Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2011, Blaðsíða 46
46 | Lífsstíll 24.–26. júní 2011 Helgarblað
Austurlenskir
mittislindar
Nýjasta sumaræðið er mittisbelti í anda
japönsku geisjanna. Beltin voru áberandi á
tískusýningapöllunum þegar kynnt var
sumartískan fyrir árið 2011. Beltin koma í alls
kyns útfærslum, allt frá því að vera í mörgum
lögum til hefðbundnari og einfaldari belta.
Beltin gera heilmikið fyrir heildarútlitið og
geta gefið gömlum flíkum nýtt líf.
„Gefandi að gleðja
fólk með köku“
Á sumrin fá þeir sem eru sagðir hafa græna
fingur að njóta sín í garðræktinni. Þá er
tilvalið að lakka neglurnar líka grænar enda
sumarlegt og þykir hámóðins um þessar
mundir. Allt er vænt sem vel er grænt.
Grænar
neglur
Friðrika Geirsdóttir, eða Rikka eins
og fólk þekkir hana, lærði matargerð
í hinum virta Le Cordon Bleu mat-
reiðsluskóla í London og hefur síðan
þá kynnt matargerð af ýmsum toga
fyrir Íslendingum. Hún fór aftur til
London fyrir nokkru og sótti nám-
skeið hjá samnemanda sínum og
vinkonu, Peggy Porschen, sem er
einn þekktasti kökugerðarmaður
landsins. „Ég fór á námskeið hjá
henni til að læra gerð „cupcakes“
sem ég hef reynt að venja landann
á að kalla bollakökur,“ segir Rikka.
„Ég heillaðist af bollakökunum, þær
eru bragðgóðar og fallegar og þær
krefjast þess að ég nota sköpunar-
kraftinn sem er eitthvað sem mér
finnst nauðsynlegt. Ég held að það
hafi allir gott og gaman af því að gera
bollakökur.“
Bók sem á að gleðja augu og
maga
Í bók Rikku er að finna fjölda upp-
skrifta og leiðbeininga sem fólk getur
unnið út frá. Rikku fannst tilvalið að
gefa út slíka bók um mitt sumar.
„Sumir spyrja mig hvers vegna ég
sé að gefa út bók núna en mér fannst
þetta vera skemmtileg sumarbók og
við hæfi að gefa hana út núna en ekki
í bókaflóði í desember. Mér líður auk
þess vel að hugsa út fyrir kassann og
synda á móti straumnum,“ segir hún
og hlær. „Þetta er bók sem á að gleðja
bæði augu og maga.“
Gefandi starf
Það hefur verið nóg að gera hjá Rikku
allt árið því bollakökurnar hafa verið
vinsælar. „Ég er að baka fyrir sumar-
brúðkaupin og sumarveislurnar og
sem betur fer finnst mér þetta svo
skemmtilegt að ég gleymi mér í þessu.
Það gleður alltaf fólk að fá köku, þetta
er gefandi starf.“
Í nýútkominni bók gefur hún upp-
skriftir að alls konar bollakökum og
kremi. Vanillukökur og súkkulaði- og
rommbollakökur eru í uppáhaldi hjá
Rikku. „Mér finnst vanillukökurnar
alltaf mjög klassískar og þær uppfylla
þessa sætindaþörf sem ég hef. En svo
finnst mér líka mjög góðar bollakökur
með súkkulaði og rommi.“
Rikka gefur lesendum uppskriftir að
bollakökum. Þar á meðal girnilega
uppskrift að kókosbollakökum með
bounty-kremi sem lesendur geta
spreytt sig á.
Bollakökur með kókosmjólk og
Bounty fyrir 12 manns
270 g sykur
150 g smjör
2 egg
240 g hveiti
1/2 tsk. lyftiduft
50 ml kókosmjólk
1 1/2 tsk. vanilludropar
Hitið ofninn í 170 gráður. Hrærið
saman sykur og smjör þar til bland-
an verður ljós og létt. Bætið einu eggi
í senn út í og hrærið stuttlega á milli.
Blandið þurrefnunum saman við
ásamt kókosmjólkinni og vanilludrop-
unum. Sprautið deiginu jafnt í formin
og bakið kökurnar í 16–18 mínútur.
Bounty-krem
110 gr smjör, mjúkt
450 g flórsykur
60 ml mjólk
60 g Bounty-súkkulaði,
saxað og brætt
Hrærið smjör og vanilludropa vel
saman og bætið flórsykri og mjólk
saman út í og hrærið þar til blandan
er jöfn og slétt. Sprautið kreminu á
kökurnar.
Nóg að gera í sumar Rikka kemst varla í sumarfrí því annirnar í bakstrinum eru svo
miklar.
Súkkulaðikökur
150 g sykur
150 g púðursykur
125 g smjör
2 egg
260 g hveiti
1 tsk matarsódi
1 tsk lyftiduft
1/2 tsk salt
40 g kakó
200 ml mjólk
Hitið ofninn í 170 gráður. Hrærið sykur og
smjör vel saman þar til blandan verður ljós
og létt. Bætið eggjunum út í, einu í senn,
og hrærið. Blandið þurr-
efnunum saman og hrærið
saman við smjörblönduna
ásamt mjólkinni. Sprautið
deiginu jafnt í formin og
bakið í 16-18 mínútur.
Súkkulaðikrem
500 g flórsykur
60 g kakó
1 egg
80 g smör, brætt
1 tsk vanilludropar
1 1/2 msk sterkt kaffi
3 msk romm
1 msk mjólk
1/2 tsk salt
Setjið flórsykur og
kakó í skál og hrærið
eggi og bræddu smjöri
saman við ásamt
vanilludropum, kaffi og
salti. Sprautið kreminu
á kökurnar.
Kókos- og bounty-
bollakaka
Nýútkomin bók Rikku
Súkkulaði- og
rommbollakaka
Sólbrenndar
tær
Konur ættu að vara sig á því að vera mikið í
sandölum í sól. Annars er hætta á því að
fæturnir verði jafnævintýralega mynstraðir
og á myndinni hér að ofan. Ráð við þessu er
að bera sterka sólarvörn á fæturna og skipta
reglulega um skó.
Fjölbreytni Beltin koma í alls kyns
útfærslum.
Geisja Hér má sjá mittisbelti með
japönskum brag.
Haustlína H&M
Haustlína H&M hefur litið dagsins
ljós og hún kemur skemmtilega á
óvart. Litað rúskinn, látlausar káp-
ur með loðfeldi, leðurpils, mynstr-
aðir skyrtukjólar, leðurstuttbuxur
og prjónaðar peysur í anda sjöunda
áratugarins eru áberandi. Áherslurn-
ar minna svolítið á fatnað frá franska
merkinu APC. Litirnir eru flösku-
grænn, rauður og dökkblár.
Falleg móhárpeysa
Rauðir rúskinnsskór
Mynstraður
skyrtukjóll
Friðrika Hjördís Geirs-
dóttir, eða Rikka eins og
flestir kalla hana, hefur
haldið fjölda vinsælla nám-
skeiða í listinni að baka
og skreyta bollakökur. Nú
hefur hún gefið út bók og
sýnir í henni hvernig má
skreyta bollakökurnar
þannig að þær henti við
alls kyns tækifæri.