Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2011, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2011, Blaðsíða 19
Fréttir | 19Helgarblað 24.–26. júní 2011 að hann vissi ekki að fíklar leystu yfirleitt morfínplástra upp í vatni eft- ir að hafa klippt þá í nokkra hluta og sprautuðu sig svo með efninu svarar hann því neitandi. „Þú verður að fyr- irgefa að ég vissi það ekki fyrr en síð- ar. Það hvarflaði ekki að mér þarna í upphafi. Ég ákvað að skrifa lítið hverju sinni svo hann gæti ekki út- leyst mikið hverju sinni til að eiga hjá sér en nægjanlegt til að það hjálpaði út af verkjunum. Ég taldi mig vera í erfiðri stöðu en að ég væri sennilega að gera rétt. “ „Kann ekkert á fíkla“ Til eru sérstök lyf til þess að koma í veg fyrir að fíkill fari í alvarleg fráhvörf, svo sem methadone og buprenorphine og er venjulega not- ast við þau þegar óttast er um frá- hvarfseinkenni. Spurður hvort rétt- ara hefði verið að skrifa upp í þau lyf frekar en fentanyl segir Sverrir: „Jú, jú, það eru til svo sem önnur lyf en ég vildi að það gerðist inni á stofnun. Ég sagði honum af hverju ég væri að gera þetta, og sagði að hann yrði að standa við sitt og að ég gæti ekki gert þetta framar. Það var okkar síðasta viðtal. Þá sagðist hann vera á leiðinni í meðferð. Ég sagði honum þá að það væri gott því ég gæti ekki gert þetta framar. Ég sagði að ég hafði haldið að ég væri að hjálpa honum til þess að líða betur þangað til hann færi í meðferð hélt að ég væri að hjálpa þér til þess að þér gæti liðið betur og svo færir þú í meðferð og þá væri hægt að taka á framhaldinu hvernig sem það yrði en hann gæti ekki verið framar á mínum vegum ég treysti mér ekki til þess. Ég eyddi miklum tíma í það og ég hélt að ég væri að hjálpa þessum dreng. En ég kann ekkert á fíkla ég skal segja það alveg eins og er. “ Þegar þú lítur til baka finnst þér það hafa verið röng ákvörðun að hafa skrifað upp á morfín fyrir hann? „Svarið er það að ef að ég á eftir að lenda í svona aftur þá held ég að ég myndi ekki gera það. Eitt- hvað yrði ég samt að gera af ótta við til dæmis alvarleg fráhvarfsein- kenni. Ég myndi gera eitthvað til þess að reyna grípa inn í málið, en ég veit ekki almennilega hvað það ætti að vera. Ég lá mikið yfir þessu eftir að hann dó.“ Sótti um undanþágu Sverrir sem er orðinn 75 ára gam- all segir ekki rétt að hann hafi ekki fengið leyfi til að halda áfram rekstri læknastofu sinnar vegna þessa máls. Hann hafi sjálfur óskað eftir því að hætta 1. júlí á stofu en hann mun hada áfram störfum sínum á MS Setrinu en Sverrir hefur helg- að drjúgum hluta starfsferils síns í þágu MS sjúklinga og er mikilsvirtur á því sviði. „Þegar maður er orðinn 75 ára þarf maður að sækja um til landlæknis til að fá leyfi til að reka lækningastofu. Ég sótti bara um til 1. júlí vegna þess að ég ætlaði að hætta að reka stofu og það var veitt. Hins vegar er ég læknir í MS Setrinu og MS samtökunum og mun halda því áfram og reikna með að fá að fram- lengja aðeins rekstrinum á stofunni en það er þá eingöngu út af sér- stökum verkefnum. Það verður ekki lengur hægt að panta hjá mér tíma. Þetta ræddi ég við landlækni en við ræddum ekkert um nein mál sem tengjast öðru. Landlæknir minntist ekki á þetta einu einasta orði. Hann sagði meira að segja við mig að ég ætti að tala við hann aftur í júní ef ég vildi halda áfram að reka stofu.“ Fálkaorðan vekur upp umræðu Geir Gunnlaugsson landlæknir staðfestir í samtali við DV að Sverri hafi í febrúar síðastliðinn fengið leyfi til að reka læknastofu sína fram að næstu mánaðamótum og að umfang lyfjaávísana hans á ávana- bindandi lyf hafi verið til skoðunar. „Auðvitað hefur það áhrif en hann er líka kominn á aldur. En það er erfitt að fara í opinbera umræðu um einn einstaka lækni. Það að hann hafi hlotið fálkaorðuna vekur síðan upp umræðu um Sverri hjá þeim sem telja að lyfjaávísanir hans hafi átt þátt í ógæfu nákominna, ég hef skilning á því.