Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2012, Side 37
Menning 37Helgarblað 19.–21. október 2012
„Sögumaður af guðs náð“ „Hröð, skelfileg og grípandi“
Minning um óhreinan engil
Henning Mankell
Eldvitnið
Lars Kepler
„Vandamál Argentínu koma
fram þegar ketinu sleppir“
Bestu leikararnir í dag
LEIKARAR
1. sæti Ólafur Darri
Ólafsson
n „Framúrskarandi. Sýndi það og
sannaði í Djúpinu að hann er einn
besti leikari okkar Íslendinga.“
n „Stórleikari í öllum merkingum
þess orðs. Líka stór í lítillæti sínu
og auðmýkt gagnvart listgreininni.
Fallegur leikari sem ávallt snertir
áhorfendur.“
n „Býr yfir einstakri einlægni og
ró í leik sínum. Sýnir viðfangsefn-
um sínum vanfundna virðingu
sem setur hann á stall með bestu
leikurunum og þá ekki bara á Ís-
landi. Það eru fáir leikarar starfandi
í heiminum í dag sem geta haldið
uppi heilli kvikmynd, en það gerir
hann léttilega eins og leikur hans í
kvikmyndinni Djúpið sannar.“
n „Búinn að vera frábær í mörg ár.
Alveg frá því hann steig á svið í Valsheimilinu í Gettu betur hér í denn hef ég
fylgst með honum. Frábær.“
n „Hefur einhvern frumkraft, eins og Dóra, sem gerir það að verkum að
maður myndi horfa á hann lesa, eða jafnvel borða, símaskrána af sama
áhuga og á frammistöðu hans í Djúpinu, fóstruna í Rómeó og Júlíu eða Þröst
Hjört.“
n „Alltaf jafn magnaður að horfa á hvort sem er í bíómyndum eða leikhúsi.
Einstakur kærleiksbjörn sem og heillandi leikari.“
2. sæti Ingvar E.
Sigurðsson
n „Í einu orði sagt magnað-
ur! Honum tekst auðveld-
lega að kalla fram gæsahúð
einungis með örfáum svip-
brigðum. Mjög farsæll leikari
og hefur unnið hvern leik-
sigur á fætur öðrum. Hefur
þennan fræga x-faktor sem
ekki margir hafa.“
n „Yfirburðaleikari. Jafnvíg-
ur á sviðinu og hvíta tjaldinu.
Af því sem hann hefur gert
þá stendur upp úr túlkun-
in í einleiknum Djúpið eftir
Jón Atla.“
n „Ingvar er eins og Mídas.
Það verður allt að gulli sem
hann snertir.“
n „Dýnamískur galdramað-
ur.“
n „Einlægur, jarðbundinn og með þeim flottari sem við eigum.“
3. sæti Björn Thors
n „Jafnvígur á gamanleik og drama, með gríðarlega útgeislun og augljóslega
húmor fyrir sjálfum sér.“
n „Það er ólgandi kvika inni í hverri taug, hverri æð Björns, sem gerir það að
verkum að hann sogar til sín athygli og áhuga áhorfenda. Frábær leikari.“
n „Litar sínar persónur sterkum litum á oft mjög frumlegan hátt. Senuþjófur
af guðs náð – auk þess að geta staðið undir burðarrullum.“
n „Hefur sama vald á gamanleik og alvarlegri hlutverkum, fjölhæfur leikari
með margar hliðar.“
4.–5. sæti Hilmir
Snær Guðnason
n „Ég fór nýverið á Með
fulla vasa af grjóti og það
var í einu orði sagt magnað.
