Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2012, Blaðsíða 60
44 Lífsstíll 31. ágúst–2. september 2012 Helgarblað
Óvænt gifting
Ofurfyrirsætan og leikkonan Agy-
ness Deyn og kvikmyndaleikarinn
Giovanni Ribisi hafa gengið í það
heilaga. Stutt er síðan fjölmiðlar
komust að sambandi þeirra en þau
sáust láta vel hvort að öðru þegar
þau biðu í röð við skrifstofu borg-
aryfirvalda í Los Angeles. Breska
fyrirsætan, sem heitir réttu nafni
Laura Hollins, var áður á föstu
með rokkaranum Josh Hubbard en
þetta er aftur á móti annað hjóna-
band leikarans. Hann var áður gift-
ur leikkonunni Mariah O‘Brien í
fjögur ár og á með henni unglings-
dótturina Luciu.
Handfrjáls sMs-
búnaður í bíluM
Þ
að er afar varasamt að
skoða og skrifa SMS-skila-
boð á meðan maður ekur
og fjölmargir árekstrar
verða þegar bílstjórinn er
upptekinn við símann sinn. Vís-
indamenn hafa nú hannað útbún-
að sem gerir bílstjórum kleift að
hlusta á og tala inn SMS-skilaboð
án þess að taka upp símann.
Les og skrifar töluð skilaboð
Chrysler, bandaríski
bílaframleiðand inn sýndi nýver-
ið nýja tegund af bíl en í honum
er búnaður sem les upp skilaboð-
in og tekur á móti talskilaboðum
án þess að bílstjórinn þurfi að taka
upp símann. Bíllinn heitir 2013
Ram 1500 og er fyrsti bandaríski
bíllinn sem er með handfrjálsan
svarbúnað. Í bílnum hefur verið
komið fyrir tölvubúnaði sem les
skilaboðin auk þess sem bílstjór-
inn getur lesið upp skilaboð sem
á að senda. Þegar skilaboðin hafa
verið lesin upp segir sendandinn
ókei og skilaboðunum er breytt í
SMS-texta sem er sendur í gegnum
Bluetooth til síma viðtakanda. Bíll-
inn kemur í sölu í september.
Gerir farsímanotkun
hættuminni
Þótt það sé ekki leyfilegt að tala í
síma við akstur eru fjölmargir sem
gera það og því getur slíkur bún-
aður komið að góðum notum. „Við
viljum gjarnan að fólk leggi frá
sér símann og hugsi um akstur-
inn,“ segir Joni Christensen, sölu-
stjóri í fjarskiptadeild fyrirtækis-
ins, í samtali við The Detroit News.
Hann bætir við að margir og þá
sérstaklega ungt fólk sendi SMS-
skilaboð frekar en að tala í síma.
„Það er að vaxa úr grasi heil kyn-
slóð af fólki sem þekkir ekki líf án
internetsins og þetta er tækni sem
gerir farsímanotkun hættuminni.“
Aðrir hanna svipaðan búnað
Bílaframleiðandinn BMW hefur
einnig gert tilraunir með að setja
svipaðan búnað í sína bíla en sá
getur svarað tölvupóstum, Twitter-
færsl um og Facebook-skilaboðum.
Aðrir bílaframleiðendur svo sem
Audi, Cadillac, Ford, Hyundai og
Nissan hafa sett svarbúnað í sína
bíla sem er þó ekki eins þróaður
en með honum er hægt að svara
með „já“, „nei“ og „ég er að keyra,
ég heyri í þér síðar“.
n Nýr búnaður í bílum les upphátt og skrifar niður töluð skilaboð
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
„Sófakartöflu“
– æfingar
Ertu sófakartafla? Finnst þér gott
að liggja fyrir framan sjónvarpið
og nennirðu aldrei í ræktina? Ef þú
svarar þessu játandi þá er þó ekki
þar með sagt að þú getir ekki gert
æfingar til að halda þér í formi. Sóf-
inn er nefnilega tilvalinn staður til
að að gera styrktaræfingar og þú get-
ur meira að segja horft á sjónvarpið
á meðan.
Snúðu þér við í sófanum þannig
að fæturnir séu uppi í honum og
hendurnar niður á gólfi, eiginlega
nákvæmlega eins og þú ætlir þér að
gera armbeygjur. Því það er einmitt
það sem þú gerir næst. Beygir þig
alveg niður að gólfinu og lætur nef-
ið snerta það og réttir svo úr hand-
leggjunum. Þetta er gott að endur-
taka nokkrum sinnum á kvöldin
og áður en þú veist af hefur styrkur
þinn aukist til muna. Prófaðu jafnvel
að lyfta öðrum fætinum frá sófanum
og beygja þig þannig niður að gólfi.
OREO
BANANA
SÚKKULAÐIKAKA
Sími: 561 1433
Innihald: Súkkulaðibotnar, súkkulaðimousse, bláberja
sulta
, ba
nan
ar
og
O
re
ok
ex
.
Opnunartími:
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugar- og sunnudaga 8.00 -16.00
P
R
E
N
T
U
N
.IS
Símnotkun við akstur
Fjölmargir árekstrar og slys
verða þegar fólk talar í síma
við akstur. Mynd pHotoS.coM
Fáðu greinar í heild sinni
á DV.is og vefáskrift
af prentútgáfu DV
* Verðið er 790 kr. fyrstu
3 mánuðina, en 1.790 kr. eftir það.
fyrir 790 kr.
á mánuði *
Sjáðu
meira