Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2012, Blaðsíða 42
42 Lífsstíll 19.–21. október 2012 Helgarblað
Reynir
Traustason
Baráttan
við holdið
Þ
að styttist í loka-
takmark þeirr-
ar vegferðar
sem ég hóf
1. janúar 2011. Þá
einsetti ég mér að
klífa hundruð fjalla í
því skyni að komast upp
á Mont Blanc árið 2013. Þessu fylgdi
að ég myndi létta mig um 40 kíló, að
minnsta kosti.
Þ
egar ég lít um öxl get ég sagt
með stolti að áformin hafa
gengið ágætlega eftir. Í fyrra
fór ég í yfir 300 fjallgöngur og
þetta árið verða þær ívið fleiri. Ég
komst langleiðina á Hvannadals-
hnjúk en 52ja fjalla hópurinn varð
að snúa frá þegar um 200 metra
hækkun var eftir. Í sumar gekk ég á
Heklu og áður á Baulu. Ógleyman-
legt var að ganga á eldfjallið Teide á
Tenerife. Fram að þessu hef ég stað-
ið við öll þau markmið sem ég setti
mér. Úthald mitt er orðið þannig
að stökkbreyting hefur orðið frá því
ég var 135 kíló og átti í talsverðum
erfiðleikum með að standa upp úr
djúpum stól. Nú finnst mér ég vera
fær á flesta tinda.
E
n lífið er ekki einungis sigrar.
Þarna eru líka ósigrar. Þar
sem eru fjöll eru gjarnan dalir.
Undanfarið hef ég þyngst um
fjögur kíló. Það er vegna ákveðins
kæruleysis í mataræði. Ég held mig
að vísu við sykurlausu AB-mjólkina
en hef á stundum verið djarftækur
til ostsins á hrökkbrauðið. Þá hef ég
tilhneigingu til að borða ívið meira
en ég þarf á kvöldin. Afleiðingin er
sú að ég hef þyngst.
Það góða við ástandið er að nú
segi ég stopp. Osturinn fær að fjúka
og lauslæti í mat víkur fyrir festu.
Stefnan er sú að léttast um 10 kíló
á næstu fjórum mánuðum. Þann 1.
febrúar á næsta ári mun ég verða
89 kíló og 46 kíló farin. Þar mun ég
staldra við og ákveða hvort ég þurfi
að léttast meira fyrir ferðina upp á
Mont Blanc.
S
ú leið sem ég fer á Mont Blanc
endar í 4.800 metra hæð.
Vandinn við gönguna verður
fyrst og fremst vegna þunna
loftsins. Ég kynntist því á Teide að
svimi og máttleysi fylgir því að vera
í 3.700 metra hæð. Það gekk þó
ágætlega hjá mér að aðlagast. Fróð-
ir menn segja mér að fyrrverandi
reykingamenn eigi mun betra með
að aðlagast þunnu háfjallaloftinu.
Það mun sem sagt vinna með mér
að hafa reykt þar til fyrir rúmum
tveimur árum.
Áætlun mín og væntanlegra
ferðafélaga gerir ráð fyrir að ná
þessum hæsta tindi Evrópusam-
bandsins í maí eða september á
næsta ári. Spennan er þegar orðin
mikil. Þangað til mun ég fara á
Hvannadalshnjúk, Eyjafjallajökul
og hugsanlega Herðubreið.
A
ðalatriðið er að setja sér
markmið og standa við þau.
Ég hef ekki hugmynd um
hvað tekur við eftir Mont
Blanc. Kannski hætti ég alveg að
ganga á fjöll. Líklegra er þó að ég
muni í framhaldinu setja stefnuna
á Kilimanjaro, hæsta fjall Afríku.
Það eitt er víst að nóg er af fjöllum
til að klífa.
Ég léttist
um 46 kíló
Hollur og fljótlegur
morgunverður
M
orgunmaturinn er mikil-
vægasta máltíð dagsins,
eins og allir vita. Margir
eru þó óduglegir við að
borða á morgnana en oft
er tímaskortur ástæðan. Ef morgun-
matnum er sleppt förum við fljót-
lega að finna til hungurs og það
hægist á brennslunni. Það er því til
mikils að vinna að finna sér tíma
til að útbúa fyrstu máltíð dagsins.
Bandarísk rannsókn sem birtist í
American Journal of Epidemiology,
sýndi að þeir sem fá 22 til 55 prósent
af heildarhitaeiningum dagsins úr
morgunmatnum þyngdust einungis
um tæpt hálft kíló að meðaltali á
fjórum árum. Þeir sem fengu 0 til 11
prósent af daglegum hitaeiningum
á morgnana þyngdust um nær 1,5
kíló. Önnur rannsókn sýnir að þeir
sem sleppa reglulega morgunmat
eru 4,5 sinnum líklegri til að þjást af
offitu en þeir sem taka sér tíma til að
borða á morgnana. Á síðu Women‘s
Health má finna fljótlegar og hollar
uppskriftir að morgunmat.
Fljótlegur og þægilegur
Einn bolli af haframjöli inniheldur
25 grömm af flóknum kolvetnum
og 4 grömm af trefjum. Flóknu kol-
vetnin munu gefa þér orku fyrir
morguninn og trefjarnar mun halda
þér söddum fram að hádegi. Bættu
við ferskum eða þurrkuðum berjum
og smá hlynsírópi og þá ert þú kom-
inn með staðgóðan en jafnframt
bragðgóðan morgunmat.
