Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2012, Page 39

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2012, Page 39
 39Helgarblað 19.–21. október 2012 að morgni þann 9. ágúst, 1981, fannst Stephen Beattie, þá fyrrverandi lífvörður Elvis Presley, látinn í fangaklefa sínum í ríkisfangelsi Flórída. Banamein Stephens var of stór skammtur fíkni- efna og daginn eftir hófst rannsókn á því hvernig dauða hans bar að höndum. „Nokkrar“ pillur af ókunnri tegund fundust í klefanum og eðli málsins samkvæmt vildu yfirvöld vita hvernig Stephen hafði komist yfir þær. Reyndar var búið að úrskurða að Stephen skyldi mæta dauða sínum í rafmagnsstólnum. L íf Nicole Thornhill, 19 ára stúlku í Flórída, hafði valdið henni miklum flækjum og kannski engin furða að á endanum gæfi eitthvað und­ an, sem það og gerði í apríl 2008. Hún bjó hjá móður sinni Kristan, sem glímdi við vímuefnafíkn, og ofbeldisfullum stjúpföður, Gerald Jensen, sem fyrirleit og hataði fyrir að ganga í skrokk á móður sinni. En Nicole nánast hataði móður sína fyrir að búa með Gerald og umbera ofbeldið. Gerald hafði verið handtekinn fimm sinnum fyrir heimilisofbeldi frá árinu 1995 og fátt sem gaf til kynna að hann myndi breytast til batnaðar og Nicole leitaði logandi ljósi að leið úr þessum aðstæðum. Svarið fann Nicole á internetinu þegar hún komst í samband við Christopher nokkurn Tomlinson, 27 ára „klerk“ í heiðnum söfnuði og sérfræðing í sjálfsvarnarlistum sem hafði mikinn áhuga á sam­ úræjasverðum. Átök á heimilinu Innan nokkurra vikna voru Nicole og Christopher orðin elskendur og brátt varð Nicole barnshafandi. Í nokkra mánuði héldu þau til í Kali­ forníu þar sem þau bjuggu hjá hin­ um ýmsu vinum en þegar leið að barnsburði sá þau engan annan kost i stöðunni en að flytja inn til móður og stjúpföður Nicole á Palm Beach. Slíkt návígi orsakaði innan tíðar mikla spennu á milli paranna og biturðin varð þess valdandi að Kristan fékk ekki einu sinni að halda á dóttursyni sínum, en þá hafði hún sakað Christopher um að vera seið­ karl vegna heiðinnar trúar hans. Árekstrar á milli Christophers og Heralds urðu heiftúðlegir enda báð­ ir skapmiklir menn og grunnt á of­ beldi hjá þeim. Má segja að um hafi verið að ræða tifandi tímasprengur hvað þá varðaði. En í stað þess að flytja út komst unga parið að þeirri niðurstöðu að einfaldara væri að fyrirkoma Gerald og Kristan og taka íbúðina yfir og með það fyrir augum vöfr­ uðu Nicole og Christopher um netheima í leit að upplýsingum um banvænt plöntueitur. Svefntöflur og samúræjasverð Leit að eitri bar ekki tilætlaðan ár­ angur og blönduðu skötuhjúin því svefntöflum í mjólk og tekíla hjón­ anna í von um að svo virtist sem þau hefðu framið sjálfsmorð – það gekk ekki eftir. En Nicole og Christopher voru ekki af baki dottin og í apríl 2008 kom í ljós kom að Kristan átti bók­ aða fjögurra daga dvöl á afeitrunar­ stofnun. Nicole og Christopher hugsuðu þau sér gott til glóðarinn­ ar og sáu kjörið tækifæri til að kála Gerald á meðan – eina sem þurfti til var mikið af hreinsilegi og gúmmí­ hanskar. En Nicole vildi síður vera við­ stödd morðið og fór því að heiman með drenginn sinn, en Christopher beið þess að Gerald snéri heim eft­ ir að hafa skutlað Kristan á stofnun­ ina. Gerald gekk grunlaus inn á heimili sitt þar sem Christopher beið hans með samúræjasverð. Ger­ ald vissi ekki hvaðan á sig stóð veðr­ ið þegar Christopher stakk sverðinu á kaf í háls hans. Christopher fylgdi stungunni eftir