Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2012, Blaðsíða 26
„Ég er rétt að volgna“
Sindri Jónsson Sæll Árni.
Ættu Vestmannaeyjabúar að
rísa upp; stofna nýtt lýðveldi
og losna undan okinu sem Borgríkið
Reykjavík-Ísland er orðið að?
Árni Johnsen Eyjamenn hafa um
langan aldur skipt miklu máli í
þjóðarbúinu; skilað um 10–12%
af verðmætum sjávarafurða,
sem er burðarás Íslands, en íbúar
Vestmannaeyja eru u.þ.b. 1%. Eyja-
menn, eins og þorri landsmanna,
eru stoltir af því að vera sjálfstæðir
Íslendingar. Við höldum því áfram
en það er eitt klárt: Við förum
aldrei í Evrópusambandið.
Eyjólfur Guðmundsson Hver
er afstaða þín gagnvart
ESB-umsóknarferlinu?
Árni Johnsen Ég tel að við eigum
ekkert erindi í ESB. Við njótum
skynsamlegra samninga í gegnum
evrópska efnahagssvæðið þar sem
fullveldi okkar er varið. Það er mín
skoðun að ESB sé í rauninni nútíma
Sovét sem muni ekki standast
tímans tönn, ekki síst vegna þess að
aðaleigendur ESB eru Þjóðverjar og
Frakkar.
Bjarni Bergmann Finnst þér
stóru stjórnmálaflokkarnir sem
skulda margar miljónir eiga að
fá að bjóða fram? Er rétt af flokkum að
þiggja styrki frá fjármálafyrirtækjum?
Fá þessi fyrirtæki þá ekki alltaf fyrstu
hjálp?
Árni Johnsen Ég þekki ekki
skuldamál flokkanna. En það getur
verið eðlilegt að flokkar eins og aðrir
sem standa í mikilvægum rekstri
skuldi eitthvað. Mér finnst eðlilegt
að stjórnmálaflokkar eins og önnur
félög á almannavettvangi geti
notið styrkja í hóflegum mæli.
Friðjón Sigurðsson Ertu með
kartöflugarð heima hjá þér?
Árni Johnsen Nei, ég
var með kartöflugarð en nú fæ ég
kartöflur úr Þykkvabænum og frá
Hornafirði – aðallega. En ég hef
Þykkvabæjarrokkið í hjarta mínu.
Ólafur Högni Ólafsson Ert þú
enn með þá hugmynd að bora
jarðgöng til Eyja?
Árni Johnsen Það er engin spurn-
ing að jarðgöng milli lands og Eyja
eru hagkvæmasti kosturinn. Þau
koma. Landeyjahöfn mun kosta á
30 árum um 50 milljarða með öllu.
Þorlákshöfn myndi kosta um 60
milljarða með skipi, rekstri og öllu.
Eilíf barátta við náttúruöflin. Ekkert
afskrifast. Göng myndu kosta um
25 milljarða, hámark. Og afskrifast
á 30 árum. Þetta eru viðskipti.
Ævar Karlsson Á tímum
siðferðisvakningar hafa margir
eitthvað við þingsetu þína að
athuga, þ.á.m. ég. Telur þú þingsetu
þína og framboð flokknum til
framdráttar?
Árni Johnsen Ég er alinn upp í
kristilegum siðum og hef alltaf
unnið í þágu almennings. Ekkert er
100% í lífinu en ég hef aldrei gert
neinum illt. Ég get hafa gert mistök
en af þeim lærir maður. Ég hef
notið öflugs stuðnings til þingsetu.
Það finnst mér svara spurningunni.
Það er fólkið sem ræður hver er
kosinn á þing.
Níels Ársælsson Sæll Árni. Er
eitthvað í gildandi lögum um
stjórn fiskveiða sem þú ert ekki
sáttur við og mundir vilja breyta?
Árni Johnsen Já. Sjávarútvegur
á Íslandi fær ekki að njóta sín sem
skyldi. Hann er í sjálfheldu. Með
því að kippa grundvellinum undan
eðlilegri uppbyggingu þá leiðir það
bara í óefni fyrir alla. Sjávarútveg-
urinn hefur byggst með mögnuðum
hætti upp á undanförnum 20 árum.
