Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2012, Qupperneq 44
44 Erlent 4.–10. apríl 2012 Páskablað
Forðast Ólympíuleikana
n Bretar bóka sumarfríið í kringum Ólympíuleikana í Lundúnum
F
jölmargir Bretar virðast ætla
að yfirgefa landið meðan á Ól
ympíuleikunum í Lundúnum
stendur í sumar. Samkvæmt
umfjöllun breska blaðsins The Daily
Mail hefur um þriðjungur Breta á
vinnumarkaði, eða um tíu milljónir
manna, bókað sumarfríið sitt með
an leikarnir standa yfir í sumar, en
þeir hefjast 27. júlí og lýkur 12. ágúst.
Gríðarlegur fjöldi aðkomufólks
mun koma til Bretlands meðan á
leikunum stendur en um er að ræða
langstærsta íþróttaviðburð ársins.
Talið er að um fimm hundruð þús
und manns komi til borgarinnar
vegna leikanna. Í könnun sem fyrir
tækið Travelx framkvæmdi fyrir
skemmstu kemur fram að tveir af
hverjum þremur sem ætla út fyrir
landsteinana hafi nefnt Evrópu
sem áfangastað sinn, en flestir virð
ast ætla að fara til Spánar. Og þegar
spurt var af hverju viðkomandi ætl
aði til útlanda svöruðu flestir því að
það væri til að forðast mannmergð
ina sem fylgir Ólympíuleikunum.
Áætlað er að um fjórar milljónir
Breta muni yfirgefa landið dagana
21. júlí til 26. júlí.
Þeir sem búa í Lundúnum eða í
nágrenni við borgina eru líklegastir
til að verða erlendis meðan á leikun
um stendur en þeir sem búa í Norð
urÍrlandi eða í Wales voru ólíklegri
en aðrir íbúar Bretlandseyja til að
halda utan. Þó svo að enn séu tæpir
fjórir mánuðir í að leikarnir hefjist
er nóg að gera hjá breskum ferða
skrifstofum. „Við merkjum meiri
ásókn í utanlandsferðir en áður.
Flestir virðast vilja fara til útlanda
meðan á leikunum stendur og sum
ir vilja fara eins langt og þeir geta,
til dæmis til Taílands eða Víetnam,“
segir Bridget Keevil, framkvæmda
stjóri Travel Stop, í samtali við The
Daily Mail.
H
ollensk hjón sem starfa fyrir
sendiráð Hollands í Hong
Kong hafa verið gagn
rýnd harðlega eftir að þau
settu ættleidda dóttur sína
í hendur félagsmálayfirvalda Hong
Kong. Hjónin ættleiddu stúlkuna,
Jade, frá SuðurKóreu árið 2004.
Stúlkan var einungis fjögurra mán
aða þegar þau fengu hana í hend
urnar og frá SuðurKóreu héldu þau
til Hong Kong þar sem stúlkan var
alin upp. Í desember síðastliðnum
greindu kínverskir fjölmiðlar frá því
að hjónin hefðu gefist upp á að ala
stúlkuna upp – rúmum sjö árum eft
ir að þau ættleiddu hana. Málið hef
ur vakið talsverða athygli í Hollandi
og víðar og vakið upp fjölmargar
siðferðislegar spurningar.
Með persónuleikaröskun
Faðir stúlkunnar heitir Raymond
Poeteray og eftir að málið komst í
hámæli í kínverskum fjölmiðlum
fóru fjölmiðlar í Hollandi að sýna
málinu áhuga. Í grein sem Poeteray
skrifaði í hollenska blaðið De Tele
graaf þann 13. desember síðastlið
inn reyndi hann að útskýra málið. Í
greininni segir hann að stúlkan hafi
átt í miklum erfiðleikum með að að
lagast fjölskyldunni. Hún hafi verið
greind með persónuleikaröskun og
átt í erfiðleikum með að tengjast for
eldrum sínum tilfinningaböndum.
Bandaríska tímaritið Time fjallaði
um málið á dögunum og þar var
meðal annars rætt við Rene Hoks
bergen, sérfræðing við Utrechthá
skóla, sem sagði að einkennin sem
Poeteray lýsti í grein sinni væru
raunar þekkt meðal ættleiddra
barna. Poeteray sagði í grein sinni
að þau hjónin hefðu sent stúlkuna
til sérfræðinga, en hegðun hennar
hefði ekkert breyst. „Eftir ráðlegg
ingar frá sérfræðingum varð niður
staðan sú að það væri henni fyrir
bestu að hún fengi nýtt heimili,“
sagði Poeteray.
Yfirklór, segir prófessor
Time ræddi við talsmann sendiráðs
SuðurKóreu í Hong Kong sem sagði
að stúlkan hefði ekki getað aðlagast
hollenskum siðum og venjum sem
foreldrarnir tíðkuðu þrátt fyrir að búa
í Hong Kong. Sérfræðingar sem Time
ræddi við telja þó að um yfirklór sé að
ræða. „Tilfinning mín er sú að þetta
sé afsökun,“ segir Law Chikwong,
aðstoðarprófessor í félagsfræði við
Hong Kongháskóla. Hann segir að
einkennin sem Poeteray lýsir í grein
sinni eigi ekki við börn sem ættleidd
eru þegar þau eru einungis nokkurra
mánaða gömul, eins og í tilfelli Jade.
„Þetta gerist bara þegar börn eru ætt
leidd þegar þau eru fimm eða sex ára.
