Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2012, Side 2
2 Fréttir 9.–11. nóvember 2012 Helgarblað
Kaffihús World
Class á hausinn
3 Óskað hefur verið eftir því
að félagið Þrek kaffi
ehf., sem er í eigu
bræðranna Björns
Leifssonar, eiganda
World Class, og Sig-
urðar J. Leifssonar
verði tekið til gjald-
þrotaskipta. Skiptastjóri búsins hefur
nýverið auglýst eftir kröfum í búið.
DV fjallaði um málið á miðvikudag og
vísaði í ársreikning Þreks kaffi ehf. Í
honum kemur fram að félagið skuldi
120 milljónir króna eftir árið 2011. Fé-
lagið á hins vegar ekki nema rétt rúm-
lega tvær milljónir króna í eignum.
Fimmtán milljónir bættust við skuldir
félagsins á árinu 2011, en engin starf-
semi var á vegum þess það árið.
Þorsteinn Már
malar gull
2 Forstjóri Sam-herja, Þorsteinn
Már Baldvinsson,
fékk 335 milljóna
króna arð inn í
einkahlutafélag sitt í
fyrra. Félag Þorsteins
heitir Eignarhaldsfé-
lagið Steinn. Þetta kemur fram í árs-
reikningi Steins sem skilað var inn til
ríkisskattstjóra þann 27. september
síðastliðin, en DV fjallaði um málið á
mánudag. Samherji er stærsta sjávar-
útvegsfyrirtæki landsins og eitt stærsta
útgerðarfyrirtæki Evrópu. Félagið er
með starfsemi hér á landi, í Bretlandi,
á meginlandi Evrópu, í Afríku og víðar.
Upphæðin samsvarar því að Þorsteinn
hafi nánast grætt tæpa milljón á dag
í fyrra.
Óráðsían hjá Eir
1 „Ég hef ekki vísvitandi leynt upplýsingum, þvert á móti
lagði ég áherslu
á það þá mánuði
sem ég var fram-
kvæmdastjóri að
upplýsa stjórnina
um rekstur félags-
ins, meðal annars
viðamiklar hag-
ræðingaraðgerðir og
ráðstöfun íbúða,“ sagði Vilhjálmur
Þ. Vilhjálmsson, stjórnarformaður
hjúkrunarheimilis Eirar, í DV á mið-
vikudag. Mikið hefur verið rætt um
slæma stöðu félagsins sem heldur
utan um rekstur á hjúkrunarheim-
ilinu og byggingu íbúðanna sem
seldar eru til eldri borgara. DV fjall-
aði ítarlega um málið á miðvikudag
og ræddi meðal annars við Vilhjálm
um stöðuna.
Fréttir vikunnar Þessar fréttir bar hæst í DV í vikunni
R
íkið gæti hafa fyrirgert kröfu-
rétti sínum á hendur Eim-
skipum vegna sjótjóns sem
varð á búslóð sem félag-
ið flutti fyrir utanríkisráðu-
neytið. Ástæðan er sú að ráðuneytið
afhenti eigendum búslóðarinnar,
Skafta Jónssyni, sem er starfsmaður
utanríkisþjónustunnar, og eiginkonu
hans búslóðina. Ríkið hefur þurft að
greiða tugmilljónir króna í tjónabæt-
ur til þeirra hjóna en Skafti er sendi-
ráðunautur í íslenska sendiráðinu í
Washington D.C. Þetta kemur fram í
nýrri skýrslu sem Ríkisendurskoðun
birti á fimmtudag vegna málsins.
Skýrslan hefur verið í vinnslu hjá
embættinu undanfarna mánuði
en rannsókn málsins hófst í kjölfar
frétta DV og umræðu í þinginu.
Samtals borgaði ríkið 74 milljónir
króna í tjónabætur til hjónanna en
Tryggingamiðstöðin greiddi fjórar
milljónir. Hlutur tryggingafélagsins
var í samræmi við þá tryggingu sem
utanríkisráðuneytið hafði keypt en
gámurinn var tryggður fyrir hundrað
þúsund krónur fyrir hvern fermetra.