Ekki bara með veiðum og vinnslu
eins og áður heldur með feikilega
öflugri markaðssetningu og
skipulagningu í afurðasölu um allan
heim á dýrustu mörkuðum. Styrkur
eða dugnaður sjávarútvegsins
hefur leitt okkur í gegnum erfiðleika
undanfarinna ára, umfram allt
annað. Með því að skera á og rugla
í ríminu þetta öfluga kerfi, eins og
núverandi ríkisstjórn vill, þá erum
við að blóðmjólka kúna, pissa í
skóna okkar og gleyma því að við
þurfum að eiga framtíð á Íslandi
sem sjálfstæð þjóð en ekki þorp í
Tyrklandi.
Sveinn Hansson Hver er
afstaða þín til samkyn-
hneigðra?
Árni Johnsen Ég lít á samkyn-
hneigða eins og venjulegt fólk. Skil
ekki spurninguna. Hver hefur sinn
stíl í lífinu og ég þekki ekkert nema
gott til samkynhneigðra eins og
annarra í okkar þjóðfélagi. Ég hef
ferðast til á annað hundrað landa
í heiminum og hef aldrei hitt neinn
sem mér hefur líkað illa við. Að vísu
misvel. Margir vinir mínir flokkast
samkynhneigðir og eru yndislegt
fólk.
Guðlaugur Snorrason Er það
satt að þú hafir farið frá
Vestmannaeyjum til Færeyja á
Zodiak?
Árni Johnsen Já, það er satt. Það
var þoka og ég ætlaði að mæta á
samkomu. Það var ekki flugfært
svo ég fór á Zodiak. Var 23 tíma frá
Hornafirði.
Árni Árnason Sæll Árni.
Formaður Sjálfstæðisflokksins
segir að tillögur stjórnlagaráðs
séu fúsk. Í þeim er að finna dýraverndar-
ákvæði. Telur þú að dýraverndarákvæð-
ið sé fúsk.
Árni Johnsen Dýraverndarákvæð-
ið er ekkert fúsk. Það eru svona
hlutir sem við þurfum að huga
vel að en æði margt í tillögum
stjórnlagaráðs er út og suður og
ekki hönd á festandi. Stjórnarskrá
er markmið og þarf að vera meitluð
og ígrunduð niður í kjöl. Það er
mín skoðun að þá grunnvinnu
eigi helstu sérfræðingar okkar í
stjórnskipunarrétti og lögfræði að
setja grunninn að m.t.t. þjóðfundar
og annarra sem geta lagt orð í
belg. Við eigum svo að kjósa um
eitthvað sem er skiljanlegt og á
mannamáli. Orðið fúsk í merkingu
Bjarna Ben er því miður satt.
Ingi Vilhjálmsson Þú segir:
„ekki síst vegna þess að
aðaleigendur ESB eru
Þjóðverjar og Frakkar.“ Hvað áttu við
með þessari setningu? Af hverju tengir
þú Frakka og Þjóðverja við „Sovét“?
Árni Johnsen Vegna þess að í
gegnum aldirnar hafa Þjóðverjar
og Frakkar og reyndar fleiri Evrópu-
þjóðir eins og Spánverjar, verið í
fremstu víglínu nýlenduveldanna.
Það er ekki ný saga heldur gömul.
Það hefur sýnt sig vel á síðustu
misserum hverjir ráða ferð í ESB.
Þjóðverjar leggja til fjármagnið,
Frakkar nýta það og svo fá ýmsir
lurður og einhverja skyndibita sem
ekki er á byggjandi. Ég treysti ekki
ESB fyrir forsjá Íslendinga. Ekki
frekar en ég hefði treyst Sovét. Við
getum bara treyst á okkur sjálf og
verðum að vera menn til þess.
Sigurður Magnússon Hvernig
fannst þér myndin hennar
Herdísar Þorvalds?
