Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2011, Blaðsíða 21
Fréttir | 21Helgarblað 24.–26. júní 2011
Tíu milljarða ofmat á
eigin fé sparisjóðsins
„Svar við því
verður að fá
að bíða betri tíma.
vegar að Sparisjóðurinn í Keflavík
var mjög illa staddur sumarið 2008,
nokkrum mánuðum fyrir íslenska
efnahagshrunið.
Svar bíður „betri tíma“
Líkt og kom fram í fjölmiðlum í byrj-
un mars síðastliðins hefur Lands-
bankinn yfirtekið Sparisjóðinn í
Keflavík. Með yfirtökunni hætti
Sparisjóðurinn í Keflavík að vera til
sem sjálfstætt fjármálafyrirtæki. Frá
því þessi yfirtaka átti sér stað hafa
starfsmenn Landsbankans unnið að
því að meta virði eignasafns Spari-
sjóðsins í Keflavík, samkvæmt svari
upplýsingafulltrúa Landsbankans,
Kristjáns Kristjánssonar, við fyrir-
spurn DV um málefni sjóðsins.
Í svari Landsbankans kemur fram
að búið sé að meta virði eignasafns
sparisjóðsins. „Samkvæmt sam-
komulaginu við ríkið skal það gert og
þeirri vinnu er lokið af okkar hálfu.
Ríkið á svo rétt á að leggja eigið mat
á safnið og ef ágreiningur verður, þá
er hægt að skjóta honum til úrskurð-
arnefndar.“ Í svörum Landsbankans
kemur einnig fram að ekki liggi fyrir
hversu mikið þurfi að afskrifa af bók-
færðum eignum sjóðsins.
DV spurði upplýsingafulltrúa
Landsbankans einnig hver skoð-
un bankans væri á eignasafni spari-
sjóðsins og hvort um væri að ræða
gott eignasafn. Upplýsingafulltrúi
Landsbankans sagði hins vegar:
„Svar við því verður að fá að bíða
betri tíma.“ Út frá skýrslu Fjármála-
eftirlitsins, og ýmsum öðrum upp-
lýsingum og staðreyndum um Spari-
sjóðinn í Keflavík, má hins vegar
nánast fullyrða að eignasafn sjóðsins
í dag er ekki ýkja merkilegt.
Of rúmar heimildir Í skýrslu
Fjármálaeftirlitsins kom meðal
annars fram að Geirmundur
Kristinsson sparisjóðsstjóri hefði
of rúmar heimildir til að stunda
lánastarfsemi út úr sjóðnum.
Á árunum 2008–2010 var tapið á
Sparisjóði Keflavíkur 46,5 milljarðar
króna. Eignir sjóðsins virðast hafa
verið stórkostlega ofmetnar og var
frjálslega farið með fé í lánveiting-
um sparisjóðsins samkvæmt heim-
ildum DV. Þegar Fjármálaeftirlitið
tók yfir rekstur sjóðsins í apríl í fyrra
var SpKef stofnaður utan um eign-
ir hans. Í mars síðastliðnum var svo
ákveðið að renna SpKef inn í Lands-
bankann sem er í meirihlutaeigu
ríkisins. Þetta var gert til að lágmarka
fjármögnunarkostnað ríkisins.
Drög að ársreikningi Sparisjóðs-
ins í Keflavík fyrir árið 2010 sem
DV hefur undir höndum sýna að
tap sjóðsins var um 11 milljarðar
það ár. Þar að auki eru skuldir fyr-
ir um 24 milljarða eftir í sjóðnum.
Fjármálaeftirlitið tók yfir Sparisjóð
Keflavíkur á sama tíma og það tók
yfir rekstur Byrs í apríl í fyrra. Sam-
tals lagði ríkið til 1,7 milljarða í eig-
infjárframlag vegna yfirtöku á Byr
og Sparisjóði Keflavíkur.
