Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2012, Page 56
56 Viðtal 4.–10. apríl 2012 Páskablað
„Það er ekkert launungarmál
að dagarnir eru púsluspil. En
þannig er það hjá öllum fjöl-
skyldum. Þeir sem hafa lýst
áhyggjum af því að ég gæti
ekki sinnt embættinu vegna
þess að ég á lítil börn gleyma
því ef til vill að foreldrar ungra
barna á Íslandi þurfa einfald-
lega að vinna mikið til að fram-
fleyta sínum fjölskyldum. Mig
grunar að börnin fengju jafn-
vel meiri tíma með foreldr-
unum, þegar faðir þeirra væri
orðinn heimavinnandi. En það
er sjálfsagt að ræða þetta, það
þarf alltaf að gera það þegar
eitthvað nýtt bregður við. Ég
man til dæmis vel eftir um-
ræðunni sem varð þegar Þor-
gerður Katrín Gunnars dóttir
eignaðist barn á ráðherrastóli.
Þá þótti það nýlunda og sum-
um fannst þetta hreint ekkert
sniðugt. Svo þegar það gerð-
ist næst þá var fólk orðið vant
hugmyndinni svo barneign-
um þeirra Katrínar Jakobsdótt-
ur og Katrínar Júlíus dóttur var
tekið sem sjálfsögðum hlut.
Hvað er eðlilegra en að eign-
ast börn? Það sem er óeðlilegt
er að útiloka konur á barn-
eignaraldri frá ábyrgðarstöð-
um í samfélaginu. Mér verð-
ur stundum hugsað til níunda
áratugarins og breytinganna
sem þá urðu. Vigdís Finnboga-
dóttir varð fyrsta konan til að
ná kjöri sem þjóðhöfðingi í
lýðræðislegum kosningum og
hefur æ síðan verið fyrirmynd
um allan heim. Skömmu síð-
ar tók 34 ára borgarstjóri við
völdum í Reykjavík, 39 ára
maður varð svo forsætisráð-
herra og svo framvegis. Núver-
andi menntamálaráðherra var
líka 34 ára þegar hún tók við
embætti, iðnaðarráðherrann
ári eldri. Kynslóðaskipti koma
oft í bylgjum. Kannski eru slíkir
tímar að renna upp á ný. “
Hefur ekki fyrirgefið
Ólafi Ragnari
Móðir Þóru, Nína, kemur inn
í eldhús og sest niður með
kaffibollann. „Þóra mín verð-
ur góður forseti, segir hún og
fær sér kaffisopa. „Hún getur
allt hún dóttir mín og verður
allt öðruvísi forseti en Ólafur
Ragnar. „Við kennarar gleym-
um engu,“ segir hún og vísar í
það þegar Ólafur Ragnar beitti
bráðabirgðalögum á kennara
fyrir meira en áratug. „Ég hef
aldrei fyrirgefið honum þetta,“
segir hún. „Þetta myndi Þóra
aldrei gera,“ segir hún og hlær
og Þóra tekur undir.
„Ég spurði hana Þóru hvort
hún myndi ekki örugglega
bæði gera gagn og hafa gaman
og hún lofaði því,“ segir móðir
hennar. „Hún kann að velja sér
orrustur,“ bætir hún við með-
an Dóri litli þýtur inn í eldhús í
ósamstæðum sokkum.
Svavar kemur og hellir upp
á meira kaffi og bræður Þóru
fá loksins að stíga inn í eldhús
án þess að þeim sé bandað út.
Á miðvikudaginn ætlar Þóra
að eiga orð við þjóðina og það
eru meiri líkur en minni á því
að hún taki af skarið og bjóði
sig fram til forseta.
„Það sem er
óeðlilegt er
að útiloka konur á
barneignaraldri frá
ábyrgðarstöðum í
samfélaginu.
Barnshafandi í baráttu Í dag, 4.apríl,
ætlar Þóra að eiga orð við þjóðina og það
eru meiri líkur en minni á því að hún taki af
skarið og bjóði sig fram til forseta.
Myndir úr lífi Þóru
Ástfangin og innileg Þau Þóra og
Svavar eiga blómstrandi fjölskyldu.
Með Nínu og Dóra Þóra á leið
heim úr leikskólanum með harðjaxl-
inn sinn Nínu þegar hún var tveggja
ára og Dóra litla sem vill aldrei
klæðast samstæðum sokkum.
Fagnað í héraðsdómi Svavar Halldórsson maður Þóru var sýknaður í Héraðsdómi Reykjanes
s, fyrir fréttaflutning af
fjármálum Pálma Haraldssonar, og Þóra gefur Svavari koss.