Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2012, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2012, Blaðsíða 40
Viltu húlla í vetur? n Frumleg námskeið í boði N ámsmenn verða að hreyfa sig og það má gera margt fleira en hlaupa á hlaupabretti og lyfta lóðum. Í Kramhúsinu er boðið upp á ansi lífleg námskeið sem ættu að hrista upp í tilverunni. Á föstudagskvöldum verður kennt diskó og dansað við diskólög í klukku- stund frá 20–21. Þá er boðið upp á kennslu í húlahoppi. Alda Brynja er meðlimur í Sirkus Íslands og hef- ur kynnt sér aðferðir húlahoppsins. Námskeiðið verður sex vikur og Alda kennir grunntæknina og alls kyns brögð. Auk þess verður rýnt í flæði og hreyfingar með hringnum við tónlist. Sérstakt námskeið verður haldið fyrir stráka í Afró dansi. Það er Mamady Sano, dansari og trommari sem kemur frá New York sem ætlar að kenna strákum í vetur. 12 Aftur í skólann 31. ágúst–2. september 2012 Helgarblað Strætó Kostar: frá 0 krónum Nemendur sem stunda nám í stærri byggðarkjörnum til dæmis á höfuð- borgarsvæðinu, Akureyri, Ísafjarðar- bæ og á Austurlandi njóta strætó- samgangna í og úr skóla. Í Reykjavík er til að mynda boðið upp á sér- stök nemendakort sem gilda í tólf mánuði. Sækja þarf sérstaklega um slíkt kort sem kostar 38.500 krónur fyrir veturinn. Nemendum á höf- uðborgarsvæðinu býðst einnig að kaupa eins, þriggja og níu mánaða kort. Fjarðabyggð hefur frá því í febr- úar boðið upp á strætóferðir innan og milli byggðarkjarna á svæðinu. Þar kostar mánaðarkort 10.000 krón- ur en nemendum býðst að kaupa kort fyrir hverja önn á 25.000. Frítt er í strætó á Akureyri og á Ísafirði er frítt fyrir börn á skólaaldri en stök ferð kostar 350 krónur fyrir full- orðna. Einkabíll Kostar: 400.000 krónur Margir gera sér ekki grein fyr- ir hversu mikið fé þarf til að eiga bíl. Á vef Fjármálaskólans er ein- föld reiknivél þar sem setja má inn ýmsa kostnaðarliði sem og áætlaðan akstur á ári. DV prófaði einfalt dæmi með bíl sem metinn er á 700 þúsund, eyðir sex lítrum á hverja hundrað kílómetra og er keyrður 14 kílómetra 22 daga mánaðar yfir vetrartímann. Það gerir um 2.700 kílómetra á vetri. Þá er bensínlítrinn skráður á 252 krónur. Samkvæmt Fjármála- skólanum kostar rekstur slíks bíls 406.913 krónur á ári. Að sjálfsögðu má draga úr kostnaði með því að margir noti bílinn saman. Það skal tekið fram að hér er um varfærn- islegt mat að ræða. Hætta er á að kostnaður fari nokkuð fram úr þessari áætlun. Gengið til skóla Kostar: Ekkert, en skynsamlegt er að fjárfesta í góðum fatnaði og skóm Nemendur sem stunda nám stutt frá skóla geta að sjálfsögðu geng- ið þangað. Sé miðað við að meðal- gönguhraði í þéttbýli sé um 5 kíló- metrar á klukkustund er ljóst að þeir sem búa í innan við tveggja kíló- metra radíus frá vinnu ættu að íhuga þann möguleika. Upplagt er að byrja daginn á góðum morgunmat áður en lagt er af stað. Heilsufarsleg- ur ágóði þess að ganga er flestum kunnur. Hjólað Kostar: 9.000 krónur Að hjóla er bæði heilsusamlegt og ódýrt. Árið 2010 gaf Reykja- víkurborg út rit sem nefnist Hjóla- borgin Reykjavík. Þar kemur fram að meðal kostnaður við rekstur hjóls á ári er um 900 þúsund krón- ur. Nemendur sem búa innan við 10 kílómetra frá sínum skóla ættu að líta til hjólreiða. Auðvelt er að fá gróf dekk eða nagladekk á hjól fyrir þá sem vilja nýta farkostinn sama hvernig viðrar. Svona kemstu til og frá skólanum n Kostar 400 þúsund að reka bíl n Frítt í strætó á Akureyri og Ísafirði Dýr bíll Það er fleira í boði fyrir nemendur en að reka bíl til að komast í og úr skóla. Námstækni Lærðu á sama staðnum n Mörgum finnst mesti óþarfi að hafa áhyggjur af hvar þeir læra og finnst jafnvel best að liggja í rúminu og lesa! Sannleikurinn er sá að við manneskjurnar erum þannig gerðar að við tengjum staði oft ákveðnum atburðum eða hegðun. Þannig getum við kennt undirmeðvitundinni að stilla sig inn á að læra þegar við setjumst við skrifborðið eða hvern annan þann stað sem við höfum valið okkur til að læra á, alveg á sama hátt og lítil börn vita að þau eiga að fara að sofa þegar þau eru lögð í rúmið sitt. Lágmarkaðu truflun n Þetta er augljóslega mikilvægt þar sem vart er hægt að læra sér til gagns í miklum hávaða. Margir telja að þeir geti ekki lært nema að hafa tónlist í bakgrunnin- um og segja sem svo að þögnin ætli að æra þá. Eflaust er margt til í þessu, í þjóðfélagi sem býð- ur upp á stöðugt hljóðáreiti. Það er sama hvar borið er niður, alls staðar eru hljóð. Það hafa verið gerðar rannsóknir á einbeitingu háskólanema við nám með og án hljóðs sem hafa leitt til þeirr- ar niðurstöðu að til dæmis bak- grunnstónlist truflar ekki ef verið er að rifja upp eitthvað sem lært hefur verið áður. Í öðrum tilfell- um virkar tónlist frekar til trufl- unar. Önnur hljóð hafa meira og minna svipuð áhrif. Settu tímamörk – lestu í stuttan tíma í einu n Það er mikilvægt að ætla sér ekki of langan tíma til að einbeita sér í einu, sérstaklega á þetta við þegar nám hefst að nýju eftir hlé. Auk þess getur verið gott hvenær sem er að hafa þetta atriði í huga. Erfitt er að segja til um hvað er réttur tími fyrir hvern og einn en viðmið gæti verið að lesa í 30–45 mínútur og taka svo hlé. Munið að hlé sem varir lengur en 10–15 mínútur er of langt ef verið er að lesa af einhverri alvöru. Lærðu mest þegar það hentar þér best n Það segir sig sjálft að það er best að læra þegar maður er upp- lagðastur til þess. Sumir eru það á morgnana, aðrir á kvöldin og svo framvegis. Best er að hlusta á sjálfan sig hvað þetta varð- ar. Þetta á sérstaklega við þegar læra á mikið í einu eða til dæmis leysa verkefni. Almenn upprifjun og „handavinna“ eins og tiltekt í glósum getur farið fram hvenær sem er og hafa ber í huga að besti tíminn til að rifja upp það sem kennarinn sagði í tíma er strax eftir tímann meðan efnið er enn- þá ferskt í minni. Sólveig Hrafnsdóttir tók saman í ágúst 2001. Að hluta byggt á bókinni; Becoming a Master student eftir D. Ellis. 1994, Houghton Mifflin Co. Sirkuslistir í vetur Alda Brynja kennir húlahopp.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.