Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.2011, Page 25
og stjörnu-þetta fyrir framan
alla starfstitla. Hvað í fjand-
anum er til dæmis stjörnufast-
eignasali? Eftir á að hyggja þá
var bólan bara hvað stærst á
þessum tíma og við vorum að
missa okkur. Vorum í miðju
ruglinu. Og þegar ég sá ein-
faldleikann þarna úti þá lang-
aði mig bara til þess að kom-
ast úr þessari gerviveröld. Sem
maður dróst samt alltaf sjálfur
inn í.“
Boðið að dansa
á barborðum
Gunna Dís dvaldi í hálft ár í
Chile þar sem hún var meðal
annars í spænskuskóla. Síðan
átti ég flug heim og millilenti á
Spáni. Ég var ekki alveg tilbú-
in til þess að fara heim þannig
að ég varð bara eftir á Spáni þó
svo að ég ætti pantað flug alla
leið heim. Þarna var ég orðin
líbó og búin að taka prikið úr
rassgatinu á mér.“
Gunna Dís fór því úr vélinni
í Madríd og tók lest til Costa
Blanca. „Ég þekkti fólk á Torre-
vieja og ætlaði bara að redda
mér vinnu og halda áfram í
spænskunáminu. Þetta end-
aði þannig að ég kúldraðist á
Benidorm í sex vikur. Ég leitaði
að vinnu þarna hátt og lágt og
þetta var mjög lærdómsríkur
tími.“
Gunna Dís var svo heppin
að fá að búa hjá íslenskri konu
og fjölskyldu hennar á með-
an á dvöl hennar stóð. „Alveg
yndisleg kona sem ég þekkti
ekkert áður.“ Það gekk erfið-
lega að finna vinnu þar sem
að ferðamannatíminn var ekki
kominn almennilega af stað
snemma sumars.
„Ég dreifði ferilskrá út um
allt sem var á spænsku og þar
var tekið fram hvar ég hefði
unnið og að ég væri með þessa
háskólagráðu og svo framvegis.
En ég fékk fá svör. Undir rest-
ina var ég svo farin að fá ein-
hver atvinnutilboð en þá var ég
bara komin með nóg og ákvað
að koma heim. Ég fékk reynd-
ar nokkur mjög skrítin tilboð
og til dæmis í einu atvinnuvið-
talinu var mér boðið að gerast
dansari. Sem sagt að vinna á
bar og svo þegar það væri góð
stemning átti ég að fara upp á
barborð að dansa í frekar efn-
islitlum fötum. Þótt ég væri nú
flippuð á þessum tíma þá af-
þakkaði ég það pent.“
Súrrealísk vinna
Gunna Dís kom svo heim síð-
sumars 2006. „Var svolítið í
lausu lofti og vissi ekkert hvað
ég ætti að gera. Ég kom heim
með sært stolt og skottið á
milli lappanna, í það minnsta
upplifði ég það þannig. Ég
hafði ætlað mér að vera leng-
ur ytra og sigra heiminn. En
svo bara gerðist það ekki.
Ég lærði mikilvæga lexíu á
þessum tíma og hún er sú að
stundum ganga hlutirnir bara
ekki upp. Á Spáni þurfti ég að
sætta mig við það að ég væri
„game over“. Að ég væri kom-
in á endastöð og þyrfti að fara
heim. Ég var pínu óánægð
með það.“
Það tók Gunnu Dís smá
tíma að fóta sig eftir heim-
komuna en fljótlega fann hún
vinnu. „Ég fór að vinna við að
selja auglýsingar á Blaðinu
sem síðar varð 24 stundir. Ég
á ekki að vinna við að selja
auglýsingar. Það hentaði mér
engan veginn. Sérstaklega
þar sem ég var nýkomin að
utan þar sem ég hafði lagt
áherslu á að ýta efnishyggj-
unni frá mér. Þá var ekki alveg
málið að koma inn á vinnu-
stað þar sem eina markmið-
ið var að græða sem mest og
selja. Hringja í fólk og vera
ýtin. Þetta var bara alls ekki
ég þar sem ég kann varla svo
mikið sem að biðja fólk um
greiða.
Ég sat þarna í næstum
því heilt ár og tók varla upp
símann,“ segir hún og hlær.
„Frábær starfsmaður. Inni á
milli náði ég þó að selja eina
og eina auglýsingu, þannig
að ég stóð alveg fyrir mínu
þannig séð.“
Gunna Dís segir stemn-
inguna á vinnustaðnum hafa
verið súrrealíska á köflum.
Þetta er svo undarleg stemn-
ing þar sem allir eru í keppni
í stað þess að vera í sama lið-
inu. Þetta hentaði mér eng-
an veginn, með fullri virð-
ingu fyrir öllu því góða fólki
sem þarna vann með mér, en
það þarf alveg sérstaka týpu í
þetta starf og ég er ekki hún.“
Ástin bauð ömmu
upp í dans
Gunna Dís segir einu leiðina
til að lýsa þessum tíma í sínu
lífi sé sem stórfurðulegum. Þó
ekki bara á neikvæðan hátt því
þarna kynntist hún líka kær-
asta sínum og barnsföður.
„Við hittumst fyrir hreina
tilviljun,“ segir Gunna og hlát-
urinn hennar sem er svo smit-
andi brýst fram. „Við hittumst á
Broadway, á þingi framsóknar-
manna,“ segir hún og enn og
aftur er hlegið í dágóða stund.
„Ég var sem sagt vön að
fylgja ömmu minni og afa að
austan á framsóknarhófið og
þetta árið var það á Broadway.
