Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.2011, Side 48
48 | Lífsstíll 12.–14. ágúst 2011 Helgarblað
Betra kynlíf
ef þú léttist
Ástarlíf of feitra karlmanna batnar
ef þeim tekst að léttast. Þetta kemur
fram í rannsókn sem birtist í The
Journal of Sexual Medicine. Vísinda-
menn við háskólann í Adelaid rann-
sökuðu þrjátíu of þunga menn sem
einnig þjáðust af sykursýki, týpu
tvö. Eftir að hafa sett hópinn á afar
strangt mataræði kom í ljós að þeir
sem léttust um 5% eða meira áttu
auðveldara með að halda reisn auk
þess sem þeir greindu meiri kyn-
lífslöngun. Einnig kom í ljós að þeir
sem léttust áttu síður í erfiðleikum
með þvag. Niðurstöðurnar eru sam-
kvæmar fyrri rannsóknum og sýna
að jákvæðar breytingar á lífsstíl geta
bætt lífskjör.
Vandamál
hans falin
Samkvæmt rannsókn Penn State-
háskólans og háskólans í Iowa skipt-
ir máli hvort vandamálið liggur hjá
karlinum eða konunni þegar hjón
segja sínum nánustu frá frjósemis-
erfiðleikum. Þegar rót vandans ligg-
ur hjá karlmanninum er ólíklegra að
hjónin deili erfiðleikum sínum með
öðrum en ef vandamálið liggur hjá
konunni eru þau bæði duglegri að
segja öðrum frá. Höfundur rann-
sóknarinnar, prófessorinn Keli Ryan
Steuber, telur útskýringuna vera þá
að hjón vilji viðhalda karlmennsku-
ímynd hans á meðan staðalímynd
kvenna sé að vilja eignast börn. Kon-
ur sem ekki vilji börn séu oft álitnar
sjálfselskar og of framadrifnar.
S
amkvæmt nýlegri rannsókn
sem framkvæmd var í há-
skóla í Skotlandi eru konur
sem hafa skarpa, háa hnúða
á eftir vörinni tólf sinnum
líklegri að ná fullnægingu í kynmök-
um eingöngu en konur með flat-
ari efri vör. Rannsóknin var byggð
gögnum um 258 konur á aldrinum
18 til 35 ára en þátttakendur voru
fengnir til að lýsa vörum sínum og
kynlífi. Yfir 95% kvenna í rannsókn-
inni sem skörtuðu kyssilegri efri vör
eða svokölluðum „boga Amors“ eða
„Cupid’s bow“ á ensku, sögðust fá
fullnægingu í kynmökum á með-
an aðeins 60% hnúðalausra kvenna
sögðust fá fullnægingu í samförum.
Stuart Brody, sálfræðiprófess-
or og höfundur rannsóknarinnar,
segir stórar og miklar varir hing-
að til hafa verið tengdar kynlífi og
losta. Að hans sögn ættu konur með
þunnar varir ekki að örvænta. „Þykkt
varanna skiptir ekki máli í þessu
sambandi heldur hnúðarnir á efri
vörinni,“ segir Brody sem er sann-
færður um tengsl milli lögunar vara
og fullnægingar og lætur gagnrýni á
niðurstöðurnar sem vind um eyru
þjóta. Brody þessi er heldur enginn
nýgræðingur þegar kemur að furðu-
legum rannsóknum en 2008 rann-
sakaði hann tengsl milli göngulags
kvenna og fullnægingar. Þar kom
fram að konur sem voru léttar á fæti
væru líklegri til að fá fullnægingu en
þær stirðu. Brady tók hins vegar ekki
með í reikninginn að þær kyssilegu
þykja líklega kynþokkafyllri og lifa
því meira kynlífi.
„Þykkt varanna
skiptir ekki máli í
þessu sambandi heldur
hnúðarnir á efri vörinni.
n Samkvæmt alþjóðlegri rannsókn skipta kossar og knús karlmenn meira máli en konur
K
nús og kúr eru mikilvægir
þættir í langtímasambönd-
um, samkvæmt alþjóð-
legri rannsókn sem birt-
ist í tímaritinu Archives of
Sexual Behavior. Vísindamenn við
háskólann í Indiana skoðuðu sam-
bönd para í Bandaríkjunum, Bras-
ilíu, Þýskalandi, Japan og á Spáni en
öll pörin höfðu verið saman lengur
en í 25 ár. Ýmislegt kom vísinda-
mönnunum á óvart í rannsókninni.
Til að mynda kom í ljós að innileiki
skiptir meira máli fyrir karlmenn en
konur, en konur eru líklegri til að
vera ánægðar með kynlífið.
Rannsóknin er sú fyrsta þar sem
skoðað eru ástar- og kynlífssam-
bönd miðaldra hjóna á alþjóðlega
vísu. „Við heyrum endalausar töl-
ur af skilnuðum en í rauninni eru
meira en 50% giftra hjóna í Banda-
ríkjunum í sínu fyrsta hjónabandi
og talan fer upp yfir 90% á Spáni,“
segir dr. Julia Heiman sem vann að
rannsókninni.
Hraustir karlmenn mældust
hamingjusamari í samböndum
sínum en aðrir karlmenn og einnig
kom í ljós að það skiptir miðaldra
karlmenn miklu máli að geta full-
nægt maka sínum kynferðislega.
Bæði kynin mældust hamingju-
samari eftir því sem þau höfðu ver-
ið í lengri samböndum.
Japönsk hjón mældust þau
hamingjusömustu en spænsk hjón
þau óhamingjusömustu. Einnig
kom í ljós að þeir karlmenn sem
höfðu átt marga bólfélaga yfir æv-
ina mældust síst ánægðir með ást-
arlíf sitt.
Karlmenn vilja kúra
Miðaldra hjón Þau
hjón sem höfðu verið
lengi saman mældust
hamingjusamari en
þau hjón sem höfðu
verið skemmri tíma
saman.
n Umdeildur skoskur sálfræðiprófessor
segir tengsl milli lögun efri varar og
möguleika kvenna til að fá fullnægingu
Kyssileg Kate
Fyrirsætan Kate
Moss er með afar
háa hnúða á efri
vörinni. Sam-
kvæmt rannsókn
Brodys á hún
auðvelt með að
fá kynferðislega
fullnægingu.
Færðu það
eins og
Rihanna?
Bogi Amors
Ert þú með
fallega efri
vör með háum
hnúðum líkt
og söngkonan
Rihanna?
Engir hnúðar
Fallegar varir
leikkonunnar
Juliu Roberts eru
dæmi um flata
efri vör.
Kidman Líkt
og Roberts er
leikkonan fagra
Nicole Kidman
með slétta efri
vör og ætti því,
samkvæmt
fræðum Stuarts
Brody, að eiga
erfiðara með að
ná fullnægingu
í kynmökum en
t.d. fyrirsætan
Kate Moss.
Hálsfesti sem
róar fóstrið
Margar verðandi mæður bera síða
hálsfesti sem kallast bola en siður-
inn er upprunninn frá Mexíkó. Bolur
koma af ýmsum gerðum og stærð-
um en oftast er um að ræða fallega
málmkúlu á langri festi sem stað-
sett á bumbunni. Flestir sérfræð-
ingar telja að fóstur heyri hljóð úr
umhverfi móðurinnar eftir 20. viku
en bolan myndar fallegan óm sem
veitir róandi áhrif. Einnig er hægt að
nota boluna áfram eftir að barnið er
fætt og segja sumir að hún hjálpi til
við brjóstagjöfina.