Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2012, Blaðsíða 2
2 Fréttir 27.–29. apríl 2012 Helgarblað
Dularfullur beina-
funDur á blönDuósi
n Ung kona fann í fjöru tvö bein sem hún telur vera úr manni
V
ið fundum fyrsta beinið
þegar ég fór með fósturdótt-
ur minni og mömmu niður
í fjöru. Ég sýndi manninum
mínum síðan beinið þegar
ég kom heim. Ég hélt fyrst að þetta
væri bein úr nautgrip, en hann var
alveg viss um að þetta væri manna-
bein. Við fórum því á netið og skoð-
uðum myndir af alls konar beinum,
manna og dýra. Það eina sem pass-
aði, að okkar mati, var mannabein,
eða stórt bein úr sköflungi,“ seg-
ir Þóra Dögg Guðmundsdóttir, 19
ára, sem búsett er á Blönduósi, um
beinafund hennar í fjöru við bæinn
í fyrrahaust.
Kalt inni í frystinum
Þóra Dögg leitaði ráða hjá föður sín-
um varðandi hvað hún ætti að gera
við beinið sem ráðlagði henni að fara
með það til lögreglunnar. „Ég fór því
með beinið til lögreglunnar, en áður
hafði ég sagt tengdaföður mínum frá
beinafundinum og hann hafði hringt
í miðil. Þá hafði miðillinn sagt að
þetta væri bein úr manni sem þekkti
orkuna mína og að sá væri glaður að
það væri loksins búið að finna bein-
in.“ Tengdafaðir Þóru Daggar hringdi
í hana eftir samtal sitt við miðilinn
með þau skilaboð að hún ætti ekki
að geyma beinin í frysti, eins og hún
hafði gert. Þóra segir sér hafa brugðið
þar sem aðeins hún og tveir aðrir hafi
vitað að beinin væri geymd í frystin-
um. „Miðillinn hafi sagt að mannin-
um hafi verið kalt í sjónum og hann
vildi ekki vera geymdur í frysti. Það
var áður en ég fór með beinið til lög-
reglunnar svo ég tók það úr frystin-
um og setti það á hillu.“
Annað bein og dularfullir
atburðir
Eftir þetta fór Þóra Dögg með
beinið til lögreglunnar sem bað
dýralækninn á staðnum að kíkja á
beinið. Dýralæknirinn sagði bein-
ið vera úr nauti, en Þóra Dögg var
þó ekki sannfærð. „Ég heyrði síðan
að miðillinn hefði sagt við tengda-
pabba að ég ætti að fara aftur á
staðinn til að finna annað bein. Þá
fór ég með pabba mínum aftur í
fjöruna og ætlaði að sýna honum
hvar ég hafði fundið beinið. Áður
en ég gat sagt honum það sá ég
annað bein. Alveg á nákvæmlega
sama stað.“
Aftur fór Þóra Dögg á netið að
skoða myndir af beinum og í þetta
skipti sýndist henni þetta vera bein
úr framhandlegg. „Mér er sagt
að beinin séu úr ungum manni.
Hann hafi þekkt orkuna mína og
að þetta hafi verið plan hjá hon-
um. Ég geymi þetta bein sem ég
fann seinna hérna heima hjá mér
og það hafa mjög skrýtnir atburð-
ir verið að gerast.“ Hún nefnir
meðal annars að þakið á húsinu
þeirra hafi skyndilega byrjað að
leka. „Það hefur aldrei lekið og lak
beint þar sem koddinn er á rúminu
mínu inni í svefnherbergi hjá mér.
Svo hætti allt í einu heita vatn-
ið að virka. En hjá pabba mínum
sem býr í sömu götu og ég virkaði
það fínt. Svo er hann búinn að láta
vita af sér með öðrum hætti annað
slagið.“ Samkvæmt Þóru fórst ungi
maðurinn, sem um ræðir, á sjó og
hafa líkamsleifar hans aldrei fund-
ist.
Vill láta beinið í vígða mold
Þar sem dýralæknirinn taldi að
beinin væri úr nautgrip sá lögregl-
an ekki ástæðu til þess að rann-
saka þau frekar. „Beinið sem ég
fann fyrst er enn hjá lögreglunni
en ég vildi ekki fara með seinna
beinið, því ég vil ekki að það glat-
ist. Ef þetta er úr manni vil ég að
það fari í vígða mold en verði ekki
geymt í kassa á lögreglustöð.“ Eng-
inn læknir er með fasta viðveru á
Blönduósi en Þóra segist ætla að fá
héraðslækni til að skoða beinið fyr-
ir sig þegar hann kemur á staðinn í
sumar. „Síðan ætla ég að fara með
það til prestsins og láta grafa það í
vígða mold.“
Hanna Ólafsdóttir
blaðamaður skrifar hanna@dv.is
„Síðan ætla ég að
fara með það til
prestsins og láta grafa
það í vígða mold.
