Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2012, Síða 49

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2012, Síða 49
„Ég er lukkunnar pamfíll“ Viðtal 49Páskablað 4.–10. apríl 2012 Til samans eig- um við tólf barna- börn. Allir með tíu putta og tíu tær. Við erum mjög lánsöm,“ segir hún brosandi. Illa við að láta vorkenna sér Valgerður segist þó vissulega hafa fundið fyrir því eft- ir öll áföllin, og sér- staklega eftir að Vil- mundur dó, að fólk var að pískra sín á milli þegar það sá hana. Henni fannst óþægilegt að vita til þess að fólk vorkenndi henni. „Fyrst eftir að þetta gerðist voru allir að pæla í þessu. Maður labbaði kannski inn á veitingastað og sá að fólk var að tala sín á milli: æ, hún greyið. Ég held að það sé með mig eins og flest fólk að ég vil ekki láta vorkenna mér. Það hefur mér alltaf fundist vont. Því má vera illa við mig en ekki vorkenna mér,“ segir hún. Valgerður ákvað því á sínum tíma, þegar til hennar var leitað, að veita tímaritinu Mann- lífi, sem þá var nýstofnað, viðtal. Þetta var fyrsta við- talið eftir fráfall Vilmundar og hún segir mikinn létti hafa fylgt því að opna sig þó hún viti varla enn hvað varð til þess að hún ákvað að gera það. „Herdís Þorgeirsdóttir, sem upp úr því varð mikil vinkona mín, tók við mig forsíðuviðtal. Þetta var árið eftir að Vilmundur dó. Ég veit ekki hvað fékk mig til þess að fara í viðtalið en ég gerði það. Þar spurði hún opinskátt út í þetta og einhver kallaði þetta fífldjarft. Það losaði mjög um fyrir mig og þetta var mikill léttir. Þá þurfti fólk ekki að pæla meira í þessu.“ Mikill Evrópusinni Frá þessum tíma hefur mikið vatn runnið til sjávar. Eftir fráfall Vil- mundar kynntist Valgerður núver- andi eiginmanni sínum, Kristófer Má Kristinssyni. Þau kynntust upp- haflega í Bandalagi jafnaðarmanna. Seinna þegar Valgerður var orðin ekkja kviknaði ástin á milli þeirra. „Kristófer var í Bandalagi jafnaðar- manna sem Vilmundur stofnaði. Hann fór í framboð á Vesturlandi og var varaþingmaður. Svo var það ‚85 sem það breyttist úr vinskap í eitt- hvað annað. Við giftum okkur ekki fyrr en ‚96 en þá höfðum við búið saman í yfir 10 ár.“ Þau Kristófer voru búsett í Brus- sel í fimmtán ár. Þar af vann hún fyrir EFTA í átta ár. Hún hefur mik- inn áhuga á Evrópumálum og hefur talað fyrir því að Ísland gangi í Evr- ópusambandið. „Ég er mikill Evr- ópusinni og vil gjarnan að við för- um þangað. Ég er þeirrar skoðunar að til þess að lítil þjóð eins og Ísland komist vel af þá þurfum við að gera það í samvinnu við aðrar þjóðir. Við þurfum að taka fullan þátt í slíku samstarfi,“ segir hún ákveðin. Á besta bróður í heimi Bróðir Valgerðar er þingmaðurinn fyrrverandi Björn Bjarnason sem margoft hefur lýst yfir vandlætingu sinni á Evrópusam- bandinu. Hvernig eru samskipti systk- inanna, er mikið rif- ist um Evrópusam- bandið? „Nei, alls ekki,“ segir hún hlæjandi. „Ég hef nú sagt það áður að ég á besta bróður í heimi en við erum ósam- mála í pólitík en svo eru aðr- ir hlutir sem við erum sammála um. Það er nú ekkert verið að ræða stjórnmál neitt sérstaklega í fjölskylduboð- um. Við erum ekki alltaf sam- mála og auðvi- tað höfum við vit á því þegar við hitt- umst að vera ekki að rífast um það. Svo er það nú þannig að ég er komin yfir sextugt og er nú kannski ekk- ert alltaf með bróður mínum. Við erum ekk- ert að borða hjá hvort öðru alla sunnudaga,“ segir hún í gamansöm- um tón. Lyfjafræðingar vildu viðskipta- fræðinginn burt Þegar Valgerður flutti heim frá Brussel fékk hún vinnu hjá Land- spítalanum. „Það var þannig að ég var búin að vera öll þessi ár í út- löndum. Ég kom heim og sá þessa auglýsingu þar sem var auglýst eft- ir framkvæmdastjóra Sjúkrahúsapóteks- ins en ég hafði þá ekki hugmynd um hvað það væri. Ég fékk starfið en það vakti ekki mikla kátínu hjá lyfjafræðing- um sem kærðu sig ekki um að