Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2012, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2012, Síða 14
Heiðar Már snupr- aður í Hæstarétti 14 Fréttir 19.–21. október 2012 Helgarblað F járfestirinn Heiðar Már Guð- jónsson tapaði meiðyrðamáli gegn DV á fimmtudaginn. Heiðar krafðist þess að þeim Reyni Traustasyni, ritstjóra DV, Jóni Trausta Reynissyni, fyrr- verandi ritstjóra, og Inga Frey Vil- hjálmssyni fréttastjóra yrði gert að greiða honum skaðabætur, alls rúm- lega fimm og hálfa milljón króna, vegna fréttaflutnings árið 2010 af því er hann áformaði að reyna vísvitandi að fella krónuna á árunum 2006 til 2007. Dómurinn varð ekki við því. Hæstiréttur telur að fréttaflutning- ur Inga Freys af málinu sé byggður á staðreyndum – hafi „nægileg tengsl við staðreyndir“ – og eigi „brýnt er- indi til almennings“. Hafði áhyggjur af álitshnekki Heiðar vildi fá fern ummæli dæmd ómerk: „Plottaði árás á krónuna“, „Heiðar Már Guðjónsson, fjárfestir og fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá Novator […] tók stöðu gegn ís- lensku krónunni á árunum 2006 og 2007“, „Krónuníðingurinn“ og „Heið- ar hljómar eins og landráðamaður“. Síðustu tvö ummælin birtust í leiðara Jóns Trausta Reynissonar þáverandi ritstjóra þann 20. október 2010, en hin fyrri í fréttaumfjöllun blaðsins þann 18. október. Heiðar taldi sem svo að ummælin væru ósönn og fælu í sér „aðdróttun í sinn garð“ og taldi að virðing hans hafi beðið hnekki. Niðurstaða dómsins var sú að fréttaumfjöllunin væri réttmæt, sér- staklega í ljósi þess að þar var fjallað um ósiðlegt athæfi, þó það varðaði ekki við lög. „Ummælin lúta ekki að ætlaðri ólögmætri háttsemi aðaláfrýj- anda, þótt þau varði að sönnu hátt- semi sem gagnáfrýjendur telja sið- ferðilega neikvæða í umfjöllun sinni. Í ljósi eðlis háttseminnar og framan- greindra gagna verður gagnáfrýjend- um ekki gert að leiða frekari sönnur að réttmæti ummælanna,“ segir með- al annars í dómi Hæstaréttar. „[M]er blaedir a hverjum degi“ Á meðal gagna sem vísað var til fyr- ir dómi er tölvupóstur frá Heiðari og minnisblað sem hann skrifar. Þar kemur skýrt fram að Heiðar hafi hitt fyrir erlenda fjárfesta í New York þar sem lagt hafi verið á ráðin um að ráðast á krónuna; að veikja hana vísvitandi, svo hann mætti sjálfur græða. „Thad freistar theirra ad rad- ast a kronuna,“ skrifaði hann í ein- um pósti. Í öðrum tölvupósti, frá árinu 2007, tíundar Heiðar hvernig hann væri að tapa gífurlega á ster- kri krónu: „Eg hreinlega skil ekki hvers vegna hun hangir,“ kom þar fram. Kvaðst hann viss um að gengið myndi lækka. „Islendingar, med sitt gullfiskamynni, eru nuna ad endur- fjarmagna husnaedi sitt erlendis. Eg trui ekki odru en thetta breytist en mer blaedir a hverj- um degi. Thetta er eins og kinversk pyntingaradferd. 2% tap a hverj- um manudi, jafnt og thett.“ Kemur í einum tölvupósti einnig skýrt fram að Novator, sem Heiðar Már stýrði að hluta sem fram- kvæmdastjóri en er í eigu Björgólfs Thors Björgólfs- sonar, hafi veðjað á fall krónunnar. „Novator tekur skortstöðu fyrir tæp- lega 50 milljarða króna.