Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2012, Síða 84

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2012, Síða 84
SwanSea á beStu félagaSkiptin 84 Sport 4.–10. apríl 2012 Páskablað n Bestu og verstu félagaskiptin í vetur n Swansea á tvenn góð, QPR tvenn slæm 1 Michel Vorm Frá Utrecht til Swansea Verð: 1,4 milljónir punda Staða: Markvörður Aldur: 28 ára n Hann var ekki hátt skrifaður, hollenski markvörðurinn Michel Vorm, þegar Brendan Rodgers keypti hann til Swansea fyrir tímabilið. Það datt engum í hug að þessi hlédrægi Hollendingur yrði besti markvörður úrvalsdeildarinnar og færi svo gjörsamlega á kostum að sjaldan hefur annað eins sést. Vorm hefur grunntækni upp á tíu enda af góðum markvarðarskóla. Hann bætir svo ofan á það með flottri vörslu og geggjuðum staðsetningum. Allt þetta fyrir eina og hálfa kúlu. 2 Yakubu Til Blackburn frá Everton Verð: 1,4 milljónir punda Staða: Framherji Aldur: 29 ára n Flestir héldu að Yakubu væri búinn, allavega héldu Everton-menn það. Annars hefðu þeir tæplega sleppt honum til Blackburn fyrir svona lága fjárhæð. Í þessu slaka liði Blackburn undir stjórn Steves Kean hefur Yakubu aftur á móti fundið markaskóna. Mörkin hans fjórtán eru einhver helsta ástæða þess að Blackburn er hreinlega ekki fallið og mun líklega ekki fara niður um deild í ár. Stundum eru menn einfaldlega heppnir með kaupin. 1 Stewart Downing Frá Aston Villa til Liverpool Verð: 19 milljónir punda Staða: Vængmaður Aldur: 27 ára n Kenny Dalglish hélt heldur betur að hann væri að kaupa stoðsendingavél þegar hann fjárfesti í Stewart Downing fyrir tæpar 20 milljónir punda. Hann átti að vera maðurinn sem myndi dæla boltanum á hausinn á Carroll sem myndi skora að vild. Ekkert af þessu hefur ræst. Fyrir 20 milljónir punda hefur Liverpool fengið nákvæmlega ekkert út úr Stewart Downing. Ekki neitt. Það hefur sjaldan verið jafnauðvelt að benda á verstu félagaskipti tímabilsins. 2 Roger Johnson Frá Birmingham til Úlfanna Verð: 6,6 milljónir punda Staða: Miðvörður Aldur: 28 ára n Úlfarnir fögnuðu á götum úti þegar þeir lönduðu miðverðinum Roger Johnson enda átti hann hreint frábært tímabil með Birmingham í fyrra. Því veigruðu Úlfarnir ekkert fyrir sér að splæsa tæpum sjö milljónum í piltinn. Þetta varð þó ekkert framfaraskref hjá Úlfunum því Johnson hefur verið hreint ömurlegur og lenti í basli um daginn þegar hann mætti fullur á æfingu. Það er vert að benda á að hann er FYRIRLIÐI liðsins. Úlfarnir óheppnir þarna eins og svo oft í vetur. 3 Demba Ba Frá West Ham til Newcastle Verð: Engin greiðsla Staða: Framherji Aldur: 26 ára n Newcastle þurfti að fá einhvern til að skora mörkin sem Andy Carroll setti í svarta og hvíta búningnum. Já, einu sinni skoraði Andy Carroll reglulega. Pardew var svo sem ekkert að taka neinn séns með því að fá Demba Ba enda hafði hann verið að raða inn mörkum fyrir West Ham áður en liðið féll. Sextán mörk er þó alvöru framlag og ekki skaðar að hann kom frítt til liðsins. Nafni hans, Demba Cisse, hefur aðeins stolið senunni að undanförnu en ekki má gleyma framlagi Ba. 4 Sergio Aguero Frá Atletico Madrid til Man. City Verð: 33,3 milljónir punda Staða: Framherji Aldur: 23 ára n Sá dýrasti sem keyptur var fyrir þetta tímabil en hann hefur verið hverrar krónu virði. Argentínumaðurinn snaggaralegi er búinn að skora 17 mörk í deildinni og er sóknarleikur City allt annar og miklu betri þegar Aguero ógnar með hraða sínum. Meiðsli hans núna undir lok tímabils gætu einfaldlega sett stórt strik reikninginn hvað varðar titilbaráttu þeirra heiðbláu. 