Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2012, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2012, Blaðsíða 10
10 Fréttir 31. ágúst–2. september 2012 Helgarblað Dúnmjúkar brúðargjafir Úrval brúðargjafa á frábæru tilboðsverði Lín Design Laugavegi 176 Sími 533 2220 www.lindesign.is sendum frítt úr vefverslun www.lindesign.is M ikið glens er í röðum bandarískra repúblikana þessa dagana en lands- þing flokksins fer nú fram í Tampa-borg í Flórída. Rúmlega tvö þúsund landsþingsfull- trúar koma að ráðstefnunni úr öll- um fylkjum Bandaríkjanna sem og frá umráðasvæðum landsins líkt og Puerto Rico, Bandarísku Jómfrúreyj- unum og Samóaeyjum. Auk lands- þingsfulltrúa eru rúmlega tvö þúsund varafulltrúar mættir til leiks ásamt fjölda starfsmanna og 15 þúsund blaða manna víðsvegar úr heiminum. Þá er fjölda gesta boðið til þingsins í umboði flokksins, þar á meðal Ragn- heiði Elínu Árnadóttur þingflokksfor- manni Sjálfstæðisflokksins. Íhalds- og umbótasinnar Ragnheiður var nýlega kjörin í stefnu mótunarráð Sambands evr- ópskra íhalds- og umbótasinna, AECR. Eftir því sem DV kemst næst er Ragnheiður Elín gestur á ráðstefn- unni í umboði sambandsins en þátt- taka í starfi samtakanna er hluti af alþjóðastarfi Sjálfstæðisflokksins. Ráðið hittist tvisvar á ári og fer með stefnumótun sambandsins. „AECR beitir sér fyrir róttækum umbótum á Evrópusambandinu. Starf sam- bandsins miðar að útbreiðslu gilda íhaldsstefnunnar,“ segir á vef sam- takanna. Þá kemur fram að samtök- in starfi með sérfræðihópnum Ný stefna (e. New Direction). Breska blaðið Telegraph segir hópinn halda uppi rökum gegn Evrópusam- bandinu og fyrir róttækum breyting- um þar á. Sérfræðihópurinn hefur til að mynda barist ötullega fyrir niður- skurði og aðhaldsaðgerðum í fjár- málum Evrópusambandsins. Raun- ar svo hressilega að hópurinn þáði tæplega hundrað milljónir króna frá Evrópusambandinu árið 2010. Konur fyrir konur Eftir því sem DV kemst næst kom heimsókn Ragnheiðar Elínar til með afar stuttum fyrirvara. Hún er með- al þátttakenda í hliðarviðburði við þingið og á að höfða sérstaklega til kvenna. Það er einskonar kvenna- hreyfing samtakanna Yong Guns, sem skipuleggja viðburðinn. Í frétt sjónvarpsstöðvarinnar WFLA8, sem er staðbundin sjónvarpsstöð í Flór- ída, er fjallað um atburðinn sem Ragnheiður Elín tekur þátt í. Rætt er við Marie Ann Carter, málefnastjóra YG women og skipuleggjanda. „Í flestum tilvikum eru það konur sem sitja fyrir svörum í pallborði. Það eru nokkrir menn og þeim er boðið á alla viðburði en markmiðið er að tala við konur um konur.“ Á fundarstaðnum má ekki aðeins spjalla um stjórnmál og samfélagsmál því boðið er upp á setustofu og jafnvel snyrtiherbergi þar sem konur geta, að sögn Cart- er, haft sig til fyrir langa fundarsetu eða fjörugar nætur. Þá segir Carter að málefni kvenna séu ekki öll eins og þau eru séð. Í óbeinni ræðu hef- ur WFLA8 eftir Carter að hún vonist til þess að með viðburðinum geti al- menningur lært sitthvað um það sem hún kallar „falskt stríð gegn konum og íhaldsmönnum.