Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2011, Qupperneq 52

Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2011, Qupperneq 52
Enginn getur spáð fyrir um hvert þessi sögulega ákvörðun mun leiða okk- ur,“ sagði Rod Beckstrom, forstjóri IC- ANN, í samtali við BBC News um nýj- ustu fyrirætlanir stofnunarinnar. Síðan árið 2009 hefur ICANN, stofnun sem sér um netlénaendingar í heimin- um, reynt að finna lausn á því hvern- ig hægt sé að búa til fleiri lén sem fólk vill kaupa. Frá því að netið komst í al- menna notkun hefur .com-lénaend- ingin ráðið ríkjum í heiminum og hafa flestir einkaaðilar notast við þá endingu. Þetta þýðir að netnotendur munu líklega sjá endingar á borð við .coke, .google og .church. Leysir hugsanlega vandann Á síðustu árum hefur þó fækkað laus- um lénum í heiminum sem almenn- ingur og fyrirtæki hafa áhuga á að kaupa. Hvert land fyrir sig hefur feng- ið úthlutað lénaendingu en það hefur aðeins frestað vandanum sem ICANN stendur frami fyrir. Núna virðist stofn- unin hafa fundið lausn á þessum vanda. ICANN ætlar að leyfa fólki að búa til sínar eigin lénaendingar. Nú þegar eru til staðar um rúmlega 20 lénaendingar sem ekki tengjast lönd- um á beinan hátt. Meðal þeirra eru .com, .gov, .biz og .org. Þessar léna- endingar hafa þó ekki leyst vandann. Nýjar fyrirætlanir ICANN munu þó ekki einungis hugsanlega leysa vand- ann heldur einnig skapa stofnuninni umtalsverðar tekjur. Kostar milljónir fyrir notendur Það mun kosta 25 þúsund dali á ári, sem er jafnvirði um 2,88 milljóna króna, að fá sína eigin persónulegu lénaendingu. Þar að auki kostar jafn- virði 21,33 milljóna króna að sækja um lénaendinguna. Það er því ekki hægt að gera ráð fyrir öðru en að IC- ANN muni hagnast vel á uppátæk- inu nái það þeim vinsældum sem því er spáð. Það er þó ekki bara kostnað- ur sem fylgir því að fá sína eigin net- lénaendingu heldur þarftu að fylla út nokkur hund ruð blaðsíðna umsókn. ICANN hefur þó sagt í yfirlýsingu vegna málsins að þeir fjármunir sem stofnunin mun ná inn vegna þessarar nýju þjónustu muni fara beint í að ráða inn sérfræðinga til að sjá um uppsetn- ingu lénaendinganna. Þá munu þessir sömu sérfræðingar sjá um úrvinnslu umsóknanna. Tengja bíla við snjallsíma Ford Motors-bílaframleiðandinn hefur tilkynnt um áform sín um að auka tengimöguleika snjallsíma við bíla frá fyrirtækinu. Fyrirtækið hyggst senda frá sér fyrstu bílana með þessum auknu tengimöguleikum á næsta ári. Mark Fields, forstjóri Ford, segir ástæðuna vera aukna eftirspurn neytenda og aukna markaðshlutdeild snjallsíma á farsímamarkaði. Aukin áhersla hefur verið lögð á að fylgja tækniþróunum við þróun á bílum. Þessi tilkynning frá Ford ber þess merki en Fields segir aukna tengi- möguleika bílanna við snjallsíma vera fyrst og fremst öryggisatriði. 52 | Tækni 24.–26. júní 2011 Helgarblað Kínverjar neita að þeir standi á bak við tölvuárásir á Bandaríkin: Hakkararnir ekki kínverskir Kínverjar standa ekki á bak við tölvuárásir á Bandaríkin líkt og grunur hefur leikið á síðustu vik- ur. Þetta kom fram í máli varautan- ríkisráðherra Kína, Cui Tiankai, á fundi með erlendum fréttamönn- um á miðvikudag. Hann byrjaði fundinn á því að þessari yfirlýs- ingu en fundurinn snérist um önn- ur málefni. „Þó að hakkarar ráðist á internet- ið í Bandaríkjunum og internetið í Kína, trúi ég því að þeir séu ekki full- trúar neins ákveðins lands,“ reyndi Tiankai að útskýra fyrir fréttamönn- unum. Hann kallaði jafnframt eft- ir því að alþjóðasamfélagið myndi setja almennar reglur til að koma í veg fyrir misnotkun á tækni. „Öryggi á netinu er málefni allra landa, og það mjög mikilvægt málefni,“ sagði hann. Kína hefur verið ásakað um að standa á bak við tölvuárás sem ný- lega var gerð á tölvukerfi Banda- ríkjahers auk tilrauna sem gerðar voru til sækja upplýsingar af Google- aðgangi nokkurra embættismanna í Bandaríkjunum og kínverskra mannréttindabaráttumanna. Ekki er langt liðið frá því að Robert Gates, varnarmálaráðherra Bandaríkj- anna, sagði að bandarísk stjórnvöld litu tölvuárásir alvarlegum augum og sagði að stjórnvöld væru reiðubúin að beita beinum hernaðarlegum að- gerðum gegn ríki sem gerðist uppvíst að því að standa að baki tölvuárásum á Bandaríkin. Það er því ekki nema von að Kínverjar sjá ástæðu til að reyna að bera af sér ásakanirnar. Bandaríska fyrirtækið Google hef- ur einnig átt í deilum við Kínverja en fyrirtækið hefur meira og minna hætt starfsemi í landinu vegna tilrauna stjórnvalda í Kína til að ritskoða vef fyrirtækisins. Hafa stjórnendur Google einnig lýst því yfir að þeir telji kínversk stjórnvöld standa að baki árásum á fyrirtækið. iMessage, iCloud og fleiri möguleikar fyrir FaceTime: 15 helstu breytingarnar í iOS 5 Steve Jobs hefur tilkynnt að á næstu mánuðum muni iPhone- og iPad- notendur geta uppfært stýrikerfin í tækjunum. Nýja útgáfan heitir ein- faldlega iOS 5 en í henni eru margar mjög athyglisverðar breytingar. Jobs nefndi sjálfur þó ekki nema örfáar til sögunnar þegar hann kynnti stýri- kerfið. DV stiklar á stóru og velur 15 áhugaverðustu breytingarnar í iOS 5. 