Geir sakfelldur
Geir H. Haarde, fyrrverandi
forsætisráðherra, var sakfelld-
ur á mánudag í einum af fjórum
ákæruliðum
í landsdóms-
málinu. Hann
var sakfelldur
fyrir að hafa ekki
haldið ráðherra-
fundi um mikil-
væg málefni en
ekki gerð refsing.
Í DV á miðviku-
dag var ítarlega fjallað um málið og
þá sérstaklega þá dómara sem áttu
sæti í landsdómi. Margir þeirra hafa
pólitísk tengsl og töldu til að mynda
nokkrir dómarar sem skipaðir voru
af ráðherrum Sjálfstæðisflokksins að
Geir væri saklaus í öllum ákærulið-
um málsins.
Sturla heldur
heimili sínu
„Mér tókst að ná húsinu til
baka,“ sagði Sturla Jónsson,
vörubílstjóri og mótmælandi, í
samtali við DV
á mánudag. Í
desember síðast-
liðnum fjallaði
DV um málefni
Sturlu en þá leit
út fyrir að hann
myndi missa hús
fjölskyldunnar
á nauðungar-
sölu. Ekkert varð þó úr því og að sögn
Sturlu dró bankinn nauðungarupp-
boðið til baka. „Þeir gerðu sam-
komulag við mig sem er náttúrulega
áfangasigur í sjálfu sér.“ Samkomu-
lagið var á þá leið að beðið yrði með
að rukka gengislánið á meðan óviss-
an væri svo mikil.
Blekkingar og gróði
Ákæra sérstaks saksóknara
gegn Aroni Karlssyni athafna-
manni lýsir því hvernig hann á að
hafa blekkt þrjá
banka til að
hagnast um nærri
300 milljónir
króna. DV greindi
frá efni ákærunn-
ar á miðvikudag.
Ákæran snýst
um viðskipti með
rúmlega 4.200
fermetra hús á Skúlagötu 51 sem
Aron og faðir hans seldu til kínverska
sendiráðsins á Íslandi í árslok 2009.
Inntakið í ákærunni er að Aron hafi
blekkt Íslandsbanka, Arion banka og
Glitni til að aflétta veðum sínum af
fasteigninni í desember 2009.
Fréttir vikunnar í DV
1
2
3
18 ára ökumaður
fær 110 þúsund
króna sekt
Átján ára ökumaður var sviptur
ökuréttindum til bráðabirgða á
miðvikudagskvöld eftir að bifreið
hans mældist á 116 kílómetra
hraða í Stekkjarbakka. Leyfilegur
hámarkshraði í götunni er 50 kíló-
metrar á klukkustund og því var
pilturinn á rúmlega tvöföldum
leyfilegum hámarkshraða. Unga
ökumannsins bíður væntanlega
110 þúsund króna sekt og svipting
ökuréttinda í þrjá mánuði, sam-
kvæmt sektarreikni sem nálg-
ast má á vef Umferðarstofu. Um
klukkan tvö aðfaranótt fimmtu-
dags voru tveir ökumenn stöðvað-
ir með stuttu millibili grunaðir um
ölvun við akstur. Þeir voru frjálsir
ferða sinna að lokinni afgreiðslu
mála þeirra á lögreglustöð.
Loks var lögregla kölluð að
heimahúsi í miðborg Reykja-
víkur um fimm leytið að morgni
fimmtudags. Þar var samkvæmi
í gangi sem raskaði næturró ná-
granna. Þolendur báru upp kvört-
un við lögreglu sem fór á staðinn
og batt enda á gleðina.
Á ofsahraða með
farþega á toppnum
Lögreglan stöðvaði tvo pilta, sautj-
án og sextán ára, í umferðinni á
höfuðborgarsvæðinu aðfaranótt
fimmtudags. Sá eldri ók fólksbíl
hratt og ógætilega en sá yngri var
á þaki bílsins meðan á því stóð.
„Hafi þetta átt að vera einhvers
konar leikur þá er sá leikur lífs-
hættulegur. Piltunum var fylgt til
síns heima og þar var enn fremur
rætt við forráðamenn þeirra um
alvarleika málsins,“ segir í tilkynn-
ingu frá lögreglu sem lítur athæfi
mannanna alvarlegum aug-
um. Segir lögregla að mildi megi
teljast að ekki hlaust mjög alvar-
legt slys eða jafnvel dauði af þessu
uppátæki.
Dularfull bein Þóra Dögg Guð-
mundsdóttir vill að beinin komist í
vígða mold reynist þau vera úr manni.