Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2011, Síða 4
4 | Fréttir 24.–26. júní 2011 Helgarblað
Aukin fasteignagjöld vegna hækkunar á fasteignamati:
Fasteignamat íbúða hækkar
Nýtt fasteignamat var birt í gær fyr-
ir árið 2012. Samkvæmt því hækkar
heildarmat fasteigna á landinu um
6,8 prósent. Heildarmat íbúðarhús-
næðis hækkar um 9 prósent á land-
inu öllu. Fasteignamat er grundvöll-
ur fasteignagjalda sem sveitarfélögin
innheimta og matshækkunin þýð-
ir því að fasteignaeigendur þurfa að
greiða hærri gjöld á næsta ári. Mis-
jafnt er eftir hverfum og svæðum
hversu mikið íbúðir hafa hækkað í
verði. Í grónum hverfum í Reykjavík
hækkar matið mest en minna í hverf-
um þar sem mikið var af hálfbyggð-
um húsum og óseldum eignum eftir
hrunið 2008.
Til að átta sig á hvaða afleiðingar
þetta hefur má taka dæmi af 80 fer-
metra íbúð miðsvæðis í Reykjavík.
Fasteignamatið hækkaði úr 15,15
milljónum í 16,9 milljónir eða um
rúm 11 prósent. Fasteignagjöld sam-
anstanda af fasteignaskatti og lóðar-
leigu. Í Reykjavík er fasteignaskatt-
urinn 0,225 prósent af fasteignamati
húss og lóðar en lóðarleiga er 0,165
prósent af fasteignamati lóðar. Fast-
eignamatshækkun upp á 1,75 millj-
ónir þýðir því að eigandi viðkomandi
íbúðar þarf að greiða 65.910 krónur
í fasteignagjöld í stað 59.085 króna.
Það munar því 6.825 krónum fyrir
viðkomandi fasteignaeiganda.
Fasteignamat á lögum samkvæmt
að endurspegla markaðsverðmæti
fasteignar og er byggt á kaupsamn-
ingum á fasteignamarkaði. Hækkun
fasteignamatsins gefur því ákveðna
vísbendingu um að fasteignamark-
aðurinn sé að taka við sér að ein-
hverju leyti. Þrátt fyrir að þurfa að
greiða hærri skatta vegna hækkunar
á fasteignamati geta húsnæðiseig-
endur tekið því fagnandi að verð-
mæti húsnæðis þeirra hefur hækkað.
Olíufélagið Skeljungur hefur selt höf-
uðstöðvar sínar á Hólmaslóð 8–10 til
olíuflutningafyrirtækisins Olíudreif-
ingar, sem er í 60 prósenta eigu N1 og
40 prósenta eigu Olís. Olíudreifing er
fyrirtæki sem sérhæfir sig í flutningi á
eldsneyti og félagið einnig með starfs-
stöð á Hólmaslóð. Þetta kemur fram í
tölvupósti frá forstjóra Skeljungs, Ein-
ari Erni Ólafssyni, til starfsmanna olíu-
félagsins en DV hefur póstinn undir
höndum.
Samkvæmt tölvupósti Einars Arn-
ar var gengið frá sölunni þann 14. júní
síðastliðinn. Skeljungur muni í kjöl-
far sölunnar flytja höfuðstöðvar sínar
annað. Skeljungur er eitt af þremur
stórum olíufélögum landsins, ásamt
N1 og Olís. Um 250 starfsmenn störf-
uðu hjá olíufélaginu í árslok 2009.
Í tölvupósti Einars Arnar kemur
ekki fram af hverju Skeljungur ákvað
að selja höfuðstöðvar sínar til félags í
eigu samkeppnisaðila, og það án þess
að vera búið að tryggja sér annað hús-
næði. Í svari sínu við fyrirspurn DV um
málið segir Einar Örn að ástæða flutn-
inga Skeljungs sé sú að fyrirtækið ætli
að minnka við sig. „Við hyggjumst fara
í miklu minna húsnæði.“ Einar Örn
segir að húsnæðið hafi verið selt til Ol-
íudreifingar vegna þess að félagið var
reiðubúið að greiða hátt verð fyrir það.
„Töldum ólíklegt að nokkur væri til í að
greiða jafn hátt verð fyrir húsnæði sem
er sérsniðið að starfsemi sem þessari.
Tel það raunar útilokað með öllu.“
Olíudreifingu vantaði húsnæði
Eigendur Skeljungs eru Guðmundur
Örn Þórðarson, Birgir Þór Bieltvedt og
Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir. Nú-
verandi eigendur keyptu 51 prósent
í Skeljungi af Glitni árið 2008. Einar
Örn Ólafsson, þáverandi starfsmað-
ur Glitnis, sá um söluna fyrir hönd
bankans. Hluti af kaupverðinu var
greiddur með verðlitlum fasteignum
í Danmörku sem voru inni í félaginu
Property Group. Svanhildur Nanna
keypti svo 49 prósentin í fyrra. Þá var
Einar Örn orðinn forstjóri Skeljungs
eftir að hafa hætt í Íslandsbanka, arf-
taka Glitnis, vegna trúnaðarbrests í
tengslum við söluna á Skeljungi til nú-
verandi eigenda.
