Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2012, Blaðsíða 18
18 Fréttir 9.–11. nóvember 2012 Helgarblað
í því að hann tregðast við að halda
fundi, skrifa fundargerðir og skrá
ákvarðanir niður. Einn heimildar-
maður DV segir að Pálmi geri þetta
til að ekkert skriflegt sé til sem bendli
hann við ákvarðanatökuna ef illa
skyldi fara.
Sjálfhverfur persónuleiki
Einn af heimildarmönnum DV seg-
ir að Pálmi sé mjög sjálfhverfur og
hafi lítinn áhuga á skoðunum og
vilja annarra. „Það er sterkt í Pálma
að honum finnst sínir hlutir merki-
legri en annarra. Hann er rosa-
lega blindur á það að fólk í kring-
um hann hafi einhverjar þarfir líka.
Hann er rosalega sjálfhverfur og
narsissískur. Hann er eiginlega efni
í rannsókn á margan hátt að þessu
leyti.“
Viðmælandinn segir að af-
leiðingin af þessum sjálfhverfa hugs-
unarhætti sé sú að Pálmi endi alltaf
uppi á kant við fólk í kringum sig.
„Það er athugunarefni í sjálfu sér fyr-
ir Pálma sem einstakling af hverju
hann á enga vini. Það er mjög sér-
stakt að maður á þessum aldri eigi
ekki kunningja eða vini í lengri tíma.
Flestir sem hafa farið frá honum,
Matthías, Birgir Jónsson sem var for-
stjóri hjá Iceland Express til skamms
tíma, Pétur Már Halldórsson sem
vann hjá Fons, og fleiri – ég get talið
upp fólk í allan dag – hafa hrökklast í
burtu frá honum og hann endar á að
líta á þetta fólk sem óvini sína. Þetta
þýðir ekki að þetta fólk líti á sig sem
óvini Pálma þó að hann líti þannig á
það.“
Annað dæmi um starfsmann
Pálma sem hefur hætt hjá honum í
fússi er Andri Már Stefánsson, sem
er frændi hans. Hann var starfsmað-
ur hjá Pálma, eins konar persónuleg-
ur aðstoðarmaður, þar til í fyrra. Þá
hætti hann hjá Pálma og í kjölfarið
deildu þeir um launagreiðslur sem
Andri taldi sig eiga inni hjá honum.
Sú deila endaði með aðkomu lög-
manns Pálma en fór þó vel á endan-
um fyrir þennan fyrrverandi starfs-
mann Pálma.
Enn annar viðmælandi DV seg-
ir að ekki þurfi að leita lengi til að
finna fólk sem lent hafi í stappi
við Pálma. „Þú þarft ekki að leita
lengi til að finna fólk sem getur
lýst því hvernig er að lenda í stríði
við Pálma Haraldsson.“ Og ann-
ar viðmælandi DV segir að hugsun
Pálma um fólk sé á þá leið að ann-
að hvort sé fólk ,,með honum eða
á móti“ og þar af leiðandi líti hann
svarthvítum augum á það: Þeir
sem áður störfuðu fyrir hann verða
andstæðingar hans ef þeir hverfa til
annarra starfa.
Paranoja Pálma
Viðmælandi DV segir að þetta sé
karakterbrestur hjá Pálma; paranoja
hans sé svo mikil að hann telji að allir
fyrrverandi samstarfsmenn sínir séu
að vinna á móti sér. Viðkomandi seg-
ir að það sé erfitt að hugsa svona á Ís-
landi, „að loka öllum dyrum og geta
svo ekki opnað þær til aftur“.
,,Ef þú horfir í kringum þig og sérð
bara fífl þá hlýtur eitthvað að vera að
hjá þér. Ég bara vorkenni Pálma því á
endanum þá hlýtur það bara að vera
honum sem líður illa. En það getur
enginn talað um fyrir honum nema
hann sjálfur.“
Á sínar góðu hliðar
„En Pálmi er auðvitað ekki alslæmur.
Hann getur verið alveg rosalega
aumingjagóður, eða góður við þá
sem minna mega sín og þurfa hjálp.
