Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2012, Blaðsíða 96
Stjörnufans á
Aldrei fór ég suður
n Búist er við fjölmenni á tónlist
arhátíðina Aldrei fór ég suður sem
haldin verður á Ísafirði um páskana
enda hefur hátíðin orð á sér fyrir að
vera hin besta skemmtun þar sem
flest öll vinsælustu böndin koma
fram. Meðal þeirra sem boðað hafa
komu sína vestur eru stuðboltarnir
Unnsteinn í Retro Stefson, Dóri DNA,
söngvarinn Snorri Helgason, Anna
Svava Knútsdóttir leikkona og Þórunn
Antonía, söngkona og þáttarstjórn
andi með meiru. Meðal þeirra
hljómsveita og tónlistarmanna sem
koma fram á hátíðinni má nefna
Skálmöld, Sykur og að sjálfsögðu
Mugi son.
Bakar beikon-
bollakökur
n Kristín Soffía Jónsdóttir, varafor
maður umhverfis og samgöngu
ráðs Reykjavíkurborgar, gat ekki
setið á sér eftir að hafa lesið stutta
umfjöllun um beikonbollakökur á
lífsstílssíðum DV.is í vikunni. Hún
birti mynd af eigin útfærslu af slík
um kökum á Facebooksíðu sinni.
„Sé fréttir af beikonbollakökum af
DV á flakki hér á FB. Verð að sýna
mína – hún er með pönnukökudegi
í botninum og var borðuð ásamt
fleirum seinustu helgi,“
skrifaði Kristín
Soffía stolt. Mynd
in sem fylgdi var
af einstaklega
girnilegri bolla
köku með eggi,
beikoni og
pönnuköku.
Sveita-
piltsins
draumur!
Á von á barni
n Sjónvarpsfréttamaðurinn góð
kunni Ægir Þór Eysteinsson tilkynnti
á dögunum að hann ætti von á sínu
fyrsta barni. Ægir sem er frétta
maður hjá RÚV er í sambandi með
Sunnu Arnarsdóttur og þykja þau hið
glæsilegasta par. Barnið er væntan
legt í heiminn í lok september og
er víst mikil tilhlökkun og gleði
hjá Ægi og kærustu hans vegna
komandi erfingja, en ekki síður hjá
fréttamönnum RÚV sem margir
telja að þarna sé mikill
snillingur væntan
legur. Til gamans
má geta að Þóra
Arnórsdóttir, sam
starfskona Ægis
á RÚV, er einnig
með barni en
hennar eiginmaður
er einnig frétta
maður á RÚV,
Svavar Hall-
dórsson.
É
g var svolítið týndur í lífinu þegar
ég fór að velta hlutunum fyrir
mér,“ segir Snævar Sölvi Sölvason
sem frumsýnir kvikmyndina Slay
Masters í Félagsheimilinu í Bolungar
vík á föstudaginn langa. Myndin fjallar
um slægingarteymi sem keppist við
að klára slægingu til að komast á ball
á sjómannadaginn. Hún segir frá ung
um manni sem flytur aftur í heimabæ
sinn eftir að hafa lokið háskólanámi
í Reykjavík. Hann átti erfitt með að
finna vinnu í Reykjavík eftir námið
en söguþráðurinn er í raun byggður
á lífi Snævars sem sjálfur fór og nam
fjármálaverkfræði við Háskólann í
Reykjavík. „Ég skellti mér bara í verk
fræði og útskrifaðist vorið 2010. Síðan
sama haust fékk ég ekkert að gera eftir
að sumarvinnunni lauk í Seðlabank
anum,“ segir Snævar sem dreif sig því
heim í slorið, líkt og hann orðar það.
„Strax á fyrsta degi í vinnu var
mér síðan tjáð að ég þyrfti að sjá um
slæginguna daginn eftir, á laugardegi,
ásamt afleysingastrákum því að starfs
fólkið var að fara á jólahlaðborð.
Þennan dag kviknaði hugmynd
in að myndinni. Þá var mikið stuð
hjá okkur strákunum, menn að slá
um sig og ræða djammið fram undan
um kvöldið. Ég fékk um leið þá flugu
í höfuðið að úr þessu mætti gera hel
víti skemmtilega sögu sem væri hægt
að kvikmynda. Ég henti strax í handrit
og bar þetta undir félaga mína og þeir
slógu til. Við lukum þessu af á nokkr
um kvöldum eftir vinnu,“ segir Snævar
sem viðurkennir að hann hafi aldrei
velt því fyrir sér að fara í kvikmynda
nám. „Það var enginn úr mínu um
hverfi sem starfaði við þetta og ein
hvern veginn var draumurinn um að
gera kvikmynd nær fantasíu en veru
leika.“
„Nær fantasíu en veruleika“
n Ákvað að gera kvikmynd eftir að hafa lokið verkfræðinámi
Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80páskaBLaÐ 4.–10. Apríl 2012 40. tbl. 102. árg. leiðb. verð 659 kr.
Slægingarmenn Snævar Sölvi (t.v.)
ásamt leikurum myndarinnar, Magnúsi
Traustasyni og Paul Lucas Smelt.