3 Djibril Cisse Frá Lazio til QPR Verð: 4,1 milljónir punda Staða: Framherji Aldur: 30 ára n Næst þegar Djibril Cisse spilar fyrir QPR verður það hans sjötti leikur í ensku úrvalsdeildinni. Hann verður þá búinn að vera í banni í samtals sjö leiki. Þetta hlýtur náttúrlega að vera einhvers konar met. Cisse hefur vissulega skorað nokkur mörk en það réttlætir ekki þessa brottrekstra sem ekki bara tapa leikjum fyrir QPR heldur fer hann síðan í löng bönn. Cisse átti að vera bjargvætturinn upp á topp en hann hefur ekki reynst neinn happafengur. QPR-menn öskra: „Hvar er Heiðar?“ 4 Per Mertesacker Frá Werder Bremen til Arsenal Verð: 9,4 milljónir punda Staða: Miðvörður Aldur: 27 ára n Þýska tröllið átti að vera púslið sem vantaði í Arsenal- vörnina. Margreyndur landsliðsmaður með hæð til að hjálpa Arsenal í föstum leikatriðum. Enska úrvalsdeildin hentaði honum þó ekki og leit hann verr og verr út með hverjum leiknum. Það er auðvitað ljótt að segja svona en þegar hann meiddist út tímabilið fyrr á þessu ári var það eitt það besta sem gat komið fyrir Arsenal. Síðan hann fór hefur liðið gjörsamlega farið á kostum og er í baráttu um 3. sætið. 5 Gylfi Sigurðsson Til Swansea frá Hoffenheim Verð: Lánssamningur Staða: Miðjumaður Aldur: 22 ára n Auðvitað verður að koma Gylfa okkar Sigurðssyni að. En hann hefur unnið fyrir þessu. Swansea gerði það gott áður en Gylfi kom en miklu betra eftir að Hafnfirðingurinn lenti í Wales. Swansea hafði ekki unnið leik á útivelli áður en Gylfi kom á láni en nú hefur liðið unnið fjóra útileiki, ekki síst er það Gylfa að þakka þar sem hann er búinn að skora sex mörk, öll á útivelli. Það hafa ekki margir spilað betur í ensku úrvalsdeildinni en Gylfi eftir áramót. 6 Phil Jones Frá Blackburn til Manchester United Verð: 15,6 milljónir punda Staða: Varnarmaður Aldur: 20 ára n Stuðningsmenn Manchester United ráku upp stór augu þegar Ferguson skellti fimmtán milljónum punda á borðið fyrir 19 ára strák hjá Blackburn. Hann vissi þó að þetta væri framtíðarfyrirliði Manchester United og mögulega enska landsliðsins. Framlag hans á vellinum hefur verið ómetanlegt hvort sem Jones hefur spilað miðvörð, bakvörð eða á miðjunni. Hann virkar stundum eins og naut í flagi en það er ógnvænlegt til þess að hugsa að Phil Jones sé aðeins tvítugur. 5 Raul Meireles Frá Liverpool til Chelsea Verð: 11,2 milljónir punda Staða: Miðjumaður Aldur: 28 ára n Meireles var lengi í gang fyrir Liverpool í fyrra en þegar hann fór að skora héldu honum engin bönd. Það var svo heldur betur óvænt þegar Chelsea náði í hann á lokadegi félagaskiptagluggans og það fyrir rúmar ellefu milljónir punda. Í Lundúnum hefur Meireles ekkert getað og verið skugginn af þeim leikmanni sem hann sýndi stundum hjá Liverpool. Er það nema furða að Frank Lampard hafi verið aðeins pirri pú að sitja á bekknum fyrir Portúgalann? 6 Shaun Wright-Phillips Frá Manchester City til QPR Verð: 3,8 milljónir punda Staða: Vængmaður Aldur: 30 ára n Við hverju bjóst QPR? Tæpar fjórar milljónir punda fyrir Shaun Wright-Phillips? Það er ekki árið 2002 og Shaun litli er efnilegur vængmaður hjá City sem virðist geta skorað í hverju einasta skoti. Það er árið 2012 og Shaun, sem er enn lítill, hefur ekki bætt sig í tíu ár. QPR hefur gjörsamlega raðað til sín meðaljónum og á alveg eins skilið að fara niður. Shaun litli verður að fara átta sig á að hann er ekki lengur úrvalsdeildarleikmaður. Sannleikurinn er nú bara sá. B es tu V er st u
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.