Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2012, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2012, Blaðsíða 2
2 Fréttir 31. ágúst–2. september 2012 Helgarblað Bankamaður í sigti saksóknara 3 Elmar Svav-arsson er til rannsóknar hjá embætti sérstaks saksóknara og starfar á sama tíma sem for- stöðumaður verð- bréfamiðlunar hjá Íslandsbanka. Þetta er á skjön við þær verklagsreglur sem bank- inn segist temja sér. Elmar hóf störf hjá Glitni árið 2004 og starfaði eftir hrun hjá Íslandsbanka. Sérstakur sak- sóknari fór fram á gæsluvarðhald yfir Elmari í nóvember í fyrra og var hann þá sendur í leyfi. Nú er Elmar aftur kominn til starfa, þrátt fyrir að botn sé ekki kominn í málið. „Átti að selja mig“ 2 „Það átti að selja mig í vændis-hús í Brasilíu,“ sagði ung kona í viðtali við DV sem fyrir skömmu tókst á ævintýra- legan hátt að flýja undan Íslending- um í Amsterdam sem ætluðu að selja hana man- sali. Fólkið var handtekið eftir ábendingu kon- unnar en í hópn- um er Steinar Aubertsson, sem var eftirlýstur af Interpol vegna fíkniefnamáls hér á landi. Konan sagðist vera í áfalli eft- ir atburðinn og sagðist vakna upp af martröðum um að mennirnir væru búnir að finna hana. Hún er vör um sig en vildi segja sögu sína öðrum konum til varnaðar. Léttist um 90 kíló 1 Magnús Daníel Karlsson fór í magahjáveituaðgerð þann 2. nóvember síðastliðinn eftir að hafa gengið í gegn- um offitumeðferð á Reykjalundi. Magnús þjáðist af matarfíkn og þegar hann var sem þyngstur var hann rétt tæp 200 kíló. „Mér þótti afskaplega gam- an að borða, og þykir enn, en mér þykir það ekki nærri eins gott og áður,“ sagði Magn- ús í DV á mánudag en á rétt tæpu ári hefur hann lést um 90 kíló. Eftir aðgerðina þarf Magnús að velja og hafna. Brauð, pasta, kartöfl- ur og annar kolvetnisríkt fæði fer til dæmis illa í hann. Fréttir vikunnar Þessar fréttir bar hæst í DV í vikunni w w w . d v . i s F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð 27.–28. ágúst 2012 mánudagur/þriðjudagur 9 8 . t b l . 10 2 . á r g . l e ið b . v e r ð 4 2 9 k r . Léttist um 90 kíló „Fannst þetta ekki vera vandamál Nýtt líf Magnúsar Daníels Skólinn kostar 300 þúsund „Stór biti að kyngja 2–3 Valdamestu konur heims Angela Merkel í efsta sæti 14–15 12–13 18–19 Sparaðu þúsundir og tíndu bláber Ókeypis ofurfæða n Opin prófkjör áfram hjá Samfylkingu 10 n Hann var 200 kíló n Drakk 3 lítra af gosi á dag n Þjáðist eftir magaaðgerð n Bjargað á Reykjalundi n Einn yfirmanna Íslandsbanka grunaður um lögbrot 4 Bankamaður í sigti saksóknara Hrunflokkar hafna umbótum w w w . d v . i s F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð 29.–30. ágúst 2012 miðvikudagur/fimmtudagur 9 9 . t b l . 10 2 . á r g . l e ið b . v e r ð 4 2 9 k r . „Það átti að selja mig“ komst naumlega undan Suðurlandsbraut 6, 108 Reykjavík Sími: 534 7268 1.250 kr 1.350 kr HOLLT OG GOTT PHO víetnamskur veitingastaður Ármúla 21 - 108 Reykjavík - Sími: 588 6868 1.250 kr ALLT FYRIR AUSTURLENSKA MATARGERÐ 699 kr. 550 kr. 387 kr. 320 kr. Opið: mán - föst Kl. 11 - 21 lau - sun Kl. 12 - 21 n Fjórir handteknir í Amsterdam n Eins var leitað af Interpol n Fórnarlambið segir sögu sína n Sefur illa og fær martraðir Íslendingar Í