Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2012, Qupperneq 24

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2012, Qupperneq 24
24 Umræða 9.–11. nóvember 2012 Helgarblað S amband ungra sjálfstæðis- manna (SUS) hefur fjórða árið í röð lagt fram tillögur að breytingum á fjárlögum næsta árs. Mörgum kann að þykja þessar hugmyndir framúrstefnu- legar og jafnvel öfgafullar. Það er hinsvegar tímabært að Ísland, og önnur Vesturlönd, horfist í augu við þá staðreynd að það er ekki hægt að halda áfram að eyða um efni fram. Gegndarlaus halla- rekstur, skuldasöfnun og peninga- prentun ríkja á Vesturlöndum er víða farin að bitna harkalega á lífskjörum fólks og mun gera það í enn ríkari mæli í framtíðinni ef ekki verður gripið strax í taumana. Sparnaðartillögur ungra sjálf- stæðismanna eru settar fram á hugmyndafræðilegum grunni í þeim tilgangi að benda á hvernig ríkisreksturinn gæti verið betri og einfaldari en hann er nú. Þannig er tillögunum ætlað að gefa mynd af því hvernig haga mætti ríkisfjár- málum betur. Líta má á tillögurnar sem nokkurs konar hugmynda- banka en ekki heildstæðar til- lögur. Fáir eru sammála öllum tillögunum en allir ættu að vera sammála einhverjum þeirra. Ef svo er þá er tilganginum náð. En hvernig myndi draumaland ungra sjálfstæðismanna líta út? Tökum dæmi af nokkrum svið- um þjóðlífsins og um leið af lið- um í fjárlögum næsta árs sem við myndum vilja hlífa skattgreiðend- um við. Velferð, menntun og öryggi Í draumalandinu er staðinn vörð- ur um heilbrigðis-, velferðar-, mennta- og löggæslumál. Það felst í hugmyndum um minni ríkissjóð að ríkið geri það sem miklu máli skiptir – og geri það vel. Í drauma- landinu myndi þjóðarsjúkrahúsið ekki búa við lélegan tækjakost. Lífi og velferð fólks væri ekki stefnt í hættu með því að notast við tæki sem bila í miðri aðgerð. Þjóðar- sjúkrahúsið þyrfti ekki að sætta sig við niðurskurð á niðurskurð ofan á sama tíma og þjóðarhljómsveitin fengi hærri fjárframlög og nýjan húsakost. Í draumlandinu yrði forgangsraðað á annan veg. Menn myndu frekar byggja hátækni- sjúkrahús en hátæknitónlistarhús. Þar yrðu ekki settar 740 milljónir á ári í þjóðarhljómsveitina og ekki 560 milljónir í tónlistarhús. Frjáls landbúnaður Landbúnaður í draumalandinu er blómlegur, enda er hann laus við of mikil ríkisafskipti. Þar búa sauðfjárbændur ekki við fátæktar- mörk í kæfandi faðmi ríkisstyrkja. Það eru engar framleiðslu- og verðstýringar, en á sama tíma yrðu engar 12 milljarða beingreiðslur til bænda. Þá borga bændur sjálf- ir 430 milljónir í Bændasamtökin, 410 milljónir fyrir skógrækt og landgræðslu, 400 milljónir í mat- vælarannsóknir, 160 milljónir í landbúnaðarrannsóknir, 110 millj- ónir í Veiðimálastofnun, 50 millj- ónir í greiðslur vegna riðuveiki, 40 milljónir í Framleiðslusjóð landbúnaðarins og 20 milljónir í hagþjónustu landbúnaðarins. Landbúnaður draumalandsins er í heilbrigðri samkeppni við önnur lönd, enda eru engir tollar, vöru- gjöld eða innflutningstakmarkan- ir á góðum erlendum landbúnað- arvörum. Þetta skilar sér í betri, fjölbreyttari og ódýrari vörum fyrir neytendur. Engin pilsfaldakapítalismi Almenningur í draumalandinu þarf ekki