Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.2011, Síða 8
8 | Fréttir 12.–14. ágúst 2011 Helgarblað
É
g tók þarna myndir þar sem
farið var að ryðga inni en
svo kom ég nokkrum dögum
seinna og þá voru þeir búnir
að mála yfir þetta,“ segir Örn-
ólfur Hall arkitekt sem mikið hefur
skrifað um Hörpu á vef Arkitekta-
félags Íslands. Hann hefur meðal
annars lýst yfir áhyggjum sínum af
hugsanlegri raka- og ryðmyndun
í glerhjúpi Hörpu. Svo virðist sem
áhyggjur Örnólfs hafi verið á rökum
reistar því á meðfylgjandi myndum,
sem teknar voru þann 28. júlí síðast-
liðinn, má sjá mikla móðu innan á
glerinu og hvernig ryðtaumar hafa
myndast í stálvirkinu. Örnólfur full-
yrðir að málað hafi verið yfir ryðið til
að hylja það. Hann lýsir yfir áhyggj-
um af slíkum vinnubrögðum.
Ryðið smitar út frá sér
DV fjallaði um ryð í uppsettu stálvirki
á suðurvegg Hörpu í vor en þá sagði
Höskuldur Ásgeirsson, framkvæmda-
stjóri Hörpu, að ryðið yrði pússað og
tekið af og síðan yrði stálvirkið málað.
„Þetta er tiltölulega einfalt mál,“ sagði
Höskuldur í samtali við DV. Í kjölfar-
ið hafði DV samband við verkfræðing
sem þekkir vel til í byggingariðnaðin-
um. Hann sagði að ef stálvirkið væri
ekki hreinsað almennilega áður en
glerið væri fest á væri hætta á að ryð
og tæring gæti myndast í því. Þá benti
hann á að aðstæður til að hreinsa
stálvirkið þannig að komast ætti alveg
fyrir ryð, fitu, sót og mengun frá bíla-
umferð, væru mjög erfiðar á Hafnar-
bakkanum. „En það er alltaf hætta á
að það komi móða eða leki einhvers
staðar og þá er maður náttúrulega
svolítið útsettur fyrir því að hafa ekki
komist alveg fyrir þetta. Ryð mynd-
ast fljótt á venjulegum málmi ef vatn
liggur á honum,“ sagði verkfræðingur-
inn. Hann benti jafnframt á að ef ryð
myndaðist á einum stað væri hætta á
að taumar mynduðustt og það smit-
aði út frá sér.
Engar áhyggjur af raka
Þótt það hafi ekki komið Örnólfi á
óvart að sjá móðuna innan á gler-
hjúpi Hörpu kann það að hafa kom-
ið mörgum leikmönnum á óvart, en
Ríkharður Kristjánsson, hönnunar-
stjóri Hörpu, sagði í viðtali í þættin-
um Speglinum, á Rás 2 í maí, að það
þyrfti ekki að hafa neinar áhyggjur af
rakamyndun og ryði í Hörpu. Hann
fullyrti að það ryð sem þá var byrjað
að myndast í burðarvirkinu kæmi
ekki til með að aukast, enda væri
húsið hannað þannig að loftræsti-
stokkar blési þurru lofti á milli glerj-
anna og héldi þannig útveggjunum
þurrum. Ekki náðist í Ríkharð Krist-
jánsson við gerð þessarar fréttar.
n Raka- og ryðmyndun er innan á gleri og stálvirki Hörpu n Örnólfur Hall tók eftir að búið
var að mála yfir ryðtaumana n Hönnunarstjórinn sagði enga hættu á ryði eða raka
Raki og ryð innan
á glerhjúpi Hörpu
„Ryð myndast fljótt
á venjulegum
málmi ef á honum liggur
vatn.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is
Engar áhyggjur Ríkharður Kristjánsson,
hönnunarstjóri Hörpu, hefur sagt að hvorki
þurfi að hafa áhyggjur af raka né ryði í Hörpu.
Ryðtaumar Hér sést
hvernig ryð hefur myndast
á stálvirkinu. Ljósmyndar-
inn fullyrðir að málað hafi
verið yfir það til að hylja.
myndiR ÖRnólfuR Hall
Ársreikningur n1:
Tapið nam
12 milljörðum
Tap olíufélagsins N1 nam tæplega
tólf milljörðum króna í fyrra. Þetta
kemur fram í ársreikningi fyrirtæk-
isins sem birtur hefur verið. Árið
2009 nam hagnaður N1 rúmlega 277
milljónum króna.
Þá var eigið fé félagsins neikvætt
um 5,2 milljarða króna samanborið
við að það var jákvætt um rúmlega
6,6 milljarða árið 2009.
Síðari hluti ársins hefur augljós-
lega verið afar slæmur hjá olíufélag-
inu því fyrstu sex mánuði ársins nam
tap þess 191 milljón króna.
Eignir lækkuðu að virði um
marga milljarða milli ára en þær
voru 25,9 milljarðar króna í upphafi
síðasta árs en voru 16,9 milljarðar
í lok þess. Munar þar um að við-
skiptavild félagsins var færð niður
um 4,5 milljarða króna.