haldi fyrir mansal eftirlýstur Hún heitir Reykia Fick n Nefnd eftir Reykjavík Háskinn á hring- veginum Alls kyns farartæki á þjóðvegi 1 n Deilt um aðbúnað í gistiskýli „kjósa frekar að sofa úti“ 2–3 12–13 3 8 Hinir eldri eru hamingju- samari 20 hrunverjar sleppa frá rÍkisstjórn n Starfshópur greip í tómt n Engar bætur sóttar á næstunni 4 Í sigti sérstaks en starfar enn Hjartaaðgerðin gekk vel n Litli drengurinn er kominn heim til Íslands S igurbjörn Árni Guðmundsson er kominn heim frá Svíþjóð þar sem hann fór í hjartaað­gerð. Sigurbjörn Árni fæddist á sjúkrahúsinu á Akureyri að kvöldi þess 5. ágúst. Á meðgöngu hafði komið í ljós að á vinstra nýra væri útvíkkun sem fylgst var með fram að fæðingu. Þegar hann fæddist virtist hann vera hraustur strákur og ákveðið var að bíða til næsta dags með nánari skoðun. Morguninn eftir uppgötvaði móðir hans hins vegar að hann var ekki með endaþarmsop og í kjölfar­ ið uppgötvaðist hjartagalli. Hann var því svæfður og sendur með sjúkra­ flugi suður þar sem í ljós kom að hjartagallinn var tvíþættur. Þá fór hann í aðgerð þar sem settur var upp stómapoki. Hann var síðan sendur til Lundar í Svíþjóð þar sem gerð var aðgerð á hjarta. Síðastliðinn föstudag kom Sigur­ björn Árni svo aftur heim til Íslands með foreldrum sínum og á Styrktar­ síðu fyrir dreng Guðmundsson seg­ ir að öllum heilsist rosalega vel, Sig­ urbjörn sé hinn hressasti. Í færslu frá því á þriðjudaginn, kemur fram að þá hafi hann fengið að fara í fangið á mömmu í stutta stund og það hafi verið dásamlegt. „Við vildum ekki sleppa hvort öðru aftur en nú bíður pabbinn eftir að fá hann í sitt fang en það verður vonandi á morgun.“ Fyrir áttu foreldrar Sigurbjörns Árna, þau Guðmundur Már Einars­ son og Helga Sigurveig Kristjáns­ dóttir, tvo drengi og þar sem vinir og vandamenn óttuðust að veikindum hans myndi fylgja mikill kostnaður settu þeir upp styrktarreikning fyr­ ir fjölskylduna. Þeir sem vilja leggja fjölskyldunni lið geta einnig lagt inn á styrktarreikninginn, 062–26– 002838. Kennitalan er 240466–3339. 4 Fréttir 27. ágúst 2012 Mánudagur Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is – Afslátt eða gott verð? Mikið úrval frábært verð! Kletthálsi Reykjavík Reykjanesbæ Akureyri Húsavík Vestmannaeyjum Verðdæmi 125 mm hjól f / 90 kg 550,- vrnr: J71125 E lmar Svavarsson er til rann­ sóknar hjá embætti sérstaks saksóknara, en starfar sem forstöðumaður verðbréfa­ miðlunar hjá Íslandsbanka. Þetta er á skjön við þær verklags­ reglur sem bankinn segist temja sér. Elmar hóf störf hjá Glitni árið 2004 og starfaði eftir hrun hjá Íslands­ banka. Sérstakur saksóknari fór fram á gæsluvarðhald yfir Elmari í nóvem­ ber í fyrra og var hann þá sendur í leyfi, þar sem staða hans var enn að skýrast. Héraðsdómur varð ekki við gæslu­ varðhaldskröfunni. Nú er Elmar aftur tekinn til starfa, þrátt fyrir að botn sé ekki kominn í málið. Hann var sam­ kvæmt heimildum DV einn um­ svifamesti verðbréfamiðlari Glitn­ is. Bankinn segir að verklagsreglum hafi verið fylgt í hvívetna. Ekki náðist í Elmar við vinnslu fréttarinnar. Lánuðu til kaupa á eigin bréfum Málið sem Elmar er talinn vera við­ riðinn hefur ekki enn verið leitt til lykta fyrir dómstólum. Rannsókn sér­ staks saksóknara miðast að nokkrum liðum þar sem lög eru talin hafa ver­ ið brotin. Þar er meðal annars kom­ ið að Stím­málinu svokallaða, sem DV hefur áður fjallað um. Stím var einkahlutafélag í eigu ýmissa fjár­ festa sem keypti hlutabréf í Glitni og FL Group fyrir um 25 milljarða króna í nóvember 2007, þar af voru tæpir 20 fengnir að láni frá Glitni. Grunur leikur á að Elmar hafi haft aðkomu að því máli sem einn umsvifamesti verðbréfamiðlari bankans. Rassía á meðal Glitnismanna Í nóvember fór fram rassía hjá sér­ stökum saksóknara þar sem Glitn­ ismenn voru yfirheyrðir. Í kjölfarið birti saksóknari tilkynningu í fjórum liðum þar sem bankinn var grunaður um lögbrot. Í fyrsta liðnum er talað um að grunur sé um að Glitnir hafi stundað kerfisbundna markaðsmis­ notkun, með því að versla ólöglega með hlutabréf í bankanum sjálfum. Í öðrum lið var fjallað um lán­ veitingar Glitnis til ýmissa félaga, sem veitt voru til þess að kaupa hlutabréf í bankanum sjálfum. Með­ al þessara félaga er Stím. Upphaf­ legur höfuðstóll nefndra lánveitinga er sagður nema samtals 37 milljörð­ um. Í þriðja liðnum er fjallað um framvirka samninga Glitnis í hluta­ bréfum bankans og er eitthvað talið saknæmt þar. Rannsókn sérstaks saksóknara og ástæðan fyrir því að farið var fram á gæsluvarðhald yfir Elmari tengist að öllum líkindum þessum atriðum. Saklaus uns sekt er sönnuð Þegar DV sendi fyrirspurn til Birnu Einarsdóttur, bankastjóra Íslands­ banka, var vísað á upplýsingafull­ trúa bankans. Þar fengust þau svör að í máli Elmars hafi verklagsregl­ um bankans verið fylgt í hvívetna. Allir þeir starfsmenn sem hafi feng­ ið réttarstöðu grunaðs hjá sérstök­ um saksóknara hafi farið í leyfi á meðan málin voru að skýrast. Þá segir í svari bankans að leitað hafi verið til sjálfstætt starfandi lög­ manns til þess að fara yfir meint sakarefni og ætlaðan þátt starfs­ manna til ráðgjafar. Einnig er ymprað á þeirri réttar­ farsreglu að menn séu saklaus­ ir uns sekt sannast. „Eins og gef­ ur að skilja getur bankinn ekki tjáð sig opinberlega um stöðu einstakra starfsmanna. Hins vegar hefur það komið fram opinberlega að í dóms­ úrskurði vegna gæsluvarðhalds­ kröfu umrædds starfsmanns kom fram að ekki væru taldar liggja sann­ anir fyrir því að hann hefði átt þátt í þeim brotum sem til rannsóknar eru. Dómari féllst því ekki á gæslu­ varðhaldskröfu embættis sérstaks saksóknara í umræddu máli. Rétt er að hafa í huga þá réttarfarsreglu að einstaklingar eru saklausir þar til sekt þeirra er sönnuð.“ Fékk stöðuhækkun Við hrunið hætti Ingi Rafnar Jónsson, yfirmaður Elmars, hjá bankanum. Ingi Rafnar var hnepptur í vikulangt gæsluvarðhald í nóvember, að kröfu sérstaks saksóknara. Einnig var far­ ið fram á gæsluvarðhald yfir Elmari en dómurinn varð ekki við því. Þegar Íslandsbanki var stofnaður fékk El­ mar stöðuhækkun og var gerður að forstöðumanni verðbréfamiðlunar bankans. Hann þénar nú 1,5 millj­ ónir króna á mánuði samkvæmt tekjublaði Frjálsar verslunar. Bæði Elmar og Ingi Rafnar eru til rann­ sóknar hjá sérstökum saksóknara en þar er verið að rannsaka 15–20 mál tengd Glitni. Ingi Rafnar starfar nú hjá MP­banka. n n Er forstöðumaður hjá Íslandsbanka n Bankinn segist hafa farið að