Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2011, Blaðsíða 14
Landsbankinn, sem er í eigu ís-
lenska ríkisins, er orðinn stærsti hlut-
hafi baðstaðarins Bláa lónsins eftir
yfirtökuna á eignum Sparisjóðsins í
Keflavík sáluga. Ríkisbankinn á orð-
ið fjórðungshlut í Bláa lóninu sem
Sparisjóðurinn í Keflavík hafði leyst
til sín vegna skuldsetningar hluthafa
baðstaðarins. Meðal annars er um
að ræða hluta af hlutabréfum félags-
ins Hvatningar hf. sem er í eigu Gríms
Sæmundsen, forstjóra Bláa lónsins og
fyrrverandi næststærsta hluthafa bað-
staðarins. Næststærsti hluthafi Bláa
lónsins í dag er HS Orka en Hvatning
hf. er þriðji stærsti hluthafinn.
Kristján Kristjánsson, upplýsinga-
fulltrúi Landsbankans, staðfestir að
Landsbankinn hafi eignast hlutabréf
Sparisjóðsins í Keflavík í Bláa lón-
inu. „Allar eignir SpKef eru komnar í
hendur Landsbankans, þar með tal-
in bréf í Bláa lóninu. Það er almennt
ekki markmið Landsbankans að eiga
hlutafé í félögum í óskyldum rekstri og
það á við um þetta félag eins og önn-
ur.“ Kristján vill hins vegar ekkert segja
til um það „að sinni“ hvort til standi
að selja hlutinn í Bláa lóninu eða ekki.
Landsbankinn heldur því áfram utan
um hlutinn samkvæmt þessu svari
Kristjáns. Af svari hans að dæma er
það ekki markmið Landsbankans að
eiga hlutinn til langframa og því má
ætla að bankinn losi sig við hlutinn.
Tekjur upp á 2,5 milljarða
Bláa lónið, sem er einn af vinsælli án-
ingarstöðum ferðamanna sem koma
til Íslands, er öflugt fyrirtæki sem skil-
aði tekjum upp á tæplega 16 milljónir
evra, um 2,5 milljarða króna, á árinu
2009, samkvæmt ársreikningi þess
árs. Rekstrarhagnaður var af Bláa lón-
inu árið 2009 upp á 1,8 milljónir evra,
um 300 milljónir króna. Einungis sala
á aðgangsmiðum í Bláa lónið nam 5,5
milljónum evra, rúmum 900 millj-
ónum króna, á árinu. Tekið skal fram
að aðgangur í Bláa lónið kostar 4.800
krónur. Af rekstrarniðurstöðum Bláa
lónsins að dæma sést því að þar er um
að ræða sterkt fyrirtæki með gott sjóð-
streymi.
Félagið var hins vegar nokkuð
skuldsett og átti í viðræðum við lán-
ardrottna sína um endurfjármögnun
á lánum. Úr varð að hluta af kröfum
á hendur félaginu var breytt í hluta-
félaginu árið 2009. Í árshlutareikningi
fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2010
bentu endurskoðendur Bláa lónsins
á að fyrirtækið þyrfti að endurfjár-
magna lán upp á rúmlega 10 milljón-
ir evra, rúmlega 1,65 milljarða króna,
í ársbyrjun 2011, og að stjórnendur
félagsins ynnu að þessari endurfjár-
mögnun.
Skuldum breytt í hlutafé
Þannig eignaðist Sparisjóðurinn í
Keflavík hlutinn í Bláa lóninu árið
2009. Í skýrslu sem Fjármálaeftirlit-
ið vann um Sparisjóðinn í Keflavík
rétt fyrir hrunið 2008 kom fram að
lán til Bláa lónsins voru ein stærsta
áhættuskuldbinding sjóðsins. Félag
Gríms Sæmundsen, Hvatning ehf.,
skuldaði sparisjóðnum til að mynda
821 milljón króna og lágu hluta-
bréf í Bláa lóninu fyrir 397 milljónir
króna að baki þeim lánum. Heildar-
lánafyrirgreiðsla til Bláa lónsins og
Hvatningar nam 2,1 milljarði króna,
eða rúmum 14 prósentum af eigin-
fjárgrunni sparisjóðsins. Á milli ár-
anna 2008 og 2009 minnkaði hlutur
Hvatningar ehf. í Bláa lóninu um tíu
prósentustig, fór úr 27 prósentum
og niður í 17. Sparisjóðurinn virðist
því hafa leyst til sín hluta af bréfum
Hvatningar.
Í ársreikningi Bláa lónsins kem-
ur fram að hlutafé Bláa lónsins hafi
verið aukið um nærri 2,9 milljarða
króna á árinu 2009. Hlutafjáraukning-
in fór þannig fram að kröfum Spari-
sjóðsins í Keflavík og Eignarhalds-
félagi Suðurnesja var breytt í hlutafé.
