Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2012, Síða 78
78 Lífsstíll 4.–10. apríl 2012 Páskablað
Rómantík á páskunum
n Sniðug leið til að koma makanum þínum á óvart
V
iltu gera eitthvað sérstakt
fyrir ástina þína um
páskana? Langar þig að
vera einstaklega rómantísk/
ur? Hér er gott ráð um hvernig þú
getur komið elskunni á óvart með
frumsömdu ljóði, ástarorðum eða
skartgrip á frumlegan hátt.
Þú byrjar á því að kaupa
lítið páskaegg númer 1; þetta í
álpappírnum. Taktu varlega utan
af egginu og passaðu að rífa ekki
pappírinn. Kljúfðu eggið í tvennt
með beittum hníf, gott er að hita
hann aðeins fyrst. Því næst tekur þú
sælgætið sem er inni í því og skiptir
út fyrir litla ástarjátningu, hring eða
hvað sem þér dettur í hug.
Þegar þú hefur skipt sælgætinu
út fyrir það sem þú vilt gefa þá hitar
þú hnífinn aftur og bræðir með
honum endana og límir þannig
eggið saman á ný.
Að lokum vefur þú egginu varlega
aftur í álpappírinn og gefur ástinni
þinni það.
Opnunartímar
mán–fim 8.00 - 18.00
föst 8.00 - 19.00
laugardaga 10.00 - 13.00
Þekking
gæði Og
Þjónusta
Léleg tækni Þú getur
auðveldlega slasað þig ef
þú notar ekki rétta tækni þegar þú
lyftir. Að ætla að styrkja sig er eitt
og að byggja upp vöðva er annað –
að gera bara eitthvað er bilun.
Öskur Býrðu í helli? Ef lóðin
eru of þung fyrir þig
skaltu bara leggja þau
frá þér.
Símanotkun
Margir hlusta á
tónlist í gegnum
iPhone en að fylgjast með
öðrum tölta á brettinu og hanga í
símanum á meðan þú bíður eftir
tækinu er ekki skemmtilegt.
Myndataka Fátt er
kjánalegra en að sjá stráka
mynda sig með hnyklaða
vöðva eða stelpur setja upp stút á
varirnar áður en þær smella af. Jú,
eitt – að biðja einhvern annan að
taka myndina.
Fötin Fólk sem mætir
í ræktina í öðru en
íþróttafötum lítur jafn illa út og það
lætur öðrum líða.
Vatn vatn vatn Ekki láta
sjá þig með kaffibrúsa, hvað
þá kók. Drekktu vatn. Og
ekkert annað.
Lyftu líka Margir telja
að það sé nóg að hamast
á hlaupabrettinu. Jafnvægi er best.
Farðu á brettið og lyftu lóðum!
Breyttu til Líkt og í öllum
samböndum verður þú að
viðhalda fjölbreytni. Um
leið og þú ert komin/n með leið á
æfingunum skaltu prófa eitthvað
nýtt. Því lengur sem þú heldur þig
við þreytt æfingaplan því líklegri ertu
til að finna upp afsakanir til að mæta
ekki í ræktina. Prófaðu nýja tíma eða
farðu út að hlaupa.
Teygjur Ekki gleyma að
teygja!
9 algeng
mistök í
ræktinni
1 5
6
7
8
9
2
3
4
Páskaegg
lífshættuleg dýrum
n Dökkt súkkulaði er hættulegra en ljóst
Á
flestum heimilum liggur
súkkulaði á diskum og í skálum
yfir páskana og mannfólkið
hæstánægt með það.
Súkkulaðið getur hins vegar verið
stórhættulegt heimilisdýrunum og
getur dregið hunda og ketti til dauða
sé þess neytt í nægilega miklu magni.
Helga Finnsdóttir dýralæknir
fjallar um þetta á síðunni dyralaeknir.
com en þar segir að efnasambönd
kakóbaunanna séu margvísleg. Eitt
þeirra sé kallað þeóbrómín og sé
það hættulegast dýrum. Mest magn
þeóbrómíns sé í dökku súkkulaði og
það má því segja að því dekkra sem
súkkulaðið er, þeim mun eitraðra er
það.
Einkenni eitrunar fari eftir því
hve mikið dýrið át af súkkulaðinu en
þeóbrómínið hafi áhrif á taugakerfi
hundsins, hjarta- og vöðvakerfi og
auki þvagmyndun. Fyrstu einkennin
komi fram 6 til 12 tímum eftir
súkkulaðiátið og verði hundurinn
þá eirðarlaus, þorstlátur, kasti
upp, sé með vind- og niðurgang.
Alvarlegri einkenni valdi miklum
óróleika, hann spræni oft, verði
reikull í spori, fái skjálftaköst, auk
krampa. Í alvarlegustu tilfellunum
verði blóðrásartruflanir, ofurhiti,
meðvitundarleysi og dauði fylgi í
kjölfarið vegna þess að hjartað eða
lungun gefa sig. Þar segir einnig
að líkaminn sé lengi að losa sig við
eituráhrif af völdum súkkulaðis
og þau geti staðið yfir í allt að fjóra
daga.
Gæludýrin Hundar og
kettir geta dáið vegna
súkkulaðiáts.
Rómantík Það er um að gera að nota hugmyndaflugið.