Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2012, Síða 50
50 Fólk 9.–11. nóvember 2012 Helgarblað
Brooke kvaddi
mömmu sína
n Brooke átti stjórnsama móður
L
eikkonan og fyrirsætan
Brooke Shields lýsir flóknu
sambandi við móður sína
í viðtali við The New York
Times en móðir hennar, Teri
Shields, lést í síðustu viku, 79
ára að aldri.
Brooke fékk fyrsta hlutverkið
aðeins 11 mánaða gömul sem
fyrirsæta og leikkona en móðir
hennar hélt fast utan um feril
hennar fram eftir öllum aldri
og átti erfitt með að sleppa tak-
inu, segir Brooke í viðtalinu.
„Mamma var risa stór partur af
því hver ég er í dag. Ég elskaði
hana, hló með henni og virti
hana. Þrátt fyrir okkar vand-
ræði var hún samt mamma
mín.“
Teri lét eitt sinn hafa eftir
sér að hún hefði ekki trúað sín-
um eigin augum þegar Brooke
fæddist. „Þetta var var svo fal-
legt. Alveg eins og dúkka. Ég
trúði varla að ég ætti hana.“
Barnastjarna Teri
átti erfitt með að
sleppa takinu og þær
mæðgur voru ansi
oft ósammála um
ákvarðanir varðandi
feril Brooke.
B
rian Austin Green og Megan
Fox eignuðust eftirminnilega
barn á dögunum en hjóna-
kornunum tókst að halda
fréttunum leyndum í þrjár vikur.
Leikarinn var nýlega í útvarpsvið-
tali hjá Ryan Seacrest þar sem hann
þakkaði leikkonunni Reese Wither-
spoon fyrir friðinn sem litla fjöl-
skyldan fékk fyrir ágengri pressunni.
„Ég hef ætlað að senda henni blóm-
vönd í einn og hálfan mánuð núna.
Hún eignaðist barn á sama dag og
við. Öll athygli fjölmiðla beindist að
henni og nýja barninu og því gát-
um við laumast inn á sjúkrahúsið
og fengið næði,“ sagði Brian en son-
urinn litli hefur fengið nafnið Noah
Shannon.
Leikarinn á fyrir tíu ára son,
Kassius Lijah. „Mér fannst ég alltaf
svo ungur í anda. Núna hef ég aldrei
verið jafn fertugur áður,“ sagði Brian
hlæjandi í viðtalinu og bætti við að
hann hefði fengið lítinn svefn síðan
sá stutti fæddist.
Þakka Reese
fyRiR fRiðinn
n Megan og Reese fæddu sama dag
Falleg hjón Brian á tíu ára
son frá fyrra sambandi.DV120124193.jpg
Vill sanna ást
Dakota Fanning hefur aðeins átt einn kærasta
Lauren Conrad
Styður eftirlifendur brjóstakrabbameins
Hönnuðurinn Lauren Conrad
hannaði fatnað á átta
manneskjur sem lifðu af
brjóstakrabbamein.
Conrad lagði sig fram í átakinu
en sjálf missti hún fyrirmynd
sína, saumakennarann sinn,
úr meininu. Hún hlýddi á sögur
þeirra sem lifðu af og saumaði
fatnaðinn á konurnar með
reynslu þeirra til hliðsjónar. „Þær
hafa gengið í gegnum hörmulega lífsreynslu, allt hefur
verið tekið af þeim sem við tengjum við kvenleika
– hárið og kvenlegi vöxturinn,“ sagði Conrad sem
vildi leggja sitt af mörkum svo þeir sem sigruðust á
meininu gætu byggt upp líf sitt á jákvæðan máta.
Angelina Jolie
Sendiherra Sameinuðu þjóðanna
Leikkonan Angelina Jolie hefur verið ein ötulasta baráttukona
Hollywood fyrir bættum heimi. Hún gaf heila milljón Bandaríkjadala
til hjálparstarfs á Haítí síðastliðið ár og hefur verið virk í að fylgjast
með mannréttindum barna. Hún er einn sendiherra UNICEF.
