnsta kosti 39 meðlimir
FARC voru drepnir í mars í fyrra í
bardaga við kólumbíska hermenn.
Í nóvember í fyrra var svo leiðtogi
FARC, Alfonso Cano, 63 ára, drep-
inn af kólumbískum hermönnum.