Stenst tímans tönn. Svo er
hann góð skytta.“
n „Hilmir býr við þann
vanda að vera ofnotaður;
kastað nánast í hvaðeina
bara af því að hann er Hilm-
ir Snær. En, það er ekki bara
vegna vinsælda meðal áhorf-
enda sem margir leikstjórar
hafa hann efst á blaði – ákaf-
lega góður leikari.“
n „Það bara leikur enginn
eins og hann. Á orðið svo
fjölbreytilegt persónu gallerí
að það er varla hægt að
hampa einu hlutverki um-
fram annað.“
4.–5. sæti Þorsteinn
Bachmann
n „Leikari sem hefur ekki farið
auðveldu leiðina. Smátt og smátt
hefur hann náð að sannfæra alla
um það sem hefði átt að vera fyr-
ir löngu vitað, að hann er leikari
sem býr yfir slíkum hæfileikum og
innsæi í persónusköpun að hans
er framtíðin. Svona leikarar verða
bara betri og betri með aldrinum.“
n „Kominn á góðan stað. Virtist
stefna í einhvern albesta B-leik-
ara landsins en hefur rifið sig upp
og er orðinn frábær. Er frábær í
Pressu – nær karakternum sem
hann á að leika yndislega.“
n „Engin íslensk bíómynd er full-
komnuð nema Þorsteini Bach-
mann bregði þar fyrir. Hann er
alltaf flottur og alltaf fyndinn.“
6.–7. sæti Hilmir Jensson
n „Útskrifaðist fyrir tveimur árum. Besti leikari
sinnar kynslóðar. Sýndi það sérstaklega með hlut-
verki sínu í Gálmu sem Sómi þjóðar setti á svið í
Norðurpólnum að það eru fáir sem standast honum
snúning.“
n „Var alveg svakalega góður í leikritinu Gálma sem
Sómi þjóðar setti upp í vetur. Verður skemmtilegt
að fylgjast með honum þróast.“
6.–7. sæti
Arnar Jónsson
n „Þvílík rödd! Arnar Jónsson er
einstakur á sínu sviði. Frábær leikari
og er einn af okkur bestu leikurum.“
n „Í Lé konungi tók hann geðveik-
ina á hærra plan. Þegar maður hélt
að ekki væri hægt að taka hana
lengra. Alveg hreint stórkostlegur
leikari.“
n „Einn albesti skapgerðarleikari
okkar fyrr og síðar. Fer létt með Lé
konung og ámóta létt með að kitla
hláturtaugar leikhúsgesta með gam-
anleik. Arnar er þungavigtarmaður.“
ÞEIR VORU
LÍKA NEFNDIR:
Þröstur Leó Gunnarsson
„Kiddi beikon, pabbi Nóa albínóa er
einhver alflottasti karakter sem skapaður
hefur verið í íslenskri bíómynd. Þröstur
er þar ógleymanlegur, en honum lætur
einkar vel að leika ógæfulega menn.“
Steinn Ármann Magnússon
„Vegna ferils hans, til dæmis sem
standtrúður eða að hafa lengi verið
með lúkuna í rassi kattarins Kela, er
hann vanmetinn en hann er líklega einn
besti kvikmyndaleikari landsins og mjög
öflugur á sviði.“
Valur Freyr
Einarsson
„Hefur verið
lengi á leiðinni en
eftir Tengdó er ljóst
hversu sjaldgæfir
hæfileikar eru þarna
á ferð.“
Kjartan
Guðjónsson
„Hefur allt til brunns
að bera sem góður
leikari þarf: Ein-
lægni og óskeikula
tímasetningu.“
Hilmar Jónsson
„Alltaf spennandi að sjá hvað hann gerir
á leiksviði. Þungavigtarmaður.“
Jón Páll Eyjólfsson
„Nær að skapa
forvitnilegar og
mennskar persónur
sem maður þorir
samt ekki alveg að
snúa baki í.“
Benedikt
Erlingsson
„Klárlega einn besti
leikari landsins.
Hans helsti styrkur
er hvað hann er góð-
ur sögumaður, sem er
stór hluti af því að vera
leikari. Gerir einfaldlega allt vel.“
Argentína
Veitingastaður