Árni Johnsen Það var sumt ágætt
í myndinni en það voru margar
rangfærslur. Það var ekki reynsla
fólksins í landinu, þ.e. bænda,
sem hafði neinn vettvang í þessari
mynd. Bændur verja sín beitilönd
mjög vel því þeir eru að verja fram-
tíð sína og landið um leið. Það kom
ekki á óvart að Herdís var glæsileg
í alla staði og setti mikinn svip á
landslagið en mér fannst myndin í
heild ganga of langt því það er ekki
hægt að ákveða einhvers staðar
inni í miðborg hvað er skynsamlegt
í þessum málum. Það þarf að semja
um hlutina til að þeir skili árangri.
Ég held að beitin í landinu sé ekki
stórvandamál en það þarf að passa
upp á hana. Það er rétt hjá Herdísi.
Jón Daðason Þarf ekki að friða
marga íslenska timburbáta
eins og gömul hús eru friðuð?
Á ekki leggja niður húsafriðunarnefnd
og stofna mannvirkjanefnd svo fleiri
geti sótt um styrki?
Árni Johnsen Ég held það sé löngu
tímabært að leggja mikla rækt við
að verja íslensk tréskip. Þau hafa
verið að hverfa frá okkur. Því miður
hefur húsafriðunarnefnd þróast
sem þröngur hagsmunahópur
frænda og vina. Ég held það sé góð
hugmynd að stofna nefnd sem
verndar mannvirki; hvers eðlis sem
þau eru á Íslandi.
Ari Karlsson Á Alþingi 1996
sagðir þú í umræðum: „Það er
kannski talið hart að segja það,
en það er mín sannfæring að kynvilla sé
skekkja.“ Hefurðu skipt um skoðun
síðan þú lést þessi orð falla?
Árni Johnsen Það eru margar
skekkjurnar sem eru í hugsun flestra
einstaklinga ef því er að skipta.
Erfitt að skilgreina það. En kynvilla,
sem menn nota ekki núorðið í máli,
hefur verið umdeild öldum saman
í sögunni. Og það er kannski ofsagt
að tala um skekkju en við skulum
segja að það sé öðruvísi en það sem
hefðbundið er.
Sveinn Hansson Af hverju
varð HRUNIÐ á Íslandi?
Árni Johnsen Hrunið á
Íslandi var að hluta til heimshrun,
það stærsta síðan á fjórða áratug
síðustu aldar. Að öðru leyti var
það hrun vegna þess að það
brotnaði trúnaður milli eigenda og
stjórnenda bankanna og íslenskra
stjórnvalda. Og gróðapungar og
fjárglæframenn réðu ferðinni þar
sem enginn verðmæti voru á bak við
þá pappíra sem þeir voru að véla um
út og suður. Og því miður leika þeir
enn lausum hala vegna getuleysis
stjórnvalda.
Örn Arnarson Árni ætlarðu að
flytja fleiri álfa til Vestmanna-
eyja?
Árni Johnsen Ef þeir hafa sam-
band, þá geri ég það.
Örn Arnarson Árni, þú veist að
stjórnvöld dæma ekki menn,
það gera dómstólar. Ætlarðu
að halda því fram að Sjálfstæðisflokk-
urinn eigi enga sök á hruninu?
Árni Johnsen Nei, ég held því ekki
fram. Ég held að sjálfstæðismenn
eins og menn í öllum flokkum hefðu
átt að standa betur vaktina. Hitt
er annað að hrun kemur yfir eins og
eins konar slys og tengist kerfi sem
er gríðarlega flókinn köngulóarvef-
ur. Varnarkerfið í því, sem tengist
víða í Evrópu, brást og menn sátu í
súpunni. Ekki síst vegna heimatilbú-
ins vanda sem stjórnmálamenn
bera auðvitað einhverja ábyrgð á.
Guðrún Konný Pálmadóttir
Staðsetning torfkofans við hlið
Skálholtskirkju er mjög
umdeild svo ekki sé meira sagt, kemur
til greina að færa hann vestur og niður
fyrir kirkjuna eins og rætt hefur verið
um?
