Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2012, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2012, Blaðsíða 17
Látinn sLátra hænum 4 ára Fréttir 17Helgarblað 27.–29. apríl 2012 Stakk mann á Monte Carlo n Hæstiréttur staðfesti 16 ára fangelsisdóm yfir Redouane Naoui H æstiréttur Íslands staðfesti á fimmtudag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir Redouane Naoui. Naoui var dæmdur í sextán ára fangelsi fyrir að stinga mann í hálsinn á veitingastaðnum Monte Carlo í júlí í fyrra, með þeim afleiðingum að fórnarlambið lést af sárum sínum. Héraðsdómur dæmdi hann einnig til að greiða dóttur mannsins sem lést rúmar þrjár millj- ónir króna í bætur sem Hæstiréttur staðfesti einnig. Atvikið átti sér stað að kvöldi fimmtudagsins 14. júlí 2011 en Redouane stakk manninn í hálsinn með þeim afleiðingum að slagæð fór í sundur. Maðurinn særðist alvarlega og lést 12 dögum síðar á sjúkrahúsi, eða þann 26. júlí, af völdum áverk- anna. Við aðalmeðferð málsins í hér- aðsdómi bar Redouane við minn- isleysi en myndbandsupptökur sýndu þó þegar Redouane veittist að fórnar lambi sínu með fyrrgreindum afleiðingum. Geðlæknir sem mat sakgæfi Redouane komst að þeirri niður- stöðu að hann væri eðlilega greind- ur og að engar alvarlegar geðraskan- ir kæmu fram í viðtölum. Saga hans sýndi að hann ætti til að missa stjórn á sér  og  verða reiður ef talað væri niður til hans. Einnig hefði verið ráð- ist á Redouane og í neyslu væri hugs- anlegt að hann upplifði slíkt og gæti það valdið heiftarlegum viðbrögðum við neikvæðu tali í hans garð. Redouane var metinn sakhæfur en einnig kom fram að hann iðraðist gjörða sinna og væri staðráðinn í að byggja líf sitt upp að nýju. Staðfest Hæstiréttur staðfesti dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir Redouane Naoui á fimmtudag. n Albert Wium dvaldi á Snekkjuvogi þegar hann var barn n Hafnar sáttaboði stjórnvalda með hann hafa. Að hún hefði hafn- að honum. Hann vissi ekki að hann hefði verið tekinn af henni vegna veikinda hennar. Hélt að hún hefði einfaldlega ekki viljað hann. Steinar, sem var heppinn og lenti hjá góðum fósturforeldrum, eins og hann lýsir því sjálfur, fékk hins vegar reglulega að hitta móð- ur sína og hélt við hana góðu sam- bandi. Ósáttir við tafirnar Steinar er mjög hneykslaður á nið- urstöðu vistheimilanefndarinnar í máli Alberts. „Forsendurnar eru þær að þetta hafi bara verið tvö ár og að hann hafi ekki orðið fyrir neinu að ráði. Maður getur ekki annað en orðið pínu reiður yfir þessu.“ Þá eru þeir bræður mjög ósáttir við hvað málið hefur tekið langan tíma. Bæði að fá matsgögnin frá sýslumanninum og vinna úrskurð- arnefndarinnar. „Það er eitt sem ég hef spurt að, hvort að ástæðan fyrir þessum töf- um væri sú að það væri verið að refsa honum fyrir að leita réttar síns. Að hann skuli bara ekki hafa sagt já og amen við því sem honum var boðið fyrst. Að draga þetta út í hið óendanlega til að sýna öðrum að það sé allt of erfitt að fara þessa leiðina. Það er það sem ég fæ á til- finninguna.“ n Dvaldi á Snekkjuvogi Albert (t.v.) var fjögurra ára að aldri látinn vinna erfiðisvinnu á heimilinu. Hann sá meðal annars um að slátra hænum og vann tímunum saman í pokagerðar- verksmiðju.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.