að borga hærri skatta til að niðurgreiða rekstur þjónustu- og eftirlitsstofnana fyrir atvinnu- lífið. Þar er atvinnulífið sjálft látið greiða fyrir þann kostnað sem það veldur ríkinu. Til dæmis borgar sjávarútvegurinn sjálfur 1,4 millj- arða á ári fyrir rekstur Hafrann- sóknastofnunar, 700 milljónir fyrir Fiskistofu, 250 milljónir fyrir Rannsóknarsjóð til að auka verð- mæti sjávarfangs og 20 milljónir fyrir Verðlagsstofu skiptaverðs. Gagnsæ stjórnmál Stjórnmálaflokkarnir í drauma- landinu standa á eigin fótum og fá ekki 300 milljónir á ári úr vasa skatt- greiðenda. Flokkarnir ákveða ekki sjálfir hversu miklu þeir skammta sér af skattpeningum landsmanna. Þeir ráða hinsvegar sjálfir hvern- ig þeir fjármagna sig með frjálsum framlögum og hvernig þeir upplýsa kjósendur sína um fjármál sín. Því gagnsærri og heiðarlegri sem fjár- mál flokkanna eru því viljugra er fólk til að kjósa þá og styrkja. Þau ríku borga Þau ríku í draumalandinu krefj- ast ekki ókeypis þjónustu frá rík- inu, sem þau geta auðveldlega borgað sjálf. Þannig þarf ekki að skattleggja allan almenning til að niðurgreiða þjónustu til þeirra. Hinir ríku borga til dæmis fyrir skólagöngu barna sinna og fyrir heilbrigðisþjónustu fjölskyldunnar. Gæluverkefni Í draumalandinu er fólk ekki skattlagt til að fjármagna ýmis gæluverkefni og áhugamál stjórn- málamanna sem almenningur hefur aldrei heyrt um. Slík verk- efni eru fjármögnuð með frjáls- um framlögum frá þeim sem það vilja. Þannig eru skattgreið- endur ekki neyddir til að setja 10 milljónir í Hið íslenska fornrita- félag, 12 milljónir í Vestnorrænt menningarhús í Kaupmannahöfn, 150 milljónir í Vinnustaðanáms- sjóð, 2 milljónir í Listskreytinga- sjóð, 45 milljónir í Jöfnunarsjóð alþjónustu (já, þið lásuð rétt), 73 milljónir í Kristnisjóð, 14 milljón- ir í Félagsmálaskóla alþýðu og 3 milljónir í Menningar- og fræðslu- samband alþýðu. Þeir eiga hrós skilið sem vita hvað alþjónusta er, og ekki síst þeir sem geta fært rök fyrir því af hverju þurfi 45 milljón- ir á ári til að jafna hana. Þá verða engir ríkisstyrkir til trúfélaga í draumalandinu heldur munu þau fjármagna sig með félagsgjöldum, eins og hver önnur félög. Hvað má gera fyrir sparnaðinn? Draumalandið notar þá peninga sem sparast til að greiða niður skuldir sínar sem leiða til enn meiri sparnaðar því þá þarf það ekki að greiða 88 milljarða á ári í vexti. Í kjölfarið lækkar það skatta á fólk og fyrirtæki svo almenningur þurfi ekki að borga meirihluta tekna sinna í skatta. Skattalækkanir á fyrirtæki skila sér í sterkara atvinnulífi sem skapar fleiri störf, hærri laun og meiri skatt- og gjaldeyristekjur fyrir þjóðarbúið. Í draumalandinu er því minna atvinnuleysi og meiri kaupmáttur. Lífskjör eru því mun betri og öryggi borgara meira, enda búa þeir við löggæslu og mennta- og heilbrigðiskerfi sem eru ekki látin mæta afgangi. Þar búa borgarar í samfélagi þar sem það er afgangurinn sem er látinn mæta afgangi, en ekki öryggi og velferð íbúanna. Dra malandið Auglýsingar á vegum SUS „Menn myndu frekar byggja hátæknisjúkrahús en hátæknitónlistarhús Aðsent Davíð Þorláksson Formaður SUS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.