Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2012, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2012, Qupperneq 16
16 Fréttir 9.–11. nóvember 2012 Helgarblað Í júní síðastliðinn, þegar orðið var ljóst að Pálmi Haraldsson fjár- festir myndi missa Iceland Ex- press eftir gegndarlaust tap um árabil, rak hann sambýliskonu sína, Höllu Halldórsdóttur, fyrirvara- laust úr starfi hjá ferðaskrifstofunni. Þetta herma heimildir DV. Annar starfsmaður Iceland Express, Jóhann Geir Rafnsson, sem hafði verið yfir- maður tölvudeildar félagsins, fékk einnig reisupassann á sama tíma og réð sig yfir til WOW air. Jóhann Geir var svo rekinn frá WOW air sama dag og Skúli Mogensen keypti félagið af Pálma í lok október. „Hann er rekinn sama dag og Pálmi selur Iceland Ex- press til Skúla,“ segir viðmælandi DV um starfslok Jóhanns Geirs. Hvorki Halla né Jóhann fékk greidd laun á uppsagnarfresti sínum og er sú launadeila komin til VR þar sem Halla og starfsmaðurinn krefja móðurfélag Iceland Express, Feng, um launagreiðslur fyrir þrjá til fjóra mánuði. Lögmenn VR sjá um þá kröfugerð fyrir þau og eru búnir að útbúa stefnu gegn Feng í málinu sem verður birt forsvarsmönnum félags- ins á næstunni. DV hafði samband við Höllu Hall- dórsdóttur en hún neitaði að tjá sig um málið á þeim forsendum að um persónulegt mál væri að ræða. Bauð Höllu húsið á 450 þúsund á mánuði Á sama tíma og Pálmi rak Höllu frá Iceland Express setti hann henni af- arkosti: Hún þyrfti annaðhvort að flytja út úr einbýlishúsi sem þau höfðu búið í á Sólvallagötu eða greiða honum 450 þúsund krónur í leigu á mánuði. Halla valdi seinni kostinn og flutti út frá Pálma ásamt sonum þeirra tveimur – 11 og 14 ára. Einn heimildarmaður DV segir að Halla hafi yfirgefið Pálma eins og „puttaferðalangur“, allslaus með snyrtidót í tösku. Hún flutti þá tímabundið í iðnaðarhúsnæði úti í Örfirisey sem búið var að útbúa sem íbúð. Þar bjó hún í herbergi í íbúð sem hún deildi með öðru fólki. Það- an flutti hún í þriggja herbergja íbúð í Vesturbænum í Reykjavík. Þau Halla og Pálmi deila forræðinu yfir sonum þeirra tveimur og eru þeir skráðir til lögheimilis hjá Höllu. Einn heimildarmaður DV segir um skilnaðinn: „Þetta kom nú ekki á óvart. Pálmi er búinn að vera upp- tekinn við sín viðskipti um árabil. Viðskiptin hafa alltaf haft forgang gagnvart öllu öðru. Þau Pálmi hefðu aldrei getað skilið í góðu; það er eig- inlega ekki hægt að skilja við Pálma Haraldsson í góðu.“ Missir og selur allt Þegar þarna var komið sögu var Pálmi Haraldsson búinn að missa yfirráð yfir þeim fyrirtækjum og eignarhaldsfélögum sem hann átti fyrir hrun, meðal annars Securitas, Sterling, Fons, hlut í norrænu ferða- skrifstofunni Ticket auk þess sem breska flugfélagið Astraeus var kom- ið í greiðslustöðvun. Einungis Ferða- skrifstofa Íslands og Iceland Express stóðu eftir, en tæpt þó þar sem fyrir lá að rekstur Iceland Express gæti ekki gengið til lengdar. Slitastjórn Glitn- is var einnig búin að stefna honum í New York og á Íslandi og þrotabú Fons hafði höfðað fjölda mál á hend- ur honum þar sem reynt var að sækja til hans fjármuni. Þá hefur Pálmi ver- ið til rannsóknar hjá sérstökum sak- sóknara, meðal annars í AURUM- málinu. Sala Pálma á Iceland Express til Skúla Mogensen gekk svo í gegn í seinni hluta októbermánaðar. Pálmi var þá búinn að leggja milljarð króna inn í ferðaskrifstofuna í einu ári og hafði einsett sér það eftir hrunið 2008 að leggja allt kapp á rekstur Iceland Express. Um þetta sagði Pálmi í viðtali við DV á fyrri hluta árs 2010: „Ég er bara búinn að taka mína stefnu í lífinu. Nú er ég bara Pálmi; nú er ég bara rekstrarmaður og ég er með önnur gildi í lífinu. Ég ætla bara að sjá um mín fyrirtæki núna.