Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.2011, Side 54
54 | Sport 12.–14. ágúst 2011 Helgarblað
Enska úrvalsdeildin fer af stað um
helgina og næstu níu mánuðina verður
þessi besta knattspyrnudeild heims á
milli tannanna á landsmönnum. Leik-
menn hafa gengið kaupum og sölum, ný
lið eru mætt með spennandi leikmenn
og aldrei hafa fleiri lið gert tilkall til titils-
ins. Ef spá DV rætist verður Manchester
United þó meistari í tuttugasta sinn.
Ef að spá DV rætist verður titillinn áfram á
Old Trafford og vinnur liðið titilinn í tuttug-
asta skipti. Liðið hefur virst vera í fanta-
formi á undirbúningstímabilinu og skólaði
nágranna sína í City til í leiknum um Sam-
félagsskjöldinn fyrir viku. Markvarðarstaðan
gæti orðið vandamál sem og miðjuspilið nái
United ekki að landa Wesley Sneijder. En að
sama skapi er breiddin mikil og fleiri ungir
strákar eru orðnir hungraðir í árangur. Svo er
Manchester United alltaf með gamla kallinn
Ferguson á hliðarlínunni og það er meira en
hin liðin geta sagt.
1. Manchester United
Þjálfari: Sir Alex Ferguson.
Sæti í fyrra: 1.
Komnir: David de Gea frá Atletico Madrid,
Ashley Young frá Aston Villa, Phil Jones frá
Blackburn.
Farnir: Gabriel Obertan til Newcastle, John
O’Shea til Sunderland, Wes Brown til Sunderland,
Owen Hargreaves fékk ekki samning, Edvin Van
der Sar hættur, Paul Scholes hættur, Bébé til
Besiktas.
2. Manchester City
Þjálfari: Roberto Mancini.
Sæti í fyrra: 3.
Komnir: Sergio Aguero frá Atletico Madrid,
Stefan Savic frá Partizan, Costel Pantilimon frá
Timisoara, Gael Clichy frá Arsenal.
Farnir: Michael Johnson til Leicester, Jo til
Internacional, Shay Given til Aston Villa, Jerome
Boateng til FC Bayern, Patrick Viera hættur.
City gerði vel í fyrra þrátt fyrir að vera ekki alltaf
skemmtilegasta lið í heimi. Það hefur bætt við sig
öðrum frábærum framherja með Sergio Aguero
og hópurinn er árinu reyndari og væntanlega
samrýndari. Það virðist sem svo að City muni
halda Carlos Tevez en hann var algjör lykilmaður
í fyrra og einn besti leikmaður úrvalsdeildarinnar.
City-liðið er orðið nægilega gott til að taka
auðveldu stigin þrátt fyrir að vera ekki að spila vel
og er alltaf óhræddara í stóru leikjunum. Það mun
fleyta liðinu mjög langt en spurning er þó hvernig
þátttaka í Meistaradeildinni kemur við liðið.
Á meðan Chelsea hefur legið í dvala á leik-
mannamarkaðnum hefur kóngurinn Kenny
verið með veskið á loftið og keypt flotta
leikmenn til Liverpool. Hópurinn lítur töluvert
betur út en í fyrra og það sást undir lok
síðasta tímabils hversu mikinn neista Kenny
kveikti í mönnum. Ef Steven Gerrard verður
ekki áfram skugginn af sjálfum sér, smá
heppni fellur með Liverpool og menn haldast
heilir getur liðið blandað sér í toppbaráttuna.
Ljóst er þó að það eru mun bjartari tímar fram
undan á Anfield en á sama tíma í fyrra.
5. Arsenal
Þjálfari: Arsene Wenger.
Sæti í fyrra: 4.
Komnir: Alex Oxlade-
Chamberlain frá
Southampton, Gervinho
frá Lille, Carl Jenkinson
frá Charlton.
Farnir: Denilson til
Sau Paulo, Gael Clichy til
Man. City, Jens Lehmann
hættur.
„Arsenal spilar besta
boltann á Englandi,“ er
orðin einhver allra þreytt-
asta lumman í boltanum.
