Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2011, Blaðsíða 42
42 | Sakamál Umsjón: Kolbeinn Þorsteinsson kolbeinn@dv.is 24.–26. júní 2011 Helgarblað
Skaust í stórmarkað með leigubíl:
Erindið
var rán
Leigubílar eru til ýmissa erinda
brúklegir og margir sem kjósa að
nýta sér þjónustu leigubílstjóra
þegar þarf að skjótast eitthvert og
vera snöggur að. Það var sennilega
eitthvað á þá leið sem 31 árs karl-
maður frá Árósum í Danmörku
hugsaði þegar hann tók leigubíl og
bað bílstjórann að skutla sér í Kiwi
Minipris-stórmarkaðinn á Mølle-
vangs Alle í Árósum.
Þangað kominn bað viðskipta-
vinurinn leigubílstjórann að
hinkra við á meðan hann skytist
inn rétt sem snöggvast og sinnti
erindi sínu.
Eins og leigubílstjóra er siður
tók hann vel í bónina og beið
hinn rólegasti á meðan kúnninn
var inni í stórmarkaðnum. Innan
skamms birtist farþeginn aftur,
settist inn í leigubílinn og gaf upp
nýjan áfangastað.
Leigubílstjórinn varð forviða
þegar lögreglan stöðvaði för þeirra
nokkrum mínútum síðar en þrátt
fyrir að koma af fjöllum fyrst í stað
rann fljótlega upp fyrir honum að
farþeginn hafði ekki sinnt því sem
myndu kallast hefðbundin inn-
kaup á Kiwi Minipris-stórmark-
aðnum – ó nei!
Þess í stað hafði hann framið
rán í stórmarkaðnum og eftir á
gert leigubílstjórann samsekan
með því að breyta leigubílnum í
flóttabíl.
Ræninginn hafði eitthvert
reiðufé upp úr krafsinu og að sögn
starfsmanns Kiwi Minipris hafði
ræninginn í hótunum með eitt-
hvað sem hann faldi undir peys-
unni. Reyndar hafði lögreglan
ekki erindi sem erfiði í leit sinni
að vopni af einhverju tagi þegar
ræninginn var handtekinn í leigu-
bílnum skömmu síðar, en leigu-
bílstjórinn mun að öllum líkum
sleppa við vandræði vegna þessa
óvenjulega farþega sem hann fékk
á þriðjudagskvöldið.
Ekki er nema rétt rúmt ár síðan
bankaræningjar reyndu að komast
undan í leigubíl eftir að hafa fram-
ið rán í Jyske-bankanum á Ama-
gerbrogade í kóngsins Kaupin-
höfn. Ekki gekk það sem skyldi og
þeir höfðu ekki lagt langan veg að
baki þegar lögreglan hafði hendur
í hári þeirra. Sennilega er best að
nýta sér þjónustu leigubíla þegar
um hefðbundna ferð frá einum
stað til annars er að ræða og láta
banka- og búðarrán bara eiga sig.
L
éopold Dion var kanadískur
raðmorðingi sem var upp á
sitt besta í Quebec í Kanada á
7. áratug síðustu aldar og fékk
viðurnefnið Skrýmslið frá Pont-
Rouge. Fyrsta fórnarlamb Léopolds
var ung kona frá þorpinu Pont-
Rouge í Kanada og naut Léopold
aðstoðar bróður síns við árásina.
Þeir nauðguðu konunni við járn-
brautarteina og stungu hana síðan
með hníf og skildu eftir í þeirri full-
vissu að hún tórði ekki lengi. Konan
lifði af þrátt fyrir áverkana.
Léopold snéri sér að ungum
drengjum og fyrsti drengurinn
sem féll fyrir hendi hans var Guy
Luckenuck. Guy var tólf ára og var
í Quebec-borg til að sækja píanó-
tíma þegar hann varð á vegi Léo-
polds. Léopold blekkti Guy með því
að þykjast taka ljósmyndir á filmu-
lausa myndavél og sagði síðan að
hann vildi halda myndatökunum
áfram annars staðar. Hann ók með
drenginn út fyrir borgina, á afvik-
inn stað, þar sem hann kyrkti hann
og gróf.