Allar eignir Sparisjóðs Keflavíkur
fyrir utan 100 milljónir voru tekn-
ar úr félaginu og settar inn í SpKef
þegar ríkið tók sjóðinn yfir. Á sama
tíma voru allar skuldir skildar eftir
fyrir utan almenn innlán, skuldir
við Seðlabanka Íslands vegna dag-
lána og endurhverfra viðskipta og
önnur lán sem voru tryggð með
veðum í yfirteknum eignum.
Í ársreikningi Sparisjóðs Kefla-
víkur fyrir 2010 kemur einnig í ljós
að þar eru um 24 milljarða skuldir
eftir í búinu. Skuldir félagsins nema
24,15 milljörðum á meðan eignirn-
ar eru eingöngu 56 milljónir. Þessar
eignir fara væntanlega í greiðslu á
kostnaði vegna uppgjörs þrotabús-
ins og rannsóknar FME á starfsemi
sjóðsins. Meirihluti skuldanna er
vegna lántöku sparisjóðsins eða
tæpir átján milljarðar, rúmir þrír
milljarðar króna vegna víkjandi
lána, tæpar þrjú hundruð milljónir
vegna lífeyrisskuldbindinga og svo
eru 54 milljónir skilgreindar sem
aðrar skuldir.
Í drögum að ársreikningi Spari-
sjóðsins í Keflavík árið 2010 kemur
fram að endanlegt mat á eignum
SpKef, sem Landsbankinn hefur
tekið yfir, hafi ekki farið fram en
að bráðabirgðamat liggi fyrir. Eng-
ar tölur eru gefnar upp en sagt er
að niðurstöður bráðabirgðamats-
ins bendi til þess að virði þeirra
eigna sem Spkef tók yfir frá Spari-
sjóði Keflavíkur sé töluvert lægra
en virði innlána og annarra skulda
sem voru yfirteknar.
Í drögum að ársreikningi Spari-
sjóðs Keflavíkur fyrir 2009 kem-
ur fram að sjóðurinn tapaði rúm-
um sautján milljörðum árið 2008
og öðrum sautján milljörðum árið
2009. Tap Sparisjóðsins á árun-
um 2008–2010 er því 46,5 millj-
arðar. Fjármálaeftirlitið gerði at-
hugasemdir við starfsemi sjóðsins
í skýrslu í september 2008 þar sem
meðal annars var tekið fram að
eignir sjóðsins væru ofmetnar. Út-
lánastefna sjóðsins var gagnrýnd
harkalega og FME útbjó lista yfir
lánveitingar upp á annan tug millj-
arða sem voru veittar gegn litlum
eða engum veðum.
Mánuði eftir útgáfu skýrslunn-
ar sagði sparisjóðsstjórinn, Geir-
mundur Kristinsson, að engar
meiriháttar breytingar væru fram
undan á stefnu sjóðsins. Í frétt DV
frá því á miðvikudaginn er greint
frá því að stjórnendur sjóðsins
hafi í raun hundsað Fjármálaeftir-
litið og athugasemdir þess. Þetta
kemur fram í skýrslu Pricewater-
houseCoopers sem var gerð fyrir
Fjármálaeftirlitið. Heimildir spari-
sjóðsstjóra voru til að mynda í raun
rýmkaðar þegar eftirlitið hafði gert
athugasemdir við hversu rúmar
heimildir hann hafði fyrir.
Tæmdur á nokkrum
árum Kröfuhafar Sparisjóðs
Keflavíkur munu að öllum
líkindum ekki fá neitt upp í
sínar kröfur þar sem engar
eignir eru eftir í þrotabúi
sparisjóðsins. Gríðarlegt
rekstrartap
sparisjóðsins
n 46,5 milljarða tap á árunum 2008–2010 n Hundsuðu
Fjármálaeftirlitið n Engar eignir í þrotabúi sparisjóðsins
Guðni Rúnar Gíslason
blaðamaður skrifar gudni@dv.is
„Var frjálslega
farið með fé
í lánveitingum
sparisjóðsins.