Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2012, Síða 47
Dómstóll götunnar
Húsfélag Völu Matt
græddi 700 þúsund
Tískuhönnuðir
eru lummó
Tek einn
dag í einu
Maríanna Friðjónsdóttir. – DVJón Gnarr, borgarstjóri á RFF. – DVMagnús Sigurbjörnsson vann Mottumars. – DV
Krónutollur á pollagalla og allt hitt
„Nei, ég slapp alveg við það.“
Lára Jóhannsdóttir
16 ára nemi
„Nei, ég var algjörlega laus við
það.“
Björn Ármann Júlíusson
23 ára háskólanemi
„Nei, ég passa mig alltaf.“
Unnþór Jónsson
25 ára laganemi
„Nei, ég var ekkert plötuð.“
Sara Sif Skúladóttir
13 ára nemi
„Nei, ég var bara heima að horfa
á mynd og var ekki plötuð.“
Snæfríður Ebba Ásgeirsdóttir
13 ára nemi
Hljópst
þú apríl?
Fólkið í teygjugöllunum
S
íðustu ár hefur sífellt
fjölgað fólki sem hleypur
um, klætt í teygjubuxur.
Núorðið skiptir ekki
máli hvert er litið. Joggandi
teygjubuxnafólk með dúandi
hold ber við augu hvert sem
litið er. Nýlega sást meira að
segja teygjubuxi á kaffihúsi.
Hann keypti reyndar ekki
neitt.
Tilgangur teygjubuxnanna
er mörgum ráðgáta. Helsta
sérkenni buxnanna er að þær
undirstrika fínustu blæbrigði
allra líkamshluta þeirra, þar
sem þær herpast um lend-
arnar og lærin. Kannski er til-
gangurinn að eggja aðra?
Önnur skýring er senni-
legri. Teygjubuxunum fylgir
oft teygjubolur. Fötin eru
straumlínulöguð, að því er
virðist til að tryggja að fólkið
kljúfi loftið með lágmarksmót-
stöðu þar sem það ferðast eftir
malbikuðum gangstígum. En
allir vita að það er enginn asi á
fólkinu í teygjubuxunum. Það
sprettur ekki, heldur joggar
seigfljótandi í hægðum sínum,
oft ótrúlegustu vegalengdir.
Ekkert bendir til þess að til-
gangurinn sé að ná sem mest-
um hraða.
Ef það vill létta sér lífið og
takmarka erfiðið væri ef til vill
skynsamlegra af því að ganga?
Eða hlaupa styttra? Eða keyra?
Nei, það er nefnilega ekki hug-
myndin að auðvelda sér ferð-
ir. Það er líka vitað að þetta
hleypur gjarnan til að brenna
hitaeiningum, eftir að það
hefur borðað of mikið. Sumt
hleypur til að auka þolið til
að geta hlaupið meira. En að
öllu þessu athuguðu er ennþá
ráðgáta hvers vegna fólkið í
teygjubuxunum ætti að gera
sig straumlínulagað til að
kljúfa loftið og lágmarka erf-
iðið. Það hleypur einmitt til að
gera ferðir sínar erfiðari. Þess
fyrir utan væri engin skiljanleg
ástæða til að kljúfa loftið þegar
fólkið í teygjubuxunum hleyp-
ur á staðnum, á hlaupabretti í
World Class.
Kannski er fólkið í teygju-
buxum vegna þess að þær
anda svo vel og eru svo þægi-
legar. En hvers vegna er fólkið
þá bara í teygjugöllunum þeg-
ar það hleypur? Af hverju ekki
að fara í teygjubuxum í vinn-
una, og í bíó og messu? Hvers
vegna bara að vera í þægilegu
buxunum sínum þegar maður
hleypur á göngustígum með-
fram umferðargötum, en ekki
í Bónus og Kringlunni og á
kaffihúsi?
Það er engin ástæða til að
sleppa því að vera í þægi-
legum fötum sem anda vel,
kljúfa loftið og eru eggjandi í
ofanálag.
Svarthöfði
I
nnkaupalisti fyrir helgina.
Pollagalli í stærð 92,
kuldagalli í stærð 130, af-
mælisgjöf fyrir sex ára,
sokkabuxur stærð L, 5 pör
svartir herrasokkar, stærð 42.
Matur fyrir vikuna og páska-
egg.
Mér finnst gaman að
versla, það má klína því á
kyn mitt, aldur, skóstærð eða
hvað sem er, mér er nokk
sama. Mér finnst gaman
að skoða fallegar vörur og
kaupa góðan mat ofan í fólk-
ið mitt. Ég veit, ég er ekki ein.
Síðustu árin hafa laun-
in mín hækkað í krónutölu
svo ég ætti að vera kampa-
kát út í búð að versla í hvert
sinn sem ég fæ tækifæri til,
en því miður hafa launin
mín í raun lækkað. Frá upp-
hafi hefur hver króna tapað
verðgildi sínu árlega og
krónan er nú miklu minna
virði en hún var fyrir nokkr-
um árum. Krónulaunin mín
hafa þannig lækkað í virði en
ekki hækkað þó upphæðin á
launaseðlinum sýni annað.
Það sem eitt sinn var
ágætis helgarsport – að
kaupa inn nauðsynjar er nú
orðið einskonar leikhús fá-
ránleikans, verðið hækkar og
hækkar og launin mín verða
alltaf minna og minna virði.