Árni Johnsen Þú talar niður til
sögulegra verðmæta með því að
kalla Þorláksbúð torfkofa. Farðu
í húsið og skoðaðu það áður en þú
kemur með spurninguna aftur. Að
færa sögulega byggingu er auðvitað
ekki eðlilegt á Íslandi. Hugsanlega
er þessi rúst sem byggð er upp,
grunnur fyrstu kirkju í Skálholti –
sem Gissur hvíti byggði um 1050.
Myndir þú vilja flytja Þingvöll og
Skeiðarársand?
Ágúst Jónatansson Hvenær
gefur þú út næsta disk með
tónlist frá þér?
Árni Johnsen Það styttist vonandi
í það. Ég er að vinna með íslenska
tónlist. Svo er ég reyndar að vinna
að tónlist í Aþenu og Kiev í Úkraínu.
Kristinn Unnarsson Styður þú
byggingu nýja Landspítalans
við Hringbraut eða vilt þú
frekar byggja á öðrum stað?
Árni Johnsen Ég held að það sé of
langt komið þetta mál til að breyta
því. Aðrir staðir hefðu vel komið til
greina að mínu mati en það er búið
að taka ákvörðun sem ég held að
menn verði að vinna eins vel úr og
hægt er.
Aðalsteinn Agnarsson Ertu
hlynntur frelsi almennings til
handfæraveiða, frelsi sem
kæmi landi og lýð í gang, ef svo er, því
heyrist ekkert frá þér?
Árni Johnsen Almenningur hefur
frjálst leyfi til handfæraveiða. En
í takmörkuðu magni. Meðan
við höfum kvótakerfi er eðlilegt
að stórir og smáir sitji við sama
borð því annars er fjandinn laus.
Aðgangur að auðlindinni í hafinu er
slíkt hagsmunamál að það verður
að hafa leikreglur sem gilda fyrir
alla. Ég hef hins vegar sérstakt yndi
af trilluútgerð en einnig hún hefur
verið herfilega misnotuð af kerfinu
um árabil. Það eyðileggur svolítið
sakleysið í þinni spurningu.
Jóhann Jónsson Eru tröll,
sjóskrímsli og einhyrningar
velkomin til Vestmannaeyja
líkt og álfar? Ég vona að engin sé
mismununin hjá yfirnáttúrulegu
skepnunum.
Árni Johnsen Ég hygg að allt sem
hrærist sé velkomið til Vestmanna-
eyja. Þar er mikil nálægð og miklar
víddir, bein sjónlína til Brasilíu,
suðurskautsins og Azor-eyja. Og
ekkert land á milli.
Ástasigrún Magnúsdóttir Er
viðeigandi að þingmaður leiki í
auglýsingum?
Árni Johnsen Alþingismenn eru
venjulegt fólk og eru spegilmynd af
íslenskri þjóð, líklega. Það er ekkert
óviðeigandi að þingmenn bregði á
leik ef það er á jákvæðum nótum.
Nóg er af leiðindunum.
Birgir Olgeirsson Hver er
galdurinn á bak við góðan
brekkusöng?
Árni Johnsen Galdurinn á bak við
góðan brekkusöng er glaðlynt fólk
og söngvið, lagaval sem hentar
flestum og að stjórnandinn syngi
með fólkinu, en ekki fyrir það, í
mjög þéttum takti.
Hafsteinn Árnason Fyrir
hvaða máli hefur þú mest
barist fyrir á Alþingi, á líðandi
kjörtímabili?
Árni Johnsen Ég er með í gangi í
þinginu nær 40 mál; stór og smá.
Á minni þingtíð hef ég skilað frá
mér um 150 málum og sagt er að
enginn þingmaður í sögu þingsins
hafi skilað jafn mörgum málum
inn í þingsali. Ég hef verið að vinna
að málum varðandi hafnarlög
í landinu, rétt landsbyggðar-
hafnanna; Helguvíkurhafnar í
Reykjanesbæ. Ég hef verið að
vinna að úttekt á Schengen. Ég tel
að við eigum að fara úr Schengen
og spúla dekkið hjá okkur. Ég er
að vinna að því að koma á tekju-
réttindum sjómanna vegna vinnu
fjarri heimilis. Eina stéttin á Íslandi
sem nýtur ekki slíkra réttinda í dag.
