Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.2011, Síða 44
44 | Fókus 12.–14. ágúst 2011 Helgarblað
Katrín Hall er listrænn stjórnandi Íslenska
dansflokksins
Hvaða tónlist ert þú að hlusta á?
„Ég er að hlusta á The Four Seasons eftir
Vivaldi. Það er undirbúningur fyrir dansverk
sem ég er að fara að semja fyrir erlendan
dansflokk á næsta leikári.“
Hvaða bók ert þú að lesa?
„Ég er alltaf með margar hálflesnar bækur
á náttborðinu mínu. Núna eru þar á meðal
Hreinsun eftir Sofi Oksanen, Síðustu dagar
móður minnar eftir Sölva Björn Sigurðsson,
Kuðungakrabbarnir eftir Anne B. Ragde, en
akkúrat núna er ég að lesa Konan í köflótta
stólnum eftir Þórunni Stefánsdóttur.“
Hvert ferðu út að borða
ef þú mátt velja staðinn?
„Ég fer ekki mjög oft út að borða enda
finnst mér maturinn hans Gío, mannsins
míns langbestur. En Fiskimarkaðurinn og
Dill koma sterkir inn. Annars er uppáhalds-
veitingastaðurinn minn í Barcelona. Hann er
sýrlenskur og heitir Ugarit.“
Hvað ætlar þú að gera um helgina?
„Ég fer í matarboð til tengdaforeldra
minna á föstudaginn. Þar verður nánasta
fjölskylda samankomin, alltaf gaman að
hittast. Á laugardaginn er mér svo boðið í
afmæli og brúðkaup. Ég væri líka til í að fara
í Flatey á laugardaginn þar sem hljómsveit-
in Skárrenekkert mun stíga á svið. Ég verð
að fara að ákveða hvað ég ætla að gera.
Sunnudagurinn verður svo vonandi bara
fjölskyldudagur og kósíkvöld í sófanum.“
Gío langbestur
mælir með...
bíómynd
Captain America: The
First Avenger
„Þokkalega vel heppnuð mynd. Einföld og
nokkuð hnökralaus.“ – Ásgeir Jónsson
bóK
Skurð læknirinn
„Skurðlæknirinn er hröð
og spennandi lesning.“ –
Kristjana Guðbrandsdóttir
bíómynd
Friends With Benefits
„Það er ekki hægt annað en að mæla með
myndinni en það er ekkert skilyrði að sjá
hana í bíó.“ – Aðalsteinn Kjartansson
mælir ekki með...
bíómynd
Horrible Bosses
„Myndin er ágætis afþreying
en fjarri því að vera þess
virði að borga fullt verð á
hana í bíó.“ – Aðalsteinn Kjartansson
bíómynd
Rise of the Planet
of the Apes
„Handritið virkar eins og
það hafi legið og safnað
ryki í mörg ár.“ – Jón Ingi
Stefánsson
Maturinn hans
I
ndípoppsveitin Árstíðir er að
gera það gott þessa dagana en
hún er stödd í Tékklandi þar sem
hún verður næstu dagana á tón-
leikaferð. Árstíðir spilar melód-
ískt indípopp með rödduðum söng
og vakti fyrsta plata sveitarinnar
mikla athygli. Fékk hún meðal ann-
ars fjórar stjörnur í plötudómi DV.
Sveitin er nýkomin heim frá Þýska-
landi þar sem hún spilaði á tvennum
tónleikum á Bardentreffen-tónlist-
arhátíðinni og þá er ný plata á leið-
inni sem bandið hefur unnið ásamt
Ólafi Arnalds. Í september er svo
skipulagður tíu borga túr um Rúss-
land en tónlist Árstíða hefur verið
tekið einstaklega vel í Austur-Evr-
ópu.
„Ég er með mína eigin kenningu
hvað það varðar,“ segir Ragnar Ólafs-
son, einn af þremur gítarleikurum
Árstíða. „Vísna- og þjóðlagahefð er
rík í þessum löndum og þar sem við
blöndum þjóðlagastefnu saman við
indí og popp verður þetta bara hitt-
ari þarna. Þetta fer vel í liðið og það
er fólk á öllum aldri sem er að mæta,“
segir Ragnar.
Fann Árstíðir á netinu
„Við lentum í Tékklandi í gær og spil-
uðum í klukkutíma á einum tón-
leikum. Það var alveg kjaftfullur bar
– bar segi ég – en samt var dauða-
þögn á meðan við vorum að spila. Ég
verð alltaf jafnhissa á hversu ógeðs-
lega hrifið fólk er af okkur þarna,“
segir Ragnar um fyrstu tónleika Árs-
tíða í Prag en auk þess að spila í Tékk-
landi mun sveitin spila í Austurríki.
En hvernig kom til þessi áhugi Rúss-
lands og Austur-Evrópu á Árstíðum?