reglum Símon Örn Reynisson blaðamaður skrifar simon@dv.is Enn hjá Íslandsbanka Elmar Svavarsson var einn umsvifamesti verðbréfamiðlarinn hjá Glitni. Mál sem hann er tengdur er enn til rann-sóknar hjá sérstökum saksóknara en hann starfar samt hjá Íslandsbanka. Mynd PRESSPhotoS.biz „Einstaklingar eru saklausir þar til sekt þeirra er sönnuð haustið nálgast óðfluga: Áfram svalt á landinu Veðurstofa Íslands gerir ráð fyrir því að áfram verði nokkuð svalt í veðri á landinu. Í dag, mánudag, gerir Veðurstofan ráð fyrir því að hitinn verði á bilinu 5–15 stig, hlýj­ ast suðvestanlands en líkur séu á næturfrosti í innsveitum aðfara­ nótt þriðjudags. Á þriðjudag verð­ ur rigning fyrir norðan og austan en annars bjartviðri. Hiti verður á bilinu 4–13 stig, hlýjast sunn­ anlands. Á miðvikudag verða skúr­ ir fyrir norðan en bjartviðri syðra. Hiti verður 3–11 stig, hlýjast sunn­ anlands. Á fimmtudag gerir Veður­ stofan ráð fyrir hlýnandi veðri en á föstudag verði rigning í flestum landshlutum. Ítarlegri veðurspá má lesa á baksíðu DV í dag. nýfæddur á spítalanum Á sinni stuttu ævi hefur hann farið í stómaaðgerð og hjartaaðgerð í Svíþjóð. Blóðslettur á bílunum Skemmdarverk voru unnin á bíl­ um starfsmanna og gesta við skemmtistaðinn Gamla Kaupfé­ lagið við Kirkjubraut á Akranesi um helgina. Héraðsfréttamiðill­ inn Skessuhorn greindi frá þessu á sunnudag en atvikið átti sér stað aðfaranótt sunnudags, líklega á tímabilinu frá klukkan 3 til 3:45. „Ef einhver hefur séð eða hefur upplýsingar um málið má sá hinn sami endilega hafa samband við lögregluna á Akranesi. Mjög lík­ legt er að sá sem var að verki hafi verið skorinn á höndum þar sem blóðslettur voru á öllum bílunum sem skemmdir voru,“ segir í til­ kynningu frá Gamla kaupfélaginu sem Skessuhorn vitnar til. Íslandsbanki hagnast um milljarða Hagnaður Íslandsbanka eftir skatta á fyrri árshelmingi 2012 var 11,6 milljarðar króna, eða 3,5 milljörðum meira en á sama tíma í fyrra þegar hagnaðurinn nam 8,1 milljarði. Fram kemur í tilkynningu bankans að 18.700 einstaklingar og 3.200 fyrirtæki hafi fengið af- skriftir, eftirgjafir eða leiðréttingar á skuldum frá stofnun bankans sem nemur um 394 milljörðum króna. Eignir bankans hafa aftur á móti dregist örlítið saman, námu 789,9 milljörðum króna í lok árs- helmings í ár en voru 792,4 millj- arðar eftir fyrstu sex mánuði síð- asta árs. Og Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, er ánægð. Segir í tilkynningu bank- ans að hálfsársuppgjörið endur- spegli vel fjárhagslega styrk bank- ans. Brutust inn hjá Samskipum Þrír íslenskir piltar brutust inn á athafnasvæði Samskipa við Holta- garða um níuleytið á miðviku- dagskvöld. Öryggisverðir höfðu handsamað einn þeirra þegar lögreglan kom á vettvang en hin- ir tveir fundust eftir stutta leit. Einn þeirra vildi ekki veita lög- reglumönnum upplýsingar um sig, hann var skilríkjalaus, reyndi að komast undan lögreglunni og veitti mikla mótspyrnu við hand- töku. Samkvæmt lögreglu var hann vistaður í fangageymslu en hinir tveir fengu að fara eftir skýr- slutöku. Lögreglan upplýsir ekki um það í tilkynningu sinni hvað piltunum, sem allir voru 18 ára, gekk til. É g sagði bara: keyrðu, keyrðu … og hann mætti alls ekki