Ég er að vinna að uppstokkun rétt-
arkerfisins og ýmsum hagsmuna-
málum félaga og starfsstétta.
Birgir Olgeirsson Af hverju
viltu Ísland úr Schengen?
Árni Johnsen Í fyrsta lagi
kostar Schengen okkur miklu meira
en við höfum út úr því. Schengen
hefur opnað Ísland fyrir alls kyns
hrati víða úr heiminum, sérstaklega
úr undirheimum annarra landa.
Þetta hefur breytt lífssjónarmiðinu
hjá okkur. Öryggið hefur minnkað,
ofbeldið hefur aukist. Það þarf
að marglæsa húsum og þetta
Schengen hefur leitt yfir okkur stíl
sem er ekki í anda íslenskrar hugs-
unar. Þetta hét á sínum tíma að
með inngöngu í Schengen þyrftum
við ekki vegabréf. Kjaftæði.
Viktoría Hermannsdóttir
Hvað værirðu að gera ef þú
værir ekki á þingi?
Árni Johnsen Það er svo margt
sem ég hef yndi af. Kannski væri ég
að berja höfðinu við steina og reyna
að móta þá upp á nýtt. Eða vinna
við kristniboð í Afríku, sem er nú
kannski mikilvægara. Ég hef aldrei
hugsað svona. Ef er ekki í mínum
orðabanka. Það kemur þá strax
eitthvað annað.
Ástasigrún Magnúsdóttir
Ertu femínisti?
Árni Johnsen Ég er alinn
upp við mikið jafnræði kvenna og
karla. Þannig vil ég hafa það. Ef það
er að vera femínisti; þá er ég það.
Einar Ólafsson Munt þú
mæta og kjósa 20. okt? Ert þú
tilbúinn að beita áhrifum
þínum og hvetja fólk til að kjósa?
Árni Johnsen Ég ætla að kjósa og
segja nei við fyrstu greininni. Ég vil
vanda þetta betur.
Birgir Olgeirsson Þú segir að
Schengen opni Ísland fyrir
glæpalýð en meginþáttur
samstarfsins felst hins vegar í aukinni
lögreglusamvinnu ríkjanna til þess að
berjast gegn alþjóðlegri glæpastarf-
semi. Hvernig gengur það upp?
Árni Johnsen Það er allt of
mikið gert úr alþjóðlegri tengingu
lögregluyfirvalda að mínu mati.
Við hefðum hvort eð er aðgang
að því. Það eru hagsmunir allra
landa að sameinast í vörnum á
þróun glæpa starfsemi. Það er bara
einn liður í þessu dæmi og hefur
verið ofgert að mínu viti. Áhrifin
sem Schengen hefur á Ísland eru
skelfileg og vega miklu þyngra að
mínu mati.
Jóhanna G Frá Ströndum
Hvað sérðu þig leiða okkur í
brekkusöngnum í mörg ár í
viðbót?
Árni Johnsen Heillengi.
Ástasigrún Magnúsdóttir
Eftir svona langa setu á þingi,
langar þig ekkert að prófa
annan starfsferil?
Árni Johnsen Ég hef alltaf verið
opinn fyrir öllum breytingum en
ég held að núna vanti sérstaklega
reynslubolta á Alþingi. Menn sem
hafa lært af fólkinu í landinu; bæði
verkvit og reynslu. Og eru inni í
málum vítt um landið. Ég er með
tugi mála í gangi í þinginu og ég er
rétt að volgna. Ég hleyp ekki frá
borði þó gefi á bátinn.
Kristinn Unnarsson Getur
Sjálfstæðisflokkurinn unnið
með Hægri grænum t.d. eftir
næstu kosningar?
Árni Johnsen Sjálfstæðisflokk-
urinn hefur alltaf verið reiðubúinn
að vinna með öllum flokkum. Það
er skylda stjórnmálaflokka.
Jóhanna G Frá Ströndum
Hvaða alþingismaður finnst
þér skemmtilegastur?
Árni Johnsen Það eru sem betur
fer margir skemmtilegir þingmenn.