Um þetta segir í ársreikningnum: „Í
hlutafjáraukningunni fólst breyting
á langtíma- og skammtímakröfum
Sparisjóðsins í Keflavík og Eignar-
haldsfélags Suðurnesja hf. á hendur
félaginu í hlutafé.“
Áttu sölurétt á hlutabréfunum
Í ársreikningi Bláa lónsins fyrir árið
2009 kemur fram að í byrjun júní árið
2011 – í þessum mánuði – hafi þeir
hluthafar Bláa lónsins sem breyttu
skuldum sínum í hlutafé árið 2009,
Sparisjóðurinn í Keflavík og Eignar-
haldsfélag Suðurnesja, átt sölurétt á
hlutum sínum í fyrirtækinu. Þar sem
Landsbankinn yfirtók eignir Spari-
sjóðsins í Keflavík, þar með talinn
hlutinn í Bláa lóninu, færðist þessi
söluréttur yfir til Landsbankans með
yfirtöku bankans á eignum spari-
sjóðsins.
Um þetta segir í ársreikningnum.
„Á tímabilinu frá 1. júní 2011 – 7. júní
2011 eiga Sparisjóðurinn í Keflavík og
Eignarhaldsfélag Suðurnesja hf. sölu-
rétt á hlutum sínum í S-flokki, sem þá
kynnu mögulega að vera óseldir, til
félagsins sjálfs. Söluréttarverðið skal
vera nafnverð hlutanna í EUR marg-
faldað með 2,22 en að auki skal það
bera 19% fasta ársvexti frá 1. septem-
ber 2009 til uppgjörsdags kaupréttar-
ins. Þrátt fyrir þessi ákvæði eru þessi
hlutabréf færð á meðal eigin fjár enda
er það mat stjórnenda að hverfandi
líkur séu á því að félagið þurfi að leysa
þessi bréf til sín og greiða þá vexti sem
þau bera.“
Þetta þýðir að Landsbankinn á
sölurétt á fjórðungshlutnum í Bláa
lóninu og getur þar með selt hlut sinn
í fyrirtækinu á tilteknu gengi ef svo
ber undir.
Sölurétturinn virkur í haust
Grímur Sæmundsen segir aðspurður
að sölurétturinn hafi færst fram í tím-
ann vegna falls Sparisjóðsins í Kefla-
vík og annarra mála. „Þetta hefur
frestast allt þannig að sölurétturinn
hefur ýst aftur. Sölurétturinn verður
því ekki virkur fyrr en í október eða
nóvember á þessu ári,“ segir Grímur
og bætir því við aðspurður að eign-
arhaldið á Bláa lóninu hafi því ekki
breyst ennþá.
Grímur segir að Bláa lónið hf.
hafi kauprétt á hlutabréfum Lands-
bankans áður en söluréttur bankans
virkjast. „Sölurétturinn virkjast ekki
nema hluthafarnir nýti ekki kauprétt-
inn. Þannig að kauprétturinn gildir á
undan,“ segir Grímur. Aðrir hluthafar
Bláa lónsins, meðal annars HS Orka
og Hvatning, félag Gríms, geta því
eignast bréf Landsbankans ef sá vilji
er fyrir hendi. Grímur segir hins vegar
að engin ákvörðun hafi verið tekin um
það fyrir hönd Bláa lónsins hvort bréf
Landsbankans í Bláa lóninu verða
keypt eða ekki. Ríkisbankinn mun
því áfram eiga hlutinn í þessum fræga
ferðamannastað í að minnsta kosti
nokkra mánuði í viðbót áður en dreg-
ur til tíðinda. Líkt og áður segir gefur
Landsbankinn ekkert upp um hvað
bankinn hyggst gera við hlutinn í Bláa
lóninu.
14 | Fréttir 24.–26. júní 2011 Helgarblað
n Landsbankinn er orðinn meirihlutaeigandi í Bláa lóninu
Málið frestaðist Grímur segir að
söluréttur Landsbankans á hlutabréfum
bankans í Bláa lóninu verði ekki virkur fyrr
en í október.
„Allar eignir SpKef
eru komnar í hendur
Landsbankans, þar með
talin bréf í Bláa lóninu.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Ríkið stærsti hluthafinn Íslenska
ríkið er orðið stærsti hluthafi Bláa lónsins
í gegnum ríkisbankann, Landsbankann.
Ástæðan er sú að Sparisjóðurinn í Keflavík
leysti til sín 25 prósent í Bláa lóninu sem
síðar rann inn í Sparisjóðinn.
bláa lÓNIÐ
í ríKISEIGU