Eins og greint hefur verið frá náð-
ist samkomulag um það fyrr á þessu
ári að kröfuhafar N1 myndu taka fé-
lagið yfir og að hlutafé fyrri eigenda
hefði verið afskrifað. Stór hluti taps
N1 er útskýrður í ársreikningnum
með kostnaði vegna fjárhagslegrar
endurskipulagningar sem hljóðaði
upp á tæpa sex milljarða króna. Sú
upphæð var sérstaklega gjaldfærð í
rekstrarreikningi og útskýrir því tæp-
lega helming af tapi N1.
Í ársreikningi N1 má einnig sjá að
forstjórinn, Hermann Guðmunds-
son, var með 2,7 milljónir króna í
laun á mánuði í fyrra.
Áhyggjur af Baldri
Bæjarráð Vesturbyggðar lýsir yfir
áhyggjum sínum á yfirvofandi fjar-
veru og niðurfellingu ferða ferjunnar
Baldurs í september og fram í októ-
ber næstkomandi. Á þeim tíma mun
Baldur leysa Herjólf af í siglingum
milli lands og Eyja.
„Baldur skiptir höfuðmáli varð-
andi fólks-, afurða- og hráefnis-
flutninga til og frá sunnanverðum
Vestfjörðum. Það er því fyrirséð
að þungaflutningar til og frá Vest-
fjörðum munu aukast á vegunum
til mikilla muna á þeim tíma,“ segir
í bókun frá fundi bæjarráðs Vestur-
byggðar á miðvikudag. Þar kemur
einnig fram að bæjarráð óski eftir
viðbragðsáætlun frá Vegagerðinni
sem varðar fyrirkomulag á vöru- og
fólksflutningum á meðan Baldur
sinnir verkefnum
Herjólfs nú á haustdögum, enda
sé allra veðra von á þessum árstíma.
Þannig geti viðkvæmir vegir orðið að
aur og drullu í einu vetfangi í rign-
ingum eins og eru jafnan á þessum
árstíma. „Tryggingastofnun er velferðarstofn-
un og við reynum að koma til móts
við fólk alveg eins og við getum,“
segir Sigríður Lillý Baldursdóttir, for-
stjóri Tryggingastofnunar. Talsvert
hefur borið á í umræðunni að und-
anförnu að Tryggingastofnun taki
ekki tillit til séraðstæðna þeirra sem
reiða sig á örorku- eða ellilífeyris-
bætur. Í vikunni skrifaði Rakel Sara
Magnúsdóttir, 28 ára tveggja barna
móðir sem glímir við eitlakrabba-
mein, bloggfærslu um raunir sínar
en hún sagði Tryggingastofnun hafa
sent sér „djöfullegt bréf“ í formi end-
urkröfu um nokkur hundruð þús-
undir króna. Rakel Sara hefur fengið
mikla samúð síðan ef marka má um-
ræður á veraldarvefnum.
Sigríður Lillý segir að því miður
geti svona komið upp á. „Það er nú
bara þannig að þegar allar greiðslur
liggja fyrir og endanleg skattframtöl,
þá þurfum við að fara yfir hvort ein-
staklingar hafi fengið allar greiðslur
sem hann á rétt á – eða hvort hann
hafi fengið of mikið. Í ár var til að
mynda mikið um að einstaklingar
áttu inni vangreiddar bætur en svo
voru auðvitað einhverjir sem höfðu
fengið of mikið greitt fyrir árið 2010.“
Sigríður Lillý segir það afar mik-
ilvægt að bótaþegar komi réttum
upplýsingum um tekjur og aðrar
greiðslur til skila á réttum tíma, svo
slíkar leiðréttingar megi forðast.
„Við störfum einfaldlega samkvæmt
lögum og ef það liggja ekki fyrir
réttar upplýsingar þá getur fólk lent
í þessu, fengið of mikið eða of lítið,
hálfu ári seinna.“
En hvernig kemur Trygginga-
stofnun þá til móts við einstaklinga
sem fá endurkröfur? „Við bjóðum
alltaf upp á samninga og megin-
reglan er sú að endurgreiðslan er
greidd á heilu ári. Þá er reynt að
skuldajafna miðað við þær greiðslur
sem viðkomandi fær á árinu en að-
eins að ákveðnu marki. Við skulda-
jöfnum aldrei þannig að viðkomandi
haldi engu eftir. Sé krafan síðan svo
há, eða aðstæður fólks svo bágar, að
erfitt reynist að endurgreiða á einu
ári eru aðrar lausnir í boði.“
bjorn@dv.is
Mikilvægt að bótaþegar komi réttum upplýsingum til skila:
„Reynum að koma til móts við fólk“
Tryggingastofnun Um mánaðamótin þurfti Tryggingastofnun að senda 40 þúsund bréf
um leiðréttingar á bótagreiðslum.
málið sent til
ríkissaksóknara
Rannsókn lögreglunnar á mann-
drápi á veitingastaðnum Monte
Carlo við Laugaveg er lokið.
Maður um fertugt er nú í
haldi lögreglu sakaður um að
hafa stungið annan mann í háls-
inn svo að hann hlaut lífshættu-
lega áverka. Fórnarlambið lést af
sárum sínum tveimur vikum eftir
árásina.
Mönnunum hafði sinnast fyrr
um kvöldið. Árásin var gerð rétt
fyrir miðnætti þann 15. júlí síð-
astliðinn. Málið hefur verið sent
til ákæruvaldsins. RÚV greindi frá
þessu á fimmtudagskvöld.