Sex ár án titla segir það sem
segja þarf og enn og aftur þráast
Wenger við að kaupa leikmenn til
liðsins sem hafa sannað sig. Karl-
menn sem kunna að vinna. Að
sama skapi virðast tveir af bestu
leikmönnum liðsins á förum,
bara svona til að gera stuðnings-
mennina enn reiðari. Það er farið
að hitna undir Wenger, það skal
enginn horfa fram hjá því. Það
er eins gott að hann fari á flug
með veskið nú í ágúst ef og þegar
Fabregas verður seldur. Annars
gæti farið enn verr.
3. Chelsea
Þjálfari: Andre Villas-Boas.
Sæti í fyrra: 2.
Komnir: Romelu Lukaku frá Anderlecht,
Oriol Romeu frá Barcelona, Lucas Piazon frá
Sao Paulo.
Farnir: Yuri Zhirkov til Anzhi Makhachkala.
DV hefur mikla trú á nýja stjóranum hjá
Chelsea og svo virðist sem leikmenn hafi
tekið Villas-Boas fagnandi þrátt fyrir að
sumir leikmenn séu eldri en hann. Villas-
Boas vill flotta knattspyrnu og Chelsea
hefur svo sannarlega mannskapinn til að
framfylgja þeim plönum. Gallinn hefur
þó verið að liðið hefur ekki verið nægi-
lega mikið endurnýjað og sumir leikmenn
eru því miður með áskrift að sæti sínu í
liðinu. Villas-Boas hefur oft lítið gert á
leikmannamarkaðinum og er því hætta á
stöðnun. Hópurinn er samt sem áður það
góður að Chelsea verður alltaf í titilbaráttu.
7. Sunderland
Þjálfari: Steve Bruce.
Sæti í fyrra: 10.
Komnir: John O’Shea frá Man.
United, Wes Brown frá Man. Uni-
ted, Connor Wickham frá Ipswich,
Craig Gardner frá Birmingham,
Dong-Won Ji frá Chunnam
Dragons, Kieran Westwood frá
Coventry, Sebastian Larson frá
Birmingham, Ahmed Elmoham-
ady frá Enppi.
Farnir: Steed Malbranque
til ASSE, John Mensah til Lyon,
Jordan Henderson til Liverpool,
Zenden fékk ekki samning.
Það er til nóg af peningum hjá
Sunderland og þar nota menn
þá til að versla. Sunderland var
orðið ævintýralega fáliðað undir
lok síðasta tímabils þegar hver
leikmaðurinn á fætur öðrum
meiddist. Nú á að sjá til þess að
það gerist ekki aftur og hefur nóg
verið verslað. Kaupin á United-
mönnunum O’Shea og Brown eru
einstaklega klók. Bruce er þar að
fá menn inn sem kunna að vinna
og geta smitað út frá sér. Fyrir
utan að þeir eru báðir hörku-
varnarmenn. Connor Wickham
er líka spennandi leikmaður og
loks virðist Sunderland-liðið
nægilega vel mannað til að gera
eitthvað af viti.
4. Liverpool
Þjálfari: Kenny Dalglish.
Sæti í fyrra: 6.
Komnir: Doni frá Roma,
Stewart Downing frá
Aston Villa, Charlie Adam
frá Blackpool, Jordan
Henderson frá Sunderland.
Farnir: Milan Jovanovic
til Anderlecht, Paul
Konchesky til Leicester.
Þrátt fyrir digra sjóði hefur sumar
Tottenham meira snúist um að halda
Luka Modric frá Chelsea en að kaupa
leikmenn. Það sést líka á kaupunum
sem eru ein: Fertugur markvörður
er genginn í raðir Tottenham.
Liðið ætlaði sér að koma sér aftur í
meistaradeildina í ár en það er ekki
hægt séu ekki keyptir sterkir leik-
menn. Redknapp hefur verið þekktur
fyrir að gera góð kaup á lokadegi eins
og sást með Van der Vaart í fyrra.
Tottenham tekur ekki skref fram á við
nema að kaupa betri leikmenn. Því
þurfa menn að átta sig á.
6. Tottenham
Þjálfari: Harry Redknapp.
Sæti í fyrra: 5.
Komnir: Brad Friedel frá Aston Villa.
Farnir: Jamie O’Hara til Úlfanna,
Kyle Naughton til Norwich, Jonathan
Woodgate til Stoke.
Titillinn
fer hvergi