Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2012, Side 56

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2012, Side 56
Shaken, not stirred! Ingibjörg skoðar Laugaveg 77 n Athafnakonan Ingibjörg Pálma- dóttir, eiginkona Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, skoðaði Laugaveg 77 á dögunum sem hýsir meðal annars Valitor og útibú Lands- bankans. Hermt er að Ingibjörg hafi skoðað húsnæðið og boð- ið í það með það fyrir augum að koma þar upp hóteli en hún rek- ur sem kunnugt er 101 hótel við Hverfisgötu. Laugavegur 77, sem er í heildina tæplega fimm þús- und fermetrar, er í eigu Lands- bankans. Húsnæðið er til sölu og hefur þegar verið ósk- að eftir tilboðum í eignina. Óvíst er hvar mál- in standa eða hvort af kaup- unum verður en Ingibjörg virðist að minnsta kosti hafa áhuga á hús- næðinu. Malar gull á íslenskri ull n Saxófónleikarinn Jóel Páls- son og eiginkona hans, Bergþóra Guðnadóttir, eru í hópi stærstu kaupenda ullar á landinu. Þau stofnuðu hönnunarfyrirtækið Farmers Market árið 2005 og voru þá með tvær hendur tóm- ar. Í viðtali við nýjasta tölublað Bændablaðsins segir Jóel að Farmers Market búi til tískumerki fyrir innlendan og erlendan markað en stærsti mark- aðurinn erlendis sé í Japan. Fyrirtæk- ið kaupir fleiri tonn af íslenskri ull á hverju ári og er það nú með 400 vörunúm- er á sínum snærum. Er nú svo kom- ið að fyr- irtækið er orðið einn stærsti við- skiptavin- ur íslenskra framleiðslu- fyrirtækja í textíl. Bond „hins hugs- andi manns“ n Almannatengillinn síkáti Andrés Jónsson er eins og margir aðrir Íslendingar aðdáandi kvik- myndanna um James Bond. Á fimmtudag birti hann tölfræði- upplýsingar um dráp, drykkju og kvennafar Bond í myndunum eftir leikurum sem tímaritið The Economist tók saman. „ Treystir mig í þeirri trú að Timothy Dalton sé Bond „hins hugsandi manns“,“ skrifaði almannateng- illinn á Facebook. Í töl- fræðinni kom fram að í þeim myndum sem Dalton lék njósn- arann hafi að jafn- aði verið minnst um dráp, drykkju og kvenna- far. Ö ll góðgerða-, hjálpar- og líknar- félög hafa ókeypis aðgang að Kringlunni tvo daga á ári. Þar sitja allir við sama borð. Þessir tveir dagar miðast við að þú getir verið með kynningu á tveimur stöð- um í Kringlunni þann sama dag,“ segir Sigurjón Örn Þórðarson, fram- kvæmdastjóri Kringlunnar við DV. Fréttir bárust af því í vikunni að Slysavarnarfélagið Landsbjörg þyrfti að greiða 300 þúsund krónur til þess að fá að selja Neyðarkall björgunar- sveitanna í Kringlunni um þriggja daga skeið í byrjun nóvember. Í kjöl- farið voru uppi raddir um að þetta gjald ætti að fella niður, enda sé um góðgerðafélag að ræða. „Nú þegar, er verið að gera vel við þessa aðila, af því að við höfum skiln- ing á því að þeir standa fyrir góðan málstað og við höfum viljað leggja okkar af mörkum í þeim efnum,“ seg- ir Sigurjón. „Landsbjörg hefur óskað eftir að vera á átta stöðum í húsinu og að vera þrjá daga. Við urðum við þeirri ósk og sögðum að allt umfram það sem er frítt fyrir þessi félög þurfi að greiða samkvæmt gjaldskrá með 50 prósenta afslætti,“ segir Sigurjón. Hann segir það ekki vera ætlun Kringlunnar að græða á þessu fyrir- komulagi, rekstrarkostnaður hússins sé hár og Landsbjörg fái pláss í hús- inu sem annars væri selt í útleigu. „Við erum ekki að hagnast á þessu. Pláss sem fer undir Landsbjörg verð- ur ekki selt öðrum á meðan á fullu verði. Gatan hér í húsinu er eins og húsið allt, selt til útleigu. Það er heil- mikill kostnaður við rekstur svona húss sem fólk verður að átta sig á. Og sá kostnaður er borinn af rekstrar- aðilum hússins.“ Hann segir að björgunarsveitirn- ar greiði almennt fyrir þjónustu, og að Kringlan sé engin undanteknin hvað það varðar. n simon@dv.is „Við erum ekki að hagnast á þessu“ n Framkvæmdastjóri Kringlunnar svarar gagnrýni Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HELGARBLAÐ 19.–21. októBer 2012 121. tbl. 102. árg. leiðb. verð 659 kr. Slegið af leigu „Nú þegar, er verið að gera vel við þessa aðila,“ segir Sigurjón Örn Þórðarson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.