1. Ekki þarf lengur að tengja sím- ann við tölvu til að geta kveikt á hon- um í fyrsta skipti. 2. Breytingar hafa verið gerðar á tilkynningum og verða þær samein- aðar undir nýjum dálki sem verður aðgengilegri og notendavænni en til- kynningaboxið sem nú er notast við. 3. Newsstand-viðbótin kemur nú með stýrikerfinu en í gegnum hana er hægt að sækja dagblöð og tímarit á til- tölulega einfaldan hátt. 4. Fleiri möguleikar eru til að skoða dagatal. 5. Hægt verður að velja á milli mis- munandi leiða í Maps-viðbótinni þegar þú færð vegaleiðbeiningar. 6. Twitter verður samkeyrt öllu í símanum og verður sérstakt Twitter- lyklaborð tiltækt. 7. Fleiri möguleikar fyrir Facetime. 8. iMessage gerir notendum iOS- tækja kleift að senda skilaboð, mynd- ir og myndbönd sín á milli án þess að fara í gegnum hefðbundna farsíma- þjónustu. 9. Möguleiki á að tengja fleiri en einn Apple ID-aðgang við tækið. 10. iCloud-tenging fyrir allt sem er í símanum. 11. Notendur iPhone fá tilkynn- ingu noti þeir ótrygga símalínu. 12. Síminn er nothæfur þegar hann er að skiptast á upplýsingum við iTunes. 13. Hægt er að láta símann titra á mismunandi hátt eftir því hver er að hringja. 14. Í símtalaskránni verður hægt að eyða út einstökum færslum. 15. Hægt er að sækja fleiri en eina viðbót í einu. ICANN býður upp á nýjar lénaendingar n ICANN ætlar sér stóra hluti í framtíðinni n Bjóða einstaklingum og fyrir- tækjum persónulegar lénaendingar n Gæti leyst úr skorti á lénum á netinu Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is Höfuðstöðvarnar ICANN fer með stjórn á lénaendingum í heiminum. Kínverjar saklausir Cui Tiankai segir Kínverja ekki stand að baki árásanna og kallar eftir því að alþjóðasamfélagið setji sér reglur um tækninotkun. MyNd ReuteRs Firefox 5 kominn út Fjórum mánuðum eftir að Mozilla sendi frá sér Firefox 4 hefur fyrirtækið sent frá sér Firefox 5. Aldrei hefur jafn stuttur tími liðið á milli stórra upp- færslna Firefox-vafrans sem nýtur mikilla vinsælda víða um heim. Ekki er mikið um nýjungar í nýju útgáfunni heldur hefur vafrinn verið gerður öruggari og nokkrir hlut- ir gerðir skýrari og aðgengilegri. Út- gáfan er þó einna helst merki um að stjórnendur Mozilla vilji styrkja stöðu sína á netinu en Chrome-vafrinn frá Google hefur tekið eitthvað af mark- aðshlutdeild Firefox. Það er líklegasta skýringin á því hversu stutt líður á milli uppfærslna. Nýr sími frá Nokia Finnski farsímaframleiðandinn Nokia hefur tilkynnt um útgáfu á nýj- um snjallsíma sem svipar til iPhone frá Apple. Hönnun símans þykir sér- staklega flott en Nokia hefur birt mynd af honum. Athygli hefur samt vakið að síminn, sem heitir einfald- lega N9, keyrir á stýrikerfinu MeeGo sem hefur ekki náð fótfestu á far- símamarkaði. Um er að ræða far- símastýrikerfi sem byggir á Linux. Stýrikerfið kom fyrst út í febrúar í fyrra en Nokia hefur tekið þátt í þró- un þess frá upphafi. Nokia hefur hins vegar einnig tilkynnt að þetta verði eini síminn sem keyri á stýrikerfinu en Nokia gerði nýverið samning við Microsoft um notkun á Windows 7 stýrikerfi fyrir farsíma. Á símanum er 3,9 tommu snertiskjár í hlutföllunum 16:9 og 8 megapixla myndavél. Mótorhjól án hjóla Þó að þú getir ekki fengið þér Ho- verboard líkt og í kvikmyndunum Back to the Future geturðu fengið þér Hoverbike. Hoverbike virkar svipað og mótorhjól en í stað þess að á því séu tvö hjól eru hreyflar. Hjólið svífur yfir jörðinni. Ökumaður tækisins stýrir því nákvæmlega eins og mótor- hjóli en gert er ráð fyrir því að þú komist um 160 kílómetra á hverjum tanki. Maðurinn á bak við tækið, Chris Malloy, heldur því einnig fram að hægt sé að fljúga á því í allt að þriggja kílómetra hæð. Enn hefur ekki verið tilkynnt um hvað græjan eigi að kosta. Hefur trú á verkefninu Rod Beckstrom, forstjóri ICANN, virðist hafa mikla trú á þessu verkefni. scott Forstall Kynnir iOS 5 stýrikerfið fyrir iPhone og önnur tæki frá Apple á ráðstefnu fyrirtækisins í San Francisco fyrr á árinu. MyNd ReuteRs
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.