Ég hef séð hann leggja sig fram meira
en eðlilegt gæti talist til að hjálpa
fólki. Hann er samt bara svo blindur
á fólk í kringum sig og kann sig ekki í
samskiptum,“ segir heimildar maður
DV.
Þá segir viðmælandinn að Pálmi
sé auðvitað mjög klár þrátt fyrir alla
sína persónulegu misbresti. „Þetta
er alveg eldklár náungi og mjög tal-
naglöggur. Hann sér oft möguleika
sem aðrir sjá ekki. Þegar aðrir menn
lesa ársreikning og sjá bara eitthvert
svartnætti getur Pálmi lesið hann og
séð björtu hliðarnar og möguleikana
í honum.“ Þá nefna viðmælendur DV
„vinnusemi“ Pálma, sem jaðri við of-
virkni.
Dæmdur til að enda einn
Einn af viðmælendum DV segir
að vegna þeirra karaktereinkenna
Pálma sem snúast um slælega
færni í mannlegum samskiptum
hafi hann endað á því að rústa öllu
sem hann hefur komið nálægt.
„Allt sem hann hefur komið ná-
lægt hefur hann rústað á endan-
um,“ segir viðmælandinn. „Sjáðu
bara til dæmis muninn á Jóni Ás-
geiri og honum. Þeir hafa farið
sams konar leið í lífinu en Jón Ás-
geir á bara fullt af vinum ennþá og
er bara ekki eins hataður af þeim
sem unnu með honum. En allir
sem hafa unnið með Pálma vilja
ekki vinna með honum aftur og
enda á því að verða persónulegir
óvinir hans,“ segir viðmælandi DV.
Annar viðmælandi blaðsins seg-
ir að Pálmi sé dæmdur til að enda
einn: „Hann er einfari og er því lík-
lega dæmdur til að enda einn af því
hann kann sig ekki í samskiptum við
fólk.“
Lítið eftir
Staða Pálma í dag er þannig að
hann er búinn að missa eða selja
þær fyrirtækjaeignir og þau hluta-
bréf sem hann átti á Íslandi á ár-
unum fyrir hrun. Nú stendur hann
einnig í málaferlum við fyrrverandi
eiginkonu sína út af skilnaðinum
við hana og skiptum á búi þeirra.
Embætti sérstaks saksóknara er
sömuleiðis á eftir Pálma og er hann
með réttarstöðu sakbornings í að
minnsta kosti einu máli. Ljóst er
einnig að Pálmi á, þrátt fyrir mik-
ið tap og mikinn ólgusjó síðastliðin
ár, milljarða króna eignir í útlönd-
um sem hann situr á, til dæmis í
Lúxem borg.
Ef marka má orð Pálma í við-
talinu við DV þá skiptir sú stað-
reynd að hann á peninga ekki
miklu máli fyrir hann, að minnsta
kosti var honum sama um þá pen-
inga sem hann tapaði í hruninu.
Í viðtalinu sagði Pálmi að mann-
orðið væri honum allt: „Líður mér
illa? Já, alveg skelfilega. Sé ég eft-
ir peningunum sem ég hef tapað í
þessi hruni? Nei. Sé ég eftir mann-
orði mínu? Já, alveg gríðarlega,
gríðarlega. Ég gerði allt til að fá það
aftur. Af hverju missti ég það? Af
því að ég var þátttakandi í leiknum.
Skammast ég mín? Já, að sjálfsögðu
fyrir sumt en annað ekki. Af hverju
skyldi ég ekki gera það? Annað væri
óeðlilegt.“
Milljarðarnir sem Pálmi á í út-
löndum ættu því ekki að skipta
hann miklu máli og ættu að vera
lítil sárabót fyrir hann á þeim erf-
iðu tímamótum sem hann stendur
um þessar mundir. Fátt annað en
þessir peningar standa þó eftir hjá
Pálma eftir viðskiptasögu hans síð-
ustu ár.
Ekki náðist í Pálma við vinnslu
greinarinnar. Erlendu símanúmeri
Pálma virðist hafa verið lokað eftir
sölu hans á Iceland Express. n
„Það ætti að vera
athugunarefni
fyrir Pálma af hverju
hann á enga vini.