með tveimur öðrum stungum; í kvið Geralds og bringu. Sverðið var blóðugt upp að hjölt­ um. Hálftíma síðar kom Nicole heim, setti barnið í rúmið og tók ásamt Christopher til óspilltra málanna við að koma líkinu fyrir niðri í ruslageymslu og þrífa vett­ vanginn. „Klerkurinn“ kjaftar af sér Þegar Kristan kom heim úr af­ vötnun var hún hissa á að Gerald skyldi ekki hafa sótt hana. Nicole og Christopher sögðu henni að hann hefði lent í hávaðarifrildi við einhvern í símanum og síð­ an rokið út. Kristan leist ekki á blikuna og hafði samband við lögregluna og sagði eiginmann sinn horfinn. Daginn eftir hafði hún orð á því að íbúðin lyktaði af hreinsilegi og sagði að eitthvað af skartgripum hennar væri horfið. Krista fékk þær skýringar að einhver hefði látið greipar sópa um íbúðina og því hefði verið nauðsynlegt að þrífa hana hátt og lágt. Þegar lögreglan ræddi við unga parið um hvarf Geralds var spjallað við Christoph­ er úri í lögreglubíl og spjallaði hann á vinalegum nótum um trúarskoðanir sínar og hve mik­ ið hann langaði til að vinna í lottói. En þegar talið barst að Gerald breyttist tónninn og í ljós kom hið mikla hatur sem hann hafði alið á gagnvart honum – og til að bæta gráu ofan á svart talaði hann alltaf um Gerald í þátíð og grunsemdir lögreglunnar vöknuðu. Þremur dögum síðar rak starfs­ maður á landfyllingu í Palm Beach augun í handlegg sem stóð út í loft­ ið og síðar staðfesti lögreglan að um væri að ræða líkið af Gerald. Nicole og Christopher voru handtekin og Nicole viðurkenndi að hafa aðstoðað við að þrífa vett­ vang morðsins og að losna við það. Hún viðurkenndi einnig að hafa eitrað fyrir móður sinni. Christo­ pher viðurkenndi að hafa myrt Ger­ ald, en um sjálfsvörn hefði verið að ræða því Gerald hefði ráðist að hon­ um í forstofuganginum. Þegar hann var spurðu hví hann hefði verið með samúræjasverð í höndunum breytti hann sögunni og sagði Ger­ ald hafa hótað sér líkamsmeiðing­ um og hann hafi verið að bíða þess að hann kæmi út úr herbergi sínu. Móðir styður dóttur Þrátt fyrir að Nicole hefði reynt að eitra fyrir henni og tekið þátt í morðinu á Gerald sýndi Kristan henni skilning og veitti henni stuðn­ ing við réttarhöldin. Krista sagði meðal annars að Nicole hefði verið auðvelt fórnarlamb fyrir Gerald og hún hefði bara fest í aðstæðum með vondum og hættulegum manni, Gerald, sem hún var hrædd við. Dómarinn sýndi orðum Kristan lítinn skilning og sagði Nicole jafn seka og Christopher því ef hún óttað­ ist Gerald af hverju reyndi hún þá að myrða móður sína með svefnlyfjum. Það tók kviðdóm aðeins þrjár klukkustundir að komast að niður­ stöðu um sekt Christophers og fékk hann lífstíðardóm og 60 ára dóm að auki. Um miðjan júní 2010 féll dómur í máli Nicole og fékk hún fimmtíu ára dóm fyrir sitt hlutverk í morðinu á Gerald Jensen. Þess má geta að Kristan tókst ekki að fá forræði yfir dóttursyni sínum og hann elst upp hjá fóstur­ fjölskyldu. n „Nicole og Christopher hugs- uðu þau sér gott til glóðarinnar og sáu kjör- ið tækifæri til að kála Gerald á meðan – eina sem þurfti til var mikið af hreinsilegi og gúmmí- hanskar. 10.58 Vondi Veginn n Stjúpfaðir Nicole var ofbeldisseggur n Nicole og kærasti hennar komu honum fyrir kattarnef stjúpinn Var í nöp við stjúpföður sinn Nicole Thornhill aðstoðaði kærasta sinn við morð á stjúpföður sínum. Kunni að beita samúraæjasverði Christopher Tomlin­ son var vel að sér í sjálfsvarnarlistum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.