Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2012, Blaðsíða 20
Þ
ó svo að barnagiftingar svipti
stúlkur tækifærum í lífinu og
leiði til óæskilegra þungana
er talið að rúmlega 50 millj-
ónir stúlkna undir átján ára
aldri séu giftar víðsvegar um heim.
Föstudaginn 11. október var Al-
þjóðadagur stúlkubarna haldinn í
fyrsta skipti fyrir tilstilli Sameinuðu
þjóðanna. Athyglinni var beint að
barnagiftingum að þessu sinni en
samkvæmt tölum Sameinuðu þjóð-
anna giftist þriðja hver kona í heim-
inum fyrir átján ára aldur. Þriðja
hver í þessum hópi giftist svo inn-
an fimmtán ára aldurs. „Ef móðir er
yngri en átján ára, eru líkurnar á því
að barnið deyi á fyrsta ári 60 prósent-
um meiri en barn sem fætt er af móð-
ur sem er átján ára eða eldri,“ sagði
Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, í yfirlýsingu í
tilefni dagsins.
Ferðast um heiminn
Ljósmyndarinn og blaðamaður-
inn Stephanie Sinclair hefur ferð-
ast um heiminn frá árinu 2003
og fylgst með og tekið myndir af
barnagiftingum – stúlkum allt nið-
ur í fimm ára aldur sem eru gift-
ar mönnum sem stundum eru
áratugum eldri en þær. Markmið
hennar er að gefa þessum stúlk-
um rödd og vekja athygli á vanda-
málinu. Í tilkynningu sem Sam-
einuðu þjóðirnar sendu frá sér
í tilefni dagsins kemur fram að
helsta dánarorsök stúlkna á aldr-
inum 15 til 19 ára í þróunarlönd-
um tengist þungunum. Meiri líkur
séu á því að stúlkur sem notið hafa
lítillar menntunar giftist snemma
– og oftast nær sé endir bundinn á
skólagöngu þessara stúlkna þegar
þær giftast á barnsaldri. Á hinn
bóginn er sex sinnum ólíklegra að
stúlkur sem notið hafa framhalds-
menntunar giftist á barnsaldri og
því er aukin menntun ein besta
leiðin til að vernda stúlkur og berj-
ast gegn barnagiftingum.
Losna við skuldir
Þó að barnagiftingar séu ólöglegar
víðast hvar virðast þær viðgangast í
ríkum mæli. Í Afganistan er til dæm-
is áætlað að 57 prósent stúlkna gangi í
hjónaband áður en þær ná sextán ára
aldri – sem er löglegur aldur í landinu
til að ganga í hjónaband. Ástæðurnar
fyrir því að foreldrar leyfa stúlkubörn-
um sínum að ganga í hjónaband eru
margvíslegar. Í þróunarríkjunum er
til dæmis ekki óalgengt að fjölskyldur
leysi skulda- og fjárhagsvanda með
því að selja ungar dætur sínar í hjóna-
band. Myndirnar sem fylgja þessari
umfjöllun eru allar teknar af Steph-
anie Sinclair en hún hefur meðal
annars unnið fyrir National Geograp-
hic. Þær eru aðgengilegar á vefnum
tooyoungtowed.org sem settur var á
laggirnar til að vekja athygli á barna-
giftingum. n
20 Erlent 19.–21. október 2012 Helgarblað
Neyddar til að
giftast mikið
eldri möNNum
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
n Alþjóðadagur
stúlkubarna haldinn
í fyrsta skipti
n Menntun
verndar
stúlkurnar
Afganistan Hin ellefu ára
Ghulam situr hér við hlið
eiginmanns síns, hins fertuga
Faiz, í þorpinu Damarda í
Afganistan. Myndin er tekin
11. september 2005.
Börn Tahani er átta ára og sést hér
standa við hlið eiginmanns síns, Majed,
sem er 27 ára. Fyrrverandi bekkjar-
félagi hennar, hin átta ára Ghada, er
í bakgrunni með eiginmanni sínum í
Hajjah í Jemen.
Unglingur Sumeena Shreshta Balami,
15 ára, yfirgefur heimili sitt til að hitta
verðandi eiginmann sinn, sextán ára
dreng, Prakash Balami, í þorpinu Kagati
í Nepal.
Tvö börn Asía er tveggja barna móðir þrátt fyrir að vera aðeins fjórtán ára. Hún sést hér þvo yngsta barni sínu á meðan tveggja ára dóttir hennar leikur sér. Myndin er tekin í Hajjah í Jemen.
Hátt í 30
þúsund manns
hafa horfið
Mannréttindasamtök í Sýrlandi
segja að 28 þúsund manns að
minnsta kosti hafi horfið spor-
laust í landinu eftir að hafa verið
teknir höndum af hermönnum.
Segjast samtökin, Avaaz, hafa lista
með nöfnum 18 þúsund einstak-
linga sem hafa horfið og vitað sé
um 10 þúsund önnur dæmi. Sam-
kvæmt frétt breska ríkisútvarps-
ins, BBC, ætla samtökin að leita til
mannréttindanefndar Sameinuðu
þjóðanna með það að markmiði
að rannsókn fari fram á þessum
óútskýrðu mannshvörfum. Sýr-
lensk stjórnvöld hafa staðfast-
lega neitað því að mannréttindi
séu brotin á borgurum og hafna
ásökunum samtakanna. Þrátt fyrir
það segjast samtökin hafa margar
staðfestar sögur um illa meðferð
á óbreyttum borgurum af hálfu
stjórnarhers Sýrlands.
Ríkastur
í sögunni
Auðæfi ríkustu núlifandi einstak-
linga heims blikna í samanburði
við auðæfi ríkasta manns sögunn-
ar, Afríkumannsins Mansa Musa
sem var uppi á 13. og 14. öld.
Þetta leiðir nýr 25 manna listi
sem vefurinn Celebrity Net Worth
tók saman og birti á dögunum.
Mansa Musa var einvaldur mal-
íska keisaraveldisins en veldið
náði yfir svæði þar sem nú eru
löndin Ghana og Malí. Samkvæmt
útreikningum vefjarins voru eignir
Musa metnar á 400 milljarða
Bandaríkjadala að núvirði. Þrír
einstaklingar núlifandi eru á list-
anum; Bill Gates, Carlos Slim Helú
og Warren Buffet. Athygli vekur að
engin kona er á listanum.
Grafa eftir líki
ungs drengs
Hópur breskra löggæslumanna er
á leið til eyjarinnar Kos á Grikk-
landi til að freista þess að finna lík
ungs drengs sem hvarf sporlaust
á eyjunni árið 1991. Drengurinn,
Ben Needham, var 21 mánaðar
þegar hann hvarf en hann var í
pössun hjá afa sínum og ömmu á
eyjunni. Þrátt fyrir mikla leit hefur
drengurinn aldrei fundist. Í maí
síðastliðnum kom á daginn að
stórar vinnuvélar voru að störf-
um skammt frá staðnum sem Ben
sást síðast á. Er jafnvel óttast að
ungi drengurinn hafi grafist undir
fleiri tonnum af rusli sem vinnu-
vélarnar losuðu skammt frá.