Hörður Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Olíudreifingar, segir að
fyrirtækið hafi keypt húsnæði Skelj-
ungs til að geta verið á einum stað
með starfsemi sína í Reykjavík. „Olíu-
dreifing á ekkert húsnæði eins og sak-
ir standa og við höfðum hug á flytja
starfsemi okkar út í Örfirisey við hlið-
ina á stærstu birgðastöð okkar. Þannig
getum við verið með starfsemi okkar á
einum stað. Við gerðum því það sem
við gátum til að þessi viðskipti gætu
átt sér stað.“ Hörður segir að kaupverð-
ið hafi verið greitt með hefðbundnum
hætti en ekki með skuldajöfnun eða
öðru slíku þar sem Olíudreifing og
Skeljungur eigi ekki í neinum viðskipt-
um sín á milli.
Áhugi á Skeljungi
Í síðasta mánuði sagði Fréttablaðið frá
því að forsvarsmenn kanadíska olíu-
félagsins Irving Oil væru að velta því
fyrir sér að fjárfesta í íslensku olíu-
félagi, annað hvort N1 eða Skeljungi. Í
grein blaðsins kom fram að heimildir
væru fyrir því að öll olíufélögin væru í
reynd til sölu fyrir rétt verð um þessar
mundir. Viðskiptablaðið sagði einnig
frá því í lok árs 2009 að Irving Oil væri
hugsanlega á meðal þeirra sem vildu
eignast 49 prósenta hlutinn í Skeljungi.
Ekkert hefur heyrst meira af þess-
um áhuga Irving Oil á íslenskum olíu-
félögum frá því greint var frá honum
í síðasta mánuði. Einar Örn segir að
forsvarsmenn Irving Oil hafi ekki haft
samband. „Nei, Irving Oil hefur ekki
haft samband við Skeljung um hugs-
anleg kaup á félaginu eða neitt í þá
veru.“ Þetta þarf þó ekki að þýða að Irv-
ing Oil hafi misst áhugann á að koma
inn á íslenska olíumarkaðinn.
2 milljarða lán tekið í fyrra
Aðspurður segir Einar Örn að salan á
höfuðstöðvum félagsins til Olíudreif-
ingar tengist ekki fyrirhuguðum breyt-
ingum á starfsemi og eða á eignarhaldi
Skeljungs. „Nei,“ segir Einar. Sam-
kvæmt þessu stendur því ekki til selja
Skeljung.
2,2 milljarða tryggingabréf á fyrsta
veðrétti hvílir á þeim eignum sem
seldar voru frá Skeljungi. Á veðbanda-
yfirliti eignanna kemur fram að trygg-
ingabréfið sé frá árinu 2010 þegar
Einar Örn fékk umboð frá hluthöfum
Skeljungs til að undirrita lánasamn-
ing við Íslandsbanka upp á 2 millj-
arða króna. Skeljungur tók því hátt lán
í fyrra og veðsetti eignirnar á Hólma-
slóð fyrir því. Engin önnur veðbönd
hvíla á eignunum. Fasteignamat eign-
anna á Hólmaslóð 8–10 er rúmlega
400 milljónir króna og hefur olíufélag-
Hús Skeljungs selt
til samkeppnisaðila
n Olíufélagið Skeljungur hefur selt höfuðstöðvar sínar n Forstjóri Skeljungs segir að
félagið flytji í minna húsnæði n Olíudreifing er í eigu helstu samkeppnisaðila Skeljungs
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
„Við hyggjumst
fara í miklu minna
húsnæði.
Tölvupóstur
til starfsmanna
Skeljungs
„Ágætu samstarfsmenn,
Í gær var gengið frá
sölu Skeljungs á öllu
húsnæði félagsins
við Hólmaslóð 8 til
10 til Olíudreifingar. Í
kjölfar viðskiptanna
mun hluti af starfsemi
þjónustuverkstæðis
verða útvistaður til
Olíudreifingar. Afhending húsnæðis öðru
en skrifstofu mun eiga sér stað í 1. október
á þessu ári og flyst starfsemi þjónustu-
verkstæðis við sama tímamark.
Viðskiptin höfðu nokkurn aðdraganda, því
eins og þið sjálfsagt munið, þá greindi ég
frá því í vor að Olíudreifing hefði áhuga á
hluta húsnæðis Skeljungs við Hólma-
slóð. Um hríð leit út fyrir að ekkert yrði af
sölunni, en á allra síðustu vikum tók málið
þá stefnu sem þessi niðurstaða ber með
sér og leiðir til umfangsmeiri viðskipta en
upphaflega var ráð fyrir gert.
