Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2011, Blaðsíða 15
Fréttir | 15Helgarblað 30. september–2. október 2011
ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA
Eyjarslóð 5 101 Reykjavík
S: 511 2200 www.seglagerdin.is
Opið
Mán - föstudaga 09:00-18:00
Laugardaga 11:00-16:00
Á TJALDVÖGNUM OG FELLIHÝSUMFJÖLDI TILBOÐA Á AUKAHLUTUM
AFSLÁTTUR
500.000,- kr.
af sýningarvögunum
KÍKTU VIÐ OG GERÐU GÓÐ KAUP
TAKMARKAÐ MAGN
AFSLÁTTU
R400.0
00,- kr.
af ÆGIS
VAGNI
20-50%
AFSLÁTTUR AF ÖLLUM AUKAHLUTUM
FortjaldSóltjaldFerðaklósett Grjótgrind Stólar
og borð
-20% -50% -25% -30% -30%
F
leiri fjölskyldur í Hólmavík
hafa lýst óánægju sinni með
vinnubrögð félagsmálastjóra
á Ströndum og í Reykhóla-
hreppi, en DV birti á miðviku-
dag frásögn hjóna sem saka félags-
málastjórann um að hafa gengið fram
með offorsi í starfi. DV hefur heimild-
ir fyrir því að Hildur Jakobína Gísla-
dóttir, félagsmálastjóri, hafi í tveimur
tilvikum rætt við ung börn án vitund-
ar foreldra þeirra og í einu tilfelli tek-
ið sjö ára stúlku úr skóla og farið með
hana til Reykjavíkur í viðtal í Barna-
húsi án vitundar forráðamanns.
Foreldrar ósáttir
Í hinu tilfellinu komust foreldrar að
fyrirætlun Hildar Jakobínu og fengu
að fylgja barni sínu í Barnahús. Sam-
kvæmt heimildum DV leiddu viðtölin
við börnin í Barnahúsi ekki til frekari
aðgerða. Bæði málin voru látin niður
falla en þau snerust um meinta mis-
notkun.
Að sögn starfsmanns Barnahúss er
afar sjaldgæft að börn séu tekin án vit-
undar foreldra í viðtal, en í vissum til-
fellum sé það nauðsynlegt svo ekki sé
hægt að hafa áhrif á framburð barns-
ins. Foreldrar annarrar stúlkunnar
setja spurningarmerki við að félags-
málastjóri megi taka dóttur þeirra á
eintal án þeirra vitundar á skólatíma,
með leyfi skólastjórans, og ræði við
hana um viðkvæm mál sem komu
stúlkunni í uppnám. Engin upptaka
er til af samtali Hildar við stúlkuna og
engin vitni voru að því. Enginn veit
því hvað fór þeim á milli. Stúlkan er
sex ára. Eins og fram kom í frétt DV á
miðvikudag er Hildur Jakobína ekki
með neina fagmenntun á sviði barna-
verndar, en hún er með BA-gráðu í
sálfræði og MBA-gráðu í viðskiptum.
Setti út á göngulag stúlkunnar
Foreldrar stúlkunnar fengu að sjá
greinargerð sem Hildur Jakobína
skrifaði um barnið, þar sem meðal
annars var sett út á göngulag hennar.
Þeim fannst lýsing Hildar ekki sam-
svara raunveruleikanum og skrifuðu
henni bréf og báðu hana um að rök-
styðja það sem kæmi þar fram. Hildur
Jakobína svaraði þeim á þann veg að
lýsing hennar á stúlkunni þyrfti ekki
að endurspegla raunveruleikann.
„Það sem skrifað er í stuttri greinar-
gerð sem þarf að hafa með tilvísunum
í Barnahús er lýsing á því sem ég tók
eftir, fékk að heyra og því sem barn-
ið sagði. Sú lýsing þarf ekkert endi-
lega að spegla raunveruleikann og er
enginn að halda því fram. Þetta skjal
er eingöngu notað í þeim tilgangi að
lýsa aðstæðum og rökstyðja að þörf
sé á að talað verði frekar við barnið.
Það er vinnuskjal sem er ekki notað í
neinum öðrum tilgangi.“
Í sama bréfi skrifar Hildur Jakob-
ína: „Það sem er aðal atriðið þó hér er
að það er mjög gott að ekkert slæmt
kom út úr viðtalinu í Barnahúsi og
málinu er því lokið af hálfu barna-
verndaryfirvalda. Vonandi gengur allt
vel í framtíðinni hjá ykkur og ég ítreka
boð mitt um að veita ykkur sálfræði-
aðstoð vegna reiði ykkar í garð skól-
ans og barnaverndaryfirvalda.“
Samkvæmt heimildum DV hafa for-
eldar á Hólmavík íhugað að fara af stað
með undirskriftasöfnun til að mót-
mæla vinnubrögðum félagsmálastjóra
sem og skólastjóra grunnskólans.
Fleiri foreldrar
ósáttir á Hólmavík
n Fleiri fjölskyldur á Hólmavík ósáttar við félagsmálastjóra n Barn fært til Reykjavíkur án vitundar foreldra
Hanna Ólafsdóttir
blaðamaður skrifar hanna@dv.is
Hólmavík Óánægja er meðal nokkurra
foreldra með störf félagsmálastjóra á
Ströndum og í Reykhólahreppi.