Þegar Angelina afhenti peningana til Haítí sagði hún að sér þætti
sérstaklega hryllilegt að sjá þjáninguna dynja á þessu fólki sem
áratugum saman hefði búið við ofbeldi, fátækt og óöryggi.
Í sumar gáfu Angelina og Brad milljarð til Flóttamannastofnunar
Sameinuðu þjóðanna til aðstoðar sýrlenskum flóttamönnum.
„Hver manneskja skiptir máli, einn flóttamaður er einum flóttamanni
of mikið,“ sagði Jolie.
„Hver þeirra hefur þjáðst og gengið í gegnum meiri raunir en ég gæti
nokkru sinni þolað. Og samt, rísa þeir upp og halda áfram að lifa.“
Pippa Middleton
Safnaði fé til fátækra barna
Yngri systir Kate
Middleton og
bróðir hennar
James luku
gönguskíða-
maraþoni í
Svíþjóð í mars
2012 til þess að
safna fé fyrir
skólabörn sem
fá ekki nægilega
mikið að borða.
Vilja breyta heiminum
Will og Jada Pinkett Smith
Gáfu vatn til Eþíópíumanna
Með því að biðja vini og að-
dáendur um að gefa fremur
peninga til þess að kaupa
vatn handa bágstöddum
á brúðkaupsafmæli sínu í
sumar, gátu hjónin gefið um
400 Eþíópíumönnum hreint
vatn. Will og Jada ferðuðust
til Eþíópíu í júlí til þess að
sjá árangurinn. „Ferðin var
ótrúleg reynsla og opnaði augu okkar,“ sagði Will.
Jennifer Aniston
Berst fyrir krabbameinsveik börn
Jennifer Aniston berst fyrir krabba-
meinsveik börn. Síðasta framlag
hennar var skemmtilegt, en hún söng
hið víðfræga lag Bítlanna Hey Jude,
með þeim Jon Hamm og Betty White
á smáskífu og bað um framlög til
meðferðar gegn krabbameini barna.
Ben Affleck
Vekur athygli á ástandinu í Austur-Kongó
Ben Affleck hefur unnið mikið
að því að berjast fyrir aukinni
vitund um hörmulegt ástand
í Austur-Kongó. Ben stofnaði
samtökin Eastern Congo
Initiative árið 2009 til að hjálpa
konum og börnum sem hafa
orðið fyrir kynferðisofbeldi og
nauðgunum.
Ian Somerhalder
Dýraverndunarsinni
Stjarnan úr Vampire Diares,
Ian Somerhalder, er mikill
dýravinur og hefur oft látið
til sín taka í dýraverndar-
málum. „Ég er svo þreyttur
á skorti á samkennd í
heiminum og á því að horfa
á börn okkar alast upp við
þennan skort,“ sagði leik-
arinn. Ég held að eina leiðin
fyrir okkur til að eiga væn-
lega framtíð sé að þroska
með okkur betri samkennd
fyrir hverju öðru og öllum, loðnum, hreistruðum og
fiðruðum verum.“
U
ngstirnið Dakota
Fanning hefur leik-
ið frá því að hún
man eftir sér, en
hún er aðeins 18 ára og
á fjölmargar stórar kvik-
myndir að baki. Það sama
er hins vegar ekki hægt að
segja um ástarsambönd
hennar, hvað fjölda varð-
ar. Hún vill frekar finna
hina sönnu ást held-
ur en hafa á eftir sér slóð
af misheppnuðum sam-
böndum. Fram að þessu
hefur hún aðeins átt
einn kærasta. „Ég er ekki
þannig stelpa að ég þurfi
sérstaklega á kærasta
að halda í lífi mínu,“
sagði Dakota í viðtali við
tímaritið InStyle. „Ég er
mjög ákveðin þegar kem-
ur að þessum málum og
vil alls ekki ana út í neitt
nema ég sjái fram á að
það muni endast í langan
tíma.“
n Dakota vill ekki ana út í neitt
Þarf ekki á
því að halda