Áhrif þessa á Skeljung og starfsfólk
félagsins eru ýmis. Í fyrsta lagi verður
nokkrum starfsmönnum þjónustuverk-
stæðis Skeljungs boðið starf hjá
Olíudreifingu, enda mun Skeljungur ekki
hafa slíka starfsemi með höndum í kjölfar
viðskiptanna. Í öðru lagi munu aðrir
starfsmenn sem nú starfa á Hólmaslóð
8 og flytja á nýjar starfsstöðvar. Reiknað
er með að tekið verði á leigu lítið húsnæði
undir bifreiðaverkstæði og lager, ekki of
fjarri olíustöðinni í Örfirisey. Leit að nýju
skrifstofuhúsnæði er ekki hafin, en gert
er ráð fyrir að við höfum flutt starfsstöð
okkar fyrir áramót. Hræringar eiga þó ekki
að leiða til neinna uppsagna.
Mér er ljóst að allt hefur þetta nokkuð rask
í för með sér, en að sama skapi má líta á
hverja breytingu sem tækifæri og áskorun.
Það er sannfæring mín að þetta skref verði
félaginu til heilla, eins og svo mörg sem við
höfum stigið undanfarin misseri.
Bestu kveðjur,
Einar Örn“
ið því væntanlega fengið dágott verð
fyrir þær.
Ekki náðist Birgi Bieltvedt, einn af
eigendum Skeljungs, við vinnslu frétt-
arinnar.
Keypti af Skeljungi Olíudreifing hefur keypt húsnæði Skeljungs á Hólmaslóð í Reykjavík.
Forstjóri Skeljungs segir að salan tengist ekki væntanlegum breytingum á starfsemi eða á
eignarhaldi félagsins.
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Reykjavík - Reykjanesbæ
Akureyri - Húsavík
Vestmannaeyjum
Jarðvegsþjappa á
„þjöppuðu“ verði
PC 1442 Shatal jarðvegsþjappa
Stærð plötu: 400 x 550 mm
Þyngd: 80 kg
Mótor: Honda bensín 5,5 hö
Miðflóttaafl á plötu: 1400 kg
Mesti hraði áfram: 26 m/mín
Víbratíðni: 93 Hz
189.900,-
m. VSK
(fleiri stærðir á lager)
Perlan verður seld
Selja þarf eignir og fækka starfsfólki
til að bæta fjárhagsstöðu Orkuveitu
Reykjavíkur næstu fimm ár. Þetta
kom fram á opnum aðalfundi fyrir-
tækisins á fimmtudag.
Sagði Bjarni Bjarnason, forstjóri
OR, að fækka þyrfti starfsfólki fyrir-
tækisins um níutíu. Þó verði reynt
að forðast fjöldauppsagnir og þess
í stað verði til dæmis reynt að flýta
starfslokum. Mun fyrirtækið þurfa
um fimmtíu milljarða króna fjár-
mögnun til ársloka 2016. Aðgerðirn-
ar eiga að koma til móts við fjárhags-
þörf fyrirtækisins.
Á meðal fasteigna sem fyrirtækið
hyggst selja eru Perlan í Öskjuhlíð-
inni og húsnæði Orkuveitunnar við
Bæjarháls.
Ásgeir Kolbeinsson:
Áfram á nýrri
kennitölu
Ásgeir Kolbeinsson festi nýlega
kaup á skemmtistaðnum Austur og
í samvinnu við Styrmi Þór Braga-
son, fyrrverandi forstjóra MP Banka,
sem fjármagnar hluta kaupanna.
Samkvæmt frétt Viðskiptablaðsins
eru þeir æskufélagar og aðstoðaði
Styrmir Ásgeir við kaupin auk þess
að fjármagna hluta kaupanna.
Ásgeir er eigandi staðarins og
Styrmir er fjárfestir, en þó aðeins að
litlum hlut. Rekstrarfélag Austurs er
Austurstræti eignarhald ehf. Austur-
stræti 7 ehf. hóf rekstur Austurs um
mitt ár 2009 og voru stofnendur Ás-
geir Kolbeinsson, Valgarð Þórarinn
Sörensen og Hallur Dan Johansen.
Austurstræti 7 var úrskurðað gjald-
þrota í júlí 2010 og er núna í þrota-
meðferð en Austurstræti eignarhald
ehf. yfirtók rekstur Austurs og hefur
Ásgeir nú fest kaup á því félagi.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir
náðist ekki í Ásgeir Kolbeinsson við
vinnslu fréttarinnar.
Fasteignir Fasteignamat hækkar um 6,8 prósent.