Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2011, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2011, Blaðsíða 36
36 | Viðtal 24.–26. júní 2011 Helgarblað K alli segir frá því hvernig þetta hús blasti við þeim þegar þau gengu þar inn, nýkjörnir borg­ arfulltrúar Besta flokksins, fyr­ ir tæpu ári. „Við rákumst fljótt á hluti sem okkur fannst skrítið að væru eins og þeir væru. Þá spyr maður bara eins og barn: Af hverju er þetta svona? Stundum fær maður mjög lógísk svör sem eru góðar ástæður fyrir en stundum er ekkert mál að breyta því. Eins og til dæmis að Jóni fannst vanta tónlist í Ráðhúsið og nú er spiluð hérna íslensk tónlist. Þægi­ leg íslensk tónlist og allir eru ánægð­ ir. Það var ekki mikið mál,“ segir hann og ljúf íslensk tónlist ómar í bakgrunni. Hér hefur hann starfað í rúmt ár og kann vel við það. Vantar borgarfulltrúafrú Líf hans hefur reyndar breyst tölu­ vert á einu ári. Fyrir ári var hann einhleypur tölvunarfræðingur en í dag er hann ástfanginn borgar­ fulltrúi. „Stundum gerast hlutirnir bara svona hratt og einhvern veginn þá breytist líf manns bara á einu ári án þess að maður fái nokkuð við það ráðið. Það er bara gaman, bara rússí­ bani,“ segir Kalli en hann er í sam­ búð með fjölmiðlakonunni og rithöf­ undinum Þorbjörgu Marinósdóttur, Tobbu Marinós. Ástarsamband þeirra byrjaði á óvæntan og skemmtilegan hátt. „Strax eftir kosningarnar í fyrra fékk ég símtal frá Eiríki Jónssyni sem var þá ritstjóri á Séð og Heyrt. Hann sagði við mig að hann væri að fjalla um maka nýju borgarfulltrúanna. Ég var búinn að frétta af því að hann væri að tala um þetta og hafði ekkert að óttast þegar ég svaraði símanum því að ég átti engan maka. Það var nú aðeins öðruvísi en ég bjóst við. Hann gerði það eiginlega að stóru fréttinni að ég ætti engan maka. Það endaði í því að ég var settur á forsíðuna með fyrirsögnina „Vantar borgarfulltrúa­ frú“,“ segir Kalli skælbrosandi og bæt­ ir við: „Þetta fannst mér gríðarlega fyndið og ég kippti mér ekkert upp við þetta en svona í framhaldinu þá hitti ég Tobbu á bar. Hún náttúrlega var að vinna á blaðinu og kom að spyrja mig hvernig gengi eftir þetta og hvort það væru ekki að hrannast inn tilboð og svona.“ Kynntist Tobbu á eigin forsendum Tobba reyndi fyrst að koma Kalla og annarri stelpu á barnum saman en hann hafði meiri áhuga á henni. Í framhaldinu fóru þau að hittast æ oftar. „Svo þróaðist þetta einhvern veginn. Það er mjög fyndið svona eft­ ir á að við skyldum byrja saman eftir að hún hafði slengt mér á forsíðuna og djókað með þetta. Og tekið hlut­ verkið svo að sér sjálf.“ Þau hafa verið áberandi sam­ an síðan örvar Amors hittu þau í hjartastað. Tobba er ekki þekkt fyrir að liggja á skoðunum sínum og hef­ ur verið umdeild. Kalli segist ekki hafa haft fyrirframákveðna skoðun á henni. „Fyrst um sinn hugsaði ég bara: Fólk hefur alls konar skoðan­ ir á henni en ég ætla að mynda mér mínar eigin. Ég hafði kannski helst þá skoðun að systir mín vann með henni og hún sagði að hún hefði ver­ ið „aðalfjörið“ á staðnum, alltaf lang­ skemmtilegust. Ég hafði það í vega­ nesti. Það var svona skoðunin sem ég hafði á henni fyrir fram. Síðan kynnt­ ist ég henni bara eins og hún er og á mínum eigin forsendum.“ Tobba ver sig sjálf Hann segist reyna að láta það ekki pirra hann þegar fólk hafi skoðan­ ir á kærustunni hans. „Það fer alveg í taugarnar á mér. Ég held að það hjálpi mér samt að vera í þessu starfi. Núna í heilt ár er fólk líka búið að hrauna yfir minn gamla vin og núver­ andi borgarstjóra og segja alls konar hluti um hann sem eru ekki sann­ ir. Gefa honum mjög óvægna gagn­ rýni. Það hefur verið mjög lærdóms­ ríkt að fylgjast með hvernig hann tekur henni. Oft hefur mann lang­ að til að rjúka fram og verja hann en hann tekur þessu af ákveðnu æðru­ leysi. Tobba gerir það nefnilega líka og maður hugsar bara: Ég ætla ekki að taka þennan slag fyrir viðkom­ andi. Maður hefur kannski stundum sagt eitthvað en ég veit það ekki. Það er bara meira frábært að fylgjast með þeim og hvernig þau eru og láta það ekki á sig fá. Mér finnst það svo sterkt karaktereinkenni. Það er alveg til fyr­ irmyndar. Þá fer þetta minna í taug­ arnar á manni.“ Kærastan ekki allra Hann er ánægður með kærustuna og reynir ekki að fela það. „Hún er ákveðin týpa sem fellur ekki öllum í geð. Hún er mjög „dómínerandi“ í hóp, það fer mikið fyrir henni – mikil læti og fjör. Það sést langar leiðir þeg­ ar maður kynnist henni hvað hún er góð manneskja. Það er svona númer eitt. Mikið væri heimurinn leiðinleg­ ur ef allir væru eins.“ Hann segir flesta hafa verið ánægða með ráðahaginn. „Það eru allir bara búnir að taka þessu voða vel og eru bara mjög ánægðir. Nátt­ úrulega sannir vinir og fjölskylda sem þykir vænt um mann hafa það að leiðarljósi að ef maður sjálfur er glaður þá skiptir annað ekki máli þannig að það er bara búið að vera mjög jákvætt og gleðilegt. Ég hef fundið til dæmis fyrir því í öllum mínum vinahópum þar sem Tobba hefur komið inn að hún hefur bara Borgarfulltrúinn Karl Sigurðsson ætlaði sér aldrei að fara í borgarmálin. Hann kynntist ástinni fyrir til- viljun rétt eins og hann endaði óvart í borgarstjórn Reykjavíkur. Hann segist vera femínisti sem hafi verið umvafinn konum í æsku, er ótrúlega ástfanginn af Tobbu Marinós og þau eru að leita sér að íbúð til að búa í saman. Viktoría Hermannsdóttir hitti Kalla, eins og hann er jafnan kallaður, yfir kaffibolla í Ráðhúsi Reykjavíkur. Þar ræddi hann um hörkuna í borgarmálunum, ástina, tónlistina og Jón Gnarr. „Ef okkur tekst samt að hreinsa til er það bara til hagsbóta fyrir borgina. Okkur finnst við þá hafa áorkað einhverju. Ánægður borgarfulltrúi „Ég held að eftir okkar fjögur ár hérna muni fólk senni- lega vera ánægt með það hvernig borgin er. Ekki að það muni endilega þakka okkur.“ Búinn að finna stóru ástin
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.