“ Stríðið gegn konum Andstæðingar stefnu repúblik- ana í málefnum kvenna kalla stefnu flokksins iðulega „stríðið gegn kon- um,“ meðlimum flokksins til mikill- ar armæðu. Frasinn nær yfir tilraun- ir kjörinna fulltrúa flokksins til að takmarka frelsi kvenna yfir eigin lík- ama. Sérstaklega er átt við tilraunir fulltrúa flokksins til að takmarka rétt kvenna til fóstureyðinga sem tilraun- ir flokksins til að stöðva fjárhagsað- stoð til samtaka sem berjast fyrir og jafnvel framkvæma fóstureyðingar. Þá eru fornaldarleg viðhorf flokks- manna og fulltrúa gagnvart konum, nauðgunum, heimilisofbeldi, rétt kvenna til jafnra launa og rétt kvenna til að vera ekki mismunað á grund- velli kyns, svo nokkur mál séu nefnd gjarnan felld undir stríð repúblikana. Bandarískir íhaldsmenn eru gjarn- ir á að slá gagnrýni á stefnu þeirra út af borðinu með handabendingum á það sem þeir telja vinstri sinnaða fjölmiðla. Á bloggsíðu samtaka ungra repúblikana (Young Guns Network) segir meðal annars; „Á meðan fjöl- miðlar tala um fóstureyðingar, fóst- ureyðingar og fóstureyðingar ætlum við hjá YGN að ræða efnahagsmál, efnahagsmál og efnahagsmál.“ Ekki fara þessa leið Breski Evrópuþingmaðurinn Dani- el Hannan er í för með Ragnheiði. Hannan er ef til vill þekktastur fyr- ir ummæli sín í bandarísku sjón- varpi um NHS, heilbrigðisþjónustu Breta. Þar sagðist hann ekki óska neinum hins ríkisrekna heilbrigð- iskerfis Breta. Hannan lét ummælin falla í miðri umræðu um umbætur á heilbrigðiskerfinu í Bandaríkjunum. Stefna Repúblikanaflokksins er hörð gegn heilbrigðiskerfi fjármögnuðu með samneyslu og skattfé. Íhalds- flokkurinn breski er þó ekki jafn and- vígur hugmyndum um að skattgreið- endur greiði fyrir heilbrigðiskerfið. Af þeim sökum var flokkurinn fljót- ur að gefa frá sér yfirlýsingu þar sem ummælin voru hörmuð og ekki sögð í samræmi við stefnu flokksins. Við- burðurinn sem Ragnheiður Elín og Hannan tala á, samkvæmt upplýs- ingum DV heitir „Hey! Ameríka ekki fara þessa leið.“ Þar verður Evrópu- væðing Bandaríkjanna til umræðu og sérstaklega stiklað á hvaða stefnu Bandaríkin eiga ekki að taka upp eft- ir Evrópubúum. Athygli vekur að Ragnheiður Elín er fyrir mistök titl- uð Evrópuþingmaður í dagskrá við- burðarins. Pallborð um Evrópuvæðingu Banda ríkjanna fór fram klukkan 17:30 að íslenskum tíma á miðviku- dag. Ekki náðist í Ragnheiði Elínu við vinnslu fréttarinnar þrátt fyrir ítrek- aðar tilraunir. n „ Markmiðið er að tala við konur um konur Marie Ann Carter Mitt og Ann Romney Forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins faðmar eiginkonu sína Ann Romney að lokinn ræðu fyrir landsþing flokksins. Atli Þór Fanndal blaðamaður skrifar atli@dv.is RagnheiðuR hjá Repúblikönum Fræðir repúblik- ana Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins fræðir áhugasama íhaldsmenn um hvernig Bandaríkin geta forðast hættur Evrópuvæðingar. n Þingflokksformaðurinn gestur repúblikana n Varað við evrópuvæðingu Bandaríkjanna Stríðið gegn konum Repúblikönum gremst mjög að stefna flokksins í málefnum kvenna sé gjarnan köllum stríð gegn konum, sökum þess hve harkalega flokkurinn gengur fram í afnámi valfrelsis kvenna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.