Tveir drengir „ljósmyndaðir“
Þann 5. maí 1963 urðu á vegi Léo-
polds tveir ungir drengir, Alain Car-
rier, sem var átta ára, og Michel
Morel, tveimur árum eldri. Léopold
notaða sömu aðferð og reynst hafði
svo vel við fyrsta morðið; að þykjast
taka ljósmyndir.
Honum tókst að lokka drengina
inn í bíl sinn og ók síðan sem leið
lá að niðurníddu húsi í Saint-Ray-
mond-de Portneuf.
Léopold fór síðan í fangaleik svo
hann gæti bundið Alain inni í hús-
inu. Að því loknu snéri hann sér að
eldri drengnum, Michel, og fór með
hann út fyrir þar sem hann fór þess
á leit við hann að hann afklæddist.
Léopold viðhafði engar vífilengj-
ur og kyrkti Michel, fór síðan inn í
húsið og kæfði Alain.
Myrtur skammt frá gröf Guys
Undir lok maí 1963, þann 26. nán-
ar tiltekið, féll þrettán ára dreng-
ur, Pierre Marquis, fyrir ljósmynd-
unarbrellu Léopolds. Skammt frá
þeim stað sem geymdi líkams-
leifar Guys Luckenuck, sem Léo-
pold hafði myrt rúmum mánuði
fyrr, bað Léopold drenginn að sitja
fyrir án fata. Pierre varð við ósk
Léopolds en þegar Léopold gerð-
ist ofbeldisfullur snérist Pierre til
varnar.
En þrettán ára guttinn hafði lít-
ið í Léopold að gera og þrátt fyrir
hetjulega og örvæntingarfulla bar-
áttu endaði hann ævi sína eins og
Guy og hinir drengirnir.
Þegar þarna var komið sögu var
Léopold á skilorði vegna nauðgun-
ar á kennslukonu nokkrum árum
fyrr og þar af leiðandi ekki alveg
óþekkt stærð hjá lögreglunni og
daginn eftir morðið á Pierre Mar-
quis var Léopold handtekinn.
Lýsing lánsams drengs
Það sem varð Léopold að falli var
lýsing ungs drengs sem flækst hafði
í blekkingarvef Léopolds en orð-
ið svo lánsamur að sleppa lifandi
frá kynnum þeirra. Reyndar var
það svo að Léopold hafði ráðist á
yfir tuttugu drengi þó aðeins fjórir
væru til frásagnar eftir á.
Í heilan mánuð þráaðist Léo-
pold Dion við á bak við lás og slá,
neitaði allri sök eða aðild að morð-
unum en að lokum fór þó svo að
hann bugaðist og sagði rannsókn-
arlögreglunni frá glæpum sínum
í smáatriðum. Léopold gerði gott
betur því hann fór með lögregluna
á þá staði þar sem hann hafði graf-
ið drengina.
Verjandi Léopolds var reynslu-
mikill glæpalögmaður, Guy Bertr-
and að nafni, og eins og stundum
vill verða fór ekki allt sem skyldi.
Málalyktir urðu þær að Léopold var
einungis ákærður fyrir eitt morð,
morðið á Pierre Marquis, vegna
skorts á sönnunum í hinum mál-
unum, og 10. apríl 1964 kvað dóm-
arinn Gérard Lacroix upp þann
dóm að Léopold skyldi hengdur.
Síðar var dómnum breytt í lífstíð-
arfangelsi og sá dómur gekk eft-
ir því 17. nóvember 1972 var Léo-
pold stunginn til bana af samfanga,
Normand „Arabíu-Lawrence“
Chaampagne. Arabíu-Lawrence
var síðar úrskurðaður ósakhæfur
sökum geðsýki.
n Þóttist vera ljósmyndari til að nálgast fórnarlömbin n Réðst á tuttugu og einn
dreng, en myrti fjóra n Var að síðustu aðeins ákærður fyrir morð á einum dreng„En þrettán ára
guttinn hafði lítið í
Léopold að gera og þrátt
fyrir hetjulega og örvænt-
ingarfulla baráttu endaði
hann ævi sína eins og Guy
og hinir drengirnir.
SkrýmSlið
frá Pont-rouge
Skrýmslið frá
Pont-Rouge
Léopold Dion réðst
á 21 dreng, myrti 4
en var sakfelldur
fyrir eitt morð.