„Það kom til af tilviljun. Það var
kona sem var að skipuleggja tón-
leikafestival og hún vildi fá eitt band
frá Íslandi. Hún fór að skoða heima-
síðu ÍMX og leist vel á okkur. Hún
hafði samband og bað okkur um að
koma og spila. Svo bauð hún okkur
að búa til túr í kringum það ferða-
lag og þá fórum við á Rússlandstúr
í fyrra. Viðtökurnar voru svo rosa-
legar að það seldist meðal annars
upp á tónleika í Pétursborg. Þeg-
ar við mættum var meira að segja
aðdáendaklúbbur Árstíða mættur
og tók á móti okkur. Eftir þetta ákvað
þessi kona að gerast umboðsmaður
okkar en hún hefur áratugareynslu
í bransanum. Það má því segja að
Rússland hafi fundið okkur. Okkur
hefði aldrei dottið í hug að leita inn
á þennan markað,“ segir Ragnar og
bætir við að túrinn sé að gefa vel af
sér peningalega en bæði séu tónleik-
arnir vel sóttir og þeir séu að selja
mikið af diskum.
byrjuðu sem trúbadorar
Árstíðir voru stofnaðar árið 2008
þegar Ragnar og hinir tveir gítarleik-
ararnir í bandinu, Daníel og Gunnar
Már, færðu út kvíarnar eftir að hafa
verið að spila sem trúbadorar.
„Við vorum að spila á börum bæj-
arins og radda lögin. Eftir það fórum
við að semja tónlist saman og það
gekk vel. Frá því að bandið var stofn-
að hafa bæst við þrír meðlimir og það
hefur tekið miklum breytingum. Við
fórum í einhverja átt sem við reikn-
uðum aldrei með að fara í en það hitti
samt í mark einhvern veginn. Tón-
listin er í grunninn bara popptónlist
en með svona indí- og þjóðlagaívafi.
Strákarnir í bandinu hafa verið í alls
konar hljómsveitum, allt frá þunga-
rokki til fönks þannig að þetta er al-
gjör bræðingur,“ segir Ragnar en
fyrsta plata sveitarinnar seldist vel.
„Rússland
fann okkur“
n Hljómsveitin Árstíðir slær í gegn í Austur-Evrópu
n ný plata á leiðinni og risa Rússlandstúr
n Voru að panta þriðja upplagið af fyrri plötunni
n Kalla hljómsveitina litla lýðræðið
Tómas Þór Þórðarson
tomas@dv.is
Tónlist
Gerðu vel í Þýskalandi Árstíðir spiluðu á
hátíð í Nürnberg fyrr í mánuðinum.
Vel tekið Gítarleikari hljómsveitarinnar segir henni vel tekið alls staðar.
Úlfurinn á heimavelli
n Tónlistarhátíðin Gæran fer fram á Sauðárkróki um helgina
T
ónlistarhátíðin Gæran verð-
ur haldin á Sauðárkróki um
helgina en þetta er í annað
skipti sem hún fer fram. Fjöldi
frábærra listamanna verður mættur í
húsnæði Loðskinns þar sem hátíðin
fer fram.
Á þriðjudaginn bættust Morðingj-
arnir, Dimma og Lockerbie í annnars
gríðarlega fjölbreyttan og flottan hóp
tónlistarmanna sem munu spila á
hátíðinni. Meðal annarra listamanna
má nefna Blaz Roca, Valdimar, Múg-
sefjun og auðvitað Geirmund Valtýs
en allir ættu að finna eitthvað við sitt
hæfi á Króknum um helgina.
Nýja rapphljómsveitin Úlfur úlfur
mun enda föstudagskvöldið en hún
er afsprengi Bróður Svartúlfs, hljóm-
sveitarinnar sem vann Músíktilraun-
ir í fyrra. Í sveitinni eru rapparinn
Arnar Freyr Traustason og píanó-
leikarinn Helgi Sæmundur Kaldalón
Guðmundsson ásamt nýjum með-
limi, Þorbirni Einari Guðmundssyni.
„Úlfur úlfur var alltaf hliðarverk-
efni okkar Arnars,“ segir Helgi Sæ-
mundur. „Svo þegar Bróðir Svart-
úlfs hætti þá fórum við bara alla leið
í rappið því okkur hafði alltaf meira
langað að spila það á meðan Bróð-
ir Svartúlfs spilaði í raun bara rokk
með rappi yfir,“ segir hann.
Helgin verður sérstök fyrir þá
Arnar og Helga því þeir eru ekki bara
lokaatriðið á föstudeginum heldur
eru þeir einnig frá Sauðárkróki og
verða því á heimavelli. „Við búumst
bara við hinu besta. Í fyrra enduðum
við laugardagskvöldið og það var al-
veg frábært,“ segir Helgi en Úlfur, úlf-
ur hefur nú þegar gefið út fimm lög á
Youtube og meira er á leiðinni.
„Við erum að vinna með Redd
Lights og það er mikið á leiðinni. Ég
held samt að við munum bara gefa
út lögin á netinu og þá frítt,“ seg-
ir píanóleikarinn með langa nafn-
ið, Helgi Sæmundur Kaldalón Guð-
mundsson. tomas@dv.is
Úlfur, úlfur. Arnar Freyr
og Helgi Sæmundur verða
á heimavelli á Gærunni.