Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.2011, Síða 55
Sport | 55Helgarblað 12.–14. ágúst 2011
9. Stoke
Þjálfari: Tony Pulis.
Sæti í fyrra: 13.
Komnir: Matthew Upson frá West
Ham, Daniel Bachmann frá AKA Austria,
Jonathan Woodgate frá Tottenham.
Farnir: Eiður Smári Guðjohnsen til AEK.
Íslendingahatarinn Tony Pulis lætur lið
sitt ekki spila skemmtilegasta boltann
en guð minn almáttugur hvað hann
er árangursríkur. Bikarúrslit í fyrra og
Evrópukeppni. Leikmenn Stoke vita
nákvæmlega hvað þeir eiga að gera,
þeir mæta inn á völlinn og eru tilbúnir
að berjast til síðasta blóðdropa, alltaf.
Pulis hefur verið að styrkja liðið með
leikmönnum sem ekki hafa átt góða tíma
síðastliðin misseri eins og Woodgate og
Upson. Þá er spurning hversu mikil áhrif
þátttaka í Evrópudeildinni mun hafa á
liðið.
8. Everton
Þjálfari: David Moyes.
Sæti í fyrra: 7.
Komnir: Enginn.
Farnir: James Vaughan til
Norwich.
Enn og aftur fær greyið David
Moyes enga fjármuni þrátt
fyrir að vera búinn að vinna
kraftaverk með Everton-
liðið ár eftir ár. Maður hlýtur
að spyrja sig ef hann fengi
ekki nema helminginn af því
sem til dæmis Tottenham
hefur eytt á undanförnum
árum hvort Everton væri
ekki hreinlega fastagestur
í Meistaradeildinni. Þrátt
fyrir að fá aldrei leikmenn
er trúin mikil á Moyes sem
er snillingur að sjóða saman
eitthvað úr engu. Því hanga
þeir bláu alltaf í og við
Evrópusætin en það vantar
leikmenn! Strax!
Roy Hodgson gerði undraverða hluti með WBA-
liðið í fyrra. Bjargaði því ekki bara frá falli heldur
stýrði því upp í miðja deild. Hann er snillingur
að stýra minni klúbbum og hefur verið skyn-
samur á leikmannamarkaðinum. Mikið hefur
verið verslað með markverði en kaupin á Shane
Long frá Reading eru gríðarlega áhugaverð. Þar
fer leikmaður sem er fljótur, áræðinn og mikill
markaskorari.
11. Bolton
Þjálfari: Owen Coyle.
Sæti í fyrra: 14.
Komnir: Chris Eagles frá Burnley, Tyrone
Mears frá Burnley, Nigel Reo-Coker frá Aston
Villa, Darren Pratley frá Swansea.
Farnir: Matthew Taylor til West Ham,
Ali Al-Habsi til Wigan, Johan Elmander
til Galatasaray, Jlloyd Samuel til Cardiff,
Joey O’Brien til West Ham, Tamir Cohen til
Maccabi Haifa.
Það ætti kannski að spá Bolton neðar. En
Owen Coyle er bara með svo flotta sýn á
hlutina og mikill baráttujaxl. Kaup og sölur
hafa ekki verið neitt ótrúlega sterkar þótt
Chris Eagles sé leikmaður sem fróðlegt
verður að sjá aftur í úrvalsdeildinni. Slatta
af rusli hefur verið sópað út en þó var vont
fyrir Bolton að missa Johan Elmander.
Grétar Rafn Steinsson er kominn með
samkeppni í hægri bakvörðinn frá Tyrone
Mears sem reyndar meiddist illa um daginn.
Grétar ætti því að eiga stöðuna.
12. Fulham
Þjálfari: Martin Jol.
Sæti í fyrra: 8.
Komnir: Pajtim Kasami frá Palermo, Marcel
Gecov frá Slovan Liberec, John Arne Riise frá
Roma, Csaba Somogyi frá Rakospalota, Dan
Burn frá Darlington.
Farnir: Jonathan Greening til Nottingham
Forest, Zoltan Gera til WBA, Diomansy
Kamara til Leicester, John Paintsil til Leicester.