Besti þingmaðurinn sem ég hef
unnið með var Geir Gunnarsson
heitinn alþýðubandalagsmaður
í Hafnarfirði. Sá skemmtilegasti
sem ég hef unnið með er Davíð
Oddsson. Í dag er það Ólöf Nordal.
„…Þetta er flokk-
urinn sem skyldi
eftir skuldir sem
nema um 3 milljónum á
hvern Íslending. Og ljúga að
fólki að hægt sé að lækka
hér skatta. Þetta er flokk-
urinn sem ætlar að flytja
skuldir af eigendum sínum
og vinum þeirra niður á milli-
og lágstéttina.“
Magnús Helgi Björgvinsson
um þau orð Stefáns Ólafssonar
prófessors að kostnaður ríkis-
ins við endurreisn bankakerfisins hafi
numið 414 milljörðum króna – helm-
ingurinn hafi verið til kominn vegna
Seðlabankans þar sem Davíð Oddsson,
fyrrverandi formaður Sjálfstæðis-
flokksins, var seðlabankastjóri.
„Þetta er forsvars-
mönnum Kringlunn-
ar algjörlega til
há borinnar skammar.“
Ellert Grétarsson í
athugasemd við frétt DV.is þar
sem greint var því að forsvars-
menn Kringlunnar rukki björgunar-
sveitir um 300 þúsund krónur fyrir að
vera í Kringlunni og selja Neyðarkall.
Kraftvélar ehf. buðust til að greiða
kostnaðinn.
„Það er ekki á
hverjum degi sem
ég er sammála Árna
Johnsen eða öðrum úr Sjálf-
græðisflokknum en þarna
er ég á sama máli. Ísland úr
Schengen sem allra fyrst
og fylgja því svo eftir með
tiltekt í þjóðfélaginu.“
Páll Árnason um þau orð
Árna Johnsen á Beinni línu
DV.is, að Íslendingum væri betur
borgið utan Schengen-samstarfsins.
„Þetta var alveg
ótrúlega vel heppn-
að djók. Ég ætlaði
aldrei að hætta að hlæja.“
Eyvindur Karlsson við frétt
DV.is þar sem rætt var við
Freyju Haraldsdóttur sem
gerði grín að sjálfri sér og viðhorfunum í
samfélaginu í Hraðfréttum síðastliðinn
fimmtudag.
„Jæja lítum á björtu
hliðarnar. Þeir eru
ekki að gera neinum
öðrum mein.“
Daníel Magnússon í
athugasemd við frétt DV.is þar
sem greint var frá vafasömu
myndbandi sem snjóbretta-
bræðurnir Halldór og Eiríkur Helgasynir
birtu á heimasíðu sinni. Á mynd-
bandinu má sjá ýmsa einstaklinga
framkvæma ýmsa vafasama gjörninga,
meðal annars drykkju, uppköst, nekt
og fífldirfskuleg brögð á snjóbrettum
um víðan völl.
„Ef einstaka lögreglu-
mönnum er heimilt
að halda fundi í Val-
höll og lesa upp úr skýrslum
lögreglunnar og almenningi
er svo bannaður aðgangur,
þá getur það ekki verið lögum
samkvæmt, það er alveg ljóst
og full ástæða til að kæra
slíkt.“
Ásdís Jónsdóttir í athugasemd
við frétt DV.is þar sem greint
var því að Eva Hauksdóttir ætli
að kæra Stefán Eiríksson lögreglustjóra.
Ástæðan er synjun hans um að veita
henni afrit af skýrslu sem Geir Jón Þóris-
son, fyrrverandi yfirlögregluþjónn, vann
um búsáhaldabyltinguna.
26 Umræða 19–21. október 2012 Helgarblað
Vinsæl
ummæli
við fréttir DV.is í vikunni
27
27
25
M
y
N
D
Ir
S
IG
Tr
y
G
G
U
r
A
r
I
35
14
22
Nafn: Árni Johnsen
Aldur: 68 ára
Menntun: Kennarapróf frá
KÍ 1966
Starf: Þingmaður Sjálfstæð-
isflokksins
Árni Johnsen hefur setið á þingi meira og minna frá árinu 1983 og stefnir nú á fyrsta sætið í sínu kjördæmi.