Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2011, Blaðsíða 37
Viðtal | 37Helgarblað 24.–26. júní 2011
almennt vakið lukku og allir eru
glaðir. Þá er ég alveg viss um það að
þar hafi verið einhverjir sem hafi ver-
ið búnir að mynda sér fyrir fram ein-
hverja skoðun en hafa svona aðeins
þurft að endurskoða hana.“
Spurði hvort hann vildi vera
„memm“
Við snúum okkur aftur að borgar-
málunum. Kalli kann vel við sig í
Ráðhúsinu en viðurkennir þó að
hafa alls ekki stefnt þangað. „Þetta er
mjög skrýtið. Ég kem eiginlega aldrei
hingað inn nema til að kjósa. Síðan
allt í einu er maður farinn að vinna
hérna.“ Hann hafi engan veginn búist
við því að hann færi að vinna í Ráð-
húsinu þegar Jón Gnarr bað hann
um að vera með á lista Besta flokks-
ins. „Nei, ég bjóst ekki við því. Ekki
fyrr en kannski svona mánuði fyr-
ir kosningar. Í nóvember í fyrra fékk
ég Facebook-skilaboð frá Jóni þar
sem hann sagði mér að við ætluð-
um að bjóða fram í vor, hvort ég væri
memm. Ég spurði bara hvað ég þyrfti
að gera og hann sagði: „Ekkert. Þetta
á bara að vera gaman.““
Jón ótrúlega skemmtilegur og
barngóður
Hann hefur þekkt Jón í mörg ár. „Ég
hef þekkt Jón síðan ég var krakki.
Hann og systir mín voru kærustupar
þegar ég var bara 10–11 ára. Þá var
hann 17 ára og þau voru saman í ein-
hver þrjú ár. Hann var alveg frábær.
Ótrúlega skemmtilegur og barngóð-
ur. Hann var alltaf að leika við mig.
Næstum því þannig að systir mín var
farin að missa þolinmæðina. Hann
var alltaf að leika við litla pjakkinn.
Hann hafði alltaf rosa áhuga á því
sem ég var að gera. Ég held hann hafi
alltaf vitað af mér í gegnum tíðina og
ég af honum. Það er gaman að taka
upp þráðinn núna síðan við vorum
í Sinclair Spectrum-tölvunni minni.
Ég var mjög upp með mér að hon-
um skyldi vera hugsað til mín,“ segir
hann og sér svo sannarlega ekki eftir
því að hafa slegið til. „Maður hefur
eignast alveg frábæra vini í þessu.“
Hélt hann kæmist ekki inn
Það þurfti ekki mikið til að sann-
færa hann um að vera með. Hann
dembdi sér í slaginn og sér ekki eft-
ir því. Það sem fyrst var hálfgert grín
vatt upp á sig. „Allt í einu var maður
bara kominn í framboð. Ég hugsaði
bara að þetta væri sniðugt. Kannski
myndi maður ná Jóni inn og hann
gæti hrist eitthvað upp í þessu. Það
hefur nú gerst áður að flokkur sem
hefur náð einum manni inn hefur
fengið borgarstjóra út af oddaat-
kvæði.“
Þegar líða fór að kosningum
sýndu skoðanakannanir fram á mik-
ið fylgi Besta flokksins. Þá fóru að
renna tvær grímur á Kalla. „Svona
mánuði fyrir kosningar talaði ég
við vinnuveitendur mína og sagði
þeim að þetta væri svolítið krítískt
ástand,“ segir hann hlæjandi.
Erfitt að fá konur á lista
„Mér finnst bara alveg ótrúlegt að
við skyldum ná sex manns inn.
Ég var í fimmta sæti. Var reyndar
í fjórða sæti fyrst en svo þurfti að
kynbæta listann,“ segir hann og vill
meina að það hafi verið erfitt að
fá konur til að vera ofarlega á lista
flokksins. „Við upplifðum það þann-
ig að það var mjög erfitt að fá kon-
ur til að vera ofarlega á lista. Okkur
fannst það skrítið en svona er það
bara. Það var reynt og reynt en end-
aði þannig að við gátum ekki ver-
ið með svokallaðan fléttu lista. Það
kemur reyndar ekki að sök því Einar
Örn er mjög mjúkur maður og Óttar
(Proppé, innsk. blm.) vildi helst að
hann væri kona. Honum finnst það
sín mesta skömm í lífinu að vera
ekki kona,“ segir Kalli og glottir við
tönn.
Úr rauðsokkufjölskyldu
Kalli játar því að hann sé femín-
isti. „Já, ég er alinn upp af tveim-
ur konum, mömmu minni og stóru
systur minni. Mamma mín á þrjár
systur. Ein þeirra á tvær dætur sem
eru mjög nánar mér, voru eins kon-
ar uppeldissystur mínar. Það hefur
verið mikið af konum í kringum mig
alla tíð. Mamma og systur henn-
ar voru miklar rauðsokkur á sínum
tíma og amma líka. Afi var mikill
kommúnisti og þau öll reyndar voru
miklir sósíalistar og kommúnistar.
