Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.2011, Page 16
M
álefni sparisjóðanna
hafa farið hátt í um-
ræðunni undanfarið.
Þá helst aðkoma ríkis-
ins að Sparisjóði Kefla-
víkur (SpKef ) og Byr. Minna hefur
hins vegar verið rætt um aðkomu
ríkisins að rekstri fimm minni
sparisjóða. Þannig lagði ríkið
til rúmlega tvo milljarða króna
í stofnfjárframlag til Sparisjóðs
Svarfdæla, Sparisjóðs Vestmanna-
eyja, Sparisjóðs Bolungarvíkur,
Sparisjóðs Norðfjarðar og Spari-
sjóðs Þórshafnar og nágrennis.
Hjá umræddum sjóðum starfa um
75 starfsmenn. Má því segja að það
hafi kostað ríkið um 27 milljónir
króna að bjarga hverju starfi hjá
þessum fimm sparisjóðum sem
allir eru starfandi á landsbyggð-
inni og reka þar 15 útibú.
Í neyðarlögunum var sparisjóð-
um heimilað að fá því sem svaraði
20 prósentum af stofnfjárframlagi
frá ríkinu sem umræddir spari-
sjóðir nýttu sér. Þessir sjóðir voru á
meðal margra sparisjóða sem ósk-
uðu eftir aðstoð vorið 2009. Staða
þeirra var þó mun verri en ætlað
var og því þurfti að leggja þeim
til mun meira fjármagn. Eftirlits-
stofnun EFTA gaf síðan samþykki
sitt fyrir umræddri endurskipu-
lagningu sparisjóðanna í lok síð-
asta árs.
Seðlabankinn breytti kröfum
í stofnfjárframlag
Stofnfjárframlag ríkisins til um-
ræddra sparisjóða var meðal ann-
ars veitt með því að breyta kröf-
um Seðlabankans á hendur þeim
í eigið fé og víkjandi lán. Eignað-
ist Seðlabankinn kröfur á hend-
ur umræddum sjóðum eftir fall
Sparisjóðabankans (Icebank).
Eins og kunnugt er tapaði
Seðlabankinn 150 milljörðum
króna vegna endurhverfra við-
skipta við Icebank. Er Seðlabank-
inn stærsti kröfuhafi Icebank en
krafa bankans hljóðar upp á 195
milljarða króna en heildarkröfur í
búið nema nærri 370 milljörðum
króna. Sparisjóður Vestmannaeyja
fór með 5,3 prósenta hlut í Ice-
bank, Sparisjóður Bolungarvíkur
4,6 prósenta hlut og Sparisjóður
Svarfdæla 3 prósenta hlut. Gjald-
þrot Icebank hafði því mikil áhrif á
umrædda sjóði.
Seðlabankinn átti kröfur á um-
rædda fimm sparisjóði upp á 8,3
milljarða króna. Þurfti Seðla-
bankinn að færa niður kröfur sín-
ar á hendur þeim um 4,6 millj-
arða króna. Til fullnustu krafna
fékk Seðlabankinn 1.735 milljónir
króna í stofnfjárbréfum, sem er sá
hluti sem ríkið fer með í dag, 450
milljónir króna voru veittar í víkj-
andi lán, um 1.200 milljónir króna
voru veittar í samningsbundin lán
og 600 milljónir fengust í reiðufé.
Milestone-menn sáu um
endurskipulagningu
Það vakti athygli á sínum tíma að
ráðgjafarfyrirtækið Möttull ehf.
var fengið til þess að aðstoða fjár-
málaráðuneytið við endurskipu-
lagningu sjóðanna. Eigendur Mött-
uls voru þeir Guðmundur Ólason,
fyrrverandi forstjóri Milestone,
Arnar Guðmundsson, fyrrverandi
fjármálastjóri Milestone, og Jó-
hannes Sigurðsson, fyrrverandi
aðstoðarforstjóri Milestone. Guð-
mundur Ólason er einn þeirra sem
sérstakur saksóknari hefur kallað
í skýrslutöku vegna rannsóknar á
tryggingafélaginu Sjóvá-Almenn-
um en ríkið hefur einmitt einnig
verið gagnrýnt fyrir aðkomu sína að
því. Möttull sameinaðist Sögu Fjár-
festingarbanka í fyrra en þar starfa
umræddir fyrrverandi starfsmenn
Milestone í dag. Möttull virðist hafa
þénað vel á ráðgjöf sinni árið 2009.
Það ár hafði félagið um 60 milljónir
króna í tekjur fyrir ráðgjöf og hagn-
aðist um nærri 30 milljónir króna.
Umdeild björgun
Skiptar skoðanir eru um þá
ákvörðun ríkisins að koma um-
ræddum fimm sparisjóðum til
bjargar. Sparisjóður Svarfdæla er
þó sá sjóður sem mest hefur ver-
ið í umræðunni. Sjóðurinn tap-
aði miklu á falli Exista, en sá hlut-
ur var metinn á um þrjá milljarða
króna sumarið 2007 þegar úrvals-
vísitalan náði 9.000 stigum. Spari-
sjóður Svarfdæla átti sjö prósenta
hlut í Kistu sem fór með 7,2 pró-
16 | Fréttir 12.–14. ágúst 2011 Helgarblað
Tveir milljarðar til
að bjarga 75 störfum
„ Í Norðausturkjör-
dæmi, þar sem
Steingrímur er 1. þing-
maður, eru átta af fimm-
tán útibúum sem þessir
fimm sparisjóðir reka.
Lokun þeirra hefði því lík-
lega lagst mjög illa í kjós-
endur í kjördæmi hans.
n Ríkið lagði fram tvo milljarða til að bjarga fimm sparisjóðum á landsbyggðinni n Sparisjóður Svarfdæla
tapaði miklu á falli Exista og Icebank n Reka fimmtán útibú, átta þeirra eru í kjördæmi fjármálaráðherra
Átta útibú í kjördæmi Steingríms Það hefði komið sér illa fyrir Steingrím J. Sigfússon ef umræddum fimm sparisjóðum hefði ekki verið
bjargað. Átta af fimmtán útibúum þeirra eru í Norðaustur-kjördæmi, þar sem Steingrímur er 1. þingmaður. Mynd SIgtRyggUR ARI
tapaði miklu á falli Exista Sparisjóður Svarfdæla, sem er einn þeirra sjóða sem ríkið bjargaði, átti hlut í Exista sem metinn var á þrjá
milljarða króna í júlí árið 2007. Sá hlutur tapaðist nánast að fullu við bankahrunið.
Annas Sigmundsson
as@dv.is