Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2012, Blaðsíða 36
H
anna tekur á móti blaða-
manni í stílhreinu og fallegu
húsnæði hátíðarinnar í Lækj-
argötu. Hanna er myndlist-
armenntuð og hefur stýrt og
tekið þátt í að móta fleiri tugi verkefna
bæði innanlands og erlendis. Hún
býður upp á kaffi við sporöskjulaga
borð í litlum en björtum fundarsal.
Þekkingin frelsandi
Það er aðeins rúmur mánuður síð-
an Hanna tók við nýju starfi en
hún hefur nóg fyrir stafni. „Ég byrj-
aði á því að átta mig á þeim verk-
efnum sem voru í vinnslu. Hvað
væri búið að samþykkja fyrir hátíð-
ina næsta vor og hvaða svigrúm ég
hefði. Það kom í ljós að ég hef mjög
mikið svigrúm. Sem er náttúrulega
mikill kostur og frábært að hafa.“
Hanna segist bera mikla virðingu
fyrir sögu Listahátíðar. Á sama tíma
segir hún nauðsynlegt að laga hana
að breyttu samfélagi. „Ég hef áhuga
á þeirri þekkingarsköpun sem hefur
átt sér stað á vettvangi Lista hátíðar í
gegnum tíðina. Hún er dýrmæt fyrir
margra hluta sakir, meðal annars
vegna þess hversu fjölbreytt hún er
og vegna þess að nákvæmlega þessi
þekking hefur hvergi annars staðar
orðið til. Hátíðin hefur verið mik-
ilvægt hreyfiafl í íslenskri menn-
ingu síðustu fjörutíu árin. Ég er
líka upptekin af hlutverki Listahá-
tíðar og hvernig það hefur þróast í
takt við samfélagið. Við erum nefni-
lega ekki bundin af þeirri þekk-
ingu sem við sköpum. Þvert á móti
er hún frelsandi. Listahátíð er sam-
tímis vettvangur til þess að rifja upp
og skapa nýtt. Og ég held að hún sé
á merkilegum tímamótum af því að
samfélagið hefur breyst svo mikið.“
Í rannsóknarvinnu
„Listræn stefnumótun stofnunar
á borð við þessa tekur mið af þörf-
um og möguleikum samfélagsins,
þó að hún sé einnig einstaklings-
bundin. Þegar Listahátíð var haldin í
fyrsta sinn var ekki sú gróska í menn-
ingarlífinu sem nú er. Meðal annars
þess vegna er Listahátíð í Reykjavík
hátíð allra listgreina. Fyrir vikið hefur
hún óvenjulega mikla breidd og dýpt
og það er eitt af því sem er svo áhuga-
vert við hana.“ Hanna nefnir að hér
hafi á síðustu árum orðið til margar
sérhæfðar hátíðir sem hafi fest sig
í sessi. Margar þeirra eru haldnar
um svipað leyti og Listahátíð. „Það
er eðlilegt að Listahátíð hugi að því
hvernig hún lagar sig að þessum
breyttu aðstæðum. Það útheimt-
ir svolítið rannsóknarstarf, sem við
erum að vinna núna.“
Gaman að takast á við
nýja hluti
Hún er spennt fyrir nýju starfi. „Ég
hef áhuga á að takast á við nýja hluti
og mér hefur tekist að haga starfsævi
minni í samræmi við það. Listahátíð
er skapandi vinnustaður og skapandi
vinnustaðir eru sveigjanlegir vinnu-
staðir. Þetta er lítill vinnustaður en
Listahátíð á í samstarfi við fjölda
listamanna og menningarstofnana
36 9.–11. nóvember 2012 Helgarblað
m e n n i n g @ d v . i s | d v . i s / m e n n i n g
„Flutningurinn
var frábær“
Sigur Rós
Laugardalshöll
„Frjálsleg uppskrift
í réttum hlutföllum“
Astralterta
Stuðmenn/Ágúst Guðm.
Hönnu Styrmisdóttur
er nauðsynlegt að vera
ávallt á ferð. Það skiptir
hana ekki máli hvort það
er í tíma eða rúmi. Hún
er nýr listrænn stjórnandi
Listahátíðar og settist
niður með Kristjönu Guð-
brandsdóttur og sagði
henni frá nýju starfi og
ferðum sínum um heim-
inn og hálendi Íslands.
Á stöðugu ferðalagi
Kristjana Guðbrandsdóttir
kristjana@dv.is
Viðtal
Um Hönnu Styrmisdóttur
n Hanna hefur BFA-próf í myndlist frá Parsons School of Design í París og New York.
n Meistaragráðu í myndlist frá Chelsea College of Art and Design í London
n Framhaldsgráðu í Critical Studies frá Malmö Art Academy.
n Hún hefur búið í sjö löndum í þremur heimsálfum.
n Hún hefur starfað sem leiðsögumaður á sumrin í meira en 20 ár.
n Hennar uppáhaldsstaðir eru á hálendinu, m.a. Gæsavatnaleið og Askja.
n Hún er yngri dóttir Sigrúnar Finnbogadóttur og Styrmis Gunnarssonar, fyrrverandi
ritstjóra Morgunblaðsins.
n Hanna á 13 ára son sem gengur í Landakotsskóla. Faðir hans er frá Búrma.
n Hanna hefur stýrt og tekið þátt í að móta fleiri tugi verkefna bæði innanlands og er-
lendis. Meðal þeirra helstu eru Stjórnarskrá Lýðveldisins Íslands (Libia Castro & Ólafur
Ólafsson, Hafnarborg/RÚV 2011), Lóan er komin (Steingrímur Eyfjörð, Íslenski skálinn
á Feneyjatvíæringnum 2007) og Matthew Barney (í Nýlistasafninu 2003).
n Áður gegndi Hanna m.a. störfum upplýsinga- og verkefnastjóra og fræðslufulltrúa í
Norræna húsinu og Listasafni Reykjavíkur.
Skapandi vinna „Ég hef áhuga á að takast
á við nýja hluti og mér hefur tekist að haga
starfsævi minni í samræmi við það. Listahátíð
er skapandi vinnustaður og skapandi vinnu-
staðir eru sveigjanlegir vinnustaðir. Þetta er
lítill vinnustaður en Listahátíð á í samstarfi við
fjölda listamanna og menningarstofnana og
það er líf í húsinu.“ mynd eyÞóR áRnASon