Martin Jol er kominn aftur í enska boltann og
er aftur að stýra liði í Lundúnum sem spilar í
hvítum búningum. Núna er það aftur á móti
Fulham en ekki Tottenham. Lítið hefur verið
gert með leikmannahópinn sem er þó nokkuð
sterkur og Craven Cottage hefur verið einn
erfiðasti heimavöllurinn undanfarin ár. Það
hefur þó lengi vantað fleiri afgerandi leik-
menn í Fulham-liðið en góðu fréttirnar eru þó
þær að Bobby Zamora er heill og hefur verið
ferskur á undirbúningstímabilinu.
13. QPR
Þjálfari: Neil Warnock.
Sæti í fyrra: 1. (B-deild)
Komnir: D.J. Campbell frá
Blackpool, Danny Gabbidon
frá West Ham, Jay Bothroyd frá
Cardiff, Kieron Dyer frá West Ham.
Farnir: Pascal Chimbonda til
Blackburn.
DV ætlar að spá því að QPR verði spútnikliðið í ár.
Neil Warnock er stjóri af gamla skólanum en hann
kann svo sannarlega að setja saman lið og mynda
stemningu. Það getur líka myndast ótrúlegt
andrúmsloft á Loftus Road, heimavelli QPR, og
verður það vígi QPR í ár. Það virðist sem svo að
liðið haldi líka sínum besta manni frá því á síðasta
tímabili, Adel Taaarabt, í það minnsta fram að
jólum. Það eitt gæti skilað liðinu helling af stigum
en Taarabt gjörsamlega rúllaði yfir Championship-
deildina í fyrra.
14. Newcastle
Þjálfari: Alan Pardew.
Sæti í fyrra: 12.
Komnir: Gabriel Obertan frá
Manchester United, Sylvain Marveaux
frá Rennes, Demba Ba frá West Ham,
Yohan Cabaye frá Lille, Mehdi Abeid
frá Lens.
Farnir: Kevin Nolan til West Ham,
Kazenga LuaLua til Brighton.
Blackburn gerði vel í að bjarga sér í
fyrra en tímabilið núna verður heldur
enginn dans á rósum. Liðið er illa
mannað og þótt skoskur landsliðs-
maður með ótrúlega fyndið nafn
hafi verið keyptur er hann algjörlega
óreyndur í bestu deild í heimi. Þótt DV
spái því að Blackburn hangi áfram í
deildinni verður það aðeins á bláþræði
og lítið má fara úrskeiðis ætli strák-
arnir í Blackburn ekki að kveðja þessa
deild á ný.
Gulu og grænu kanarífuglarnir eru komnir aftur
upp en Skotinn Paul Lambert hefur unnið algjört
kraftaverk með liðið síðan hann tók við því fyrir
tveimur árum. Hann tók við því í 1. deildinni og vann
hana á fyrsta ári. Svo í fyrra kom hann liðinu upp í
úrvalsdeildina í fyrstu tilraun. Lambert er fyrrverandi
atvinnumaður og vann meðal annars Meistara-
deildina með Dortmund árið 1997. Lítið er til af
peningum hjá Norwich og anga kaupin af liði sem
er að fara að falla. Það verður líka raunin, sama
hversu mikill kraftaverkamaður Paul Lambert er.
20. Norwich
Þjálfari: Paul Lambert.
Sæti í fyrra: 2. (B-deild).
Komnir: Kyle Naughton frá Tottenham,
Anthony Pilkington frá Huddersfield, Bradley
Johnson frá Leeds, Elliott Bennett frá Brighton,
James Vaughan frá Everton, Ritchie de Laet
frá Manchester United á láni, Steve Morison frá
Millwall.
Farnir: Rob Edwards til Barnsley,
19. Swansea
Þjálfari: Brendan Rodgers.
Sæti í fyrra: Upp í gegnum umspil.
Komnir: Wayne Routledge frá Newcastle,
Leroy Lita frá Middlesbrough, Jose Moreira frá
Benfica, Danny Graham frá Watford.
Farnir: Enginn.
Newcastle er að fara inn í tímabilið í
miðju rifrildi við Joey Barton sem var
rekinn um daginn en er nú byrjaður að
æfa aftur. Alan Pardew hefur gert ágætis
kaup í Sylvain Marveaux og Demba Ba en
stórt spurningamerki má setja við kaupin
á Gabriel Obertan. Með fleiri leikjum gæti
hann þó þroskast í flottan fótbolta-
mann. Newcastle er með einn flottasta
heimavöllinn í deildinni og dyggustu og
háværustu stuðningsmennina. Þeir þurfa
að láta vel í sér heyra í ár.