stoppa. Hann var svolítið stressaður en þetta gerðist bara svo fljótt,“ segir Suphansa Phongsa sem eignaðist dóttur í Bolungarvíkur- göngum snemma á miðvikudags- morgun. Hún tók sjálf á móti dóttur sinni á meðan faðir barnsins, Sitt- hidet Singsawat, ók í átt að sjúkra- húsinu á Ísafirði en þau eru búsett á Bolungarvík. Atburðarásin var mjög hröð en ísfirska vikublaðið Bæjarins bestu sagði frá þessu á fimmtudag. Fann skyndilega rembingsþörf „Ég vaknaði klukkan þrjú um nóttina og fann smáverki en hugsaði nú að þetta væri ekki komið. Ég fór svo bara í bað og slakaði á en fann smáverki en hugsaði að það gæti ekki verið komið að þessu,“ segir Suphansa en þegar DV náði tali af henni var hún enn stödd á sjúkrahúsinu á Ísafirði og heyra mátti grát dótturinnar í bakgrunni. „Ég fór svo að finna meiri verki svona um fjögur og þá ákváðum við að keyra upp á spítala,“ segir hún. Þau lögðu af stað sem leið lá til Ísafjarðar. Þegar þau voru komin í göngin fann þá Suphansa skyndilega fyrir mikilli rembingsþörf. Barnið var að koma. Róleg þegar hún heyrði grátinn „Fyrst vissi ég ekkert hvað ég ætti að gera, hausinn var kominn út. Svo rann barnið bara út, ég þurfti einungis að rembast þrisvar og var svo komin með það í fangið. Þetta gerðist svo hratt,“ segir Suphansa sem var alls ekki að stressa sig yfir þessari óvenjulegu lífs- reynslu. Hún viðurkennir þó að hafa verið örlítið stressuð til að byrja með og ekki vitað hvernig hún átti að bera sig að en svo hefði þetta bara allt geng- ið upp. Hún segist hafa orðið róleg þegar hún hafi heyrt grát dóttur sinn- ar. „Hún grét og ég var mjög ánægð með það því þá vissi ég að það væri í lagi með hana,“ segir hún en viður- kennir að vissulega hafi þetta verið óvenjuleg lífreynsla. Bannaði manninum að stoppa Meðan á þessu stóð ók maður- inn hennar bílnum en Suphansa vildi alls ekki að hann stöðvaði bíl- inn meðan hún væri að eiga barnið. Hún segir hann hafa verið svolítið stressaðan en staðið sig vel. „Hann keyrði svolítið hratt en ég bannaði honum að stoppa,“ segir hún hlæj- andi. Þegar þau komu loks á spítalann var því barnið í fangi móður sinnar og varð ekki meint af þessari fyrstu bílferð lífs síns. Móður og dóttur heilsast vel. „Okkur líður bara vel. Hún var 3,9 kíló og 51,5 sentímetrar,“ segir Suphansa en settur dagur var 21. ágúst og hún gekk því aðeins fram yfir með dótturina. Fyrir áttu þau 18 mánaða gamlan son sem Suphansa segir að taki litlu systur vel. „Hann var heima með systur minni meðan á þessu stóð. Hann er búinn að sjá hana og er bara glaður með systur sína,“ segir Suphansa sem er himin- lifandi með litlu dótturina sem lá svo á að komast í heiminn. n Suphansa tók á móti barninu í bílnum n Bannaði föðurnum að stoppa „Þetta gerðist bara svo hratt“ „Hún grét og ég var mjög ánægð með það því þá vissi ég að það væri í lagi með hana. Viktoría Hermannsdóttir blaðamaður skrifar viktoria@dv.is Fjölskyldan Hér má sjá fjölskylduna ásamt frænku þeirra, Júlíönu Unnsteinsdóttur. JAZZHÁTÍÐ REYKJAVÍKUR Z 20 12J A Z REYKJAVÍK 1. SEPTEMBER HARPA www.reykjavikjazz.is All we Are sAying Bill Frisell og hljómsveit spila tónlist eftir John Lennon PO R T h ö n n u n
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.