Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2012, Blaðsíða 20
20 Erlent 9.–11. nóvember 2012 Helgarblað
n Gerir læknum kleift að meðhöndla sjúklinga áður en einkenna verður vart
V
ísindamenn hafa borið
kennsl á fyrstu merki
Alzheimerssjúkdómsins
sem koma yfirleitt fram
meira en tveimur áratugum
áður en fyrstu einkenna sjúkdómsins
verður vart. Talið er afar mikilvægt
að meðhöndla sjúkdóminn sem allra
fyrst til þess að halda niðri skaðsemi
hans. Í nýlegri rannsókn sem birt var
í tímaritinu The Lancet Neurology er
greint frá sérstökum þáttum í heila-
starfsemi fólks sem fær Alzheimers
fyrr en yfirleitt gerist. Sérfræðingar
telja að rannsóknin muni gefa lækn-
um mun lengri tíma til þess að beita
nauðsynlegum úrræðum við að
halda sjúkdómnum í skefjum.
Einkenni koma seint fram
Alzheimerssjúkdómurinn þróast
löngu áður en ummerki hans gera
vart við sig – þegar nógu margar
heilasellur hafa skaðast varanlega. Í
sumum svæðum heilans þurfa hátt
í 20% heilasella að ónýtast áður en
einkennin koma fram. Þá er skaðinn
hins vegar alla jafna orðinn svo mik-
ill að of seint reynist að grípa inn í.
Hingað til hefur gengið erfiðlega að
koma í veg fyrir hrörnun sjúklinga
sem þegar hafa greinst með ein-
kenni Alzheimers.
Rannsóknarteymi Banner
Alzheimer-stofnunarinnar í
Arizona hefur rannsakað hóp ætt-
menna frá Kólumbíu. Genastökk-
breyting gerir það að verkum að
meðlimir fjölskyldunnar greinast
nær alltaf með Alzheimers á fimm-
tugsaldri þó sjúkdómurinn láti yfir-
leitt ekki á sér kræla fyrr en fólk er
komið yfir áttrætt. Heilaskönnun
á tuttugu einstaklingum úr fjöl-
skyldunni á aldrinum 18–26 ára
sýnir greinileg teikn sem ekki verð-
ur vart við heilaskönnun einstak-
linga sem ekki eru líklegir til að
verða fyrir barðinu á Alzheimers á
miðjum aldri. Einnig kemur fram
að fljótandi efni sem umlykur heila
og mænu hefur hærra hlutfall af
svokölluðum beta-sterkjuprótín-
um en venjulegt er.
Opnar fyrir snemmbúna
meðhöndlun
Dr. Eric Reiman, einn vísinda-
mannanna að baki rannsókninni,
segir: „Þessar niðurstöður benda til
þess að breytingar á heilastarfsemi
hefjist mörgum árum áður en lækn-
ar bera kennsl á sjúkdóminn. Þetta
vekur upp spurningar um fyrstu
breytingarnar hjá einstaklingum
sem eru í áhættuhópi þegar kemur
að Alzheimerssjúkdómnum og í hve
miklum mæli hægt verður að ráðast
gegn þeim til að hamla þróun sjúk-
dómsins.“
Nick Fox, prófessor við tauga-
fræðistofnun University College í
London, segir að flestir af hans sjúk-
lingum hafi glataði fimmtungi af
sumum svæðum heilans þegar þeir
leita hjálpar. Í samtali við BBC seg-
ir Fox: „Það mikilvægasta sem þetta
gerir er að opna fyrir möguleikann á
snemmbúnu inngripi áður en fólk
verður fyrir skilvitlegum skaða.“
Hann segir jafnframt að nú megi
rannsaka hve snemma unnt sé að
meðhöndla sjúkdóminn og hvers
konar lyf nýtist til þess.
Alzheimers er sjúkdómur sem
orsakast af hrörnunarbreytingum í
miðtaugakerfinu og lýsir sér með-
al annars í minnisleysi, skapsveifl-
um, missi á orðaforða og öðrum
truflunum við hugsun og heila-
starfsemi. Talið er að 24 milljónir
manna í heiminum þjáist af sjúk-
dómnum. n
Geta greint Alzheimers
með áratuga fyrirvara
Ólafur Kjaran Árnason
blaðamaður skrifar olafurk@dv.is
Hálfir heilar Á þessari mynd má sjá tvö
heilahvel. Vinstra megin er heilahvel úr
heilbrigðri manneskju en hægra megin er
heilahvel úr einstaklingi sem þjáðist af
Alzheimers.
Alzheimers er skæður
Sjúkdómurinn byrjar að
þróast löngu áður en hans
verður vart.
Varaði við
spillingu
Vikulangt flokksþing kínverska
kommúnistaflokksins hófst í
Alþýðuhöllinni á Torgi hins
himneska friðar í Peking á
fimmtudag.
Forseti landsins, Hu Jintao,
setti þingið en í setningarræðu
sinni minntist hann oft, eða sam-
tals sextán sinnum, á spillingu.
Varaði hann við því að spilling
gæti orðið kommúnistaflokknum
að falli. Á þinginu verður ný for-
ysta flokksins valin og er búist við
því að varaforseti landsins, Xi Jin-
ping, verði valinn eftirmaður Hu
í embætti forseta. Búist er við að
tilkynnt verði um breytta leiðtoga
landsins í lok þingsins.
Verða að vera
með smokk
Klámmyndaleikurum sem starfa
í Los Angeles í Bandaríkjunum er
nú skylt að nota smokk þegar þeir
stunda kynlíf fyrir framan mynda-
vélar. Kosið var um tillöguna sam-
hliða forsetakosningunum sem
fram fóru á þriðjudag.
Tillagan var samþykkt með
56 prósentum atkvæða. Fyr-
ir atkvæðagreiðsluna var klám-
myndaleikurum skylt að nota
smokka í vinnunni innan borg-
armarkanna en nýju lögin taka
til allrar sýslunnar, meðal annars
þess svæðis þar sem klámmynda-
iðnaðurinn í Kaliforníuríki er að-
allega staðsettur.
Enn á eftir að koma í ljós hver
viðbrögð klámmyndaframleið-
enda verða en þeir voru búnir að
hóta því að pakka saman og flytja
starfsemi sína annað.
Bílaverkstæði
Varahlutaverslun
Smurstöð
Dekkjaverkstæði
Bremsur,
spindilkúlur,
stýrisendar,
o.fl., o.fl.
Allar gerðir
bætiefna fyrir
vél, drif
og gírkassa
www.bilaattan.is
Allt á einum stað