Við komum svolítið seint og ég
endaði ein á borði með kúa-
bændum af Suðurlandi sem
ég þekkti ekki neitt og amma
og afi voru víðs fjarri á öðru
borð. Ég var bara þarna 27 ára í
góðum stemmara með hvítvín
að spjalla við bændurna en á
sama tíma var afi á hinu borð-
inu að reyna að koma mér út.
Hann sat þá með hópi af ung-
um mönnum og sagðist vera
með sonardóttur sinni á hóf-
inu sem væri enn þá einhleyp
og að hann skildi nú ekkert í
því.
Við borðið sat ungur mað-
ur að nafni Kristján Þór, þá
nýfluttur heim frá Bandaríkj-
unum, og hlustaði með at-
hygli á þessa raunasögu pip-
armeyjarinnar. Nema hvað að
afa hefur greinilega tekist að
telja honum trú um að ég væri
alveg frábær pía. Hann bauð
ömmu upp í dans og vatt sér
svo upp að mér og þannig var
ísinn brotinn. Við enduðum
í skemmtistaðasleik á Kaffi-
barnum þetta kvöld og eigum í
dag þriggja ára dóttur“.
Hélt á dóttur sinni
eftir fimm daga
Hlutirnir gerðust hratt hjá
Gunnu Dís eins og svo oft áður
og ástin blómstraði. Hún flutti
með Kristjáni Þór til Mont-
real í Kanada þar sem hann
lagði stund á doktorsnám í lýð-
heilsufræðum
„Árið 2008 eignaðist ég litla
gullmolann minn Aðalheiði
Helgu.“ Fæðingin gekk ekki
áfallalaust fyrir sig og Gunna
Dís segist í raun ekki hafa átt-
að sig á því fyrr en eftir á hversu
alvarlegt ástand hefði skapast.
„Fæðingin gekk mjög illa og
Aðalheiður Helga þurfti að fara
inn á vökudeild í kassa. Hún
fékk sýkingu í fæðingu. Það var
ekki vitað í fyrstu hvaða sýking
þetta var og því erfitt að koma
í veg fyrir hana. Ég hélt ekki á
henni fyrr en hún var orðin
fimm daga gömul.
Ég gerði mér ekki grein fyr-
ir því á þeim tíma hversu veik
hún var. Það hefði getað brugð-
ið til beggja vona með hana á
tímabili. En þökk sé okkar frá-
bæra heilbrigðiskerfi og frá-
bæru starfsfólki vökudeildar-
innar fórum við heim eftir tíu
daga með heilbrigt barn. Hún
er algjör orkubolti í dag, þetta
litla rassgat.“
Skinkan og subbinn
Gunna Dís hafði aldrei sagt
alveg skilið við útvarpið og á
meðan hún vann á Blaðinu
hafði hún unnið á Bylgjunni
um helgar. Ekki löngu eftir að
hún lauk svo fæðingarorlofi
fór hún að vinna á útvarps-
stöðinni Kananum sem Einar
Bárðarson stofnaði árið 2009.
Gunna Dís vann á Kananum
veturinn 2009 til 2010 og lík-
aði vel en hún hafði lengi haft
augastað á starfi hjá Ríkisút-
varpinu.
„Ég var svolítið komin með
nóg af þessum hraða. Topp
40 og svona. Mega bara tala
um ákveðna hluti og allt það.
Þannig að ég hætti á Kanan-
um og byrjaði að vinna á Rás 2
mánuði seinna.“
Nú hefur Gunna Dís unn-
ið á Rás 2 í rúmt ár og stýrir
eins og áður kom fram Virk-
um morgnum ásamt Andra
Frey Viðarssyni. „Við Andri
höfðum reyndar unnið áður
innan sama fyrirtækis. Þeg-
ar ég var á Kiss FM þá var
hann á X-FM. Þegar hann sá
mig fyrst þá fannst honum
ég vera svona skinka og þeg-
ar ég sá hann fyrst þá fannst
mér hann vera svona subbi.
Svolítið sveittur og ekki mín
týpa.“
En síðan hófst samstarfið á
Rás 2 og Gunna Dís og Andri
náðu ljómandi vel saman. „Við
bara smullum eins og við hefð-
um alltaf þekkst.“
Fær að tala
Gunna Dís er ánægð í útvarp-
inu en hún er óhrædd við
breytingar. „Vonandi geng-
ur þetta áfram vel hjá okkur
Andra en fólk fær alveg örugg-
lega leið á okkur einhvern tím-
ann. Það er óumflýjanlegt. Þá
veit ég ekki alveg hvað ég fer að
gera en það er líka allt í lagi. Ég
hef einhvern veginn aldrei ver-
ið rólegri yfir hlutunum heldur
en núna.
En útvarp er frábær miðill
og ég mun örugglega starfa á
þessu sviði áfram. Þetta er starf
sem hentar mér vel því ég tala
mikið og þarna fæ ég að tala og
fæ borgað fyrir það,“ segir hún
að lokum hlæjandi.
Viðtal | 25Helgarblað 12.–14. ágúst 2011
„Hann bauð ömmu upp í dans og vatt
sér svo upp að mér og þannig var ís-
inn brotinn. Við enduðum í skemmtistaðas-
leik á Kaffibarnum þetta kvöld og eigum í
dag þriggja ára dóttur.
Flúði góðærið og fór til Chile „Ég grenjaði á
flugvellinum á leiðinni út aftur. Ég sat alein með
einn lítinn víking og Cosmopolitan-blað og hringdi í
vinkonur mínar og mömmu. Sá eftir öllu saman og
spurði sjálfa mig hvað í fjandanum ég væri að spá.“