Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2012, Blaðsíða 16
16 Fréttir 31. ágúst–2. september 2012 Helgarblað
FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PAR-
KET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...
TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...
FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PAR-
KET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...
TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...
FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PAR-
KET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...
TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...
Þúsundir fermetra
af flísum með
20 -70% afslætti
Baðherbergisvörur
20 -70% afsláttur
ÚTSALA
Teppi og dúkar
25% afsláttur
Þrot eftir lóðabrask
í bryggjuhverfinu
Í
slandsbanki þurfti að afskrifa
tæplega 600 milljóna króna
skuld vegna gjaldþrots félags-
ins Andhrímnir ehf. sem við-
skiptafélaganir Ólafur Garðars-
son og Magnús Jónatansson áttu
og stofnuðu árið 2008. Félagið fékk
stórt lán frá Byr á sínum tíma sem
notað var til kaupa á byggingalóð-
um í Bryggjuhverfinu af Björgun
ehf. í september, nokkrum dögum
fyrir hrun. Íslandsbanki yfirtók síð-
an Byr í fyrra og þar með kröfuna á
Andhrímni.
Engar eignir
Félagið var tekið til gjaldþrota-
skipta í apríl síðastliðnum en til-
kynnt var um skiptalok í Lög-
birtingablaðinu í vikunni. Þar kom
fram að engar eignir hefðu fundist
í þrotabúinu og því engar greiðslur
upp í lýstar kröfur sem námu 598
milljónum rúmum.
Athafnamaðurinn Magnús, sem
einna helst stundaði fasteignavið-
skipti, var áttundi stærsti skuldari
sparisjóðsins Byrs í nóvember
2008 eins og DV greindi frá þegar
lánabók sparisjóðsins var opn-
uð. Námu skuldir hans og félaga
honum tengdum 1.900 milljónum
króna. Í úttekt sem innri endur-
skoðun Byrs vann fyrir sjóðinn
árið 2009 var lánanefnd Byrs harð-
lega gagnrýnd, vinnubrögð sögð
ábótavant, meðal annars vegna
lánveitinga til Magnúsar.
Magnús var svo persónulega úr-
skurðaður gjaldþrota þann 26. jan-
úar síðastliðinn.
Ævintýri í Örfirisey
Ólafur Garðarsson, sem sat í
slitastjórn Kaupþings þar til á síð-
asta ári, hefur einnig verið tals-
vert til umfjöllunar á síðum DV frá
hruni. Hann og Magnús fóru fyr-
ir eignarhaldsfélögunum Góm-
ur og Lindberg en þau keyptu tugi
fasteigna í Örfirisey í lok árs 2006
og byrjun árs 2007. Sá gjörningur
vakti athygli á sínum tíma þar sem
stjórn Faxaflóahafna samþykkti að
falla frá forkaupsrétti sínum á fast-
eignunum og veita Magnúsi og
Ólafi leyfi til að kaupa þær. Voru
þær fyrst og fremst við Fiskislóð,
Hólmaslóð og Eyjarslóð. Af um-
fjöllun um málið í ársbyrjun 2008
á fréttavef Vísis er bent á að þeir fé-
lagar hefðu getað grætt milljarða
á lóðabraskinu og ýjað að spill-
ingu vegna vinatengsla Magnúsar
við Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson, fyrr-
verandi borgarstjóra, en áformin
voru meðal annars háð breyting-
um á deiliskipulagi hafnarsvæð-
isins. Efnahagshrunið setti strik
í reikninginn svo ekkert varð úr
því að Reykjavíkurborg og þeir fé-
lagar næðu að þróa íbúðabyggð í
Örfirisey. Kröfuhafar sem áttu veð
í eignunum, meðal annars Icebank
og Gift, yfirtóku eignirnar.
Keyptur úr félaginu
Og félagið Andhrímnir átti einmitt
að nota til að kaupa lóðir að sögn
Ólafs sem í skriflegu svari við fyr-
irspurn DV segir að félagið hafi
keypt byggingalóðir sem fyrr segir.
„Félagið fékk lán hjá Byr og lagði
fram verulegt eigið fé,“ segir Ólafur
aðspurður um starfsemi félagsins.
Eftir því sem næst verður komið yf-
irtók Byr lóðirnar í Bryggjuhverf-
inu á sínum tíma.
Ólafur segir Magnús hafa keypt
50 prósenta hlut hans í félaginu
fyrir um þremur árum síðan. „Ég
veit að hann reyndi mikið til þess
að fá menn til að byggja en greini-
lega án árangurs.“
Sem fyrr segir fékk félagið lán
frá Byr sem, samkvæmt síðasta árs-
reikningi félagsins fyrir árið 2009,
nam tæpum 440 milljónum króna
þegar það var tekið. Stóð skuldin í
541 milljón í árslok 2009 og skuld-
ir félagsins samtals 642 milljónum
á sama tíma.
n Miklar afskriftir vegna gjalþrots Andhrímnis n Keypti lóðir í Bryggjuhverfinu fyrir hrun
Sigurður Mikael Jónsson
blaðamaður skrifar mikael@dv.is
Lánað korteri fyrir hrun
Félag Ólafs Garðarssonar og
Magnúsar Jónatanssonar, And-
hrímnir, fékk 440 milljóna króna
lán í september 2008 til að kaupa
lóðir í Bryggjuhverfinu.
„Ég veit að
hann reyndi
mikið til þess að
fá menn til að
byggja en greini-
lega án árangurs