“ Brugðust við ábendingum Geir segir landlæknisembættið ekki hafa haft neitt að gera með þá ákvörðun forsetans að sæma Sverri fálkaorðunni. „Landlæknisemb- ættið hefur ekkert með það að gera. Það er alfarið mál forsetans og það hefur ekki verið leitað til embættis- ins vegna þess á neinn hátt,“ segir Geir en aðspurður segist hann ekki hafa neina skoðun á orðuveiting- unni. „Mikilvægast er að við höfum brugðist við ábendingum sem höf- um fengið og það hafa verið teknar ákvarðanir á grundvelli niðurstöðu þeirrar skoðunar.“ Þegar Geir er inntur eftir útskýringu á því hvers vegna Sverrir fær að halda lækn- ingaleyfi segir hann alltaf matsat- riði hvenær læknar eru sviptir leyfi. „Mér finnst ekki við hæfi að ég sé að tjá um mig um þetta sorglega atvik sem þú ert að vísa til og lækninga- leyfi Sverris.“ Spurður hvort eðlilegra væri að mál af slíku tagi væru rannsök- uð af lögreglunni frekar en Land- læknisembættinu, þar sem hætta á að kunningsskapur og tengsl milli lækna gætu haft áhrif á með- ferð kvartanna sem berast til emb- ættisins segir Geir að slíkt hafi ekki áhrif á störf embættisins. „Það er ekki þannig að það séu félagar og kunningjar sem standa vörð um hvorn annan. Það er reynt að kom- ast að niðurstöðu í öllum málum sem byggjast á lögum um embætt- ið og eftirlitshlutverk þess. Við vilj- um ekki að það sé stjórnlaust flæði af þessum lyfjum sem hafa verið til umræðu, þessu svokölluðu lækna- dópi og við höfum verið og erum að vinna í því að koma í veg fyrir það.“ Vaxandi vandamál Björgvin Björgvinsson aðstoðar- yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni í Reykjavík segir læknadóp verða sífellt stærra vandamál og að lög- reglan taki eftir töluverði aukningu í notkun þess hjá fíklum. „Þetta er vaxandi vandamál enda fjölmörg andlátsmál þar sem ungt fólk deyr vegna ofneyslu lyfja sem það hef- ur keypt á götunni eða fengið eftir öðrum leiðum, meðal annars frá læknum.“ Björgvin segir lögregl- una hafa verulegar áhyggjur af því hversu auðvelt það virðist vera fyrir fíkla að komast yfir læknadóp. Að- spurður hvort lögreglan sé mátt- vana þegar kemur að því að finna úrræði til að stöðva flæði lækna- dóps á götuna segir hann að svo sé ekki. „Það vantar kannski aukið eftirlit hjá Landlæknisembættinu með þessum hættulegu lyfjum. Það er líka spurning um breytta löggjöf eða eitthvað slíkt.“ Eigum að finna ástæðuna Björgvin segir lögregluna rannsaka öll andlátsmál og þegar óvænt and- lát ber að höndum og ef grunur er um ofneyslu lyfja eða fíkniefna fer fram lyfjarannsókn og réttarkrufn- ing. Lögreglan rannsaki alltaf þær aðstæður sem hinn látni var í og reyni að rekja atburðarásina. „Síð- an þegar niðurstaða krufningar og lyfjaleitar er lokið, tekur lögreglan rannsóknina saman og ákæruvald- ið fær málið til ákvörðunar.“ Hann segir lögregluna ekki rannsaka dauðsföll fíkla sem deyja vegna lyfjaeitranna öðruvísi en önnur andlátsmál þegar fólk deyr skyndidauða og segir þær rann- sóknir oft vera mjög viðamiklar. Björgvin bendir á að það sé einn- ig mikilvægt að skoða samfélagið í heild og hvers vegna ástandið sé eins slæmt og raun ber vitni. „Hvers vegna er þetta ástand svona? Af- hverju eru krakkar reiðubúnir til að sprauta sig og taka þessi lyf. Við erum alltaf að tala um afleiðingarn- ar en við eigum að reyna að finna ástæðuna.“ FÉKK DAUÐASKAMMTINN HJÁ LÆKNINUM Dauðadóp Umbúðir af fentanyl-plástrum sem ættingjar mannsins fundu í fötum hans eftir að hann lést. Domus Medica Maðurinn fékk hjartastopp inni á salerni þar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.