Viðbótartrygging var keypt vegna
eins listaverkanna sem voru í gámn-
um en það var metið á 2,5 milljónir
króna. Önnur listaverk voru ekki
meira en tveggja milljóna króna virði
samkvæmt upplýsingum sem komu
fram í tölvupósti frá Skafta til utan-
ríkisráðuneytisins fyrir flutningana.
Samtals voru listaverkin metin á 46,8
milljónir króna í sundurliðun hans á
tjóninu.
Skoðuðu bara myndir
Fyrirtækinu Könnun ehf., sem er
umboðsaðili Lloyd‘s á Íslandi, var
falið af hálfu Tryggingamiðstöðvar-
innar, sem tryggði gáminn að litlum
hluta, að fara yfir og fjalla um kröfur
sem Skafti og eiginkona hans lögðu
fram vegna tjónsins. Ríkisendur-
skoðun vekur sérstaka athygli á því
í skýrslu sinni að í skoðunarvottorði
sem Könnun ehf. gerði í lok júní í
fyrra vegna málsins sé tekið fram að
verkefnið hafi verið „ákaflega snúið
þar sem allir hinir tjónuðu mun-
ir, eða það sem er eftir af þeim, eru
í USA en við aftur á móti að reyna
að vinna málið hér á Íslandi út frá
myndum og öðrum skriflegum gögn-
um.“ Embættið telur að hafa verði
þessa staðreynd í huga þegar vott-
orðið er metið.
Ríkisendurskoðun gerir einnig
athugasemd við að ekki hafi verið
gerður neinn samanburður á meintu
verðmæti búslóðarinnar og þeirri inn-
bústryggingu sem Skafti og eiginkona
hans voru sjálf með. Álitamál er hvort
það hefði haft áhrif á niðurstöðuna en
lögmaður ríkisins telur, samkvæmt
skýrslunni, að slíkur samanburður
hefði ekki þjónað tilgangi við samn-
inga um uppgjör bótanna. Bendir
hann á að það sé algerlega mat þess
sem kaupir slíka tryggingu að meta
hversu háa tryggingu hann tekur.
Gámurinn átti að vera sjóheldur
Engin ákvörðun hefur verið tekin
af hálfu ríkisins um hvort reynt
verði að sækja skaðabætur til Eim-
skips, sem annaðist flutninga gáms-
ins, eða Pökkunar og flutninga ehf.,
sem sá um að pakka búslóðinni. Í
bréfi sem Pökkun og flutningar ehf.
sendi utanríkisráðuneytinu í apríl á
síðasta ári kemur fram að „gámur-
inn var splunkunýr og ætti að þola
að sjór fari yfir hann og jafnvel að
standa í sjó í einhvern tíma þar sem
þéttingar við dyrnar eru nýjar og
mjög góðar.“ Gámurinn var stað-
settur í neðstu röð í lest skipsins og
segir í skýrslu Ríkisendurskoðunar
að vatnshæðin í henni hafi verið um
það bil tveir metrar þegar mest var.
Ríkisendurskoðun telur einnig
að afhending búslóðarinnar
til Skafta kunni að hafa áhrif á
möguleika ríkisins á bótum frá Eim-
skip. Embættið telur að sú ákvörðun
kunni að einhverju leyti að girða
fyrir eða draga úr möguleikum rík-
isins til þess að halda uppi bóta-
kröfu á hendur félaginu vegna þess
að því var ekki gefinn kostur á að
koma sjónarmiðum sínum á fram-
færi við mat og uppgjör bótanna.
Sérstaklega er tekið fram að Eim-
skip hafi kvatt til skoðunarmenn
þegar tjónið varð og fulltrúi frá fé-
laginu var viðstaddur þegar gámur-
inn var tæmdur.