“ Þessi staða hefur þó breyst verulega síðast- liðið ár og á Pálmi ekki lengur þau tvö fyrir tæki sem hann einsetti sér að reka árið 2010 – einungis Ferðaskrif- stofa Íslands er eftir af veldi hans en hún er í sölumeðferð hjá Arctica Fin- ance um þessar mundir. Þrátt fyrir að Pálmi hafi misst og selt þau fyrirtæki sem hann átti á Ís- landi er hann ekki á flæðiskeri stadd- ur eftir hrunið 2008. Pálmi tók til dæmis 4,4 milljarða króna í arð út úr Fons árið 2007. Þeir fjármunir voru greiddir til eignarhaldsfélags hans í Lúxemborg. Hann situr því á eignum sem nema milljörðum króna. Umhugað um orðsporið Einn af heimildarmönnum DV seg- ir að Iceland Express hafi stefnt í gjaldþrot lengi en að Pálmi hafi þrá- ast við að viðurkenna það og neitað að gefa eftir þá hugmynd að ferða- skrifstofan gæti gengið. Pálmi tap- aði miklum peningum á því að halda Iceland Express gangandi þrátt fyrir að ljóst væri að reksturinn gæti varla gengið. „Ég held að Pálmi hafi alltaf talið orðspor sitt á Íslandi vera betra en það er. Hann telur sig geta endur- heimt það en ég tel að það sé bor- in von. Þessi von Pálma litar mjög margt sem hann gerir. Þetta á til dæmis við um söluna á Iceland Ex- press því hann hafði ekki getað hugs- að sér að láta félagið fara í þrot með tilheyrandi skakkaföllum fyrir við- skiptavinina sem höfðu keypt sér flugmiða. Hann telur að þetta hefði getað skaðað orðspor hans.“ Fyrir vikið rak Pálmi Iceland Ex- press lengur en hann hefði átt að gera, sérstaklega þegar litið er til auk- innar samkeppni frá WOW air sem kom sér illa fyrir félagið. Pálmi niður- greiddi tap félagsins um margra mánaða skeiða með peningum sem komu frá eignarhaldsfélögum hans erlendis. Þegar komið var í óefni og ljóst að annaðhvort þyrfti hann að leggja félaginu til enn meira fé, gefa félagið upp til gjaldþrotaskipta eða selja það, ákvað hann að selja leif- arnar af ferðaskrifstofunni til WOW air. Með því var WOW air búið að kaupa upp helsta samkeppnis aðila sinn. Öll spjót standa á Pálma Öll spjót hafa staðið á Pálma síðast- liðin ár og hefur hann verið úthróp- aður hér á landi vegna vafasamra viðskiptahátta og hlutdeildar hans í íslenska efnahagshruninu. Pálmi lýsti þessari stöðu sinni í viðtalinu við DV. „Heldur þú að ég líði ekki fyr- ir að geta ekki farið á kaffihús á Ís- landi lengur? Auðvitað er þetta of- boðslega sárt. Maður lærir það að peningar eru ekki allt. Það eru önnur gildi í lífinu. Gildismat mitt er alger- lega breytt,“ sagði Pálmi en í viðtalinu sagðist hann einnig hafa fengið morðhótanir og hótunarbréf í pósti. „Þetta er komið út fyrir öll velsæmis- mörk … Ég er búinn að loka mig al- gerlega af. Ég er eins og stofufangi á Íslandi. Ég fer ekkert, ekki einu sinni með börnin mín í sund.“ Við þessa dramatísku atburða- rás í viðskiptasögu Pálma, sem gæti leitt til ákæru gegn honum og dóms, bætist svo þetta persónulega mál, skilnaðurinn, sem getur ekki ann- að en endað illa. Einn af viðmæl- endum DV segir: „Pálmi er búinn að búa á stríðshrjáðum svæðum í nokk- ur ár. Hann er alltaf að horfa yfir öxl- ina á sér og bíða eftir næstu hnífs- tungu,“ segir einn af viðmælendum DV. Pálmi er því orðinn var um sig eftir áralangt stríð og deilur í kjölfar hrunsins. Skilnaðurinn kominn fyrir dóm Skilnaðardeila þeirra Pálma og Höllu er nú komin fyrir dómstóla þar sem Pálmi hefur neitað Höllu um persónulegar eigur hennar sem er að finna á heimili þeirra, meðal annars skartgripi og jólagjafir sem hann hafði gefið henni í gegnum árin, sem og hlutdeild í sameiginlegum eign- um þeirra, eins og innanstokksmun- um og öðru innbúi. Einn viðmæl- andi DV segir um þetta: „Hluti af því sem hann heldur eftir eru jólagjafir sem hann gaf henni. Ég hef aldrei heyrt um þetta: Að einhver taki jóla- gjöfina til baka. Þetta er eins og í bíó; síðast þegar ég heyrði eitthvað þessu líkt var í Dr. Phil-þætti fyrir tíu árum. Þegar öllu er á botninn hvolft er Pálmi sá eini sem kemur illa út úr þessu.“ Þá hefur Pálmi ekki viljað láta Höllu fá þá peninga sem hún telur sig eiga í búi þeirra. „Öllu fé sem hún hélt hún ætti er haldið föstu af karlin- um,“ segir annar viðmælandi DV. Síðastliðinn miðvikudag lagði lögmaður Höllu, Guðrún Stríð Pálma í FonS n Harður skilnaður og flugstríðið við Skúla n Deila Höllu og Pálma fyrir dóm Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is „Það er eiginlega ekki hægt að skilja við Pálma Haraldsson í góðu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.