Uppskrift
n 1 bolli sojamjólk eða vatn
n 1/2 bolli haframjöl
n 1/4 bolli ber
n 1 msk. hlynsíróp
Berjavöfflur
Búðu til vöffl-
ur í vöfflujárni.
Smyrðu þær svo
með hnetu smjöri,
leggðu ber ofan á
og leggðu vöffluna
saman. Þá ertu kominn með eins
konar vöfflusamloku.
Uppskrift
n 4 bollar hveiti
n 1 bolli strásykur
n 100 gr smjörlíki
n 4 tsk. lyftiduft
n 3 egg
n Vanilludropar
n 1/2 matskeið hnetusmjör
n 1/4 bolli örlítið kramin bláber, brómber,
eða hindber
Morgun-burrito
Þessi morgunverður
heldur þér saddri
fram að hádegi.
Eggjahvítan og
magri osturinn gera
þetta að hollum máls-
verði sem bragðast vel.
Uppskrift
n 2 msk. salsa
n 1/4 bolli rifinn fitusnauður ostur
n 1/4 bolli ferskt kóríander
n 1 stórt egg
n 4 eggjahvítur þeyttar
n 1/2 bolli skorin fitulítil skinka
n 1 heilhveititortillakaka
Einnar mínútu
eggjahræra
Þetta tekur einung-
is örfáar mínútur
að matreiða.
Uppskrift
n 3 egg
n 1/2 bolli skornir sveppir
n 30 gr. rifinn mozzarella-ostur
n 1 tesk. smjör eða olía
Jógúrt og ferskir ávextir
Jógúrt inniheldur nægilegt magn
af próteini til að gefa þér orku allan
daginn. Ef þú setur kotasælu, ferska
ávexti og múslí út á mun þér jafnvel
finnast þú vera að borða ljúffengan
eftirrétt frekar en nauðsynlegan
morgunmat.
Uppskrift
n 1 bolli fitusnauð bláberjajógúrt
n 1/2 bolli kotasæla
n 1/2 bolli bláber eða jarðarber
n 2 msk. múslí
n 1 tsk. saxaðar hnetur eða möndlur
n 2 tsk. rifið dökkt súkkulaði
Eggjakaka og ristað brauð
Þetta gæti ekki verið auðveldara.
Fullt af spínati og tómötum og svo
bragðgott og mettandi að það væri
hægt að nota þetta sem kvöldmat.
Uppskrift
n 1 egg
n 2 eggjahvítur
n Spínat
n Tómatar
n Rifinn mozzarella-
ostur
n 2 sneiðar af heilkorna-
brauði
Hnetusmjörs- og
sultupönnukaka
Slepptu sírópinu og settu frekar
hnetusmjör og sultu á
pönnukökuna. Það
er hægt að steikja
pönnukökurnar
kvöldið áður eða
jafnvel fyrr og eiga í
frystinum.
Uppskrift
n 1 heilhveiti pönnukaka
n 1 tsk. hunang
n 1/4 tsk. maísmjöl
n 1/4 bolli bláber
n 2 tsk. hnetusmjör
Blandaðu hunangi og maísmjöli
í skál og hrærðu saman. Bættu berj-
unum út í, hrærðu og settu svo í
örbylgjuofn í 90 sekúndur eða þar
til blandan er orðin heit og þykk.
Smyrðu hnetusmjöri á pönnukök-
una og settu berjablönduna yfir.
Kryddjurtaeggjahræra
Leyniefnið í þessari uppskrift er tofu.
Ef þú býrð til of mikið má vel geyma
afgangana og hita upp seinna. Best
er að setja þá í loftþéttar umbúðir og
frysta.
Uppskrift
n 2 msk. olía
n 1 lítill rauðlaukur, fínt
hakkaður
n 400 gr mjúkt tófu
n 1/4 tsk. salt
n 1/8 tsk. pipar
n 1/8 tsk túrmerik
n 1 bolli rifinn fitusnauður cheddar-ostur
n 2 msk. hakkað ferskt basil
n 1 msk. hakkað ferskt timjan
Hitaðu olíuna á djúpri pönnu á
miðlungs hita. Steiktu laukinn í 5
mínútur þar til hann verður mjúk-
ur. Bættu tofu saman við laukinn.
Kryddaðu með salti, pipar og túr-
merik. Láttu malla í 5 mínútur og
hrærðu í á meðan.
Taktu pönnuna af hitanum og
bættu við osti, basil og timjan og
hrærðu þar til osturinn bráðnar.
Berðu fram með grófu ristuðu
brauði og mjólkurglasi.
Samloka með eggi og osti
Búðu til ljúffenga og saðsama
samloku í morgunmat.
Uppskrift
n 1 spælt egg
n 2 sneiðar heilhveiti-
brauð
n 2 sneiðar af skinku
n 1 sneið fiturskertur
ostur
n 1 sneið tómatur
n 2 salatblöð
Berjavöfflur, morgun-burrito og pönnukökur með hnetusmjöri og sultu eru nokkrar af uppástungunum.
Mikilvægasta máltíðin Margir
lenda í tímaþröng á morgnana og
sleppa því að borða morgunmat.
Mynd PHotoS.coM