Breyttu reglunum eftir málið
Eftir að samið hafði verið um tjóna-
bæturnar við Skafta og eiginkonu
hans réðst utanríkisráðuneytið í
endurskoðun á þeim reglum sem
gilda um flutningsskylda starfsmenn.
Ákvæði í fyrirmæla- og leiðbein-
ingabók ráðuneytisins sem snúa að
tryggingu búslóða og geymslu þeirra
var breytt og ný fyrirmæli staðfest að
loknu umsagnarferli síðastliðið sum-
ar. Í þeim reglum er búið að setja þak
á ábyrgð ríkisins. Miðað við reglurn-
ar mun ábyrgð ráðuneytisins vegna
búslóðaflutninga barnslauss sendi-
herra, sendifulltrúa, sendiráðunaut-
ar og sendiræðismanns takmarkast
við 17,5 milljónir. Bæturnar hækka
í ákveðnu hlutfalli þegar um er að
ræða hjón og ef viðkomandi starfs-
maður á barn.
Í nýju reglunum er einnig kveðið
á um að ráðuneytið sé undanþegið
ábyrgð á tjóni á búslóðum í geymslu.
Gert er ráð fyrir því að viðkom-
andi starfsmaður geri sjálfur sínu
tryggingafélagi viðvart um að bú-
slóðin sé í geymslu og passi upp á
að innbústrygging taki til slíkra að-
stæðna.
Ríkisendurskoðun lýsir yfir
ánægðu með þessar breyttu reglur
en þær eru að mati stofnunarinnar
bæði eðlilegar og málefnalegar. Telur
embættið nýju reglurnar vera mjög
til bóta. n
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
Þak sett á greiðslur
vegna gámamálsins
n Rannsókn lokið á tugmilljóna tjónagreiðslu ríkisins til Skafta„Gámurinn var
splunkunýr og
ætti að þola að sjór fari
yfir hann og jafnvel að
standa í sjó í einhvern
tíma.
Endurskoðuðu reglurnar
Utanríkis ráðuneytið endurskoðaði
reglur um tryggingu búslóða flutnings-
skyldra starfsmanna. Mynd StEfán KarlSSon
Annie Mist í
hópi hraustra
kvenna
Annie Mist Þórisdóttir, heims-
meistari kvenna í crossfit, er á
lista bandarísku frétta stofunnar
CNN yfir hraustustu konur
heims.
Annie er þar önnur á lista
en hún varð nýlega í fyrsta sæti
á Reebook CrossFit-leikunum.
„Ég held að styrkleiki minn sé
að ég get alltaf haldið áfram. Ég
þarf eiginleg ekki að stoppa til
að hvíla mig,“ er haft eftir Annie
Mist á vefsíðu CNN.
CNN segir að konurnar á list-
anum séu fyrirmyndir þegar
kemur að heilbrigðum lífsstíl en
þar á meðal er fimleikakonan
Gabreille Dogulas, sundkon-
an Dara Torres, bandaríska
kvennafimleikaliðið, leikkon-
an Jessica Biel, sjöþrautarkon-
an Jessica Ennis, járnkvendið
Leanda Cave, strandblak-
steymið Misty May-Trenor og
Walsh Jennings og kraftlyftinga-
konan Wang Mingjuan.
Styðja mál-
sókn vegna
verðtryggingar
Stjórn Verkalýðsfélags
Grindavíkur samþykkti á
fundi á miðvikudag að verða
við áskorun Framsýnar-
stéttarfélags um að leggja
fram 120 þúsund krónur til
stuðnings málsókn Verka-
lýðsfélags Akraness sem
samþykkti nýlega að láta á
það reyna fyrir dómstólum
hvort verðtrygging hér á
landi standist lög. Ljóst er að
málsóknin mun kosta nokkr-
ar milljónir. Framsýn hafði
áður skorað á aðildarfélög
Starfsgreinasambandsins að
koma að málinu með fjár-
stuðningi svo Verkalýðsfélag
Akraness þurfi ekki eitt fé-
laga að standa að þeim mikla
kostnaði sem fylgir mála-
rekstrinum.