Hann tók þátt í þessu líka þrátt fyrir
að vera af gamla skólanum. Það var
alltaf verið að spila Áfram stelpur, og
svoleiðis, heima hjá mér,“ segir Kalli
en hann steig líka sjálfur á svið á
fyrsta kvennafrídeginum árið 1975.
„Ég er nefnilega svo heppinn að
vera annar af tveimur karlmönnum
sem stigu á svið þann daginn. Það
vildi þannig til að mamma var með
konunum að skemmta sér og pabbi
átti að sjá um okkur systkinin. Síð-
an var Leikfélag Reykjavíkur með
atriði á sviðinu. Pabbi sem er leik-
ari var fenginn sem eini karlmað-
urinn til að leika í því atriði. Systir
mín átti að passa mig á meðan og
var með mér svona bak við sviðið og
hélt mér meðan við vorum að horfa
á pabba. Hún sleppti mér eina sek-
úndu og ég hljóp út á sviðið og beint
í fangið á pabba. Hann tók mig upp
og við vorum þarna feðgarnir á svið-
inu og konunum fannst pabbi rosa-
lega mjúkur og sætur,“ segir hann og
brosir að minningunni.
Netið og tónlistin
Karl er menntaður tölvunarfræðing-
ur frá Háskóla Íslands. Barnsskón-
um sleit hann í Hlíðunum í Reykjavík
og til skamms tíma í Svíþjóð. Hann
gekk í Hlíðaskóla og Menntaskólann
við Hamrahlíð. „Ég tók mér fimm ár
í að klára menntaskólann, standard-
inn var fjögur,“ segir hann hlæjandi
og bætir við: „Ég var dálítið aktív-
ur í félagslífinu sem kom smá niður
á náminu. Ég var í nemendastjórn,
kórnum, skemmtiráði, tók þátt í upp-
færslum hjá leikfélaginu og ýmsu
svona.“
Það var einmitt í MH sem hann
kynntist vinum sínum sem standa
með honum að vefsíðunni Bagga-
lúti og hljómsveitinni sem ber sama
nafn. Baggalútur er ein vinsælasta
skemmtisíða landsins og hljómsveitin
hefur líka heillað marga með gaman-
sömum slögurum sínum. „Einhvern
tímann árið 2001 fékk ég sendan link
á einhvern svona vef sem hét bagga-
lútur.com með frétt. Bragi sagði mér
endilega að skrifa frétt og senda sér
í tölvupósti. Ég skrifaði eitthvað og
hann setti það inn og bara vá þetta er
komið á internetið. Við sendum þetta
svo áfram á vini okkar og fannst þetta
alveg frábært. Síðan byrjuðu bara
fleiri og fleiri að lesa þetta. Þá fengum
við okkur íslenskt .is lén þegar okkur
fannst þetta vera orðið nógu þroskað.“
Byrjaði sem grín
Tónlistina byrjuðu þeir félagar að
semja sem algjört grín. „Þetta byrj-
aði sem mjög svona hógvært grín
hjá okkur. Við ákváðum að gera eitt
jólalag og völdum að sjálfsögðu lag-
ið Crazy Crazy Nights með Kiss. Við
sendum það bara svo frá okkur, það
hlaut ágætis hljómgrunn en ekkert
mikinn. Svo nokkrum árum seinna
vorum við búnir að senda frá okkur
einn slagara og það var svona fyrsta
lagið sem fólk fór að taka eftir. Það
var ekki fyrr en 2005 sem við gáfum
út fyrstu plötuna okkar með frum-
sömdu efni. Síðan þá höfum við ver-
ið mjög aktívir.“ Þeir Baggalútsmeð-
limir hafa gefið út sex plötur á jafn
mörgum árum og Kalli segir þetta
alltaf vera jafn skemmtilegt.
„Það er alltaf gaman að taka
svona tarnir þar sem maður hitt-
ir strákana mikið og við búum eitt-
hvað til.“
Glöð í hjarta þrátt fyrir allt
Átökin í borgarstjórn hafa verið
áberandi. Deilur milli stjórnar og
stjórnarandstöðu hafa verið fyrir-
ferðarmiklar og reglulega rata frétt-
ir af þeim í fjölmiðla. Hann segir
þetta oft vera átök. „Ég hef orðið var
við það að á þessum opinbera vett-
vangi finnst mér oft erfitt að sitja
fundi. Ég hef setið fundið borgar-
ráðsfundi fyrir luktum dyrum og
þar hef ég séð alls konar sem mað-
ur er ekkert að segja frá án þess að
rjúfa trúnað. Það er öðruvísi að vera
á þessum opnu fundum. Maður
verður stundum var við það að það
er ósanngjörn orðræða í gangi og
ég finn fyrir því alveg í borgarstjórn.