Þetta gerist ekki með barn sem hefur
verið inni á sama heimilinu í nokkur
ár,“ segir hann og á þar við persónu
leikaraskanir ættleiddra barna.
Komin í fóstur
Kínverska dagblaðið The So
uth China Morning Post fjallaði
einnig um málið fyrir skemmstu
og ræddi við barnfóstru sem starf
aði á heimili hjónanna. Hún segir
að foreldrar hennar hafi í rauninni
lítið viljað með hana hafa. „Hún
var sjaldan í fangi móður sinnar.
Mér fannst líka skrýtið hversu þög
ul hún var ávallt.“ Í samtali við hol
lenska fjölmiðla segir önnur barn
fóstra að hjónin hafi aldrei komið
fram við stúlkuna sem sína eigin
dóttur. Eins og gefur að skilja er
ólöglegt að yfirgefa ættleidd börn
í Hong Kong en ef aðstæður eru
þannig að foreldrar séu ófærir um
að sjá um börn sín má setja þau í
hendurnar á félagsmálayfirvöld
um líkt og Poeteray og eiginkona
hans gerðu. Stúlkan er nú komin
til enskumælandi fósturfjölskyldu
og komin í skóla í Hong Kong.
„Hún er hamingjusöm og virðist
vera ósköp venjuleg ung stúlka,“
segir Fernando Cheung, lögfræð
ingur sem kemur að málinu fyr
ir félagsmálaráðuneytið í Hong
Kong. Hann segir að nú sé unnið
að því að finna varanlegt heimili
fyrir stúlkuna.
Ættleiddu stúlku
en skiluðu henni
n Stúlkan glímdi við persónuleikaröskun n Yfirklór, segja sérfræðingar
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Skiluðu stúlkunni
Raymond Poeteray
og eiginkona hans,
Meta, skiluðu stúlk-
unni sjö árum eftir að
þau ættleiddu hana.
Dóttirin Jade er nú komin í hendurnar á
fósturfjölskyldu á meðan unnið er að því að
finna henni varanlegt heimili.
Yfirgefa landið Fjölmargir Bretar vilja forðast mannmergðina sem fylgir Ólympíuleik-
unum. Margir hafa bókað utanlandsferð meðan á leikunum stendur. MYnD ReuteRS
„Hún var
sjaldan
í fangi móður
sinnar
Áhyggjufullir lögregluþjónar:
Rúða brotin
vegna bangsa
Tveir lögregluþjónar í Mansfield
á Englandi tóku enga áhættu
á dögunum þegar þeir fengu
tilkynningu um að hundur væri
nær dauða en lífi í bifreið sem
lagt var í bílastæði í borginni.
Vegfarendur töldu að hundurinn
væri við það að ofhitna en engir
gluggar voru opnir og auk þess
skein sólin í gegnum rúðurnar.
Lögreglumennirnir gerðu því það
eina rétta í stöðunni þegar þeir
brutu rúðu í bílnum og teygðu
sig í hvutta. Þeir urðu þó heldur
hvumsa þegar þeir komust að því
að hundurinn var í raun bangsi.
Eigandinn, Gordon Williams,
segir í samtali við breska fjöl
miðla að hann hafi verið undr
andi þegar hann kom að bifreið
inni en lögregluþjónarnir skildu
eftir miða sem á stóð: „Brutum
rúðuna. Höfðum áhyggjur af vel
ferð dýrs í aftursætinu.“ Lögreglan
í Mansfield hefur nú ákveðið að
bæta tjónið sem varð á bifreiðinni.
„Þeim hefur líklega liðið eins og
hálfgerðum kjánum eftir þetta,“
segir hann.
Notuðu iPhone
við björgun
Björgunarsveitarmenn í borginni
Mengzi í Kína notuðu iPhone til
að bjarga ungum dreng sem féll
ofan í brunn skammt frá heimili
sínu. Björgunarsveitir voru
kallaðar út þegar grátur drengsins
heyrðust frá botni brunnsins
og gengu björgunaraðgerðir
frekar hægt. Sérstökum búnaði
var slakað niður í brunninn en
drengurinn átti í erfiðleikum
með að ná góðu taki. Þá brá
einn á það ráð að setja iPhone
símann sinn á upptöku og slaka
honum niður í brunninn. Með því
móti sáu björgunarsveitarmenn
líkamsstöðu drengsins betur
og tókst að lokum að koma
björgunarbúnaðinum utan um
hann. Drengurinn var svo hífður
upp úr brunninum. Hann var
mjög skelkaður eftir veruna í
brunninum en að öðru leyti við
ágæta heilsu.
Kengúra
olli usla
Kengúra olli talsverðu fjaðra
foki á götum þýska bæjarins
Rotenburg á dögunum þegar
hún slapp úr sirkus sem komið
hafði við í bænum. Kengúran
hoppaði og skoppaði á milli
bifreiða og olli einhverju eigna
tjóni. Lögregla greip meðal
annars til þess ráðs að loka
götum á meðan reynt var að
ná kengúrunni. „Við náðum
að umkringja hana og vorum
við það að ná henni þegar hún
stökk yfir tálmana sem við sett
um upp,“ segir lögregluþjónn.
Dýraeftirlitsmönnum í sam
starfi við starfsmenn sirkuss
ins tókst þó að ná kengúrunni.
Hún er komin aftur í búrið sitt
og unir hag sínum vel, að sögn
starfsmanna.