Í hvert sinn sem ég stend
við kassann í Krónunni og
bíð eftir síðasta pípinu í
verð skannanum og þess að
afgreiðslumaðurinn beri upp
óumflýjanlegan úrskurð, fæ
ég sting í magann. 25.490
krónur, gjörðu svo vel. Fjórir
plastpokar, skorið við nögl.
Matur hefur hækkað um 30%
á síðustu fjórum árum, á
sama tíma hækkaði hann að-
eins um 6% á evrusvæðinu.
Þegar ég stíg inní fata-
verslun og lít á verðmiðann
líður mér eins og einhver
grínisti hafi fengið verð-
merkingabyssuna og sitji nú
skellihlæjandi út í horni á
meðan við borgum fárán-
lega háa upphæði án þess
að hafa nokkuð um það að
segja. Útivistargalli á barn
16.590, pollagalli á smábarn
9.900, sokkabuxur 4.950. En
því miður datt þetta verð
ekki af himnum ofan, verð á
fatnaði og skóm er um 31%
hærra í dag en fyrir fjórum
árum en föt hafa hins vegar
lækkað um 8% í verði í evru-
ríkjunum.
Svo má lengi halda áfram.
Munurinn á þeim sem búa
við evru og okkur er að gjald-
miðillinn þeirra var ekki
gengisfelldur líkt og hér
og íbúar evruríkjanna eru
þannig með laun sem hafa
ekki misst virði eins og okkar
krónulaun.
Húsnæðislánin á Íslandi
kosta okkur í flestum til-
fellum mörgum milljónum
meira en það kostar þá sem
taka lán að sömu upphæð
á evrusvæðinu. Verðtryggð
króna, króna í gjaldeyris-
höftum, króna í frjálsu falli,
verðlaus króna, króna sem
engir aðrir en Íslending-
ar vilja eiga viðskipti með.
Krónan sem við borgum sér-
stakan krónutoll fyrir í hvert
sinn sem einhver sveifl-
ar kortinu okkar í gegnum
kortavélina, um 30% tollur
út í bláinn, til einskis.
Ég tók saman innkaupa-
listann frá síðustu helgi og
bar saman hvað ég borg-
aði í Krónunni og hvað ég
hefði borgað í evruríki,
niðurstaðan er vægast sagt
grátleg eins og sést á með-
fylgjandi töflu.Ef ég væri í
evruríki hefði ég átt auka
15.000 krónur í veskinu eftir
helgina, en þær fóru í krónu-
tollinn. Hvað borgaðir þú
margar krónur aukalega síð-
ustu helgi?
Ef Íslendingar ganga í
Evrópusambandið gefst
þeim tækifæri til að taka upp
evruna og bæta kjörin fyrir
neytendur á Íslandi svo um
munar. Það er mikilvægt að
tryggður verði góður samn-
ingur á öllum sviðum. En
það er lífsnauðsynlegt fyrir
fjölskyldurnar og fyrirtækin
í landinu að evran verði sem
fyrst nýr gjaldmiðill Íslend-
inga, eins og dæmin sýna.
Evran er langskynsamlegasti
kosturinn í stöðunni, enda
eigum við allra mest við-
skipti við ríki Evrópusam-
bandsins.
Tölurnar eru byggðar á
samræmdri vísitölu neyslu-
verðs sem Hagstofa Íslands
tók saman fyrir Já Ísland.
Blessuð blíðan Vorið er á næsta leiti og óhætt að segja að íbúar höfuðborgarsvæðisins hafi fengið smjörþefinn af því á þriðjudag. Þessar dömur nutu að minnsta kosti
sólarinnar við Höfða. Mynd Eyþór ÁrnasonMyndin
Umræða 47Páskablað 4.–10. apríl 2012
1 Einar var rekinn úr Hells Angels Einar „Boom“, fyrrverandi
forseti samtakanna á Íslandi segist
sjálfur hafa hætt.
2 „Það er mjög súrrealískt að horfa á hann“ Bandarískur karl-
maður sem slasaðist alvarlega árið 1997
hefur fengið nýtt andlit, tennur, tungu
og kjálka í viðamikilli andlitságræðslu.
3 Varð óvænt ófrísk Fjölmiðla-konan Þóra Sigurðardóttir segir frá
barneignum í viðtali við DV.
4 Sagði vinkonum sínum leyndarmál – „Ógeðslegt
um pabba sinn“ Héraðsdómur
Vesturlands dæmdi karlmann í fjögurra
ára fangelsi fyrir gróft kynferðisofbeldi
gegn ellefu ára dóttur sinni.
5 Bubbi nefnir ekki bjargvætt sinn Starfsmaður Glitnis ráðlagði
Bubba að taka ekki hlutabréfalán.
6 Blóðugur hundur fór í barnavagn í Grafarvogi Tveir
stórir hvítir hundar höfðu áður ráðist
á kött með þeim afleiðingum að hann
drapst.
7 Sýndi ábyrgð en var rekinn Benedikt var sagt upp hjá Íslandspósti
í janúar.
Mest lesið á DV.is
Krónan/evran
Ísland Evruríki
Pollagalli 9.900 8.269
Kuldagalli 16.590 13.856
Afmælisgjöf 8.000 5.816
Matur 25.490 18.638
Sokkabuxur 4.950 4.136
Sokkar 2.590 1.846
samtals 67.520 52.561
Mismunur: 14.959 kr.
UPPhæðir ErU Í krónUM
Kjallari
Bryndís Ísfold
Hlöðversdóttir