Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2012, Qupperneq 17
Fréttir 17Helgarblað 9.–11. nóvember 2012
Brynleifsdóttir, fram kröfu fyrir Hér
aðsdómi Reykjavíkur um að réttur
inn beitti sér fyrir því að skipti færu
fram á búi þeirra Pálma og Höllu.
Sigurður G. Guðjónsson er lögmaður
Pálma í málinu líkt og oft áður. Mið
að við samskiptasögu Pálma og
Höllu síðastliðna mánuði, uppsögn
ina, deiluna hjá VR og yfirvofandi
málaferli, má ætla að þau dómsmál
verði löng og ströng.
Annar viðmælandi DV segir að
afar erfitt sé fyrir venjulegan mann
að standa í lagalegu stappi við Pálma
og að hann öfundi Höllu ekki af því.
„Það er alveg rosalega vont að eiga
við karlinn með Sigga G. og alla þessa
lögfræðinga. Þetta er rosalega þungt,
bæði andlega og eins fjárhagslega.
Tíminn, orkan og peningarnir sem
fara í þetta. Það er ekkert hægt fyrir
venjulegt fólk að standa í þessu við
þessa menn. Fólk áttar sig ekkert á
því hvernig það er að fá svona mann
upp á móti sér, sem á fullt af pening
um og er harðsvíraður. Hann getur
gert líf fólks að hálfgerðu helvíti, þó
það sé með allt sitt á hreinu og rétt
lætið sín megin,“ segir viðmælandi
DV.
Krafði Höllu um endurgreiðslu á
flugmiðum
Pálmi og Halla voru gift þar til árið
2010 þegar þau skildu að lögum. Þau
héldu þó áfram að búa saman þrátt
fyrir skilnaðinn, fyrst í Lundúnum,
þar sem Pálmi á íbúð sem verðmetin
er á mörg hundruð milljónir, og síð
an á Íslandi. Öll spjót stóðu á Pálma
eftir efnahagshrunið 2008 og sá hann
fram á mörg málaferli gegn sér, með
al annars frá slitastjórn Glitnis og
þrotabúi Fons. Liður í varnaraðgerð
um Pálma til að bregðast við þessari
stöðu var hugsanlega meðal annars
að flytja lögheimili sitt til Lúxem
borgar. DV hefur heimildir fyrir því
að skilnaðurinn hafi fyrst og fremst
farið fram af praktískum ástæðum
vegna þeirra deilna og dómsmála
sem Pálmi átti yfir höfði sér á þessum
tíma, líkt og áframhaldandi sambúð
þeirra eftir skilnaðinn rennir stoð
um undir. Síðastliðið sumar áttu sér
hins vegar stað þeir atburðir sem lýst
er hér að ofan þar sem Pálmi henti
sambýliskonu sinni og barnsmóður
út á Guð og gaddinn.
Í kjölfarið á þessum harkalega
skilnaði hefur Pálmi sett fram alls
kyns kröfur á hendur Höllu, meðal
annars þá að hún endurgreiði hon
um flugmiða sem hún og ættingjar
hennar og vinir fengu frá Iceland Ex
press í gegnum tíðina. Sú krafa mun
hlaupa á milljónum króna. Þetta
herma þrjár sjálfstæðar heimildir
DV.
Ekki hefur hins vegar fengist stað
festing á þessu frá Höllu þar sem
hún neitar að ræða um deiluna við
Pálma.
Sært stolt
Einn heimildarmaður DV segir að
Pálmi bregðist svona við af því að
hann sé svo stoltur: „Stoltið er rosa
lega sært. Hann nærist á því að
nú megi hann allt gagnvart henni
(Höllu, innskot blaðamanns) af því
búið sé að særa stolt hans.“
Einn heimildarmaður DV segir þó
að fyrir þennan harkalega viðskiln
að við Höllu hafi hann komið afar vel
fram við fjölskyldu hennar, sérstak
lega foreldra hennar, og sýnt þeim
mikla góðvild. Þá er Pálmi sagður
hafa staðið þétt við bakið á fjölskyldu
Höllu þegar dauðsfall varð í fjölskyldu
hennar fyrr á árinu. Pálmi er því auð
vitað ekki svarthvítur persónuleiki þó
að skilnaðurinn við Höllu hafi hleypt
illu blóði í hann. „Hann Pálmi er ekki
vondur maður; hann beitir bara röng
um aðferðum. Pálmi fattar bara ekki
að orð og gjörðir hafa áhrif.“
Deilan og kaupin á
Iceland Express
Uppsögn Höllu og deila hennar við
Pálma tengist nýlegum kaupum
Skúla á Iceland Express með þeim
hætti að áðurnefndum Jóhanni Geir
Rafnssyni var umsvifalaust sagt upp
störfum hjá WOW air eftir að Skúli
keypti Iceland Express af Pálma, líkt
og áður hefur komið fram. Þá hafði
hann starfað hjá félaginu í einungis
örfáa mánuði.