Úlfarnir björguðu sér á ævintýrlegan hátt í fyrra
og sluppu þar við fall á öðru ári í deildinni. Þeir
appelsínugulu horfa nú fram á veginn og hafa
styrkt sveit sína meðal annars með miðverð-
inum Roger Johnson frá Birmingham sem meðal
annars Arsenal hafði lengi horft til. Úlfarnir geta
verið engum líkir og berjast til síðasta flauts.
Það hefur haldið þeim á floti í deildinni þannig
að haldi menn að þeir séu orðnir eitthvað svalir,
fastagestir í úrvalsdeildinni getur farið mjög
illa. Úlfarnir eru baráttan ein og hún verður að
haldast.
15. Úlfarnir
Þjálfari: Mick McCarthy.
Sæti í fyrra: 17.
Komnir: Roger Johnson frá Birmingham,
Dorus di Vries frá Swansea, Jamie O’Hara frá
Tottenham.
Farnir: David Jones til Wigan, Michael
Mancienne til Hamburg SV.
Það er eins og Aston Villa hafi gjörsamlega
engan metnað til að gera eitt né neitt. Að
liðið hafi endað í níunda sæti í fyrra er í
raun ótrúlegt því þegar tímabilinu var að
ljúka var liðið að falla. Enn og aftur hafa
skærustu stjörnur liðsins verið seldar en
bæði Downing og Young eru farnir. Charles
N’Zogbia eru góð kaup en hann getur ekki
gert neitt einn. Eins verður flott að sjá
Shay Given aftur á milli stanganna en Villa
lyktar af metnaðarleysi og það mun skína í
gegn hjá leikmönnum liðsins.
16. Aston Villa
Þjálfari: Alex McLeish.
Sæti í fyrra: 9.
Komnir: Charles N’Zogbia frá Wigan,
Shay Given frá Manchester City.
Farnir: Stewart Downing til Liverpool,
Ashley Young til Man. United, Brad Friedel
til Tottenham, Nigel Reo-Coker til Bolton,
Isaiah Osbourne til Hibernian.
Eins og segir í auglýsingunni: Ef Wigan gat haldið sér uppi í fyrra með þennan mannskap
er allt hægt. Það ætti í raun að gera kvikmynd um tímabil Wigan í fyrra svo ótrúlegt er
að þetta skelfilega lið hafi haldið sér í deildinni. Og það besta – eða versta – er að eigin-
lega öllum í bænum var sama. Áhuginn er sama og enginn og völlurinn ekki einu sinni
fullur þegar stórliðin koma í heimsókn. Nú er N’Zogbia farinn og David Jones er ekki að
fara að bjarga málunum. Töfrar Roberto Martinez duga ekki til að bjarga þessu liði.
18. Wigan
Þjálfari: Roberto Martinez.
Sæti í fyrra: 16.
Komnir: David Jones frá Úlf-
unum, Ali Al-Habsi frá Bolton.
Farnir: Charles N’Zogbia til
Aston Villa, Jason Koumas
til Cardiff, Steven Caldwell til
Birmingham.
17. Blackburn
Þjálfari: Steve Kean.
Sæti í fyrra: 15.
Komnir: Radosav Petrovic frá
Partizan Belgrad, David Goodwillie frá
Dundee United, Mariano Pavone frá
Riber Plate, Myles Anderon frá Leyton.
Farnir: Jermaine Jones til Schalke,
Phil Jones til Man. United.
10. WBA
Þjálfari: Roy Hodgson.
Sæti í fyrra: 11.
Komnir: Márton Fülöp frá Ipswich, Ben Foster
frá Birmingham, Zoltan Gera frá Fulham, Shane
Long frá Reading.
Farnir: Scott Carson til Bursaspor, Boaz Myhill
til Birmingham, Abdoulaye Meïté til Dijon.
Swansea mun heilla marga í ár með skemmti-
legri spilamennsku en þjálfarinn Brendan
Rodgers vill að sínir menn spili boltanum og
skori mörk. Því miður er leikmannahópurinn hjá
þessu fyrsta velska liði til að spila í úrvals-
deildinni ekki nægilega sterkur til að hanga
uppi. Það gæti vel verið að Swansea fari vel af
stað en þegar fer að líða á tímabilið fara fleiri
og fleiri leikir að tapast. Þessu ævintýri lýkur
fljótt.