Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2012, Síða 55

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2012, Síða 55
Viðtal 55Páskablað 4.–10. apríl 2012 á við þarf hann að vera góður málsvari. Hluti af hans ábyrgð er svo að vera öryggisventill – 26. grein stjórnarskrárinnar er virk, á því leikur enginn vafi. Því valdi fylgir mikil ábyrgð, það er grafalvarlegt að grípa fram fyrir hendurnar á löggjaf- arvaldinu. En þjóðin þarf að geta treyst því ef til þess kemur að hann geti og þori að taka af skarið ef slíkar aðstæður skap- ast. Ég myndi ekki skorast und- an þeirri ábyrgð.“ Þarf enga glansmynd Hvað varðar kynningu lands- ins út á við segir Þóra að það þurfi ekki að draga upp glans- mynd af íslenskum veruleika. „Það er svo margt sem við get- um verið stolt af. Fyrir hvað stendur Ísland í augum um- heimsins? Tökum dæmi: Hér eru þrír háskólar Sameinuðu þjóðanna: Sjávarútvegsskól- inn, Jarðhitaskólinn og Land- græðsluskólinn og ekki síður mikilvægur er Jafnréttisskólinn sem fer vonandi undir þennan hatt á næstu árum. Mér finnst þetta endurspegla ágætlega það sem við stöndum fyrir, það þarf varla að nefna augljósa hluti eins og náttúruna, öflugt og skapandi mannlíf og menn- ingu.“ Er góð í því að eignast börn Sonur Þóru og Svavars kemur inn í eldhús og leitar að ein- hverju góðgæti til að maula. Hann er í ósamstæðum sokk- um og stendur sposkur í dyra- gættinni. Þóra brosir þegar hún sér hann. „Dóri hefur ekki farið í samstæða sokka síðan hann var tveggja ára. Prinsipp- mál hjá honum. Þetta er bara sérviska sem mér dettur ekki í hug að skipta mér af. Í upp- eldinu gildir að velja réttu orr- usturnar. Þetta hentar mér líka ágætlega, ég þarf ekki að snúa saman pör,“ segir hún og hlær. Þóra og Svavar njóta sín í foreldrahlutverkinu og þau leggja sig fram um að hafa skemmtilegt og hlýlegt and- rúmsloft á heimilinu „Ég held að ég sé ágæt móðir – eins og flestum foreldrum finnst mér ekki til merkilegri verur á þess- ari jörð en börnin mín. Við reynum einfaldlega að kenna þeim góða siði og njótum þess að vera með þeim.“ Þóra og Svavar eiga von á sínu þriðja barni í kringum 8. maí. Í allri sinni umhugsun segir hún þau hafa skoðað um- ræðuna um barneignir fólks í ábyrgðarstöðum. „Maðurinn sem er forsætisráðherra í einu öflugasta ríki heims eignaðist barn örfáum mánuðum eftir að hann tók við embætti. Það þótti ekki tiltökumál og var ekki tal- ið draga úr hæfni hans, hvorki sem forsætisráðherra né föður. Þetta er David Cameron, for- sætisráðherra Bretlands. For- veri hans í embætti gerði reynd- ar slíkt hið sama. Ég minnist þess síðan ekki að nokkur mað- ur hafi minnst á það þegar Bjarni Benediktsson var endur- kjörinn formaður Sjálfstæðis- flokksins að hann væri nýbú- inn að eignast sitt fjórða barn. Enginn spurði hann: Hvað ertu að hugsa maður?“ segir hún og skellihlær. „En ég er kona og konur og karlar eru ekki eins. Það er álag að ganga með og eignast barn. En ég er mjög heppin, er góð í því að eignast börn,“ segir hún og hlær. „Þess utan þá á barnið pabba. Alveg sérstaklega góð- an pabba. Þá eigum við mjög þéttriðið net vina og fjölskyldu sem er tilbúið að hjálpa til og knýr á um að við förum að gera upp hug okkar. Þau eru farin að undirbúa allt.“ Dagarnir eru púsluspil Þegar rætt er um mögulegt framboð Þóru er iðulega tal- að um barnafjöldann og stærð fjölskyldunnar. „Dætur hans Svavars voru mikil meðgjöf með honum því þær eru al- veg einstakar. Sjáðu bara,“ segir Þóra og bendir á ferm- ingarstúlkuna sem stendur við veisluborð og spjallar við gestina. „Þær tóku sérlega vel á móti mér frá fyrstu tíð – þá voru þær nýorðnar fimm, sex og sjö ára. En til að fyrirbyggja allan misskilning, þá vil ég taka fram að þær eiga heimili hjá móður sinni í Kópavoginum, þar ganga þær í skóla og eiga sitt félagslíf. Þær hafa verið hjá okkur aðra hverja viku frá mið- vikudegi til mánudags en nú þegar þær eru komnar á ung- lingsaldurinn þurfa þær enn frekar á henni að halda. Þann- ig er það á þeim aldri. Þær eru afskaplega heppnar að eiga tvö ástrík heimili. Þetta eru bestu stóru systur sem hægt er að hugsa sér og þau systkinin eru mjög náin. En við erum ekki með fimm börn á heimilinu alla daga.“ Hún segir púsluspilið sem fylgi því að reka stóra fjölskyldu hafa gengið upp hingað til. „Ég lifði ekki glæstu sjón- varpsstjörnulífi. Barnshafandi í baráttu Góð í því að eignast börn „En ég er kona og konur og karlar eru ekki eins. Það er álag að ganga með og eignast barn. En ég er mjög heppin, er góð í því að eignast börn,“ segir hún og hlær. „Þess utan á barnið pabba. Alveg sérstaklega góðan pabba.“ „Ég sé fyrir mér manneskju sem ýtir undir sátt.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.