Sú staðreynd er áhugaverð, ekki
síst í ljósi þess að Matthías Ims
land, fyrrverandi forstjóri Iceland
Express, missti starf sitt hjá WOW
sama dag og Pálmi seldi Skúla fyrir
tækið. Einn heimildarmaður DV
segist fullviss um að starfslok þeirra
tveggja hjá WOW air hafi verið hluti
af samkomulagi Pálma og Skúla um
kaupin á Iceland Express. Matthías
hætti í illu hjá Iceland Express á síð
asta ári og reyndi ferðaskrifstofa
Pálma að fá lögbann á störf Matthí
asar fyrir WOW air í kjölfarið. Iceland
Express grunaði að Matthías hefði
undirbúið brottför sína frá Iceland
Express með löngum fyrirvara og
verið að vinna bak við tjöldin með
WOW air, aðalsamkeppnisaðila
Iceland Express, í nokkurn tíma áður
en hann hætti hjá Iceland Express.
Iceland Express grunaði að Matthías
myndi nýta sér upplýsingar um starf
semi ferðaskrifstofunnar í starfsemi
WOW air.
Annar heimildarmaður DV segist
hafa fengið staðfestingu á því að Jó
hanni Geir og Matthíasi hafi verið
sagt upp hjá WOW air að kröfu Pálma
Haraldssonar og að starfslok þeirra
hafi verið hluti af samkomulaginu
um söluna á Iceland Express. Tíma
setningarnar á brotthvarfi þeirra frá
WOW air eru auðvitað ansi áhuga
verðar og ekki hefur spurst út að
neinum öðrum starfsmönnum
WOW air hafi verið sagt upp sama
dag og Skúli Mogensen keypti
Iceland Express af Pálma.
Stríðið við Matthías
Meðal þess sem spilaði inn í illindin
á milli Pálma og Matthíasar Imsland
var gremja eigandans í garð forstjór
ans sem hann kenndi um ófarir fé
lagsins. „Pálmi er með Matthías á
heilanum. Hann kenndi Matthíasi
um hvernig fór fyrir Iceland Express.
En stærstur hluti þeirra hugmynda
sem gerðu Iceland Express erfitt fyr
ir, eins og flug til Ameríku, voru hug
myndir Pálma sem höfðu ekkert
með Matthías Imsland að gera. Mis
tök Matthíasar voru kannski bara
að láta eigandann stjórna fyrirtæk
inu en gera það ekki sjálfur; Matth
ías hefði bara átt að setja hnefann í
borðið. En Pálmi mun aldrei taka
ábyrgð á því, horfa í spegil og hugsa
með sér: Jæja, þarna gerði ég mis
tök. Hann er búinn að komast að því
að Matthías sé sökudólgurinn og þá
verður það bara þannig,“ segir einn
af heimildarmönnum DV en það er
opinbert leyndarmál að Pálmi var
alla tíð mjög afskiptasamur sem eig
andi Iceland Express. Segja má að
Pálmi hafi verið eins konar skugga
forstjóri Iceland Express.
Annar viðmælandi DV segir að
þessi sjálfhverfi hugsunarháttur
Pálma leiði svo til þess að hann
kenni öðrum alltaf um ófarir sín
ar. „Þetta er bara narsissískur hugs
unarháttur. Allt sem kemur fyrir er
einhverjum öðrum að kenna. Hon
um er ómögulegt að líta í eigin barm.
Pálmi lítur á sig sem fórnarlamb.“
Slíkur hugsunarháttur er lýsandi
fyrir Pálma samkvæmt viðmælend
um DV en hann er sagður ábyrgðar
fælinn, sem meðal annars lýsi sér
Stríð Pálma í FonS
n Harður skilnaður og flugstríðið við Skúla n Deila Höllu og Pálma fyrir dóm
Myndlíking Pálma
Pálmi sagði í viðtali við DV árið 2010 að hann
væri eins og sjómaður sem hefði stundað
ofveiði uppi í landhelgi án heimildar. Líkingin
snérist um viðskiptahætti hans á árunum
fyrir efnahagshrunið. „Ef við notum líkingu,
þá var ég bara þátttakandi í því að fara út
á miðin og veiða alveg upp að landhelgi
því að það var ekkert sem bannaði
það. Að því leytinu til iðrast ég þess að
hafa verið þátttakandi í útrásinni.“
Myndir eru teknar þegar Pálmi lék
hvernig hann og aðrir kaupsýslumenn
hreinsuðu peningana upp úr íslenska
efnahagskerfinu með sambærileg-
um hætti og sjómenn á hafi úti.
MynDIr Karl PEtErSSon