við- skiptafræðingur sinnti starfinu. Það var svolítil barátta. Ég átti mjög gott samstarf við þá sem unnu með mér en Lyfjafræðingafélagið og fleiri voru á því að koma þessum við- skiptafræðingi burt. Það tókst að lokum að koma mér í burtu. Það var stofnað lyfjasvið og ég var sett yfir það, en það mátti ekki heldur. Þá var ég gerð að forstöðumanni yfir innkaupasviði Landspítalans,“ segir Valgerður sem gegndi starfinu þar til hún fór á þing 2009. Hún er í fjögurra ára fríi frá starfinu, nokk- uð sem starfsmenn hins opinbera eiga rétt á, og hún getur því snúið til baka á Landspítalann að fjórum árum liðnum, kjósi hún það. Erfitt að fá vinnu eftir sextugt Það er hins vegar ekki á áætluninni að snúa aftur á spítalann. Hún kann nefnilega vel við sig á þingi og vill komast aftur á þing í næstu kosn- ingum. „Ég ætla allavega að sækj- ast eftir því, við sjáum bara hvern- ig það fer,“ segir hún. „Þetta er samt mitt öryggisnet og það er gott að vita af því að ég er með vinnu ef ég kemst ekki aftur inn. Ég veit hvað það er erfitt að fá vinnu þegar mað- ur er kominn yfir sextugt,“ segir Val- gerður en hún þekkir það í gegn- um eiginmann sinn að það er ekki auðvelt að vera á vinnumarkaðnum eftir sextugt. „Ég segi bara eins og Valgeir Guðjónsson sagði í viðtali: Það er ekki auðvelt að vera sextug- ur og reyna að fá vinnu,“ segir hún og á við viðtal sem birtist við Val- geir í DV í janúar. Kristófer er kenn- ari en hefur ekki starfað sem slíkur í lengri tíma. Þegar hjónin fluttu heim frá Brussel fór hann í Háskóla Íslands. Þegar hann útskrifaðist var hins vegar ekki um auðugan garð að gresja í atvinnumálum. Hann hefur verið að kenna í Ferðamála- skólanum í kvöldkennslu, svo hefur hann verið leiðsögumaður og tekur nokkrar svona hringferðir á sumr- in. Hann ætlaði kannski að fara að kenna aftur en fékk þá enga vinnu. Kjarasamningar kennara eru þann- ig að ef þú ert kominn yfir sextugt þá hafa þeir svo litla kennsluskyldu. Það er svo dýrt að fá þannig starfs- kraft inn þannig að það er frekar ráðinn einhver yngri. Þetta er auð- vitað góður samningur fyrir þá sem hafa kennt lengi en ekki fyrir þá sem reyna að koma inn aftur.“ Gaman að vera ráðherra Aftur yfir í stjórnmálin sem eiga hug hennar allan. Langar hana að feta í fótspor föður síns og spreyta sig á ráðherraembætti komi það til greina? „Ég þykist viss um að það er gaman að vera ráðherra. Ég myndi ekki vilja vera ráðherra bara til þess að vera ráðherra heldur til þess að koma því að sem þú vilt og þarft að koma að. Sem ráðherra ertu í betri stöðu til þess að koma hlutum að heldur en ef þú ert þingmaður. En mér finnst líka skipta miklu máli að það breytist og að þingið hækki í sessi og verði meira mótvægi við framkvæmdavaldið.“ Hún hefur beitt sér fyrir auknu vægi þingsins sjálfs. „Ég hef til dæm- is á hverju þingi sem ég hef setið lagt fram frumvarp um það að ráðherrar verði að segja af sér þingmennsku ef þeir verða ráðherrar, eða réttara sagt að þeir fái að taka sér leyfi. Það er ekki hægt að neyða þá til að segja af sér ef það er ekki í stjórnarskrá en þeir sem vildu gætu tekið sér leyfi. Eins og þetta er í dag þá geta þeir sagt af sér þingmennsku, en ef eitthvað gerist, til dæmis ef það verða breyt- ingar á stjórnarsamstarfinu þá eru þeir ekki með neitt starf lengur.“ „Maður lítur bara á björtu hliðarnar á lífinu og heldur áfram „Viðhorf þeirra til valdsins er „krítík“- laust. Þeir telja það vera sitt og engra annarra. Litla fjölskyldan Valgerður og Vilmundur með frum-burðinn Benedikt. Öll fjölskyldan Þessi mynd er tekin þegar Val- gerður og Kristófer giftu sig árið 1996. Hér e ru þau með börnum og barnabörnum þeirra begg ja. Hjónin Valgerður og Kristófer saman á ferðalagi í kringum aldamótin. Systkinin Guðrún og Baldur Hrafn eru þau börn V algerðar og Vilmundar sem lifðu.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.