Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2011, Qupperneq 12
Ö
gmundur Jónasson innan-
ríkisráðherra og æðsti yfir-
maður dóms- og lögreglu-
mála í landinu, verður ekki
viðstaddur setningu Alþing-
is á laugardagsmorgun. Ögmundur
hefur verið á ferðalagi erlendis und-
anfarna daga og hefur ekki svarað
fyrirspurn DV um málið. Úr innan-
ríkisráðuneytinu fengust hins vegar
þær upplýsingar að Ögmundur mæti
ekki á setninguna þar sem hann er í
útlöndum.
Skýtur skökku við
Það vekur óhjákvæmilega undrun
að ráðherrann skuli vera fjarver-
andi setningu sama þings og lög-
reglan neitar að standa heiðursvörð
við og hreinlega þarf að skikka lög-
reglumenn til að vinna á Austurvelli
þennan daginn vegna kjarabaráttu
þeirra. Engar ástæður eru hins vegar
gefnar upp fyrir því hvers vegna Ög-
mundur sér sér ekki fært að vera við-
staddur setninguna.
Samkvæmt upplýsingum DV er
Ögmundur í Mexíkó á ráðstefnu um
samgöngumál. Snorri Magnússon,
formaður Landssambands lögreglu-
manna, segir það vissulega skjóta
skökku við að Ögmundur skuli ekki
vera viðstaddur á þessum tíma, það
hafi legið fyrir áður en hann fór út
að ólga í röðum lögreglumanna væri
mikil og að menn hafi gert breytingar
á áformum sínum. Hins vegar kunni
ráðstefnan að vera mikilvæg.
Samkvæmt heimildum DV er bú-
ist við því að allnokkur forföll verði
við þingsetninguna á meðal þing-
manna. Þannig mun Sigmundur
Ernir Rúnarsson hafa sagst vera önn-
um kafinn við verkefni í kjördæmi
sínu á laugardaginn og geta því ekki
verið viðstaddur. Heimildir eru fyrir
því að margir þingmenn séu á sömu
braut og Sigmundur Ernir, þeir hafi
reynt að finna sér ástæður til að vera
ekki viðstaddir. Allt upp í 50 prósent
þingmanna kunni að verða fjarver-
andi á laugadag. Afar sjaldgæft er að
þingmenn láti ekki setningu Alþingis
ganga fyrir í störfum sínum.
Lýsir ástandinu
Margrét Tryggvadóttir, þingkona
Hreyfingarinnar, er ein þeirra sem
hafa gagnrýnt harðlega andrúms-
loftið á Alþingi. Í samtali við DV segir
hún það lýsandi fyrir ástandið í land-
inu ef stjórnvöld og stjórnmálamenn
eru á flótta undan almenningi. „Mér
finnst mestu máli skipta að þetta er
kjánaleg athöfn og það líður eng-
um vel undir þessu. Gæsagangur-
inn með heiðursvörð lögreglunnar
og að hann verður ekki á staðnum
heldur komi óeirðalögregla í staðinn
og að sama skapi komi upp mál þar
sem lögreglan fer ekki eftir lögum.
Það líka að stjórnvöld og stjórnmála-
menn séu á flótta undan almenningi.
Þetta lýsir ástandinu í landinu í hnot-
skurn. Stjórnvöld hafa ekkert traust
og það er enn minna traust á stjórn-
arandstöðuna vegna þess hvernig
hún hefur hagað sér að undanförnu.
Það er ekki talað við fólk og það er
ekki verið að hlusta á fólk,“ segir Mar-
grét.
Biskup mætir ekki
Áður hafði Karl Sigurbjörnsson, bisk-
up Íslands, boðað forföll á setningu
Alþingis, en haft var eftir Ragnheiði
Ríkharðsdóttur, varaforseta Alþing-
is, á vefmiðlinum Smugunni að ekki
væri vitað um ástæðuna en sam-
kvæmt Biskupsstofu verður hann lík-
lega staddur í Niðarósi um helgina.
Í hans stað kemur Jón Aðalsteinn
Baldvinsson, vígslubiskup á Hólum.
Nánast samfellt frá árinu 1845 hefur
biskup verið viðstaddur þingsetn-
ingu. Mögulegt er að einhvern tíma á
þessum 166 árum hafi biskup forfall-
ast vegna veikinda.
Áður höfðu þingmenn Hreyfing-
arinnar mótmælt því að biskupinn
ætti að leiða þingmenn frá Dóm-
kirkjunni og inn í sali Alþingis. Það
þætti hreinlega óviðeigandi og ekki
síst í ljósi viðbragða biskupsins við
kynferðisbrotamálum Ólafs Skúla-
sonar.
12 | Fréttir 30. september–2. október 2011 Helgarblað
Ú T S A L A
17,6
kw/h
Hlíðasmára 13, Kóp - S. 554 0400
FULLT VERÐ
106.000
74.900
YFIR 30 GERÐIR
GASGRILLA
Á ÚTSÖLUNNI
13,2
kw/h
FULLT VERÐ
59.900
39.900
Grill sem endast
FULLT VERÐ
139.000
99.900
www.grillbudin.is
Opið laugardag og
sunnudag til kl. 16
„Mér finnst mestu
máli skipta að
þetta er kjánaleg athöfn
og það líður engum vel
undir þessu.
n Yfirmaður lögreglumála tekur ráðstefnu í Mexíkó fram yfir setningu Alþingis n Biskup boðar
forföll n Búist við að margir þingmenn mæti ekki n „Lýsir ástandinu í landinu í hnotskurn“
Valgeir Örn Ragnarsson
blaðamaður skrifar valgeir@dv.is
Ögmundur ekki
við þingsetningu
Fjarverandi Biskupinn fékk óblíðar móttökur
í fyrra og er á ráðstefnu erlendis að þessu sinni.