Það er svona svolítið meira leikhús
fáránleikans á þessum opnu fund-
um. Þar passar fólk oft betur hvað
það segir. Inni á lokuðum fund-
um getur fólk meira og minna tal-
að frjálst. Í borgarstjórnarsalnum
eru samt, þrátt fyrir að fólk sé orð-
vart, látnir flakka alveg ótrúlegustu
hlutir. Þetta kemur sjaldnast fram
í fjölmiðlum. Ég er líka bara ekk-
ert viss um að það hlusti margir á
þessa fundi. Það eru allavega fáir
á pöllunum yfirleitt. Maður situr
oft og hlustar á þegar það er verið
að tala um hluti þar sem búið er að
taka sannleikann og snúa illa upp á
hann til að láta okkur líta illa út. En
við erum glöð í hjarta.“
Frábært að Hanna Birna njóti
trausts
Hann segir stemminguna innan
minni ráðanna vera betri. „Inni í
fagráðunum er rosalega góð sam-
staða. Allavega í mínu fagráði, í um-
hverfis- og samgönguráði.“ Það eru
mörg erfið mál sem borgarstjórn
tekur fyrir og hann segir viðbrögðin
misjöfn. „Þegar það er verið að tala
um hluti eins og í atvinnumálum
og þetta er komið út í þessa hápóli-
tísku hluti þá verða átökin meiri.“
Fylgi Besta flokksins hefur
minnkað samkvæmt skoðana-
könnunum. Í síðustu skoðana-
könnun á vegum Gallup kom í ljós
að meirihluti borgarbúa treystir
Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, odd-
vita Sjálfstæðisflokksins í borgar-
stjórn, best. Aðeins 17 prósent
treysta Jóni Gnarr. „Það er auðvelt
að gera skoðanakönnun strax eft-
ir mjög erfiðar aðgerðir sem vekja
ekki miklar vinsældir og láta eins
og það gildi heilt yfir en það er bara
stikkprufa á ákveðnum tímapunkti.
Mér finnst frábært að fólk treysti
henni. Það er líka fullt af fólki sem
kaus hana og hennar fólk. Það er
gott að þau njóti trausts. Maður get-
ur ekki sagt annað en flott og fínt.“
Vilja hreinsa til
Kalli er viss um að tilgangurinn
helgi meðalið. Það er náttúrulega
alltaf þannig að það er meira tal-
að um það sem er neikvætt. Fólk
sendir sjaldnar póst til að hrósa.
„Það kemur fyrir en meiri partur-
inn af umræðunni fer í gagnrýni,
sem er eðlilegt. Stundum á hún rétt
á sér en stundum byggir hún ekki
á réttum upplýsingum. Mér finnst
við alveg vera á réttri braut. Ég held
að eftir okkar fjögur ár hérna muni
fólk sennilega vera ánægt með
það hvernig borgin er. Ekki að það
muni endilega þakka okkur. Eftir
að við erum búin þá finnst mér líka
allt eins líklegt að eitthvað af þeim
flokkum sem voru hérna áður komi
og taki við. Jafnvel þó að við bjóð-
um fram aftur sem er ekkert víst að
við gerum þá er ekkert víst að fengj-
um mann inn. Það er bara allt í lagi.
Ef okkur tekst samt að hreinsa til þá
er það bara til hagsbóta fyrir borg-
ina. Okkur finnst við þá hafa áorkað
einhverju.“
Ætla kaupa íbúð saman
Hann lítur björtum augum á fram-
tíðina. Næst á dagskrá eru íbúðar-
kaup. Hann og Tobba stefna að því
að kaupa sér saman íbúð í mið-
bænum. „Við erum búin að vera
að leita að íbúð í nokkra mánuði
núna. Við höfum séð nokkrar góð-
ar en erum einhvern veginn ekki al-
veg búin að finna draumaeignina.
Við höfum fulla trú á að við finnum
hana. Við erum bara svona í róleg-
heitunum að leita. Við ætluðum að
vera flutt niður í miðbæ fyrir sum-
arið. Við erum að reyna að finna
eitthvað mjög miðsvæðis þar sem
er stutt í vinnuna fyrir okkur bæði.
Ég er búinn að lesa yfir henni pistil-
inn um það hvað það sé umhverf-
isvænt, verandi formaður umhverf-
is- og samgönguráðs,“ segir Kalli og
hlær dátt. Hann segist vera ástfang-
inn upp fyrir haus og viðurkennir
að Tobba sé stóra ástin í lífi hans.
„Já, hún er það.“
viktoria@dv.is
„Við erum búin að
vera að leita að
íbúð í nokkra mánuði. Við
höfum séð nokkrar góðar
en erum einhvern veginn
ekki alveg búin að finna
draumaeignina.
„ Í nóvember í fyrra
þá fékk ég Face
bookskilaboð frá Jóni þar
sem hann sagði mér að við
ætluðum að bjóða fram í
vor, hvort ég væri memm.
Ótrúlega ástfanginn „Stundum gerast hlutirnir bara svona hratt og einhvern veginn þá breytist líf manns bara á einu ári án þess að
maður fái nokkuð við það ráðið. Það er bara gaman, bara rússíbani.“
Búinn að finna
stóru ástina