Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2011, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2011, Qupperneq 10
10 | Fréttir 24.–26. júní 2011 Helgarblað Rýmum fyrir nýjum vörum 30% afsláttur af öllu í verslun & vefverslun Lín Design Laugavegi 176, gamla sjónvarpshúsið Sími 5332220 www.lindesign.is Opið laugardag 11-16 laugardag 11-16 Fjármálafyrirtækið Arctica Finance hefur legið undir ámæli að undan- förnu vegna fjölskyldutengsla starfs- manna við formann slitastjórnar Byrs. Fram hefur komið að stjórn Byrs ákvað að gera samning við Arctica Fin- ance vegna sölunnar á Byr. Stefán Þór Bjarnason, annar eigenda félagsins, er eiginmaður Evu Bryndísar Helga- dóttur, formanns slitastjórnar Byrs, og Bjarni Þórður Bjarnason er móð- urbróðir hennar. Talið er að Arctica muni fá um 70 til 140 milljónir króna vegna samningsins við Byr. Bjarni Þórður, sem starfaði sem forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar Landsbankans á heimsvísu frá 2003 til 2008, á 60 prósent í Arctica Fin- ance og Stefán Þór, sem er fyrrverandi forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar Landsbankans á Íslandi, fer með 40 prósenta hlut í fyrirtækinu. Stefán starfaði hjá Landsbankanum frá 1999 til 2008. Hjá þeim Bjarna og Stefáni starfar líka sex fyrrverandi starfsmenn Landsbankans sem flestir unnu með þeim í fyrirtækjaráðgjöfinni fyrir hrun. Bjarni og Stefán tóku sér 120 millj- ónir króna í arð árið 2010 vegna vel- gengni í rekstri Arctica árið 2009. Þeir komu að mörgum yfirtökum sem Landsbankinn fjármagnaði á fyrir- tækjum sem síðar hafa farið í þrot. Flestir sem DV ræddi við segja það því undarlegt að umræddir menn fái tugi milljóna króna í þóknanir sem meðal annars byggist á ráðgjöf til félaga í eigu íslenska ríkisins og lífeyrissjóða. Græða vel á lífeyrissjóðunum Arctica Finance hagnast ekki einung- is vel á þóknanatekjum vegna sölunn- ar á Byr. Arctica var aðalráðgjafi við sölu Orkuveitunnar á hlut í HS Orku til Magma Energy árið 2009. Fyrir- tækið var aðalráðgjafi lífeyrissjóðanna þegar þeir keyptu 25 prósenta eignar- hlut í HS Orku af Magma Energy fyrir átta milljarða króna. Einnig vann fé- lagið að fjárhagslegri endurskipulagn- ingu sæstrengjafyrirtækisins Farice, en stærstu hluthafar þess eru íslenska ríkið og Landsvirkjun. Samkvæmt heimildum DV hefur Arctica auk þess fengið mörg önnur verkefni sem tengjast íslenskum líf- eyrissjóðum. Er talið að Agnar Hans- son, forstöðumaður markaðsvið- skipta Arctica, hafi verið duglegur að eiga í samskiptum við fulltrúa frá líf- eyrissjóðunum að undanförnu. Að sögn heimildarmanns DV hafa Lífeyr- issjóður starfsmanna ríkisins (LSR) og lífeyrissjóðurinn Gildi verið mjög hliðhollir því að eiga í viðskiptum við Arctica. Nýlegt verkefni sem Arctica fékk er að vera milliliður fyrir lífeyr- issjóðina við Deutsche Bank vegna skuldabréfa Straums-Burðaráss upp á tíu milljarða króna í erlendri mynt sem lífeyrissjóðirnir eiga. Fyrir það muni Arctica fá á bilinu tíu til tuttugu milljónir króna frá íslenskum lífeyris- sjóðum. Greiddu sér 120 milljónir í arð Arctica skilaði 165 milljón króna hagnaði árið 2009. Stór hluti af þeim hagnaði er talinn hafa komið vegna ráðgjafar við sölu Orkuveitunnar á hlut sínum í HS Orku en talið er að Arctica hafi fengið um 100 milljónir króna fyrir það. Eigið fé félagsins í lok árs 2009 nam 195 milljónum króna sem að mestu kom frá hagnaði ársins. Skuldirnar námu um 280 milljónum króna. Lík- lega hefðu mörg íslensk fyrirtæki vilj- að geta sýnt fram á 70 prósenta eig- infjárhlutfall árið 2009. Vegna góðs rekstrarárs borguðu þeir Bjarni og Stefán sér út rúmlega 100 milljóna króna arð úr Arctica Finance hf. árið 2010 vegna rekstrarársins 2009. Einn- ig borguðu þeir sér út 20 milljónir króna úr félaginu Arctica eignarhalds- félag ehf. sem fer með allan eignarhlut Bjarna og Stefáns í Arctica Finance. Fékk Bjarni því 73 milljónir króna í arð árið 2010 og Stefán rúmlega 50 milljónir króna. Þessir fyrrverandi yf- irmenn fyrirtækjaráðgjafar Lands- bankans virðast því mala gull á fjár- málafyrirtæki sínu. Mala gull í kreppunni n Eigendur Arctica Finance eru fyrrverandi yfirmenn fyrirtækjaráðgjafar Landsbankans n Tóku sér 120 milljónir í arð í fyrra n Fá milljóna þóknanir fyrir ráðgjöf hjá lífeyrissjóðunum Agnar Hansson, forstöðumaður markaðsviðskipta Arctica: Dýrasti maður Íslandssögunnar? Agnar Hansson, forstöðumaður markaðs- viðskipta hjá Arctica, er fyrrverandi banka- stjóri Icebank sem síðar varð Sparisjóða- bankinn. Agnar tók við forstjórastarfinu hjá Icebank af Finni Sveinbjörnssyni í lok árs 2007. Fyrir það var hann forstöðumaður fjárstýringar Icebank og er talinn hug- myndasmiðurinn á bak við svokölluð endur- hverf viðskipti sem Icebank stundaði mikið við Seðlabankann fyrir hrun. Nýlega tilkynnti OECD að mesti kostnaður íslenska ríkisins vegna bankahrunsins hefði verið tapið hjá Seðlabankanum. Stærsti hluti tapsins var vegna viðskipta Icebank við Seðlabankann. Við bankahrunið tapaði Seðlabankinn um 350 milljörðum króna vegna lánakrafna í endurhverfum viðskiptum. Þar af tapaði Seðlabankinn 150 milljörðum króna vegna krafna á Icebank. Heimildar- maður úr fjármálageiranum fullyrðir að Icebank hafi notið velvildar hjá Seðlabankanum vegna góðra tengsla Agnars við Davíð Oddsson, þáverandi seðlabankastjóra. Skýrist það af fjölskyldutengslum Agnars og Ástríðar Thorarensen, eiginkonu Davíðs. Móðir Ástríðar var ömmusystir Agnars. Einn heimildarmaður DV kallaði Agnar dýrasta mann Íslandssögunnar. Annas Sigmundsson blaðamaður skrifar as@dv.is „Arctica Finance er ekki einungis að hagnast vel á þóknana- tekjum vegna sölunnar á Byr. 120 milljóna arður Þeir Stefán Þór Bjarnason og Bjarni Þórður Bjarnason greiddu sér rúmlega 120 milljónir króna í arð í fyrra vegna góðs gengis Arctica Finance árið 2009. Stór hluti tekna fyrirtækisins það ár kom af ráðgjöf Arctica fyrir Orkuveituna en talið er að Arctica hafi fengið 100 milljónir króna fyrir. Myndir arctica.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.