“ Reyndi að hafa áhrif á fréttaflutning Heiðar reyndi í sífellu að hafa áhrif á fréttaflutning af málinu á sín- um tíma. Fyrir dómi kvaðst hann ósáttur við að fréttaflutningur hafi haldið áfram, „þrátt fyrir ítrek- uð andmæli og útskýringar“. Taldi hann sig hafa „ítrekað hrakið“ hinar kærðu full- yrðingar, en dómurinn tók það ekki gilt, enda hrakti Heiðar ekk- ert í málinu. Þrátt fyrir fram- lögð sönnunar- gögn neitaði Heið- ar að hafa tekið skortstöðu gegn krónunni og mál- aði upp bjagaða mynd af atburðum. Heiðar fékk næg tækifæri til þess að svara fyrir sig, en gerði það ekki á annan hátt en að neita aðild að mál- inu. „Ég tók ekki stöðu á móti krón- unni í nafni Novator eða annarra. […] Ég hef aldrei stjórnað hópi, eða sett saman slíkan hóp, til að ráðast á íslensku krónuna. Þetta svarar öll- um þeim spurningum sem á eftir koma,“ var svar hans við ítarlegum lista spurninga, sem Ingi Freyr sendi á hann, með tilvísunum í ofangreind sönnunarögn. Dómurinn telur það „ekki óeðlilegt að [Ingi Freyr] hæfi þau skrif, sem mál þetta sprettur af,“ í kjölfar þessa samskipta. Krónuníðingurinn Heiðar Már vildi að ummæli sem látin voru falla í leiðara Jóns Trausta þann 20. október árið 2010 yrðu dæmd ómerk. Leiðarinn bar yfirskriftina „Krónuníðingurinn“ og vildi Heiðar fá þá nafngift ómerkta. Þess að auki vildi hann að Jón Trausti yrði dæmd- ur fyrir ummælin: „Heiðar hljómar eins og landráðamaður“. Dómurinn mat sem svo að þetta væru gildisdómar, sem gefa aukið svigrúm til ályktana. Þeir verða þó að hafa „einhverja stoð í staðreyndum málsins“ og úrskurðað var að þessi ummæli væru byggð á staðreynd- um. Taldi dómurinn að ummæl- in væru „sett fram af smekkleysi og með þeim djúpt tekið í árinni. Þrátt fyrir það og þótt engin þörf hafi ver- ið á svo ósmekklegu orðfæri í um- ræðunni, verður fallist á að ummæl- in hafi nægileg tengsl við staðreyndir,“ að því er segir í dóminum. Hreiðar fékk því ekki nafngiftinni „krónuníð- ingur“ hnekkt fyrir dómi. Báðir aðilar þurftu að greiða eigin kostnað vegna málsins. n n Fréttirnar áttu brýnt erindi við almenning n Vildi að fern ummæli yrðu ómerkt Stöðutaka Að taka stöðu gegn gjaldmiðli gengur meðal annars þannig fyrir sig að tekið er lán í myntinni sem á að veðja gegn, til dæmis íslenskum krónum, og keypt fyrir það erlend mynt, til dæmis evrur. Ef gengi myntarinnar sem lánið er í lækkar á tilteknu tímabili, sem lántakandinn hefur samið um við lánveitandann eða eitthvert fjármálafyrirtæki, getur lán- takandinn selt myntina sem hann keypti í staðinn, borgað upp lánið og haldið því eftir fyrir sig sem út af gengur. Tökum sem dæmi. Ef lántakandi tekur milljarð króna að láni til að kaupa evrur, og það eru 100 krónur í evrunni, getur hann hagnast umtalsvert ef gengi krón- unnar lækkar í samanburði við evru, um 20 prósent á ákveðnu tímabili. Hann sel- ur því tíu milljón evrurnar og fær til baka 1,2 milljarða króna og hagnast um 200 milljónir eftir að hafa borgað upp lánið. Þetta er einfalda útgáfan af stöðutöku gegn gjaldmiðli og lýsir hugsuninni á bak við hana í grófum dráttum. Svo dæmi sé tekið af fyrstu mánuðum ársins 2006 þá hefði sá sem veðjað hefði á lækkun krónunnar með skort- stöðu frá því í lok janúar og fram í maí getað ávaxtað fé sitt um 25 prósent. Ástæðan fyrir þessu var sú að gengi krónunnar lækkaði þegar þetta var. Gengi krónunnar styrkist hins vegar á fyrri hluta árs 2007 og náði styrkur hennar hámarki um sumarið 2007. Því er líklegt að þetta sé ástæða þess að Heiðar sagði í tölvupóstinum að honum blæddi: Gengi íslensku krónunnar hafði haldist hærra en hann hafði veðjað á og hann tapaði peningum á því. Baldur Guðmundsson blaðamaður skrifar baldur@dv.is „Niðurstaða dómsins var sú að fréttaumfjöll- unin væri réttmæt, sérstaklega í ljósi þess að þar var fjallað um ósiðlegt athæfi Forsíðan sem Heiðar kærði Heið- ar vildi fá fern ummæli dæmd ómerk. Honum varð ekki að þeirri ósk sinni. „Aðdróttanir“ Heiðar Már Guðjónsson fjárfestir taldi að fréttaflutningur af því er hann tók skortstöðu gegn krónunnni vera aðdróttanir í sinn garð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.